Dagur - 18.11.1988, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 18. nóvember 1988
viðtal dagsins
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á NIÁNUÐI
LAUSASÓLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (iþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASI'MI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Umskipti á
viimumarkaði
Mikil umskipti hafa orðið á vinnumarkaðinum
hér á landi á skömmum tíma. Á einu ári hefur
fjöldi skráðra atvinnuleysisdaga ríflega þre-
faldast, úr 4600 í október 1987 í 15.300 í sama
mánuði í ár. Þótt mikil þensla hafi ríkt á
vinnumarkaðinum í fyrrahaust, er ljóst að
atvinnustigið í síðasta mánuði er lakara en í
októbermánuði um árabil. Skráðum atvinnu-
leysisdögum fjölgaði um hvorki meira né
minna en 4.200 daga milli mánaðanna
september/október, eða um 37%. í síðasta
mánuði bárust Vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins tilkynningar um uppsagn-
ir tæplega 600 starfsmanna frá fyrirtækjum
um land allt. Þar með er tala þeirra, sem sagt
hefur verið upp störfum á síðustu fjórum
mánuðum, að nálgast tvö þúsund. Þessar
staðreyndir vitna um þær gífurlegu þrenging-
ar sem atvinnulífið gengur í gegnum um
þessar mundir - þrengingar sem engan veg-
inn verður séð fyrir endann á nú.
Þessi þróun gefur ótvírætt til kynna að
þenslan, sem lengi hefur ríkt í íslensku efna-
hags- og atvinnulífi er óðum að hjaðna.
Umframeftirspurn eftir vinnuafli heyrir sög-
unni til. í kjölfarið fylgir minnkandi launaskrið
og lækkandi verðbólga. Að því leyti er þróun-
in jákvæð. Hins vegar er full ástæða til að hafa
áhyggjur af þessari þróun. Hún er hröð og
umskiptin eru mikil. Enn sem komið er gætir
samdráttarins mest í verslun, þjónustu, ýms-
um greinum iðnaðar og síðast en ekki síst í
fiskvinnslunni. Þessa samdráttar hefur lítið
gætt í verktakastarfsemi og byggingafram-
kvæmdum, en þess er skammt að bíða, ef að
líkum lætur.
Þessi þróun er sérstakt áhyggjuefni fyrir
íbúa Norðurlands eystra. Þar hefur skráðum
atvinnuleysisdögum fjölgað mest. Ástandið
er slæmt í Ólafsfirði og á Húsavík og víða má
búast við að taki að síga á ógæfuhliðina í
þessum efnum. Stjórnvöld þurfa auðvitað að
láta þennan vanda til sín taka, en hann er
ekki síður umhugsunarefni fyrir bæjar- og
sveitarstjórnarmenn. Víða virðast þeir sofa
hálfgerðum Þyrnirósarsvefni og láta lítið til
sín taka við uppbyggingu atvinnumála.
Sérstök ástæða er til að benda Bæjarstjórn
Akureyrar á að ekki er seinna vænna að huga
að stöðu atvinnumála á Akureyri og gera ráð-
stafanir til að sporna við þeim samdrætti sem
fyrirsjánlegur er. BB.
F
Ánægð ungmenni, komin úr kófi eiturlyfja. Frá vinstri: Styrmir, Guðmundur, Ingi, Hildur og Árni. Mynd: tlv
Unglingar og ógnar-
veröld eiturlyfla
- Áfangaheimili Krossins kynnt
Krossinn, kristilegur söfnuður,
rekur Áfangaheimilið á Álf-
hólsvegi 32 í Kópavogi, en það
er heimili fyrir unglinga sem
lent hafa í helgreipum áfengis
og eiturlyfja. Fimm ungmenni
úr þessum söfnuði komu í
heimsókn til okkar, en þau eru
að kynna heimilið og jafnframt
bækur, snældur og plötur sem
Krossinn gefur út. Þetta er
einnig trúboðsferð. Guðmund-
ur Haraldsson er í forsvari fyrir
hópnum.
- Segðu mér fyrst frá þessu
heimili. Geta unglingar frá land-
inu öllu leitað þangað?
„Já, þarna hafa verið krakkar
frá Akranesi, Selfossi og Seyðis-
firði, svo einhverjir staðir séu
nefndir, en aðallega koma þeir
frá Suðvesturlandinu. Fólksfjöld-
in er þar meiri og meira ber á
vandamálunum. Það eru ailir
velkomnir inn sem vilja koma.
Við vísum engum á dyr, heldur
skoðum mál hvers og eins.“
- Hefur einhver leitað til ykk-
ar frá Akureyri?
„Ekki inn á heimilið, en það
kom til okkar manneskja frá
Akureyri sem var í eiturlyfjum
og áfengi. Nú í dag er hún á
Akureyri, hún er búin að taka á
móti lífinu með Jesú Kristi og líf
þessarar manneskju er gjör-
breytt. Við báðum mikið fyrir
henni. Þá er í söfnuðinum hjá
okkur önnur manneskja frá
Akureyri, en hún kom ekki úr
heimi eiturlyfjanna."
Trúin bægir
eiturlyfjunum frá
Ekki eru órjúfanleg tengsl milli
eiturlyfja og Krossins, að sögn
Guðmundar og hinna krakk-
anna, en um helmingur safnaðar-
ins er fyrrverandi óreglufólk og
helmingurinn „venjulegt" fólk.
Safnaðarmeðlimir hafa allir
frelsast, notað trúna til að losna
út úr einhvers konar örðugleik-
um. En hver er aðdragandinn að
stofnun Áfangaheimilisins, sem
rekið er í sjálfboðavinnu, og
hvers vegna er hópurinn á þessu
ferðalagi um landið? Guðmund-
ur svarar því:
„Ef ég kynni aðeins hvers
vegna þetta heimili varð til, þá
erum við öll að koma út úr
myrkri eiturlyfja og lágum lífs-
standard. Heimilið í upplausn og
við sjálf tilfinningalega niður-
brotin. Við kynntumst þessum
söfnuði, Krossinum, sem var þá
til húsa á Álfhólsvegi 32. Kross-
inn var þá í mikilli sókn og söfn-
uðurinn sprengdi utan af sér
húsnæðið. Við réðumst í kaup á
öðru húsnæði, vorum búin að
biðja lengi fyrir því, og við gerð-
um það upp í sjálfboðavinnu.
Við veðsettum íbúðir okkar fyrir
þessu nýja húsnæði, þannig að
fólk sér að þetta er ekki gert með
ríkisframlögum. Síðan kom upp
sú hugmynd, sem reyndar hafði
blundað lengi með okkur, að
stofna heimili, vegna þess að fólk
hafði farið í sama farveginn og
það kom úr af því að það var ekki
hægt að taka utan um það. Við
ákváðum að opna þetta heimili í
gamla húsinu og það hefur sýnt
sig að sú ákvörðun var rétt.“
Guðmundur sagði að eftir
nokkra mánuði hefði orðið ljóst
að Krossinn yrði að finna leiðir til
að fjármagna rekstur heimilisins.
Þess vegna var ráðist í eigin
útgáfustarfsemi og söluferð. Einn-
ig vilja þau koma þeim boðskap
til skila sem breytti þeirra eigin
lífi, fagnaðarerindi Jesú Krists.
Barnaefni einkennist
af ofbeldi
„Það efni sem við erum með er
mótvægi við það barnaefni sem
er vinsælast á markaðinum í dag,
en það einkennist af ofbeldi,
hryllingsmyndum og niðurbrots-
starfi í lífi barnsins. Tónlistarvél-
in, sem er snælda fyrir börn, er í
söguformi og jafnframt er sungið
og spilað. Sagan segir frá vél sem
er í landi kærleikans. Þetta land
hefur Guð gefið. í landinu eru
hinar sjö dyggðir mannsins: Trú-
mennska, hógværð, bindindi,
langlyndi, gleði, gæska og
góðvild.“
Krossinn hefur einnig gefið út
bækurnar Pétur postuli og Páll
postuli, í myndformi fyrir börn,
og hljómplötuna Á Krossgötum.
Þar syngja sjö systkini, sem
ásamt móður sinni hafa þýtt og
samið lög og texta. Valinkunnir
kappar úr Mezzoforte annast
hljóðfæraleik. Aðstandendur
plötunnar gáfu allir vinnu sína og
platan er hugsuð sem fjáröflunar-
leið fyrir heimilið.
Áfangaheimilið er einungis
fyrir stráka en söfnuðurinn gerir
sér vonir um að geta tekið stúlkur
inn í framtíðinni, en ekki er talið
æskilegt að karlar og konur séu
saman í hóp þegar leiðin út úr
frumskógi eiturlyfja er farin.
Ekki eru notuð lyf í þessari með-
ferð en unglinguin er gjarnan
bent á meðferð hjá SÁÁ, ef því
er að skipta, en Áfangaheimilið
stendur þeim ávallt opið. Krakk-
arnir voru sammála um að trúin
hefði hjálpað þeim til að losna út
úr ógnarveröldinni og reyndar
hefði Guð tekið frá þeim alla
löngun í brennivín, eiturlyf og
jafnvel kaffi og sígarettur. „Það
fólk, sem trúir á Guð, stendur sig
að meðferð lokinni."
„Fólk um allt land er að vakna
og.taka á móti lífinu með Jesú
Kristi. Ótrúlega mikið af ungu
fólki er að frelsast. Dýrð sé
Guði,“ sagði Guðmundur að lok-
um og þökkum við þessum lífs-
glöðu ungmennum fyrir heim-
sóknina. SS