Dagur - 18.11.1988, Síða 7
18. nóvember 1988 - DAGUR - 7
r
Ðifreiðaútboð
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir t.h. með Ragnheiði Þórsdóttur, vefnaðarkenn
aranum sínum. Mynd: tlv
Nemendur stoltir af framleiðslunni. Frá vinstri, Hjördís Hólm, Steinunn Þorbergsdóttir, Heiða Hólmgeirsdóttir,
Guðrún Kristín Cesar, Helgi Tryggvason, Sigmar Ingólfsson, Margrét Kristinsdóttir kennari, Axel Gunnarsson og
Arnrún Magnúsdóttir. Mynd: tlv
Opið hús hjá VMA
I fyrradag var opið hús á hús-
stjórnarsviði Verkmenntaskói-
ans á Akureyri, í gamla Hús-
mæðraskólanum við Þórunn-
arstræti. Þar voru sýnd verk
nemenda í vefnaði, fatasaumi
og silkimálun; hægt var að
fylgjast með nemendum í þess-
um fögum við vinnu auk þess
sem nemendur í matreiðslu
unnu í eldhúsinu.
Opið hús er árlegur viðburður
á hússtjórnarsviði. Megin til-
gangur með því, er að gefa vænt-
anlegum nemendum VMA og MA
kost á að kynna sér það sem
kennt er þar, áður en farið er út í
að velja sér greinar. Margrét
Áhuginn leynir sér ekki. Mynd: tlv
Kristinsdóttir er brautarstjóri og
sagði hún, að við VMA væri mat-
artæknibraut og af henni útskrifast
sjókokkar eftir eitt ár og að
tveimur árum liðnum útskrifast
matartæknar með réttindi til að
matbúa t.d. sjúkrafæði á sjúkra-
húsum, þeir geta rekið lítil mötu-
neyti o.s.frv. Þessir nemendur
geta síðan bætt við sig tveimur
árum og útskrifast sem stúdentar.
Vefnaður, fatasaumur og silki-
Verk nemenda í silkimálun voru
ótrúlega falleg, en hér er nemandi
við vinnu. Mynd: TLV
málun, eru valgreinar og yfirleitt
vel sóttar. Áhugasömum almenn-
ingi gefst kostur á að taka þátt í
námskeiðunum, að því tilskildu
að nemendur fylli ekki hópana.
í haust var byrjað að kenna
nýtt fag, silkimálun. Nemendur
byrja á því að læra litahringinn,
litablöndun, mynsturgerð og síð-
an málun á silkiefni. Sjá mátti
hina fegurstu hluti nemenda,
klúta, myndir, púða og fleira.
í vefstofu eru 14 vefstólar og til
sýnis voru margvíslegir hlutir
sem framleiða má í slíkum verk-
færum. Dúkar og mottur - fínar
og grófar í öllum litum, stærðum
og gerðum.
Þennan dag voru einnig til sýn-
is verk nemenda í Löngumýrar-
skóla, en þeir læra þarna að
sauma, lita og matreiða. Áhugi
þeirra er mikill eins og sjá mátti á
verkum þeirra.
Fatasaumur er vinsælt fag,
enda er það ákaflega hagnýtt.
Eftir því sem sjá mátti, sauma
nemendur hátískufatnað auk
barnafata, íþróttafatnaðar og
fleira. Það er eins og með silki-
málunina, almenningi gefst kost-
ur á að sækja tíma í vefnaði og
fatasaumi ef nemendur fylla ekki
hópana. í vetur er enginn karl-
maður í þessum fögum, en þeir
hafa oft valið sér þessi fög, sér-
staklega fatasauminn og að sögn,
staðið sig með prýði.
Nemendur 2. bekkjar á mat-
vælabraut voru að hefja vinnu
sína, en þennan dag var verkefn-
ið: „Smáréttir að eigin vali“.
Réttir eins og „Smördeigsumslög
með skinkufyllingu", „Rækju-
baukar“ og „Sveppasalat með
beikoni" voru á matseðlinum
og fengu bragðlaukana heldur
betur til að kippast við. VG
Samvinnutryggingar g.t. Akureyri, óska eftir til-
boðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir
umferðaróhöpp.
1. Chevrolet Monza .. árg. 1988
2. Toyota Tercel . árg. 1984
3. Fiat Uno 45 ... árg. 1986
4. Suzuki St. 90 . árg. 1983
5. Chevrolet Van . árg. 1979
6. Alfa Romeo .... árg. 1986
Bifreiðarnar verða til sýnis, mánudaginn 21. nóv. í
geymsluskemmu við Glerárósa, frá kl. 12.30-15.00.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t. fyrir kl.
16.00 þriðjudaginn 22. nóv. nk.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
Blómasala
Kvenfélagið Freyja verður með blómasölu
á Freyjulundi sunnudaginn 20. nóvember
frá kl. 13.00 og fram eftir degi.
Til sölu verða jólastjörnur, blómstrandi kaktusar
og fleira.
Allur ágóði rennur í orgelsjóð
Möðru vallaklausturskirkju.
Allir velkomnir.
(Kvenfélagskonur! Munið dúkamálun sama dag).
Stjórnin.