Dagur - 18.11.1988, Síða 15
íþróttir
18. nóvember 1988 - DAGUR - 15
Frá hjólaskíðamaraþoni í Reykjavík sl. sumar. Frá vinstri: Baldur Hermannsson, Siglufírði; Sigurgeir Svavarsson,
Ólafsfírði, Rögnvaldur Ingþórsson, ísafírði; Haukur Eiríksson, Akureyri; Ólafur Valsson, Siglufírði og Ólafur
Björnsson, Ólafsfírði, en þeir tveir síðastnefndu hafa æft með landsliðinu.
Ásmundur Arnarsson úr Völsungi
verður í ísrael um jól og áramót.
Mynd: 1M
Skíði:
Gönguskíðalandsliðið í Svíþjóð
Islenska landsliðið í skíða-
göngu er um þessar mundir í
Bruksvallarna í N.-Svíþjóð við
æfingar. Þetta eru þeir Haukur
Eiríksson frá Akureyri, Sig-
urgeir Svavarsson frá Olafs-
firði, Baldur Hermannsson frá
Siglufirði og Rögnvaldur Ing-
þórsson frá ísafirði. Þeir fóru
utan 8. nóvember og koma
heim í lok mánaðarins.
Liðið mun næst fara í keppnis-
ferð til Svíþjóðar og M.-Evrópu í
lok desember og fram í janúar.
Verður m.a. keppt í einu heims-
bikarmóti. Þjálfari liðsins er Sví-
inn Mats Westerlund.
Margir munu minnast hjóla-
skíðamaraþonsins í Reykjavík,
sem liðsmenn tóku sér fyrir hend-
ur sl. sumar. Peningarnir, sem
þar söfnuðust með áheitum koma
nú í góðar þarfir og vill liðið
koma á framfæri kæru þakklæti
til allra þeirra, sem hétu á það.
Nýlega var undirritaður samn-
ingur milli Sportvöruþjónustunn-
ar í Reykjavík og SKÍ um fatnað
handa göngulandsliðinu. Um er
ræða æfinga- og keppnisföt frá
hinu þekkta fyrirtæki Odlo.
Framarar eru áberandi í lands-
liðshópnum og eru fimm piltar
frá þeim í hópnum. Blikarnir og
Skagamenn eiga þrjá hver, en
önnur félög minna.
Annars eru þessir í hópnum:
Ólafur Pétursson ÍBK
Vilberg Sverrisson Fram
Asmundur Arnarsson Völsungi
Axel Vatnsdal Þór
Arnar Grétarsson Breiðabliki
Halldór Kjartansson Breiðabliki
Ásgeir Baldurs Breiðabliki
Ríkharður Daðason Fram
Porsteinn Bender Fram
Steinar Guðgeirsson Fram
Vilhjálmur Vilhjálmss. Fram
Sigurður Sigursteinss. ÍA
Bjarki Gunnlaugsson ÍA
Arnar Gunnlaugsson ÍA
Þráinn Haraldsson Þrótti Nes.
Nökkvi Sveinsson Tý
Pórhallur Jóhannsson Fylki
Friðjón Jónsson segist vona að áhorfendur hafí ekki snúið baki við KA-lið-
inu.
„Loftim betri leik
gegn Framliðinu“
segir Friðjón Jónsson fyrirliði KA
Friðjón Jónsson fyrirliði KA
segir að það þýði ekkert að
hengja haus yfir úrslitunum í
seinasta leik, heldur verði liðið
að rífa'sig upp og taka vel á
móti Frömurum á sunnudags-
kvöldið.
„Við vonum að sjálfsögðu að
áhorfendur bregðist okkur ekki
þrátt fyrir þessi úrslit og mæti á
leikinn gegn Fram á sunnudags-
kvöldið. Á móti lofum við betri
úrslitum og góðum leik af okkar
hálfu.
Ég vil minna á að við töpuðum
fyrir Val með 10 marka mun í
fyrra og gerðum síðan jafntefli
við þá hér heima. Annars er
þetta Valslið feiknasterkt og ég á
ekki von á því að neitt lið geti
veitt þeim keppni í vetur,“ sagði
Friðjón fyrirliði.
Hann sagði að í sjálfu sér væri
4 stig eftir fjóra leiki ekki slæmur
árangur. Fæstir hefðu búist við
stigum gegn FH, Val og KR og
það væri langt því frá að mótið
væri búið. „Næstu leikir eru gegn
liðum sem talin eru á svipuðu
plani og við og það er því mikil-
vægt að hala inn stig gegn þessum
liðum“ sagði fyrirliðinn.
Næstu fjórir leikir KA-liðsins
eru heimaleikir. Á sunndaginn er
það Fram, á miðvikudaginn kem-
ur Stjarnan í heimsókn, miðviku-
daginn 30. eru það Blikarnir hér
fyrir norðan og miðvikudaginn 7.
koma Vestmannaeyingarnir til
Akureyrar.
Knattspyrna:
Ásmundur og Axel
til ísraels
- með unglingalandsliðinu
Ásmundur Arnarsson úr
Völsungi og Axel Vatnsdal úr
Þór halda til ísracls eftir jólin
ásamt félögum sínum úr ungl-
ingalandsliðinu. Þetta er
undirbúningsferð fyrir leiki
næsta árs gcgn írum, Búlgör-
um og Möltubúum.
í—
Blak:
„Ætlum að leggja Þróttarana“
- segir Stefán Magnússon smassari hjá KA
KA og Þróttur leika mikilvæg-
an leik í 1. deildinni í blaki í
kvöld. Stefán Magnússon fyrir-
liði er hæfilega bjartsýnn fyrir
leikinn og segir að áhorfendur
geti ráðið miklu um úrslit.
„Það er viss áhætta sem við
tökum að spila í Höllinni," segir
Stefán. „Við höfum aldrei spilað
þar á stórum velli þannig að
Þróttararnir standa okkur jafn-
fætis, þótt við leikum á heima-
velli.
Margir blakáhugamenn hafa
veigrað sér við það að mæta á
leiki í Glerárskóla vegna slæmrar
aðstöðu fyrir áhorfendur og við
vonum auðvitað að fólk kunni að
meta þetta framtak okkar að færa
leikinn í Höllina og mæti,“ segir
fyrirliðinn.
- En hverju vill Stefán þakka
þennan góða árangur í vetur?
„Það er fyrst og fremst góð
þjálfun undanfarin ár og í vetur
sem nú er að skila sér. Pað munar
líka mikið um að hafa fengið Fei
Stefán Magnússon og félagar hans í
KA-liðinu verða í eldlínunni gegn
Þrótti í kvöld.
og Stefán Jóhannsson í liðið og
eykur þetta til muna breiddina í
liðinu.
Það sést á undanförnum leikj-
um að það hafa alltaf einhverjir
verið meiddir, en það ekki komið
að sök. Ég held að ég geti fullyrt
að ekkert lið í deildinni hefur
jafn mikla breidd og KA og það
kemur sér mjög vel í harðri bar-
áttunni í blakinu."
Allir leikmenn KA eru nú heil-
ir og geta þeir því mætt galvaskir
gegn Þrótti. Leikurinn hjá stúlk-
unum hefst kl. 19.30 og stráka-
leikurinn strax á eftir.
r*
■W
íþróttir
helgarinnar
Þaö er heilmikiö að gerast á
íþróttasviöinu um helgina. í
kvöld er stórleikur í blakinu
er KA-liöin inæta Þrótti,
Rcykjavík. Fyrst leika stúlk-
urnar kl. 19.30 og strákarnir
strax á eftir. Báðir leikirnir
fara fram í íþróttahöllinni.
Handknattlcikspiltarnir í KA
leika við Fram í 1. deildinni
á sunnudagskvöldiö. Á
Húsavík leika heimamenn
við Þrótt í 3. deildinni í
handknattlcik á föstudags-
kvöldiö og svo annan leik á
laugardag.
Það er mikið í húfi fyrir KA
í blakinu. Strákarnir eru efstir
í 1. deildinni og hafa sigrað í
öllum ieikjum sínum hingað
til. Þróttarar eru margfaldir
íslandsmeistarar og hafa ein-
ungis tapað fyrir KA í ár. Það
má því búast við hörku leik í
fþróttahöllinni í kvöld.
Stelpurnar höfðu ekki
heppnina með sér í fyrri leikn-
um gegn Þrótti og ætla sér
sjálfsagt að hefna fyrir tapið í
fyrri umferðinni.
KA ætlar að hrista af
sér slyðruorðið
KA-drengirnir í handboltan-
um hlutu slæman skell á móti
Valsmönnum á miðvikudag-
inn. Þeir eru staðráðnir í því
að láta það ekki koma fyrir
aftur og ætla þeir sér ekkert
annað cn sigur á móti Fram á
sunnudagskvöldið. Nú reynir
á að standa við bakið á strák-
unum og hjálpa þeim að hrista
af sér slyðruorðið.
Á Húsavík leika Völsungar
við Þrótt frá Reykjavík ( 3.
deildinni í handknattleik.
Fyrri leikurinn er á föstudags-
kvöld og hefst kl. 20. Síðari
leikurinn er á laugardag og
hefst kl. 14. Þó nokkuð er síð-
an piltarnir léku seinast og er
því vert fyrir Húsvíkinga og
nærsveitamenn að flykkjast í
Höllina og styðja sína menn.
Norðanliðin eru líka á far-
aldsfæti um helgina. Körfu-
boltapiltarnir í Þór og Tinda-
stól halda suður og leika á
sunnudagskvöldið í Flugleiða-
deildinni. Þórsaramir leika
gegn Valsmönnum á Hlíðar-
enda og Tindastöll leikur við
Hauka í Hafnarfirði.
Stelpurnar í Þórsliðinu leika
tvo leiki í 1. deildinni urn helg-
ina. í kvöld leika þær gegn
Haukum í íþróttahúsinu við
Strandgötu og á morgun leika
þær við Fram í Seljaskóla.