Dagur - 18.11.1988, Blaðsíða 16

Dagur - 18.11.1988, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 18. nóvember 1988 Haldio veisluna eöa fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða.Stefán í síma 21818. Bráðabirgðatölur um heildarafla: Aflaaukning um 130 þúsimd tonn - á Norður- og Austurlandi sé miðað við fyrstu 10 mánuði ársins Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands hefur heildarafli landsmanna fyrstu tíu mánuði ársins aukist um ríf- lega 100 þúsund tonn miðað við sama tímabil á síðasta ári. Heildarafli hefur dregist veru- lega saman á Suðurlandi, Reykjanesi og Vesturlandi á sama tíma og mun meira berst á Iand á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Þrátt fyrir að heildarafli aukist um 100 þ. tonn á umræddu tíma- bili minnkar þorskaflinn um 20 þ. tonn. Ufsaafli minnkar nokkuð en aukning er í karfa-, ýsu-, steinbíts- og grálúðuafla og hvað mest í loðnuafla landsmanna sem jókst um 130 þ. tonn fyrstu tíu mánuði þessa árs. Ef litið er á aflatölur eftir svæðum kemur í ljós að sveifl- urnar eru mestar á Reykjanesi, Norðurlandi og Austfjörðum. Á Reykjanesi minnkaði aflinn um 26 þ. tonn á þessu tíu mánaða tímabili en á meðan jókst heild- arafli á Norðurlandi um tæp 49 þ. tonn og á Austfjörðum um 83 þ. tonn. Loðnuaflinn ræður mestu um þessar sveiflur. Vert er að gefa gaum tölum um siglingar með afla. Á fyrstu tíu mánuðum ársins 1987 sigldu íslensk skip með ríflega 52 þ. tonn en fyrstu tíu mánuði 1988 nálgast þessi tala 84 þ. tonn. Taka skal fram að inni í þessum tölum eru ekki landanir í gáma. í ár var siglt utan með rúmlega 37 tonn af botnfiski sem er 3.600 tonnum meira en í fyrra. JÓH Blönduós: Tíð skemmdarverk á ölsjálfsala - hafa verið kærð til lögreglunnar Að undanförnu hefur verið dálítið um það að skemmdar- verk hafi verið unnin á Blönduósi sem líkur benda til að börn eða unglingar séu völd að. vargarnir væru. Einnig hafa verið skornar niður flagglínur af fána- stöngum við Essoskálann. fh í gær var slátrað 4 tonnum af laxi hjá Ölni hf. á Dalvík. Mynd: TLV Ölunn hf. á Dalvík: 40-50 tonn af ferskum laxi á erlendan markað Á þessu ári mun fiskeldisfyrir- tækið Ölunn hf. á Dalvík flytja út á bilinu 40-50 tonn af eldis- laxi. Bróðurpartur fratnleiðsl- unnar fer til Bandaríkjanna en einnig fara nokkur tonn til Skotlands. Þessa dagana eru þeir Öluns- menn að slátra laxinum, sem ver- ið hefur í sjókvíum frá því í vor. í gær var t.d. slátrað 4 tonnum af laxi og segir Gunnar Blöndal, framkvæmdastjóri Öluns hf., meðalþyngd hans vera nálægt 3,5 kílóum. Þessi fiskur var settur fyrst út í kvíar í ágúst 1986 og var síðan aftur í kvíum sumarið 1987 og á liðnu sumri. Andvana laxinn stoppar stutt við í sinni heima- byggð því hann fer í dag um borð í flutningabíl til Reykjavíkur og síðan verður fiskinum komið fyr- ir í Flugleiðavél sem flytur hann til Bandaríkjanna. Gunnar Blöndal segir að kílóverð laxins nú sé um 350 krónur. Slátrunin í gær var sú 5. í röð- inni á þessu hausti. Þegar hefur verið slátrað um 20 tonnum af Ölunslaxi og lætur nærri að eigi eftir að slátra 25 tonnum. Áætlað er að ljúka þessum „blóðverk- um“ fyrir jólahátíðina. óþh Akureyri: Húsfélag Alþýðuhússins keypti allar eignir Svartfúgls hf. - viðræður standa yfir milli húsfélagsins og eigenda Bautans Bautans um rekstur veitingastað- I verið ákveðið í því efni en þetta ar í húsinu. Ekkert hefði þó enn | mál yrði athugað nánar. EHB Hugmyndum um nýja Hríseyjarferju ekki verið ýtt til hliðar: Beðið eftir ftmdi um „sjávarstrætó" Til dæmis hefur ekki verið frið- ur með ölsjálfsala við Essoskál- ann og hafa verið gerðar tilraunir til að brjóta hann upp þótt algeng- ara sé að ýmsu rusli, svo sem samanþjöppuðum ölflöskutöpp- um, sé troðið þar sem viðskipta- vinirnir setja myntina. Að sögn Vignis Björnssonar, deildarstjóra skálans er þetta mjög bagalegt þar sem ruslið stíflar kassann og þegar þannig stendur á tapa við- skiptavinirnir þeim peningum sem í kassann eru látnir án þess að fá nokkuð á móti. Hann sagði að kvartanir hefðu borist vegna þess og kvaðst hann vera búinn að kæra þessa háttsemi til lög- reglunnar hvernig svo sem gengi að komast að hverjir skemmdar- Húseigendafélag Alþýðuhúss- ins á Akureyri hefur keypt eignir Svartfugls hf., veitinga- húsið Fiðlarann, og voru bráðabirgðasamningar undir- ritaðir á miðvikudagskvöld. Allar eignir Svartfugls hf. voru seldar samkvæmt þessum samningi og ákveðnar kröfur fylgdu með. „Pað er ekki rétt að málunum hafi verið bjargað fyrir horn af húsfélaginu einu því sjálfir förum við bræður og margar fjölskyldur í bænum með helmingi erfiðara dæmi frá þessum rekstri. Húsfé- lagsstjórnin skuldbatt sig til að standa við allar bókanir sem við höfðum gert varðandi salinn á fjórðu hæð,“ sagði Friðjón A. Árnason, veitingamaður. Að sögn Friðjóns kemur það í lilut húsfélagsins að ráðstafa eignum veitingastaðarins. Hús- félagið hefur nú öll Iyklavöld að Fiðlaranum eins og eðlilegt má teljast eftir undirskrift samnings- ins. „Ég áskildi mér allan rétt til að segja sannleikann um þessi mál og við höfum ekkert að fela. En það er ekki rétt að verkalýðsfé- lögin hafi verið að bjarga okkur fyrir horn. Það eru margir með miklar ábyrgðir á herðunum,“ sagði Friðjón. Stefán Gunnlaugsson, veit- ingamaður á Bautanum, sagði í gær að viðræður hefðu farið fram milli húsfélags Alþýðuhússins og „Við bíðum eftir fundi með samgönguráðherra og öðrum ráðamönnum um málið. Það má orða þetta svo á þessu stigi,“ sagði Guðjón Björnsson, sveitarstjóri í Hríey, þegar hann var inntur eftir því hvern- ig liði áformum um smíði nýrrar Hríseyjarferju. Núverandi ferja þeirra Hrísey- inga annar hvergi eftirspurn á álagstímum, bæði þarf aukið rými fyrir farþega og ekki síður fyrir vörur. Að sögn Guðjóns Björnssonar hafa flutningar til og frá eyjunni á sjávarfangi, óunnu sem unnu, aukist umtalsvert á síðustu misserum. „Málið er alls ekki dautt í kerfinu og við bind- um vonir við úrbætur,“ segir Guðjón. Hann segir þó að menn geri sér ekki vonir unt mjög háar fjárhæðir úr opinberum sjóðum til nýrrar ferju. „Við erum ekki með í huga ákveðna óskaferju. Út af fyrir sig höfðum við það á sínum tíma en svo hafa aðstæður breyst. Það eru minni líkur en áður að stór fjárveiting fáist í þetta. Mönnum er að verða ljóst að það eru ekki til ótakmarkaðir peningar fyrir okkur að ganga í,“ segir Guðjón Björnsson. óþh Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, átti fund með starfsfólki Akur- eyrarbæjar í gær. Frá vinstri: Hulda Harðardóttir fóstra, Ögmundur og Snælaugur Stefánsson. Mynd: gb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.