Dagur - 22.11.1988, Side 3
22. nóvember 1988 - DAGUR - 3
Nefnd sem Qallað hefur um sjávarútvegsfræðibraut
við Háskólann á Akureyri:
Leggur til að kennsla
hefjist að hausti 1989
- Jón Þórðarson, sjávarútvegsfræðingur,
líklegur námsbrautarstjóri
Óskum eftir
sambandi við fyrirtæki eða einstakling sem getur
tekið að sér viðhald á Ijósritunarvélum, telefax-
tækjum og tölvutækjum og tölvubúnaði á Akur-
eyri og nágrannabyggðum.
acohf
Skipholti 17,
sími 91-27333.
Nefnd sú sem Birgir ísleifur
Gunnarsson, fyrrverandi
menntamálarádherra, skipaði
sl. vor til þess að gera tillögur
um fyrirkomulag sjávarút-
vegsbrautar við Háskólann á
Akureyri, er þessa dagana að
Ijúka störfum og mun væntan-
lega í næstu viku skila skýrslu
til Svavars Gestssonar, núver-
andi menntamálaráðherra.
Nefndin leggur til að hafin
verði kennsla á sjávarútvegssviði
við Háskólann á Akureyri að
tæpu ári liðnu, haustið 1989. Pét-
ur Bjarnason, formaður nefndar-
Sauðárkrókur:
Sjö sóttu
um stöðu
byggingar-
ftilltrúa
- þar á meðal
2 Pólverjar
Fyrir skömmu var staða bygg-
ingarfulltrúa Sauðárkróksbæj-
ar auglýst laus til umsóknar.
Alls bárust 7 umsóknir um
starfið, þar á meðal frá tveim-
ur Pólverjum. Koma þær um-
sóknir milliliðalaust frá Pól-
landi og verður þetta að teljast
mjög sjaldgæft, að útlendingar
sæki um opinberar stöður á Is-
landi. Akvörðun um hver
umsækjenda fái stöðuna, verð-
ur tekin á næstunni, og fæst þá
úr því skorið hver tekur við af
Jóni Erni Berndsen, sem áður
gegndi stöðu byggingar-
fulltrúa.
Þeir sem sóttu um stöðuna
voru: Björn Agnarsson Kópa-
vogi, Dagbjartur Helgi Guð-
mundsson Rey.kjavík, Einar
Matthíasson Reykjavík, Haf-
steinn Sæmundsson Sauðárkróki,
Vigfús Halldórsson Reykjavík og
Pólverjarnir Piotr Zielinski og
Stanislaw Sochocki.
Skafti SK-3:
Toppsala
í Cuxhaven
- 12,1 milljón fyrir
160 tonn af karfa
Skafti SK-3, frá Útgerðarfélagi
Skagfirðinga, gerði góða ferð
til Þýskalands í síðustu viku.
Skipið landaði á fimmtudag og
föstudag 160 tonnum af karfa í
Cuxhaven og fór aflinn einnig
á flskmarkaði í Bremerhaven
og Hamborg.
Fyrir 160 tonnin fengust alls
12,1 milljón króna, meðalverð
tæpar 76 krónur kílóið, og er
þetta mjög góð sala. Skafti hefur
átt góðar sölur í Þýskalandi á
þessu ári og á enn hæsta meðal-
verð úr einni sölu á fiskmörk-
uðunum af íslensku togurunum.
-bjb
innar, segir að nefndarmenn telji
að ekki séu mikil vandkvæði á að
þetta geti gengið eftir svo fremi
að á fjárlögum verði ákveðið að
veita nauðsynlegum fjárntunum
til námsbrautarinnar. Hann segir
að miðað sé við fjögurra til fimm
ára nám og inntökuskilyrði verði
stúdentspróf og einhver reynsla
stúdenta af sjávarútvegi. Einnig
er rætt um að fólk með t.d. mikla
reynslu af sjávarútvegi og ein-
hver önnur próf en stúdentspróf
hafi einnig möguleika á að sækja
urn nám við sjávarútvegsbraut-
ina. Nefndin leggur til að í hverj-
um árgangi verði á bilinu 8-15
stúdentar, þ.e.a.s. 40-60 stúdent-
ar í það heila við brautina og seg-
ir Pétur að miðað við fjölda fyrir-
spurna um þetta nám megi ætla
að eftirspurn eftir skólaplássi
verði mikil.
Pétur segir að bæði fulltrúar
sjávarútvegsins og rannsókna-
stofnana á sviði sjávarútvegs hafi
sýnt kennslu í sjávarútvegsfræð-
um mikinn áhuga. „Það er auð-
vitað mjög mikilvægt að koma
upp víðtækum tengslum sjávarút-
vegsfræðibrautar við stofnanir og
hagsmunasamtök sjávarútvegs-
ins. Með því móti væri hægt að
sameina starfskrafta og aðstöðu
að einhverju leyti og þetta gæfi
líka færi á markvissari rannsókn-
um á sviði sjávarútvegs en nú er.
Markmið námsins er fyrst og
fremst að gera menn hæfa til þess
að beita vísindalegunt vinnu-
brögðum við stjórn og ákvarð-
anatöku og við liöfum reiknað
með að mörg verkefni tengd
náminu yrðu unnin úti í sjávarút-
vegsfyrirtækjum."
Nú mun að mestu frágengið að
Jón Þórðarson, sjávarútvegs-
fræðingur, sem starfað hefur sem
framkvæmdastjóri fiskeldisfyrir-
tækisins íslandslax hf., verði for-
stöðumaður sjávarútvegsbrautar-
innar ef stjórnvöld gefa grænt
ljós á hana.
Pétur Bjarnason segir að hann
líti svo á að ekki sé neinn póli-
tískur ágreiningur um stofnun
sjávarútvegsbrautar en hinsvegar
séu ekki allir á eitt sáttir um
hvort brautin eigi að vera staðsett
við Háskólann á Akureyri eða
Háskóla íslands. „Ég held þó að
hinn pólitíski vilji sé miklu meiri
hérna megin,“ segir Pétur. Hann
segir að ákvörðun stjórnvalda um
stofnsetningu sjávarútvegs-
fræðibrautar við Háskólann á
Akureyri næsta haust verði að
liggja fyrir á þessu ári og í raun
verði hún tekin með fjárveitingu
á fjárlögum fyrir næsta ár. óþh
Haustmót Skákfélags Akureyrar:
Tvísýn barátta um
sigurinn í A-flokki
Um helgina var keppni haldið
áfram á Haustmóti Skákfélags
Akureyrar og í A-flokki er tví-
sýn barátta um efstu sætin. Nú
eru aðeins tvær umferðir eftir
og berjast fjórir keppendur um
sigurinn. Þór Valtýsson og
Kári Elíson eru efstir og jafnir
með 5 vinninga úr sjö skákum.
Næstu menn eru Gylfi Þór-
hallsson með 4'/2 vinning úr
sex skákum og Rúnar Sigurpáls-
son með 4 vinninga, einnig úr sex
skákum. Síðan koma Magnús
Teitsson með 3Vi v., Bogi Páls-
son og Reimar Pétursson með 3
v. og hafa þeir teflt sjö skákir.
Rúnar er reyndar sá eini sem
ekki hefur tapað skák í A-flokki.
Lárus Pétursson hefur tekið
örugga forystu í B-flokki og hef-
ur hann hlotið 6V2 vinning eftir
sjö umferðir. I 2. sæti er Jakob
Þór Kristjánsson með 5 v. í 3.-4.
sæti eru Stefán Andrésson og
Þórleifur Karlsson með 4'A v.
Beðist skal velvirðingar á því að í
blaðinu á föstudag var sagt að
Stefán og Jakob væru efstir en
hið rétta er að þá deildu Lárus og
Jakob efsta sætinu.
Síðustu umferðirnar í A- og B-
flokki verða tefldar á miðviku-
dags- og föstudagskvöld kl.
19.30. Á miðvikudag tefla m.a.
saman í A-flokki þeir Rúnar og
Kári og Gylfi og Reimar, og í síð-
ustu umferðinni mætast Kári og
Gylfi, Reimar og Þór og Sigurjón
Sigurbjörnsson og Rúnar. SS
DAGUR
Húsavík
8 9641585
Norðlenskt dagblað
falke
Einu sinni falke
aiitaf falke.
Sokkar.
Sokkabuxur.
Hnésokkar.
Gammosíur.
Bómullar-
sokkabuxur.
Góöar og
þægilegar.
Snið sem
passar.
Verslunin
Wlog
Sunnuhlíð 12, sími 22484.
falke UMBOÐIÐ -HEILDVERSLUN HÁALEITISBRAUT 68 SÍMI 84240
V.
Ný þjónusta
á Norðurlandi
Latex heilsudýnur í öllum stærðum.
Svefnsófar, svampdýnur.
Athugið! Aðeins úrvals 35 kg svampur,
stífur og mjúkur.
10-15% afsláttur
'VerstiÖ v/ð fagmann.
Svampur og bólstrun
Austursíðu 2, sími 96-25137.
■\
J
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskóla Vesturlands eru lausar til umsóknar
kennarastöður á vorönn í eftirtöldum greinum:
Stærðfræði, rafeindavirkjun, Vi staða í heilbrigðisfræði og
afleysingastaða í eðlis- og stærðfræði. Þá vantar bóka-
vörð í fullt starf á vorönn.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 15. desember nk.
Menntamálaráðuneytið.
Listin að grenna sig þægilega.
Við bjóðum einn frían kynningartíma.
FLOTT FORM
Geislagötu 7, sími 27911