Dagur - 22.11.1988, Blaðsíða 4

Dagur - 22.11.1988, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 22. nóvember 1988 í dagsljósinu ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÖHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Samstíga félagshyggjuflokkar Margt bendir til þess að viss þáttaskil séu að verða í íslenskum stjórnmálum. Upphaf þeirra má rekja til þess er Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur sáu sig knúna til að slíta ríkis- stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn með þeim afleiðingum að ríkisstjórn Þorsteins Páls- sonar lét af völdum. Ástæður þess að upp úr samstarfinu slitnaði þarf ekki að rekja hér, þjóð- inni er fullkunnugt um þær. Málefnaágreiningur forystu Sjálfstæðisflokksins annars vegar og Framsóknarflokks og Alþýðuflokks hins vegar var einfaldlega orðinn of djúpstæður til þess að hann yrði leystur. Þegar svo ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar var mynduð skömmu síðar, var ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn var kom- inn í pólitíska útlegð. Til þeirrar útlegðar var hann dæmdur af sinni eigin forystu. Við þessa atburði hafa línurnar í íslenskum stjórnmálum skerpst til mikilla muna. Þeir gætu markað upphafið að öflugri samstöðu félags- hyggjuflokkanna í þjóðfélaginu. Þar sem Framsóknarflokkurinn er langstærstur þeirra flokka, er ábyrgð hans mikil að vel takist til. Fé- lagshyggjuöflin í landinu hafa allt of lengi verið sundruð. Oft hefur smávægilegur málefna- ágreiningur orðið til að koma í veg fyrir samstarf félagshyggjuflokkanna, bæði í ríkisstjórnum og á vettvangi sveitarstjórnarmála, oft með hörmu- legum afleiðingum eins og dæmin sanna. Um helgina héldu Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur flokksþing sín í Reykjavík. Það þótti tíðindum sæta að formenn beggja flokka ávörpuðu þing hins, enda er það einstætt í íslenskri stjórnmálasögu. Það staðfestir enn hversu góð samvinna hefur tekist með þessum flokkum á síðustu mánuðum. Á flokksþingi Alþýðuflokksins var síðan m.a. til umræðu hugs- anleg sameining Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags, þótt engin niðurstaða fengist í því merka máli. Þessir atburðir benda ótvírætt til þess að viss þáttaskil séu að verða í stjórnmál- unum. Andstæðurnar hafa skerpst. Félagshyggjuöfl- in eru samstíga en frjálshyggjuöflin sundruð. Yfirskrift Flokksþings framsóknarmanna, „Fyrirhyggja í stað frjálshyggju", er táknræn fýrir þá stöðu sem nú er komin upp. Hvort fél- agshyggjumenn bera gæfu til að nýta sér þann byr sem þeir hafa verður reynslan að leiða í ljós. Þeir miklu erfiðleikar, sem uppi eru í efnahags- og atvinnulífi landsmanna um þessar mundir, ættu að verða til þess að efla enn samstöðu þeirra flokka, sem hafa svipaðar hugsjónir að leiðarljósi. BB. Gagnkvæmar heimsóknir Steingríms og Jóns Baldvins og umrót á vinstri vængnum: Gjaldþrota kerfl þrýstir á Það hefur sannarlega ekki ver- ið gúrkutíð síðustu daga hjá þeim fréttamönnum sem fylgj- ast með framvindu mála á hinu pólitíska sviði. Nær væri frekar að segja að þeir hafi getað haldið eins konar fréttalega jólahátíð. Um liðna helgi riðu bæði krat- ar og framsóknarmenn til flokks- þinga í Reykjavík. Kratar fund- uðu í musteri Ólafs Laufdal, Hótel íslandi, en framsóknar- menn ræddu málin innan veggja Bændahallarinnar. Eftir því sem næst verður komist voru umræð- ur á flokksþingunum báðum hin- ar líflegustu og margar ályktanir, mismerkar eins og gengur, litu dagsins Ijós. En þrátt fyrir að margt merkilegt hafi borið á góma á vígstöðvum beggja flokka þá leikur þó enginn vafi á því að langmesta athygli vöktu opinberar víxlheimsóknir flokks- foringjanna, Steingríms og Jóns Baldvins, á flokksþingin sl. laug- ardag. Þessar heimsóknir marka tímamót í íslenskri stjórnmála- sögu. Aldrei áður hafa foringjar flokka stigið fæti inn fyrir flokks- þingsþröskulda annarra stjórn- málaflokka, hvað þá að þeir hafi ávarpað þingfulltrúa. En allt gerðist þetta um helgina og þykir mörgum merk tíðindi. Það er athyglisvert að í ræðum formannanna kom fram svipaður tónn. Jón Baldvin hældi Stein- grími og Framsókn fyrir að lúta aga og standa við sín orð. Svar Steingríms við þessari „ástarjátn- ingu“ Jóns Baldvins var á þá leið að hann hafi ekki séð eftir því að taka þá áhættu að treysta Jóni Baldvin, honum væri treystandi og hann stæði við sfn orð. Þessi vinsamlegu orð flokks- formannanna í garð hvors annars eru athyglisverð, ekki síst þegar haft er í huga að fyrir ekki meira en tveimur árum fór bróður- partur af orku Jóns Baldvins í að gagnrýna Framsókn og allar hennar gjörðir. Hann talaði um framsóknarflór og -fjós og fleira í þeim dúr. En nú er sem sagt öldin önnur og er þá nema von að spurt sé: Hvað hefur breyst í pólitík- inni sem gefur tilefni til slíkra sinnaskipta krataforingjans og hvaða merkingu má yfirleitt leggja í pólitísk blíðuhót for- manna Framsóknar og krata um helgina? Er hugsanlegt að þessi uppákoma sé upphafið á nánu samstarfi þessara flokka í fram- tíðinni og má e.t.v. líta á hana sem táknræna fyrir þann jarðveg sem margir álíta að sé nú til stað- ar til víðtæks samstarfs og jafnvel samruna á vinstri væng stjórn- málanna? Trúlega er ekki til eitt kórrétt svar við þessari sgurningu og sitt sýnist hverjum. Arni Gunnars- son, alþingismaður fyrir Alþýðu- flokkinn á Norðurlandi eystra, segist vissulega trúa því að þessi uppákoma hafi ákveðna merk- ingu. Hann telur að með gagn- kvæmum heimsóknum sínum hafi formennirnir m.a. viljað ýta á Alþýðubandalagsforystuna að þjappa sér betur um núverandi ríkisstjórn. Orðrétt sagði Árni í samtali við Dag: „Ég held að verði að líta á þetta frá því sjón- arhorni að þessir þrír flokkar eiga allt undir því að núverandi ríkisstjórn hangi. Formenn ríkis- stjórnarflokkanna, og þá sérstak- lega Ólafur Ragnar, gera sér ljósa grein fyrir því. Hann verður að geta sýnt fram á það að milli formannanna sé mikil samstaða því að hann stendur veikur í sín- um flokki og er að því leyti veik- asti formaðurinn. Samstöðupóli- tík formannanna þriggja er að mínu mati til þess að gefa Sjálf- stæðisflokknum ekki færi á vor- kosningum. Ég hygg að gagn- kvæmar heimsóknir Steingríms og Jóns Baidvins séu til þess fallnar að negla Alþýðubandalag- ið betur inn í ríkisstjórnina.“ Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður Framsóknar- flokksins fyrir Norðurland eystra, segist ekki líta svo á að þetta sé merki um víðtæka samvinnu eða sameiningu Framsóknar- og Alþýðuflokks. „Ég te'l að með þessu séu flokkarnir að mynda samstöðu gegn íhaldinu,“ segir hún. Varaformaður Alþýðubanda- lagsins, Svanfríður Jónasdóttir, lítur uppákomu helgarinnar öðr- um augum en Árni Gunnarsson. Hún segir að þessi „ástarjátning“ formanna krata og Framsóknar sé til þess að „sannfæra sitt fólk um það að samvinna flokkanna í ríkisstjórn sé náin. Þetta þarf ekki endilega að gefa til kynna upphaf á frekara samstarfi flokk- anna í framtíðinni.“ Og Svan- fríður bætir við: „Ég lít ekki svo á að með þessu sé Aiþýðubanda- lagið skilið eftir úti í horni.“ Sigurður J. Sigurðsson, full- trúi Sjálfstæðisflokks í bæjar- stjórn Akureyrar, er ekki fjarri skoðun varaformanns Alþýðu- bandalagsins á því hvaða merk- ingu beri að leggja í gagnkvæmar heimsóknir Steingríms og Jóns Baldvins. „í mínum huga er hér um að ræða pólitískt sjónarspil þessara tveggja flokka, fyrst og fremst til þess fallið að sýna sam- heldni þeirra í þeirri baráttu sem framundan er.“ Sú skoðun virðist mjög almenn hjá þeim flokksmönnum, sem standa að núverandi ríkisstjórn, að þessir flokkar verði að þjappa sér betur saman og ýta Sjálf- stæðisflokknum til hliðar í pólitík um sinn. Eftir reynslu af setu í síðustu ríkisstjórn hafa kratar, og þá ekki síst Jón Baldvin, snúið baki við viðreisnardraumnum. Árni Gunnarsson fullyrðir að sumir eldri kratarnir hafi ekki varpað viðreisnarhugsjóninni frá sér en yngra fólkið í Alþýðu- flokknum hafi á síðustu vikum og dögum verið æ fúsara til alvöru- viðræðna við fulltrúa hinna flokkanna á vinstri væng stjórn- málanna um samstarf eða jafnvel samruna. Um pólitískt orlof Sjálfstæðisflokksins segir Svan- fríður Jónasdóttir að vissulega sé ákveðinn vilji til að setja hann til hliðar í íslenskum stjórnmálum um hríð. Hún telur að þessi skoð- un njóti vaxandi fylgis af and- stæðingum hans vegna þess ein- faldlega að hugmyndafræðilega hafi Sjálfstæðisflokkurinn ekki burði til þess að takast á við aðsteðjandi vanda. Sigurður J. Sigurðsson telur hins vegar að þetta standist ekki. „Það kann vel að vera að þetta sé sú ímynd sem forystumenn hinna flokk- anna eru að draga upp í augna- blikinu en ég held að það sé jafn- ljóst að þetta gengur ekki upp í raunveruleikanum. Þó svo að menn hafi tímabundin undirtök í pólitíkinni þá duga þau ekki lengi. Flokkur eins og Sjálfstæðis- flokkurinn er svo stórt og virkt afl í þjóðmálapólitíkinni að fram hjá honum verður ekki gengið til lengri tíma litið.“ Lifrarbandalagið fræga, sem myndað var yfir matarborðinu hjá þeim Jóni Baldvin og Bryn- dísi á Vesturgötunni, virðist eftir öllum sólarmerkjum að dæma vera upphafið á raunhæfum við- ræðum vinstri aflanna í landinu um samstarf eða samruna. Jón Baldvin hefur látið hafa eftir sér að hann sé orðinn leiður á því að starfa í flokki með jafnlítið fylgi og Alþýðuflokkurinn nýtur og varaformaður Alþýðubandalags- ins segist vera þessu sammála. Að sögn Árna Gunnarssonar hef- ur jarðvegur fyrir viðræður Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks um sameiningu aldrei ver- ið hagstæðari. Hann segir að ef menn nýti ekki tækifærið nú, þá muni það ekki gefast á næstu ein- um eða tveimur áratugum. Árni segist reyndar telja æskilegt að Framsóknarflokkurinn verði inni í þessum viðræðum, skyldleiki Alþýðuflokks og Framsóknar sé í mörgu meiri en skyldleiki krata við Alþýðubandalag. Valgerður Sverrisdóttir gefur ekki mikið út á þessar hugmyndir Árna. Hún segist telja nauðsynlegt að í fram- tíðinni verði sem hingað til allar höfuðáttir í íslenskri pólitík, hægri, miðja, sósíal demókratar og vinstri sósíalistar. Margir hafa haldið fram að með nýrri forystu í Alþýðu- bandalagi sé líklegra en áður að það sameinist Alþýðuflokki og myndi einn stóran sósíaldemókrat- ískan flokk á skandinavíska vísu. Núverandi varaformaður þess vísar þessu á bug en segir að þegar pólitískir atburðir liðinna daga séu skoðaðir þá verði að hafa í huga að kosningar hafi ekki farið fram. „Alla jafna er kosningabarátta uppgjörstími sem flokkarnir og forystumenn þeirra fara í gegnum og að kosn- ingum loknum eru þeir eins og nýhreinsaðir hundar. Þá er eins og allir séu með hreint borð og geti byrjað að nýju. Nú fór upp- gjörið aldrei fram. Eigi að síður eru í gangi viðræður milli flokka og einstakra manna. Þetta hefur t.d. verið áberandi í þinginu." Til að varpa frekar ljósi á hvað sé raunverulega að ske á vinstri væng stjórnmálanna segir Svan- fríður: „Samfélag okkar er meira og minna gjaldþrota. Kerfið sjálft er meira og minna gjald- þrota. Við þurfum að fara vand- lega yfirferð á það. Ég held að íslenska flokkakerfið, sem hluti af þessu öllu, þurfi að fara skoða mjög gagnrýnt. Flokkar eru ein- faldlega tæki til þess að ná fram ákveðnum breytingum á þjóðfé- laginu. Ef tækið, sem varð til við allt aðrar þjóðfélagsaðstæður gengur ekki lengur, er einfald- lega skipt um það.“ Sigurður J. Sigurðsson segir hins vegar að skýringin á „gjörningum A- flokkanna“ nú sé einföld. Þeim sé þörf á að sýna ákveðna sam- stöðu til að tryggja sér áfram- haldandi völd innan ASÍ á þingi þess sem nú stendur yfir í Kópa- vogi. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.