Dagur - 22.11.1988, Blaðsíða 8
8 - DAQUR -22. nóvember 1988
- Stjórnmálaályktun 20. ílokksþings framsóknarmanna
Líklega hafa konur aldrei verið jafnmargar á flokksþingi Framsóknarflokksins og nú. Eftir kjör aðal- og varamanna
í miðstjórn flokksins var Ijóst að tæpur helmingur miðstjórnarmanna er konur, nánar tiltekið 24 af 50. Mynd: n.á.l.
Myndun ríkisstjórnar
Frjálshyggjan varð síðustu
ríkisstjórn að falli. Framsóknar-
menn höfðu ítrekað lagt fram til-
lögur til bjargar atvinnu- og efna-
hagslífi. Myndun þeirrar ríkis-
stjórnar, sem nú situr, var því
þjóðarnauðsyn.
Framsóknarmenn tóku heils-
hugar þátt í viðleitni til þess að ná
samstöðu um svonefnda niður-
færsluleið í ágúst og september
s.l. Frjálshyggjuöflin komu í veg
fyrir að samkomulag næðist. Pað
réð stjórnarslitum.
Myndun ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar er sögu-
legur viðburður. Pað samstarf,
sem tókst milli Framsóknarflokks
og Alþýðuflokks um uppgjör við
Sjálfstæðisflokkinn á að geta orð-
ið upphaf að öflugri samstöðu
félagshyggjuaflanna í þjóðfélag-
inu. Myndun núverandi ríkis-
stjórnar Framsóknarflokks,
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags, með stuðningi Samtaka
jafnréttis og félagshyggju, er
skref í þá átt að koma á víðtækri
samvinnu félagshyggjuflokkanna
um stjórn landsins. Framsóknar-
flokkurinn er stærstur þeirra
flokka, sem hér eiga hlut að máli.
Pátttaka hans er nauðsynleg ef
stefna á til trausts og langvarandi
stjórnarsamstarfs félagshyggju-
aflanna.
Atvinnu- og efnahagsmál
Það kemur því enn í hlut Fram-
sóknarflokksins að leiða þjóðina
út úr miklum erfiðleikum í
atvinnu- og efnahagsmálum.
Þrátt fyrir mikinn afla og gott
verð á erlendum mörkuðum árin
1986 og 1987, blasir við stöðvun
útflutningsframleiðslunnar og
gjaldþrot fjölmargra fyrirtækja.
Vegna stjórnleysis í efnahags-
málum hefur mistekist að koma í
veg fyrir offjárfestingu, eyðslu og
þenslu í góðærinu, með þeim
afleiðingum að kreppa er yfirvof-
andi og verulegur samdráttur í
þjóðarbúskapnum. Til viðbótar
þessum heimatilbúna vanda bæt-
ist við fyrirsjáanlegur samdráttur
í afla, auk þess sem erlendar
efnahagsspár benda til að veru-
lega muni harðna á dalnum á
næstu árum í hinum vestræna
heimi. Sannast hefur, svo ekki
verður um villst, að stjórn efna-
hags- og peningamála hefur
brugðist. í því skyni að draga úr
þenslu hafa útlán bankanna verið
mjög takmörkuð. Því hafa
útflutningsgreinarnar orðið að
þola fjársvelti á meðan atvinnu-
rekstur, sem velt getur kostnað-
inum yfir í verðlagið, hefur sótt
milljarða á okurvöxtum til hins
svonefnda frjálsa markaðar og
fjárfest í skrifstofu- og verslunar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Sú óarðbæra fjárfesting og
gjaldþrotin, sem fylgja munu í
kjölfarið, geta reynst þjóðarbú-
inu dýrkeypt. Ef framleiðslan
stöðvast, blasir við efnahagslegt
hrun.
Traustur rekstrargrundvöllur
atvinnuveganna er forsenda fyrir
efnahagslegri framtíð lands og
þjóðar. Framsóknarmenn líta á
það sem forgangsverkefni að
skapa slíkan rekstrargrundvöll og
treysta á ný undirstöðu efnahags-
lífsins. Til að slíkt megi takast
verður að koma á markvissari
stjórn efnahagsmála en nokkru
sinni fyrr. Gera þarf heildarút-
tekt á öllum aðalatvinnuvegum
landsmanna og kanna hvort þörf
er á skipulagsbreytingum til að
tryggja fyllstu hagkvæmni.
Nauðsynlegt er að landsmenn
allir geri sér grein fyrir hversu
alvarleg staðan er. Hugarfars-
breytingar er þörf. Fyrirtæki og
einstaklingar verða að sýna spar-
semi, ábyrgð og ráðdeild. Stjórn-
völd og opinber fyrirtæki verða
að ganga á undan með góðu for-
dæmi í þessu efni.
Til að ná árangri í því endur-
reisnarstarfi sem framundan er,
leggur flokksþing Framsóknar-
flokksins áherslu á eftirtalin
höfuðmarkmið í efnahagsstefnu
flokksins:
1. Að bæta afkomu atvinnu-
veganna, treysta atvinnuöryggið
og fyrirbyggja keðjuverkandi
samdrátt í hagkerfinu.
2. Að auka jafnvægi í þjóðar-
búskapnum, jafnt innávið sem
útávið.
3. Að halda niðri verðbólgu.
4. Að koma á heilbrigðum
peningamarkaði og endurskipu-
leggja banka- og sjóðakerfið.
5. Að treysta jafnvægi í byggð
landsins.
Framsóknarmenn trúa því að
með samstilltu átaki sé unnt að
leysa vandann og skapa bjarta
framtíð með traustum atvinn-
uvegum og almennri velmegun.
Bætt afkoma
atvinnuveganna
Þegar hefur verið ráðist í fyrstu
aðgerðir, sem miða að því að
forða framleiðslugreinum
landsmanna frá stöðvun. Ljóst er
að gera verður langtímaáætlun,
sem felur í sér frekari aðgerðir til
að tryggja varanlegan rekstrar-
grundvöll atvinnuveganna.
Fyrirtækjum verði sköpuð
aðstaða til hagræðingar og tækni-
væðingar. Gert verði öflugt og
samstillt markaðsátak fyrir
íslenskar vörur erlendis og
íslendingar hvattir til að kaupa
fremur innlendar vörur en er-
lendar.
Reynt verði að jafna þær
sveiflur, sem óhjákvæmilega
verða í sjávarútvegi. í því skyni
skal Verðjöfnunarsjóður sjávar-
útvegsins efldur og reglum hans
breytt í samráði við hagsmunaað-
ila.
Jafnvægi í
þjóðarbúskapnum
Til að sporna gegn óhóflegri
erlendri skuldasöfnun, er nauð-
synlegt að afnema allar ríkis-
ábyrgðir á erlendum lántökum
banka- og fjárfestingarsjóða.
Undanskilin skulu þó eðlileg lán
til útflutningsgreina. Strangt
eftirlit og aðhald verði með er-
lendum lántökum.
Ýtrasta sparnaðar verði gætt í
ríkisrekstri. Stöðug endurskoðun
eigi sér stað á öllum kostnaðar-
þáttum ríkisins.
Til að ná jafnvægi í ríkisbú-
skapnum er nauðsynlegt að skatt-
ar hækki um sinn. Skattahækkan-
ir verði í formi tekju- og eigna-
skatta. Skattakerfið og skipulag
þess verði tekið til heildarendur-
skoðunar hið allra fyrsta. Skatta-
eftirlit og innheimta verði
stórbætt. Flokksþingið leggur
áherslu á að skattahækkun komi
til hjá þeim efna- og tekjumeiri í
þjóðfélaginu. Þess verði tryggi-
lega gætt að kaupmáttur lægstu
launa verði verndaður.
Verðbólga
Verðbólga hefur lengi verið eitt
mesta vandamál íslensku þjóðar-
innar. Hún hefur dregið úr hag-
vexti og spillt lífskjörum. Fram-
sóknarflokkurinn hefur ávallt
beitt sér fyrir raunhæfum aðgerð-
um gegn verðbólgu. Nú hefur
náðst sá árangur að verðbólgan
hefur hjaðnað, m.a. í skjóli verð-
stöðvunar, hann ber að tryggja.
Til þess að verðbólgan fari ekki
af stað er verðstöðvun lýkur,
verða raunvextir að lækka veru-
lega á verðstöðvunartímabilinu.
Þetta er forsenda heilbrigðs
atvinnurekstrar og þess að
íslensk framleiðsla standist sam-
keppni við erlenda. Einnig felur
vaxtalækkun í sér raunhæfar
kjarabætur fyrir þá einstaklinga
sem mest þarfnast þeirra.
Heilbrigður
peningamarkaður
í því skyni að koma á heilbrigðri
skipan peningamarkaðarins legg-
ur Framsóknarflokkurinn áherslu
á að sett verði lög sem tryggi að
þessi markaður lúti samræmdri
stjórn og reglum. Stefnt verði að
því að vísitölubinding fjárskuld-
bindinga falli niður.
Nauðsynlegt er að uppstokkun
banka- og sjóðakerfisins verði
þegar hafin til að ná aukinni hag-
kvæmni.
Flokksþingið hvetur ríkis-
stjórnina til þess að beita sér fyrir
að bankar og aðrar peningastofn-
anir breyti skuldum fyrirtækja og
einstaklinga, sem orðið hafa fyrir
skakkaföllum, í langtímalán.
Jafnvægi í byggð landsins
Framhald þeirrar byggðaröskun-
ar, sem staðið hefur undanfarin
ár, mun valda stöðvun eða aftur-
för víða á landsbyggðinni og
auka vandamál á höfuðborgar-
svæðinu. Áframhaldandi byggða-
röskun mun draga úr hagvexti og
rýra lífskjör þjóðarinnar.
Það er allra hagur að úr byggða-
röskun dragi og jafnvægi náist.
Skilyrði er traust staða útflutn-
ingsgreinanna.
Flokksþingið leggur áherslu á
að skipulega verði unnið að efl-
ingu og meiri fjölbreytni í
atvinnulífi landsbyggðarinnar,
m.a. með því að flytja þjónustu-
starfsemi eins og frekast er unnt
út á land og auka sjálfstæði
landshluta. Flokksþingið telur
rétt að unnið verði að því að
koma þriðja stjórnsýslustiginu á
fót. Auðlindir lands og sjávar
verða ekki skynsamlega nýttar
nema byggðin sé dreifð um
landið.
Byggðastofnun verði efld til að
vinna skipulega að verkefni sínu,
sem er að stuðla að þjóðhagslega
hagkvæmri þróun byggðar í land-
inu. Stofnunin hætti að starfa
sem almennur stofnlánasjóður á
sviðum þar sem fyrir eru aðrir
stofnlánasjóðir, en einbeiti sér að
aðgerðum til eflingar og aukning-
ar fjölbreytni atvinnulífs lands-
byggðarinnar. Einnig verði tryggt
að Byggðastofnun geti haft frum-
kvæði að gerð landshlutaáætlana,
sem nái til opinberra fram-
kvæmda og skipulagningar opin-
berrar þjónustu.
Stjórnsýslustöðvar verði
byggðar upp í öllum kjördæmum
landsbyggðarinnar.
Fjölskyldan
Flokksþingið leggur áherslu á að
fjölskyldan sé sú grunneining
þjóðfélagsins, sem styðja þarf og
styrkja. Heilbrigt og menningar-
legt líf og aukin samvera fjöl-
skyldunnar er verðmætari en hin
ýmsu lífsþægindi, sem keypt eru
fyrir peninga.
Umhverfísmál
Flokksþing framsóknarmanna
hvetur til þess að sérstakt ráðu-
neyti fari með yfirstjórn
umhverfismála. Ákvarðanir um
aðgerðir til að koma í veg fyrir
mengun, landeyðingu eða hvers
konar spillingu umhverfis, verði
teknar í því ráðuneyti, að höfðu
samráði við viðkomandi fagráðu-
neyti. Brýnustu verkefnin eru að
vinna að gróðurvernd og stöðva
landeyðingu, hamla gegn meng-
un í sjó, ám og vötnum, draga úr
mengun frá verksmiðjum og bif-
reiðum, og vernda dýralíf og
náttúru landsins.
Flokksþingið telur íslending-
um skylt að taka virkan þátt í
alþjóðlegu samstarfi um umhverfis-
mál.
Utanríkismál
Flokksþingið leggur áherslu á að
áfram verði fylgt þeirri sjálfstæðu
utanríkisstefnu, sem mótuð var í
utanríkisráðherratíð Steingríms
Hermannssonar.
Ákvarðanir allar verði teknar á
grundvelli íslenskra hagsmuna.
Á alþjóðavettvangi styðji íslend-
ingar sjálfsákvörðunarrétt þjóða
og full mannréttindi minnihluta-
hópa, undirokaðra kynþátta og
þjóðarbrota. Áhersla verði lögð
á að stuðla að fækkun kjarnorku-
vopna og samdrætti í vígbúnaði.
Ekki verði gerðir nýir samningar
um meiriháttar hernaðarfram-
kvæmdir. Samskipti íslendinga
við Varnarliðið verði endur-
skipulögð.
Flokksþingið varar við fullri
aðild að Evrópubandalaginu, en
leggur áherslu á að aðlögun að
þeim samruna, sem framundan
er í Vestur-Evrópu, sérstaklega
með það fyrir augum að tryggja
íslendingum öruggan markað
fyrir framleiðslu landsins.
Framsóknarflokkurinn mun
enn sem fyrr setja manngildi ofar
auðgildi og standa traustan vörð
um hugsjónir samvinnu og sam-
hjálpar og stuðla að jöfnuði og
þjóðfrelsi íslendinga.“
Fjölmenni var á flokksþinginu, enda sátu það fulltrúar úr öllum kjördæmum
landsins. Hér má sjá nokkra af fulltrúum framsóknarfélaganna í Norður-
landskjördæmi eystra. Mynd: b.b.