Dagur - 22.11.1988, Side 7
22. nóvember 1988 - DAGUR - 7
Frá Plastiðjunni Bjargi á Akureyri.
fyrirtækis sé sett saman eftir aö
endurskipulagning fer fram.
Erfitt að kenna
gömlum . . .
En það er ekki nóg aö endur-
skipuleggja fyrirtæki fjárhags-
lega. Fyrirtæki, ekki síst fram-
leiðslufyrirtæki í plastiðnaði, þarf
að finna nýjar leiðir þegar þær
gömlu hafa skyndilega lokast. Að
þessu vék Kristinn í erindi sínu
en eins og fram kom hér áður
brast einn af máttarstólpum í
fyrirtæki hans algjörlega á stutt-
um tíma. Því varð að finna nýja.
„Okkur sást gjörsamlega yfir
viðhorf manna til algjörlega
nýrra hluta eins og við vorum að
kynna. Parna vorum við að
kynna nýjar umbúðir með nýja
eiginleika sem þurftu nýjar
umgengnisreglur og annað
viðhorf. Þetta atriði hefur reynst
okkur einna erfiðast að komast
yfir.“
Allar þær markaðsforsendur
sem eigendur Stjörnusteins gáfu
sér í byrjun hafa brugðist. Frauð-
plastkassarnir sem í upphafi var
ætlunin að notaðir yrðu til út-
flutnings á laxi og áttu að standa
undir rekstri fyrirtækisins á árinu
1986 ná því hugsanlega að standa
undir rekstrinum á næsta ári. „En
við erum náttúrlega búnir að
skjóta rótum annars staðar þann-
ig að segja má að við séum komn-
ir yfir erfiðleikana núna,“ sagði
Kristinn.
Yiðhorf lánardrottna
Þegar fyrirtæki gengur í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu
geta eigendur þess átt von á
breyttu viðhorfi viðskiptavina til
þess og jafnvel lánardrottna.
Kristinn vék að viðhorfi lánar-
drottna gagnvart slíkum fyrir-
tækjum.
„Ég komst að því, mér til
mikilia vonbrigða, að raunveru-
lega horfa bankar ekki nema á
eitt atriði. Peir sjá kannski sínum
skuldum betur borgið og oftast
hafa bankar full veð fyrir sínum
skuldum en ég varð ekki var við
að það væri nokkurn skapaðan
hlut betra að eiga við bankastofn-
anir eftir endurskipulagninguna.
Bankastofnanir ganga að því sem
vísu að ef menn eru komnir með
stóra og sterka aðila inn í fyrir-
tækið sem hluthafa þá séu þeir
baktrygging fyrir öllum skuldum.
Petta var okkar reynsla að því er
varðar lánastofnanir."
Möguleikar á sjálfvirkni
í plastiönaöi
Gestur Bárðarson, rannsókna- og
þróunarstjóri í Hampiðjunni í
Reykjavík, tók næstur til máls og
flutti erindi um sjálfvirkni. Hann
vék að möguleikum á sjálfvirkni í
plastiðnaðarfyrirtækjum á íslandi
sem hann sagði ekki mikla sökum
þess hve fyrirtækin eru smá og
markaður lítill. Þessu næst kynnti
hann þær hugmyndir sem efstar
eru á baugi erlendis í dag varð-
andi sjálfvirkni og sagði að flokka
mætti þessar hugmyndir þannig:
1. Flutningur á hráefnum að
vélum.
2. Breyting á framleiðslutegund-
um.
Gæðagát.
Aðgerðarstjórnun í vélum.
3. Losun tilbúinna framleiðslu-
vara úr vélum.
4. Flutningur á afurðum frá vél-
um inn á lager.
5. Lokasamsetning.
„Almennt séð gætu þessi atriði '
öll verið framkvæmanleg hér á
landi ef fyrirtæki í plastiðnaði
stækka í framtíðinni. Helst þyrfti
markaðurinn að stækka líka og
e.t.v. þurfa fyrirtæki að fara út í
meiri sérhæfingu, þar á ég t.d.
við framleiðslu í kringum sjávar-
útveginn. Þar eru stærstu magn-
tölur sem við sjáum.
Ef litið er nánar á þennan lista
þá eru fyrirtæki hér á landi þegar
farin að koma á sjálfvirkni við
flutning á hráefnum að vélum.
Þetta er tiltölulega ódýrt atriði í
framkvæmd og miklir möguleikar
enn ónýttir á þessu sviði.
Um lið tvö get ég sagt að ég sé
ekki möguleika á honum hér
heima. Astæðan er sú að við
spörum ekki nægilega mikið til
að fjárfestingin borgi sig. Gæða-
gát og aðgerðastjórnun er hins
vegar að hluta til fyrir hendi hér á
landi og getur orðið vaxandi í
framtíðinni.
Um lið þrjú á listanum þá hef
ég enga trú á neinum róbót í bili
en margir nota hins vegar færi-
band til að leysa vandamál við
losun tilbúinna framleiðsluvara
úr vélum.
Um síðustu liðina tvo á listan-
um þá er sjálfvirkni á þessum
sviðum ekki sjáanleg í plastiðn-
aði hér á landi nú en hlutirnir
gerast hratt í plastiðnaðinum og
ég gæti alveg trúað því að í náinni
framtíð þá verðum við með
róbóta sem gera eitthvað þessu
líkt,“ sagði Gestur Bárðarson.
JÓH
Til sölu
arðvænlegt fyrirtæki í Miðbænum
Fyrirtækið er í eigin húsnæði og er í fullum rekstri alla
daga vikunnar.
Kjörið tækifæri fyrir duglegt og samhent fólk.
Upplýsingar á skrifstofunni.
á
1.30
iwmuiwA
SKIPMAlAlgfc
NORMIRLANDS II
Amaro-húsinu 2. hæð
Simi 25566
Benedikt Ólafsson hdl.
Sölustjóri, Pétur Jósefsson, e
skrifstofunni virka daga kl. 14-1
Heimasími hans er 24485.
Lokað
vegna breytinga 22. og 23. nóvember.
Verslunin Síða.
Tilkynning
frá Hjarta- og æðaverndarfélagi Akureyrar.
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Mánasal
Sjallans, Akureyri, laugardaginn 26. nóv. nk. kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Almennur fundur í Hjarta- og
æðaverndarfélagi Akureyrar.
Kynningarfundur fyrir almenning verður haldinn
laugardaginn 26. nóv. nk. í Mánasal Sjallans, Akur-
eyri. Fundurinn hefst kl. 15.00.
Fundarstjóri: Ragnar Steinbergsson, hæstaréttarlög-
maður.
Fundarefni: Kynning á hjarta- og æðasjúkdómum.
Erindi flytja: Jón Þór Sverrisson, hjartasérfræðingur.
Nýjungar í meðferð kransæðasjúkdóma.
Friðrik E. Yngvason, lungnasérfræðingur. Hvers vegna
reykja menn gegn betri vitund?
Kristín Sigfúsdóttir, hússtjórnarkennari. Viðhorf til matar-
æðis og manneldis.
Jón Þór Sverrisson, hjartasérfræðingur. Háar blóðfitur og
kransæðasjúkdómar.
Þorkell Guðbrandsson, yfirlæknir, dr. med. Rannsóknir um
hjarta- og æðasjúkdóma á Akureyri.
Umræður og fyrirspurnir verða að erindum ioknum.
Stjórn Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar.
Launasjóður rithöfunda
Auglýsing frá Launasjóði rithöfunda
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir árið
1989 úr Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr.
29/1975 og reglugerð gefinni út af menntamálaráðu-
neytinu 19. október 1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar
og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða úr
sjóðnum fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru
veitt í samræmi við byrjunarlaun menntaskóia-
kennara skemmst til tveggja og lengst til níu mán-
aða í senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá
mánuði eða lengur skuldbindur sig til að gegna ekki
fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna.
Slík kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum,
enda skulu þau einvörðungu veitt vegna verka sem
birst hafa næsta almanaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk sem hann vinn-
ur nú að skal fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum
sem fást í menntamálaráðuneytinu. Mikilvægt er að
spurningum á eyðublaðinu sé svarað og verður farið
með svörin sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember 1988 til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykja-
vík.
Reykjavík, 1. nóvember 1988.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda.