Dagur - 22.11.1988, Page 9
22. nóvember 1988 - DAGUR - 9
KA sigraði Þrótt auðvelcQega
KA vann ótrúlega auðveldan
sigur, 3:0, á margföldum
Islandsmeisturum Þróttar í 1.
deildinni í blaki í íþróttahöll-
inni á föstudagskvöldið. Mjög
margir áhorfendur lögðu leið
sína í Iþróttahöllina og hafa
aldrei verið fleiri áhorfendur
á blakleik á Akureyri. Stúlk-
unum í KA liðinu gekk hins
vegar ekki eins vel og töpuðu
þær fyrir Þrótti síðar um
kvöldið.
Stefán Magnússon formaður
blakdeildarinnar og einn aðal-
maður liðsins var að vonum
kampakátur eftir sigurinn. „Þetta
var mun léttari leikur en við
bjuggumst við og voru Þróttar-
arnir algjörlega slegnir út af lag-
inu vegna allra áhorfendanna.
Við vonuðum auðvitað að fólk
myndi mæta á þennan leik, en
þessi aðsókn fer fram úr björt-
ustu vonum,“ sagði Stefán Magn-
ússon KA-maður eftir leikinn.
Nokkur taugaóstyrkni var í
KA-liðinu í fyrstu lotunni og virt-
ust leikmennirnir ekki átta sig á
því að spila á þetta stórum velli.
Þróttarar gengu á lagið og kom-
ust í 8:3.
Fei þjálfari bað þá um leikhlé
og las yfir sínum mönnum. Þeir
komu tvíefldir inn á völlinn og
m.a. með fallegum smössum frá
Stefáni Magnússyni og Sigurði
Arnari Ólafssyni náðu þeir að
jafna leikinn 9:9.
Mikil og góð barátta var í báð-
um liðum á þessum tíma og skipt-
ust þau á að vinna uppgjöfina.
Jafnt var 10:10 og 11:11 en þá
sagði KA bless - skoraði fjögur
stig í röð og sigraði í hrinunni við
mikinn fögnuð áhorfenda.
Stefán og Fei gáfu tóninn í
næstu hrinu með fallegum stigum
og framan af virtist stefna í stór-
sigur KA. En Þróttarar eru með
seiga og leikreynda leikmenn og
þeir neituðu að gefast upp. A
sama tíma komu slakur leikkafli
hjá KA og Þróttur komst í 12:10.
En með seiglunni snéru heima-
menn leiknum við og sigruðu
16:14.
Þriðja hrinan þróaðist mjög
svipað og sú á undan. KA byrjaði
mun betur og komst í 9:2. Þá
slökuðu þeir á og Þróttur skoraði
sjö stig í röð.
En þá var allur vindur úr Þrótt-
urunt og það var viðeigandi að
Fei þjálfari innsiglaði sigur KA-
manna með feiknasmassi, 15:11,
í annarri tilraun og þar með var
glæsilegur sigur KA-liðsins 3:0
1. deild handbolti:
Staðan
Valur 5 5-0-0 135: 92 10
KR 5 5-0-0 128:103 10
FH 5 3-0-2 129:121 6
Víkingur 5 3-0-2 134:134 6
Grótta 5 2-0-3 110:118 4
Stjarnan 5 2-0-3 122:118 4
KA 5 2-0-3 100:117 4
UBK 51-0-4115:124 2
ÍBV 51-0-4102:121 2
Fram 51-0-3104:117 2
staðreynd.
Sömu leikmennirnir léku allan
leikinn fyrir KA og er þar valinn
maður í liverju rúmi. í þessum
leik bar mest á þeim Stefáni
Magnússyni, Fei þjálfara og Sig-
urði Arnari Ólafssyni. Einnig
kom Gunnar Garðarsson sterkur
út í Ieiknum, en hann hefur átt
við meiðsli að stríða að undan-
förnu.
Annars eru aðrir leikmenn
liðsins feiknasterkir og verður
KA liðið ekki auðsigrað í vetur ef
það leikur eins og gegn Þróttur-
unum.
Þróttararnir eru farnir að eld-
ast þó nokkuð og mættu þeir fara
að yngja upp í liðinu, ef þeir ætla
sér ekki að heltast aftur úr lest-
inni. Annars var gamla brýnið
Leifur Harðarson besti maður
liðsins að þessu sinni og einnig
átti Lárentínus Ágústsson ágæta
spretti inn á milli.
Tap en samt framför
hjá KA-stelpunum
KA stúlkunum tókst ekki að
fylgja eftir góðum árangri strák-
anna og töpuðu þær 3:0 fyrir
Þróttarameyjunum. Samt sem
áður var þessi leikur mun betri
hjá þeim en gegn Breiðabliki.
í fyrstu hrinunni sáust ágæt
tilþrif hjá báðum liðum. Þróttarar
höfðu þó alltaf undirtökin og
komust í 10:5. Með góðri baráttu
náðu KA stúlkurnar að jafna
leikinn og á sama tíma mistókust
flestar uppgjafir Þróttarastúlkn-
anna.
Ef heppnin hefði verið með
KA liðinu á þessum kafla hefðu
þær sjálfsagt sigrað í hrinunni.
En lukkan er fallvölt og í stað
KA sigurs náðu þær röndóttu að
sigra 15:12.
KA byrjaði aðra hrinuna ágæt-
lega og komst í 2:1. En þá kom
hræðilegur leikkafli hjá þeim og
Þróttarar komust í 11:4. Á þess-
um tíma vantaði allan kraft í KA
stelpurnar og leikgleðin var ekki
fyrir hendi.
Þær náðu að vísu að hressast
aðeins áður en yfir lauk en töp-
uðu samt 15:12.
Seinasta hrinan var mjög
brokkgeng hjá liðunum. KA liðið
átti ágæta spretti en datt niður á
milli í algjöra lágdeyðu. Þróttar-
ar sigruðu því nokkuð auðveld-
lega 15:6.
Það sem helst háir KA stúlkun-
um er skortur á stöðugleika. Liðið
nær að spila ágætlega á köflum en
dettur síðan niður og gerir
mistök sem byrjendur myndu
skammast sín fyrir. Með meiri
leikreynslu ætti að vera hægt að
koma í veg fyrir þessar lægðir og
þar með ná upp meiri stöðugleika
hjá liðinu. í þessu leik var Sandra
Jóhannesdóttir einna best en
Karítas Jónsdóttir átti einnig
ágæta spretti.
Hjá Þrótti bar mest á Snjó-
laugu Guðmundsdóttur.
Stefán Jóhanncsson smassar hér yfir Þróttaravörnina. Táknræn mynd fyrir
leikinn í heild.
Haustmót JSÍ:
Glæsilegur árangur KA í júdó
KA stóð sig mjög vel á Haust-
móti JSÍ sem haldið var í
Reykjavík á laugardaginn.
Félagið hlaut 15 verðlaun, 7
gull, 7 silfur og 1 brons.
Júdódeild KA átti níu kepp-
endur á mótinu, þar af voru átta
þeirra yngri en 21 árs og kepptu
því í flokki karla yngri en 21 árs.
Til þess að fá sem mesta reynslu
út úr ferðinni kepptu þeir líka í
flokki fullorðinna. Árangur
þeirra varð eftirfarandi:
Baldur Stefánsson keppti í
-60 kg fl. yngri en 21 árs og í
—65 kgfl. fullorðinna. Hann sigr-
aði mjög sannfærandi í báðum
flokkunum.
Hans Rúnar Snorrason keppti
í -65 kg fl. yngri en 21 árs og
—65 kg fl. fullorðinna. Hann sigr-
aði í yngri flokknum, en varð að
sætta sig við annað sætið í full-
orðinsflokknum á eftir Baldri
Stefánssyni.
Baldur Stefánsson sigraði glæsilega í sínum þyngdarflokki og í flokki fullorð-
inna.
Vernharð Þorleifsson keppti
—71 kg fl. yngri en 21 árs og varð
þar í öðru sæti á eftir Reykvík-
ingi eftir mjög snarpa úrslitavið-
ureign. Vernharð hóf keppni í
fullorðinsflokki, en varð þar fyrir
því óhappi að meiða sig í fyrstu
glímunni og varð því að hætta
keppni.
Freyr Gauti Sigmundsson keppti
í -78 kg fl. yngri en 21 árs og
—78 kg fl. fullorðinna. Þessi
þyngdarflokkur er nýr fyrir
Gauta því hann hefur undanfarið
keppt í —71 kg fl. í þessum flokki
er einnig félagi Gauta, Guðlaug-
ur Halldórsson. Guðlaugur var
allt síðasta tímabil ósigrandi í
—78 kg fl. yngri en 21 árs, en nú
fékk hann skell er Gauti sigraði
hann í úrslitaglímunni í yngri
flokknum. Guðlaugur fékk þó
tækifæri til þess að svara fyrir sig
er þeir félagar mættust aftur í
fullorðinsflokknum. Það gerði
Guðlaugur er hann sigraði Gauta
í úrslitaglímunni í fullorðins-
flokknum. Til þess að komast í
úrslitaglímuna urðu þeir félagar
þó fyrst að leggja að velli íslands-
meistara síðustu ára í þessum
flokki. Það gerðu þeir með glæsi-
brag. Gauti sigraði því í yngri
flokknum og Guðlaugur í öðru,
en síðan snerist þetta við í full-
orðinsflokknum, Guðlaugur í
fyrsta og Gauti í öðru. Með þeim
Guðlaugi og Gauta keppti einnig
í þessum flokkum Baldur Jóhanns-
son. Baldur er nýhafinn æfingar
aftur eftir nokkurt hlé og stóð
hann sig ágætlega, varð í þriðja
sæti í yngri flokknum, en varð að
sætta sig við fimmta í fullorðins-
flokknum.
Sigurbjörn Gestsson keppti í
—86 kg fl. yngri en 21 árs og —86
kg fl. fullorðinna. Jón Jakobsson
keppti í -95 kg fl. yngri en 21 árs
og —95 kg fl. fullorðinna. Vegna
lélegrar þátttöku í þessum
þyngdarflokkum yngri en 21 árs
voru þeir sameinaðir. Þar sigraði
Sigurbjörn og Jón Jakobsson
varð í öðru sæti. í fullorðins-
flokknum var næg þátttaka og þá
varð Sigurbjörn í öðru sæti í sín-
um flokki, eftir harða viðureign
við íslandsmeistarann í þessum
flokki. Jón Jakobsson keppti hins
vegar í sínum flokki við þjálfara
þeirra KA-manna, Jón Óðin
Jónsson. Þjálfarinn hugðist fara
vel að nemanda sínum og glíma
létt við hann en varð heldur betur
fyrir barðinu á þeirri hegðun
sinni, því að Jón Jakobsson var
mjög ákveðinn og náði hengingu
á þjálfara sínum og gat þvingað
hann þannig til uppgjafar.
Alls unnu þessir níu KA-menn
pví til 15 verðlauna á mótinu, þar
af 7 gullverðlaun, 7 silfurverð-
laun og 1 bronsverðlaun.