Dagur - 22.11.1988, Side 11

Dagur - 22.11.1988, Side 11
10 - DAGUR - 22. nóvember 1988 Karfa/Flugleiðadeildin: Þór hafði lítíð í sterka Valsmenn að gera Valur sigraði Þór örugglega með 89 stigum gegn 64 í Flugleiða- deildinni í körfubolta á sunnu- dagskvöldið. Það var einungis fyrstu mínúturnar sem Þórsarar héldu í við Valsmennina og í síð- ari hálfleik var þetta bara spurn- ing um með hve miklum mun heimamenn myndu vinna. Það var einungis fyrstu mínúturn- ar sem Þórsarar stóðu í Vals- mönnunum. Þá skiptust liðin á að skora og Þórsarar komust yfir 22:20. En þar með var draumurinn búinn og Valsmenn komust aftur yfir. Þeir juku forskot sitt jafnt og þétt og í leikhléi var staðan 49:36 KFUM- drengjunum í hag. Eftir leikhléið komu þeir grimmir til leik og juku forskot sitt upp í 20 stig. Þá slökuðu þeir örlítið á klónni og jafnvægi var í leik liðanna það sem eftir lifði leiktímans. Reyndar söxuðu Þórsarar örlítið á muninn en Valsmenn gáfu vel í undir lokin og sigruðu með 25 stiga mun 89:64, eins og áður sagði. Leikur þessi var frekar slakur og verður ekki minnst í framtíðinni sem örlagaleiks. Hittnin var slök hjá báð- um liðum og voru einungis tvær þriggja stiga körfur skoraðar í leikn- um. Reyndar var það Konráð Ósk- arsson sem setti þær báðar og geta Þórsarar huggað sig við það. Dómarar voru þeir Kristján Möller og Gunnar Valgeirsson og áttu þeir þokkalegan leik. Lið Valsmanna var mjög jafnt í leiknum, eins og sést á skoruninni hjá leikmönnunum. Fremstur meðal jafningja var Einar Ólafsson og und- ir lokin var Tómas Holton drjúgur. Hjá Þórsurum var Björn Sveins- son mjög góður í fyrri hálfleik, en sást varla í þeim síðari. Þá var Kon- ráð Óskarsson yfirburðarmaður í lið- inu og reyndar átti hann góðan leik allan tímann. Aðrir leikmenn voru nokkuð langt frá sínu besta. Stig Vals: Matthías Matthíasson 14, Tómas Holton 14, Einar Ólafsson 12, Björn Zöega 11, Bárður Eyþórsson 10, Hreinn Þorkelsson 8, Ragnar Þór Jónsson 8, Hannes Haraldsson 4, Arnar Guðmundsson 4 og Ari Gunnarsson 4. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 26, Björn Sveinsson 17, Stefán Friðleifsson 4, Jóhann Sigurðsson 4, Guðmundur Björnsson 4, Kristján Rafnsson 4, Eiríkur Sigurðsson 3 og Einar Viðarsson 2. JHB/AP Handknattleikur/1. deild kvenna: Tvö töp Þórsara fyrir suirnan Þórsstelpurnar í 1. deild kvenna héldu suður um helgina og léku tvo leiki í deildinni. A föstudags- kvöldið spiluðu þær við Hauka og töpuðu naumlega 18:21 eftir að hafa verið yfir 10:9 í leikhléi. Á laugardaginn var síðan leikið við hið sterka lið íslandsmeistara Fram og unnu heimastúlkurnar yflrburðasigur 26:5. Þórsarar byrjuðu leikinn við Hauka mjög vel og leiddu leikinn framan af. A tímabili í fyrri hálfleik náðu þær meira að segja 3 marka for- - gegn Haukum og Fram skoti. Haukarnir náðu að vísu að saxa á það forskot en Þórsstelpurnar voru yfir 10:9 í leikhléi. Haukarnir komu mjög frískir til leiks í síðari hálfleik og náðu fljót- lega yfirhöndinni. Þórsstelpurnar voru með fáa skiptimenn og sprungu hreinlega á limminu. Einkum gekk gestunum erfiðlega að stöðva Mar- gréti Theodórsdóttur og skoraði hún 11 mörk í leiknum fyrir Hauka. Á tímabili komust heimamenn í 5 marka forskot, en Þórsarar hresstust undir lokin og náðu að minnka mun- inn í tvö mörk. En Haukarnir áttu María Ingimundardóttir og félagar hennar í Þór lentu í kröppuni dansi fyrir sunnan. Mynd: TLV síðasta orðið í leiknum og sigruðu sem sagt 21:18. Markahæst og langbest hjá Hauk- unum var Margrét Theodórsdóttir. Þórunn Sigurðardóttir, fyrrverandi Þórsari, var einnig góð og skoraði 2 mörk. Hjá Þór skoraði Inga Huld átta mörk og átti mjög góðan leik. Valdís Hallgrímsdóttir var dugleg að vanda og skoraði fimm mörk. María Ingi- mundardóttir skoraði 3 mörk, Inga Vala Birgisdóttir og Margrét Björns- dóttir settu eitt mark hvor. Miklir yfírburðir Framara Það er öllum fyrir bestu að segja sem minnst frá leik Fram og Þórs. Yfir- burðir Framara voru miklir og virtust Þórsstelpurnar bera allt of mikla virðingu fyrir þeim bláklæddu. Það var einungis fyrstu sjö mínút- ur leiksins sem þær rauðklæddu héldu í við Framarana en þá skoraði hvorugt liðið mark. Síðan skoruðu Framstelpurnar átta mörk í röð og sást þá í hvað stefndi. Fyrsta mark Þórs kom eftir 17 mínútur og í leikhléi var staðan 13:3. Ekkert gekk hjá gestunum gegn sterkri vörn Framliðsins og landsliðs- markverðinum Kolbrúnu Jóhannes- dóttur og lokastaðan varð því 26:5, eins og áður sagði. Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóltir 5/3, Guðrún Gunnarsdóttir 4, Björg Bergsteins- dóttir 4, Margrét Blöndal 4, Jóhanna Hall- dórsdóttir 4, Ósk Víðisdóttir 3, Ingunn Bern- ódusdóttir 3. Mörk Þórs: Steinunn Geirsdóttir 2, Inga Huld Pálsdóttir, Valdís Hallgrímsdóttir og Marta Ingimundardóttir eitt hver. Björn Sveinsson var mjög áberandi í fyrri hálfleik gegn Val. Mvnd: tl\ Knattspyrna: Eyjólfur tíl liðs við Skagamenn? Forráðamenn 1. deildarliðs ÍA knattspyrnu hafa að undanförnu átt í viðræðum við Eyjólf Sverris- son Tindastól, um að hann gangi til liðs við félagið fyrir næsta keppnistímabil. Koma þau tíðindi ekki mjög á óvart, því undanfarin 2 sumur hefur Eyjólfur staðið sig mjög vel með Tindastól, fyrst í 3. deildinni og síðan í 2. deildinni í sumar. Sem kunnugt er lék Eyjólfur með U 21-árs landsliðinu í sumar og stóð sig vel, skoraði mikið af mörkum í æfingalcikjum og skoraði mark íslendinga í leiknum gegn Hollendingum á Laugardalsvelli. Síðast áttu Skagamenn viðræði við Eyjólf sl. föstudag, en þá kom þjálfari liðsins, Sigurður Lárussoi og gjaldkeri félagsins til Sauðá króks, gagngert til að hitta Eyjólf a máli. Atti Eyjólfur með þeim 2j klukkustunda fund, þar sem máli voru reifuð. Blaðamaður Dags hafði samban við Eyjólf og spurði hvar han hyggðist spila í knattspyrnunni næst sumar. Eyjólfur vildi lítið tjá sig ui málið, en sagði að hann ætlaði a gefa Skagamönnum svar í vikunni. Markahrókurinn Eyjólfur Sverrisson stekkur manna hæst í leik með Tindastól á liðnu sumri 22. nóvember 1988 - DAGUR - 11 Handknattleikur karla 1. deild: KA lá fyrir Fram - KA brenndi af víti rétt fyrir leikslok Vörn Fram var mjög sterk og hér fær Haraldur Haraldsson að kenna á varn- armönnunum. Myml: EHB Handknattleikur 3. deild: Þróttarar fóru létt með Völsvmg KA liðið í handbolta hlaut heldur betur slæman skell þeg- ar það tapaði fyrir Fram, neðsta liði 1. deildar, 23:22 á sunnudagskvöldið. Leikurinn var mjög slakur hjá KA strák- unum og það var einungis í byrjun seinni hálfleiks sem þeir sýndu þokkalegan hand- bolta. Annars byrjaði leikurinn ágæt- lega fyrir KA - Pétur Bjarnason skoraði fyrsta markið og Friðjón Jónsson setti annað markið, sitt fyrsta í langan tíma. En þessar fimm fyrstu mínútur voru þær einu í fyrri hálfleik sem gaman var að fylgjast með. Það sem eftir lifði hálfleiksins einkenndist af hnoði og áferðarlitlum handbolta. Framararnir börðust vel í vörninni og virtist það koma KA- mönnum í opna skjöldu. Einkum voru það bestu menn Framliðs- ins, þeir Birgir Sigurðsson og Hermann Björnsson, sem léku vel og klipptu algjörlega á þá Erling og Friðjón í sókninni, þannig að þeir skoruðu aðeins 3 mörk í leiknum. Um miðjan hálfleikinn tóku heimamenn smá kipp og kættust áhorfendur örlítið við það, en sú gleði var skammvinn því Framar- ar náðu að komast þremur mörk- um yfir og leiddu í hálfleik með tveimur, 13:11. Síðari hálfleikur byrjaði mjög vel hjá KA-mönnum. Þeir komu Tindastóll mátti bíta í þaö súra epli að tapa fyrir Haukum í Hafnarfirðinum sl. sunnudags- kvöld í Flugleiðadeildinni í körfu með 22ja stiga mun, eftir að hafa staðið í Haukunum mest allan leiktímann. Loka- tölur urðu 84:62, en staðan var jöfn, 57:57, þegar 6 mínútur voru til leiksloka. í hálfleik höfðu Haukar eins stigs forskot, 37:36. Þess má geta að Tindastóll lék án Vals Ingi- mundarsonar, sem var í leik- banni, og stjórnaði hann liði sínu af bekknum að þessu sinni. Tindastóll byrjaði leikinn vel og komst í 7 stiga forskot eftir 3 mínútur, 9:2. Liðið leiddi leikinn þar til 3 mínútur voru til leikhlés, en þá ná Haukar að jafna, 31:31, og náðu fljótlega 4ra stiga mun. Það var svo gamla kempan, Kári Marísson, sem minnkaði muninn í 1 stig fyrir hálfleik, með glæsi- legri 3ja stiga körfu. Haukar bættu aðeins við for- skotið í upphafi seinni hálfleiks, en það stóð ekki lengi. Með bar- áttu og góðum leikkafla náðu leik- menn Tindastóls að jafna og komast yfir. Þegar sjö mínútur voru Iiðnar af seinni hálfleik var staðan 45:43, Tindastól í hag, og þegar hálfleikurinn var hálfnaður var einnig 2ja stiga munur, 53:51. Þannig hélst munurinn, þar til 6 mínútur voru til leiksloka. Þá var eins og slökkt hafi verið á takka í miklu frískari til leiks í bæði vörn og sókn og skoruðu fjögur fyrstu mörk hálfleiksins. Sigfús Karls- son kom í markið og varði tví- vegis frá Frömurum og kættust nú áhorfendur því menn bjuggust við að KA-menn myndu sýna sitt rétta andlit. Mótlætið fór mjög í taugarnar á Frömurum og var Jens Einars- syni markverði liðsins sýnt rauða spjaldið. En því miður fyrir heimamenn tvíefldust þeir blá- klæddu og á sama tíma koðnaði leikurinn niður hjá KA- mönnum. Þeir voru yfir 20:17 þegar tæp- ar fimmtán mínútur voru eftir en Frömurum tókst að komast yfir 22:21 og sigra 23:22, eins og áður sagði. KA þarf heldur betur að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla sér að standa í Stjörnunni annað kvöld. Eini maðurinn sem eitthvað bar á var Sigurpáll Árni Aðal- steinsson og skoraði hann gull- falleg mörk úr horninu. Það var því blóðugt fyrir hann að brenna af vítinu rétt fyrir leikslok sem tryggt hefði KÁ jafntefli. Pétur Bjarnason var frískur framan af leiknum, en datt niður undir lok- in eins og flestir aðrir leikmenn liðsins. Skytturnar Friðjón og Erlingur voru mjög daufar og verða að vera ákveðnari að lyfta sér upp og skjóta á markið. Hjá Fram átti Birgir Sigurðs- son stórleik á línunni. Varnar- liði Tindastóls, ekkert gekk upp, hvorki í sókn né vörn og Hauk- arnir gengu á lagið og röðuðu niður körfum. Á meðan heima- menn skoruðu 27 stig á síðustu 6 mínútunum gerðu leikmenn Sverrir Sverrisson setti 11 stig gegn Haukuin. menn KA réðu ekkert við hann og telja má fullvíst að hann kom- ist í íslenska landsliðið með sama áframhaldi. Hermann Björnsson var sterkur í horninu og skoraði dýrmæt mörk. Annars er hægt að hrósa öllu Framliðinu fyrir mikla baráttu og fyrir það að gefast aldrei upp. Áhorfendur á Akureyri voru KA til lítils sóma á sunnudags- kvöídið. Sessum, sælgæti og tóm- um gosdósum rigndi inn á völlinn undir lok leiksins og ef slíkt endurtekur sig gæti félagið jafn- vel misst heimaleik. Það þýðir lít- ið að skeyta skapi sínu á dómur- um eða leikmönnum hins liðsins þegar heimaliðið leikur illa, eins og KA-liðið gerði á sunnudags- kvöldið. Dómarar leiksins voru þeir Björn Jóhannesson og Guðjón L. Sigurðsson og fannst báðum lið- um hallað á sig með dómgæslunni og segir það sitt um frammistöðu þeirra. Það er rétt að þeir voru of linir og leyfðu of mikla hörku, en það er ekki hægt að segja að þeirra framlag hafi haft úrslita- áhrif á lokatölur leiksins. Mörk KA: Sigurpáll Á. Aðalsteinsson 8/4, Pétur Bjarnason 5, Jakob Jónsson 3, Haraldur Haraldsson 2, Erlingur Krist- jánsson 2, Guðmundur Guðmundsson 1, Friöjón Jónsson I. Mörk Fram: Birgir Sigurðsson 8, Her- mann Björnsson 6/2, Agnar Sigurðsson 3, Júlíus Gunnarsson 3/1, Tryggvi Tryggva- son 2, Egill Jóhannesson Í. Tindastóls aðeins 5 stig, segir það sína sögu. Það verður að segjast að leik- menn Tindastóls spiluðu leik- inn vel, ef frá eru teknar síðustu mínútur hans. í fyrri hálfleik og fram í þann síðari spiluðu strák- arnir sem ein liðsheild og léku rnjög vel. Ekki er gott að vita hvernig leikurinn hefði farið, hefði Valur Ingimundarson leikið með, en líklegt má telja að úrslit- in hefðu orðið önnur. En það er nú þetta stóra „ef“. Lið Tinda- stóls var nokkuð jafnt að þessu sinni, það sést á stigaskorununni. Þó skal nefna Ágúst Kárason, sem lék með að nýju eftir smá hlé. Hann lék mjög vel í leikn- um, hirti 13 fráköst og skoraði sín fyrstu stig í vetur í Fluglciða- deildinni. Hjá Haukum var það Pálmar Sigurðsson sem var atkvæða- mestur, auk þess sem ívar Ásgrímsson og Jón Arnar léku ágætlega. -bjb Stig Tindastóls: Eyjólfur Sverrisson og Haraldur Leifsson 14, Sverrir Sverrisson og Kári Marísson 11, Björn Sigtryggsson 7, Ágúst Kárason 4 og Guðbrandur Stefánsson 1. Stig Hauka: Pálrnar Sigurðsson 29, fvar Ásgrímsson 14, Jón Arnar Ingvarsson 12, Ingimar Jónsson 9, Ólafur Rafnsson 8, Henning Henningsson 6, Eyþór Árna- son 4 og Reynir Kristjánsson 2. Dómarar voru Sigurður Valgeirsson og Kristinn Albertsson. Dómgæsla þeirra var óaðfinnanleg, þar til í lokin er þeir misstigu sig nokkrum sinnunt með flautuna. Völsungar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Þróttara í 3. deildinni í hand- bolta um helgina. Gestirnir sigruðu í báðum leikjunum, á föstudagskvöldið 33:19 og á iaugardaginn 29:14. Hið unga og óreynda lið Völsunga hafði ekkert í Þróttar- ana að gera og hinir fáu áhorf- endur sem létu sjá sig höfðu lítið gaman af leiknum - svo miklir vorur yfirburðir Þróttara. Vilhjálniur Signtundsson var niarka- hæstur Völsunga. Mynd: 1M Það var helst Vilhjálmur Sig- mundsson sem reif sig upp úr meðalmennskunni í fyrri leiknum hjá Völsungi og var markahæstur leikmanna heimamanna um helg- ina. Annars er lítið gaman að rifja upp gang máia. Þróttarar náðu strax forystunni og juku hana jafnt og þétt til leiksloka. Völs- ungum gekk erfiðlega að hemja Indriða Einarsson í liði Þróttar en hann gerði 15 mörk í leiknum. Mörk Völsunga í fyrri leiknum gerðu: Vilhjálmur Sigmundsson 5, Tryggvi Þór Guðmundsson 4, Skúli Hallgrímsson 3, Kristinn Vilhjálmsson 3, Þórir Gunnars- son 2, Jón Höskuldsson og Arnar Bragason eitt hvor. Dómarar leiksins voru þeir Stefán Arnaldsson og Ólafur Haraldsson og var dómgæsla þeirra til fyrirmyndar. Leikur liðanna á laugardag- inn var áþekkur hinum fyrri. Yfirburðir Þróttara voru miklir og áttu Völsungar aldrei mögu- leika í leiknum. Mörk Völsunga: Skúli 3, Tryggvi 3, Jóhann 3, Vilhjálmur 2, Jón, Jónas og Örvar eitt hver. AB/AP Fær sjónvarpið að sýna handboltann? Samkvæmt heimildum Dags standa nú yfir samningavið- ræður milli Stöðvar 2, Ríkis- sjónvarpsins og Félags 1. deildarfélaga í handbolta um hugsanlega möguleika Ríkis- sjónvarpsins á útsendingum frá deildarleikjum í hand- knattleik í vetur. Eins og flestir vita þá gerðu Stöð 2 og Félag 1. deildar félaga santning um að Stöð 2 hefði einkarétt á því að sýna frá leikj- um í 1. deildinni í handknatt- leik í vetur (reyndar hafa KA- menn lýst sig andvígan þessum samningi). Þessi samningur mæltist illa fyrir hjá þorra landsmanna og Stjórn HSÍ lýsti því yfir aö hún væri ekki hress meö slíka einok- unarsamninga. En samningurinn - stóð og Ríkissjónvarpið hefur því ekkert sýnt frá handboltan- um. Samkvæmt heimildum Dags stendur deilan aðallega um að Stöð 2 vill að Ríkissjónvarpið falli frá ýmsum einokunarsamn- ingum, t.d. sýningum frá Ólyrn- píuleikjum, gegn því að Stöð 2 hætti að einoka handboltann. Þetta munu Ríkissjónvarps- menn ekki vera hrifnir af enda telja þeir að ætíð nuini verða samkeppni um erlent efni. Karfa * Valslaust Tindastólsliðið tapaði naumt fyrir Haukum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.