Dagur - 07.12.1988, Qupperneq 3
7. desember 1988 - DAGUR - 3
Sláturhús KÞ:
Niðurskurði 1000 íjár vegna
fækkunarsanuiinga lokið
- lægri meðalvigt en í fyrra
Jólafundur
Parkinsonsfélagsins á Akureyri og nágrenni
veröur haldinn laugardaginn 10. desember kl. 2 í
Glerárkirkju.
Mætum öll og tökum meö okkur gesti.
Nefndin.
Vegna fækkunarsamninga við
bændur hefur rúmlega 1000
fjár verið slátrað hjá Sláturhúsi
Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík, síðan hefðbundinni
sláturtíð lauk í haust. AIIs var
slátrað tæplega 40 þúsund fjár
í húsinu og er það heldur færra
en í fyrrahaust.
Sláturtíð stóð frá 7. sept. til 7.
okt. Að sögn Þorgeirs Hlöðvers-
sonar sláturhússtjóra gekk hún
vel, heldur skarpar en í fyrra og
ástæða til að þakka starfsfólki vel
unnin störf, 130-140 manns unnu
við slátrunina.
Meðalvigt var 13,8 kg, nokk-
uð lægri en í fyrra og kom það á
óvart en þá var hún 14,6 kg.
Skýringin á lægri meðalvigt gæti
m.a. falist í því að mikill þurrkur
var framan af sumri á sumum
afréttanna en síðan var ágúst
úrkomusamur. Minni meðalvigt
minnkaði vandræði manna vegna
fullvirðisréttar að sögn Þorgeirs.
„Ekki liggja* fyrir endanlegar
upplýsingar um hvernig þetta
hefur komið út en ég hygg að
fullvirðisrétturinn hafi yfir höfuð
ekki verið vandamál,“ sagði
Þorgeir. „í þó nokkrum tilfellum
Iðnaðarbankinn:
Góð sala í hlutabréfiun í
Eimskipi og Iðnaðarbanka
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamark-
aðar Iðnaðarbankans, ræddi
verðbréfaviðskipti og ráðlagði
gestum og gangandi í þeim efn-
um í útibúi Iðnaðarbankans að
Geislagötu 14 á Akureyri sl.
laugardag. Iðnaðarbankinn
mun hafa opið næstu þrjá laug-
ardaga frá kl. 11 til 15 fyrir
verðbréfaviðskipti og að sögn
Finns Sigurgeirssonar hjá Iðn-
aðarbankanum er ætlunin að á
hverjum laugardegi verði sér-
fróður maður í verðbréfavið-
skiptum til staðar í bankanum.
Hlutur Iðnaðarbankans í verð-
bréfaviðskiptum og sölu hluta-
bréfa í fyrirtækjum hefur farið
vaxandi á liðnum árum. Finnur
Sigurgeirsson segir sölu í bæði
verðbréfum og hlutabréfum hafa
verið mjög líflega að undan-
förnu. „Einkum hefur verið mikil
sala í sölu hlutabréfa í Iðnaðar-
bankanum og Eimskip," segir
Finnur.
Að sögn Finns leituðu margir
ráðlegginga hjá Sigurði B. Stef-
ánssyni sl. laugardag um ávöxtun
verðbréfa og hvaða leiðir væru
vænlegastar til þess nú, þegar
ríkisstjórnin væri að þrýsta vöxt-
um niður. óþh
Margir Akureyringar notfærðu sér kynningu Iðnaðarbankans. Á myndinni
sést starfsfólk bankans ræða við einn af viðskiptavinum hans um innlánskjör
á sparifé O.fl. Mynd: EHB
Akureyri:
Nýir eigendur að
Bflavali sf.
Nýir eigendur hafa tekið við
rekstri Bílavals sf. á Akureyri,
en fyrirtækið er til húsa að
Strandgötu 53.
Þeir Kári Agnarsson, Gunnar
Sigtryggsson, Haukur Sveinsson
og Sveinn Rafnsson reka og eiga
Bílaval. Fjórmenningarnir eru
allir þaulkunnugir í bílaviðskipt-
um og hafa starfað meira eða
minna á því sviði um árabil.
„Við breyttum innréttingunum
og húsnæðinu mikið og getum
því veitt betri þjónustu en áður.
Við erum líka með góða inni-
aðstöðu fyrir bíla,“ sagði Kári
Agnarsson. En hvernig lítur bíla-
markaðurinn út í dag? „Þetta er
auðvitað einn rólegasti tími árs-
ins en það er líka búið að selja
mikið undanfarið og markaður-
inn var orðinn mjög mettaður en
ég er ekki í neinum vafa um að
bílasalan fer af stað aftur, menn
hafa alltaf þörf fyrir að skipta um
bíla þó að þeir séu hálfblankir,“
sagði Kári Agnarsson. EHB
nýttu bændur ekki sinn rétt að
fullu en aðrir fóru aðeins fram
yfir, svo ég veit ekki hvernig
svæðið hefur komið út í heild-
ina.“
Um þrjár vikur eru síðan fé var
slátrað vegna fækkunarsamning-
anna og sagðist Þorgeir telja að
þeim niðurskurði væri nú lokið.
Stórgripum er lógað eftir hend-
inni og leitast við að selja kjötið
ófrosið og hefur sú tilhögun
gengið þokkalega. Nautgripum
og svínum er því slátrað í húsinu
allt árið og aðspurður sagði
Þorgeir að nóg væri til af svína-
kjöti í jólamatinn. IM
DAGUR
Reykjavík
B 91-17450
Norðlenskt dagblað
• Sokkar.
• Sokkabuxur.
• Hnésokkar.
• Gammosíur.
• Bómullar-
sokkabuxur.
• Góðar og
þægilegar.
• Snið sem
passar.
Einu sinni falke aiitaf falke.
Vörusalan s.f.
Hafnarstrœti 104, sími 22449
falke UMBOÐIÐ -HEILDVERSLUN HÁALEITISBRAUT 68 SÍMI 84240
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
á niðursoðnu grænmeti
frá K. Jónsson og Co.
Mikill afsláttur
Tilboðið stendur til áramóta
á öllu félagssvæðinu.
Kjörbúðir