Dagur - 07.12.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 07.12.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 7. desember 1988 „Eiga strákamir ekki að vaska upp í dag?“ Miklar kröfur gerðar Kennt er í 10 tíma á viku, 5 tíma í senn á mánudögum og miðviku- dögum. Hópurinn saman stendur af um 12-14 nemendum og er honum skipt í tvennt. Annareld- ar matinn og hinn framreiðir ann- an daginn og snúast hiutverkin við hinn daginn. Sami matseðill er báða dagana. í bóklegri kennslu er svipað fyrirkomulag, þ.e. matreiðsla er kennd eina vikuna og framreiðsla hina. í matreiðslu læra nemendur að elda hinn ýmsa veitingahúsamat, þ.m.t. forrétti og eftirrétti. Þá læra þau einnig bakstur hjá hús-1 stjórnarkennara. Einu sinni á önninni er farið í heimsókn á kjötiðnaðarstöð og þar fylgjast þau með úrbeiningu kjöt- skrokka. Þau þurfa að kunna skil á helstu vöðvum og hvernig best er að nota þá. í framreiðslu læra nemendur að sjálfsögðu að reiða fram veit- ingar, þ.e. allar kúnstarinnar reglur um hvernig skammta á af fötum, taka á saman diska og fleira. Auk þessa læra þau hvern- ig leggja skal á borð við hin ýmsu tækifæri og fjölda servíettubrota. Þá læra þau um vín í 1. bekk en sem dæmi má nefna að nemendur í Hótel- og veitingaskóla íslands læra ekki um vín fyrr en í 3. bekk. Þeir Ómar og Steinþór voru sammála um að í veitinga- tækniáföngunum í VMA væru gerðar meiri kröfur en hjá Hótel- og veitingaskólanum. Eftir ára- mót verður síðan farið út í að - litið inn hjá nemendum í veitingatœkni í VMA Við erum stödd á Hússtjórnarsviði Verkmenntaskólans á Akureyri á mildum vetrarmorgni seint í nóvember. Það er rétt byrjað að birta af degi og nemendur í l.M á matvælabraut eru að hefja starfsdaginn. Þar sem þetta er síðasti kennsludagur fyrir jól var okkur tjáð að bráð- lega myndi lykt af svínahamborgarhrygg fylla öll vit. Þau létu nærveru blaðamanna ekki hafa áhrif á sig og tóku til við undirbúninginn, en við króuðum kennarana af á meðan og röktum úr þeim garnirnar. Nemendur sem velja sér mat- vælabraut sem aðal námssvið, hljóta sjókokkaréttindi að einu ári loknu, en þeir eru víst ekki margir sem nýta sér þau. Eftir tveggja ára nám á þeim að vera kleift að reka lítið mötuneyti. Auk þess sem þá geta nemendur haldið áfram og lokið stúdents- prófi eða farið í Hótel- og veit- ingaskóla íslands og fá þar til- heyrandi styttingu á námstíma. I áfangalýsingu fyrir VET 235A, en þar erum við einmitt í heimsókn, segir að markmið námsins sé að nemendur öðlist þekkingu og þjálfun í undir- stöðuþáttum matreiðslu og fram- reiðslu miðað við hótel og veit- ingastaði. Heiti algengustu fæðu- tegunda og matseðlar á frönsku tengjast fagbóklegu námi. Kennslu í þessu fagi skulu mat- reiðslu- og framreiðslumeistari annast. Það eru þeir Haukur Tryggvason og Ómar Gylfason framreiðslumeistarar á Hótel KEA sem skipta með sér fram- reiðslukennslunni og Steinþór Steinþórsson matreiðslumeistari á Hótel KEA sér um matreiðsl- matreiða fínni rétti og gera mat- seðla, en að sögn kennaranna má fara að sjá mikinn mun á nem- endunum þegar líða fer á vor- ið ef þeir eru bornir saman við ástandið um haustið. Einu sinni á ári, venjulega í febrúar eða mars, er bæjarstjórn Akureyrar boðið í mat. Má segja að hér sé á ferð- inni hápunktur vetrarins, því þeirri veislu stjórna nemendur sjálfir. Venjulega er boriri fram 5 rétta máltíð á þessum stóra degi. Kennararnir fitna Þeir Ómar og Steinþór voru spurðir hvernig þeim þætti að una. Jólalyktin var ómótstæöileg og vissara að gæta vel að kjötinu i ofninúm. Það er ekki hægt annaö cn að taka hraustlega til matar síns þegar svona Ijúf- fengur matur er á borðum. kenna þessi fög, en báðir starfa í fullu starfi við sitt fag. Þeir eru báðir að kenna sinn 3ja vetur og sögðu kennsluna góða tilbreyt- ingu frá hinu. „Við tökum fram, að þetta gerum við eingöngu fyrir hugsjónina." Aðspurðir sögðu þeir að vissulega kæmi örvænt- ingin stundum yfir þá þegar þeim finnst ekkert ganga vel, en á haustin væru þeir alltaf farnir að hlakka til að taka á móti nemend- um á ný. Nemendur í veitingatækni eiga auðvelt með að fá sér aukavinnu með skólanum og segja kennarar við skólann í gríni, að vart sé þverfótað fyrir nemendum á skemmtistöðum bæjarins. Ómar og Steinþór sögðu reyndar, að þessir nemendur væru einstak- lega góðir starfskraftar á veitinga- húsum og að mikill munur sé á að vinna með þeim, eða öðrum sem ekki hafa þessa reynslu. Það er um að gera að fara mynduglega að þessu öllu saman og sjálfsagt að hjálpast að.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.