Dagur - 23.12.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 23. desember 1988
Jól á Seyðisfirði:
„Tökum hressilega
á móti nýju ári“
- segir Þorvaldur Jóhannesson bæjarstjóri
„Hér eru menn farnir að búa
sig undir að taka á móti jólun-
um. Síðasta Ioðnuskipið er
komið í höfn og síldveiði er að
mestu Iokið,“ sagði Þorvaldur
Jóhannsson bæjarstjóri á
Seyðisfirði aðspurður um
hvort bæjarbúar væru komnir í
jólaskap.
Bærinn er kominn í jólabúning
með tilheyrandi jólaskrauti og
-lýsingum. Ekki hefur borið á
hópferðum til verslunar í aðrar
áttir „enda byggist tilveruréttur
okkár á því að fólk versli heima,“
sagði Þorvaldur.
Hann sagðist búast við að upp-
úr þessu færu menn að slappa af
og búa sig undir að taka hressi-
lega á móti nýju ári. Sagðist hann
vona að fólk tæki á móti því með
bjartara hugarfari en ríkt hefur í
lok þessa árs og sannfærður um
að nú hljóti íslendingar að hafa
áttað sig á því, hver sé undir-
stöðu atvinnuvegurinn. Nú þurfi
stjórnvöld aðeins að koma traust-
um fótum undir hann og þá snúist
allt upp á við aftur.
Ekki hefur borið á atvinnuleysi
á Seyðisfirði á þessu ári, en þar er
alltaf sama vandamálið þ.e.
skortur á íbúðahúsnæði. „Það
heyrir orðið fortíðinni til að ein-
staklingar byggi sér íbúðarhús-
næði úti á landi og það er að verða
gífurlega mikið umhugsunar-
efni.“ VG
Þórshöfn-VopnaQörður:
Vegurinn einungis
lokaður í 22 daga
- leiðrétting
Einar Friðbjörnsson verkstjóri
Vegagerðar ríkisins á Vopna-
firði hafði samband í fram-
haldi af viðtali hér í blaðinu
þar sem fram kom að ófært
hafi verið á milli Vopnafjarðar
og Þórshafnar í þrjár vikur
samfleytt á síðasta ári.
Einar sagði þetta alrangt. Á
síðasta ári var lokað í 22 daga, en
ævinlega mokað tvo daga í viku
þannig að þá daga sem mokað
var gátu menn hæglega komist á
milli Vopnafjarðar og Þórshafn-
ar. í janúar lokaðist vegurinn
aldrei, 10 daga í febrúar, 6 daga í
mars og jafn oft í apríl. Árið 1987
var einungis lokað í 4 daga á milli
þessara staða. Það sem af er þess-
um vetri hefur þurft að moka
tvisvar sinnum á milli, enda vet-
urinn afar góður.
FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
Á AKUREYRI
Breyting á heimsóknar-
tímum um jól og áramót
Aðfangadagur og gamlársdagur.
Heimsóknartími kl. 18.00-21.00.
Jóladagur, annar dagur jóla og nýársdagur.
Heimsóknartími kl. 14.00-16.00, 19.00-20.00 og eftir
samkomulagi við viðkomandi deild.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
-it>-
Hátel KEA
óskar viðskipiavinum sínum
gfeðifajra jóía
°9 farsceídar á nýju ári
Starfsmenn Útvarps Ólundar, f.v. Geir Gíslason, Kristinn Magnússon og Áskell Þór Gíslason.
Ólund vel tekið
Mynd: GB
Útvarpsstöðin Ólund á Akureyri
hefur nú verið starfrækt um skeið
og hafa viðtökurnar verið góðar,
að sögn Vals Sæmundssonar dag-
skrárgerðarmanns. Hann segist
sérstaklega hafa orðið var við
áhuga hjá skólafólki á Akureyri.
„Þenkjandi unglingar hafa tekið
Ólund opnum örmum, en hins
vegar er það útbreiddur misskiln-
ingur að við spilum bara þunga-
rokk og pönktónlist. Dagskráin
er mjög fjölbreytt. Við spilum
líka gullaldartónlist og er sjálf-
sagt að benda eldra fólki á það.
Þá er Ólund með fréttir á hverju
kvöldi, bæjarfulltrúar og fleiri
hafa komið í heimsókn, þannig
að flestir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi,“ sagði
Valur. Þess má geta að lokum að
Ólund er nú í jólafríi til 28. des-
ember. SS
Útflutningur á kindakjöti:
Um 2000 toim til Norðiir-
landaima á næsta árí
- 7 tonna prufusending til Búlgaríu
Nú eru Iíkur á að náðst hafi
samningar um sölu á nálægt
2000 tonnum af íslensku
lambakjöti erlendis á næsta
ári. Fyrir lok janúarmánaðar
verður Ijóst um sölu á um 700
tonnum til viðbótar, bæði aust-
Allþokkalegt atvinnuástand er
nú á Vopnafirði. Einhverjir
munu þó vera á atvinnuleysis-
skrá, en það eru allt konur sem
unnu í saumastofunni Hrund.
Iðnaðarmenn hafa haft yfrið
nóg að gera á haustdögum og í
fiskvinnslunni hefur einnig
veriö þokkalegt að gera.
Sveinn Guðmundsson sveitar-
stjóri á Vopnafirði segir sauma-
stofuna allan sinn lífaldur hafa
staðið á brauðfótum. Megnið af
hennar verkefnum hafi verið
ýmiss konar smáverkefni, en hún
veitti þó um tíu manns vinnu.
Hreppurinn á 20% í saumastof-
unni og Kaupfélag Vopnfirðinga
20%, ýmsir einstaklingar, allt
heimamenn eiga afganginn.
„Þetta hefur gengið hálf brösug-
lega,“ segir Sveinn. „Saumastof-
an vann verkefni fyrir gamla Ála-
foss og jafnvel þótt hinn nýi hafi
reynt að vera vinsamlegur þá
dugir það ekki til.“
Bullandi vinna hefur verið hjá
iðnaðarmönnum bæjarins, enda
mikið blíðviðri verið allt haustið.
Ýmis stór verkefni hafa verið í
gangi hjá iðnaðarmönnunum.
Hvað fiskvinnsluna varðar er
síldarsöltun lokið fyrir nokkru á
ur og vestur um haf. Miðað við
að allir þessir samningar stand-
ist og sala á lambakjöti innan-
lands verði um 8200 tonn mun
ganga á birgðir af lambakjöti í
landinu.
Eins og blaðið hefur sagt frá
Vopnafirði, en unnið hefur verið
í frystihúsinu undanfarnar vikur.
Fiskvinnslufólk verður í fríi um
jólin, enda tvö skipanna búin
með kvóta sinn. Brettingur verð-
ur að veiðum milli jóla og nýárs,
en selur aflann í Bretlandi þann
5. janúar. mþþ
„Höfnin verður full af skipum
á alla kanta og tví- og þrísetið
sums staðar,“ sagði Baldvin
Þorsteinsson, hafnarvörður
hjá Akureyrarhöfn, þegar
hann var spurður um fjölda
skipa í höfninni yfir hátíð-
arnar.
Allir togarar Útgerðarfélags
Akureyringa hf. verða í höfn, en
þeir eru sex talsins. Þá verða tvö
skip Samherja hf., Akureyrin og
Oddeyrin, í höfn, en Margrét EA
mun landa í Þýskalandi 28. des-
ember og er eina Akureyrarskip-
ið sem verður fjarverandi um
liggja fyrir samningar um sölu á
650 tonnum til Svíþjóðar. Þessu
til viðbótar er ráðgert að sama
magn verði selt til Færeyja og 4-
600 tonn til Finnlands.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er hugsanlegt að íslenskt
lambakjöt verði einnig selt til
Asíulanda í gegnum samninga
íslendinga við Norðmenn og
EFTA. Að sögn Árna Jóhanns-
sonar, framkvæmdastjóra
Búvörudeildar Sambandsins,
standa yfir athuganir á fleiri sölu-
möguleikum og í því sambandi
nefndi hann að ákveðið væri að 7
tonna prufusending fari til Búlg-
aríu innan tíðar.
Árni segir að mjög erfitt verði
að ná hagstæðu verði á mörkuð-
um austan járntjalds enda óski
þessar þjóðir eftir að kaupa kjöt í
mjög stórum skömmtum. Betra
verð fást á Norðurlandamarkað-
inum og segir Árni að útlit sé fyr-
ir að í þessum löndum verði verð-
hækkunin milli ára meiri en sem
nemur verðbólgu í viðkomandi
löndum. JÓH
jólin. Súlan EA og Þórður Jónas-
son EA verða einnig í höfn.
Auk þessara tíu skipa frá
Akureyri verða allmörg utan-
bæjarskip í Akureyrarhöfn.
Húsavík, Ólafsfirði og Dalvík
eiga eitt skip hvert í höfninni.
Þrjú skip koma frá Hrísey, tvö
frá Hauganesi og tvö frá
Árskógssandi. Þann 27. desem-
ber kemur Drangey frá Sauðár-
króki til Akureyrar. Tvö flutn-
ingaskip koma til Akureyrar á
milli jóla og nýárs, strandferða-
skipið Hekla og færeyskt skip.
EHB
Vopnaflörður:
Næg atvinna f\TÍr
aJla nema saumakonur
- fiskvinnslufólk í fríi um hátíðarnar,
en Brettingur siglir til Bretlands á nýju ári
23 skip í Akureyrar-
höfii um jól og áramót
• i/Nrri i/r a
A U I IDCVDI