Dagur - 23.12.1988, Side 3
n^at' ‘•ertmannK <M' . CIIIÍVUI _ l'
23: desember 1988 - DAGUR - 3
Orkustofnun með frekari rannsóknir
á jarðlögunum undir Hrísey:
Er nóg heitt vatn í Hrísey
fyrir íiskeldisfyrirtæki?
Heitavatnsboranir í Hrísey
fyrir rúmu ári gáfu mjög góða
raun eins og menn rekur minni
til. Upp kom mikið magn af
heitu vatni sem reyndist miklu
meira en nóg til þess að hita
upp öll hús í Hrísey. Mikill
áhugi er fyrir því í Hrísey að
nýta heita vatnið í fiskeldi.
Akvörðun um stofnun fiskeld-
isfyrirtækis þar verður þó að
Skagaströnd:
Eldur um
borð í
togara
Aðfaranótt þriðjudagsins var
slökkvilið Skagastrandar kall-
að um borð í togarann Þröst
frá Bíldudal sem lá þar í höfn.
Skipið var ekki tengt rafmagni
úr landi heldur var ljósavélin
höfð í gangi. Það var svo um kl. 4
sem menn sem vöktuðu skipin í
höfninni þessa nótt urðu varir við
að öll ljós í Þrestinum voru
slokknuð. Fóru þeir þá um borð
til að kanna hverju það sætti og
urðu þá strax varir við að reyk
lagði upp úr vélarrúminu. Þeir
lokuðu vélarrúminu eins vel og
hægt var og kölluðu slökkviliðið
á staðinn. Þegar reykkafarar
komu niður f vélarrúmið kom í
ljós að ljósavélin hafði ofhitnað
og eldgreinin orðið glóandi og
kveikt út frá sér í rafmagnstöflu.
Þegar slökkviliðið kom niður í
vélarrúmið var eldurinn kafnað-
ur. Búnaður er við ljósavélina
sem á að slökkva á henni ef hún
hyggjast á frekari rannsókn
jarðvísindamanna á því hversu
mikið vatnsmagn er þarna í
iðrum jarðar auk frekari rann-
sókna á jarðiögum undir
eynni. Búist er við að Orku-
stofnun skili skýrslu um athug-
un á þessum þáttum um mán-
aðamótin janúar-febrúar á
næsta ári.
Að sögn Gríms Björnssonar,
jarðvísindamanns á Orkustofnun,
er ljóst að jarðlögin undir eynni
eru mjög vatnsgæf. Hann segir
hins vegar að nauðsyn sé á frek-
ari rannsóknum á samspili heita
og kalda vatnsins í og við borhol-
urnar. „Það virðist vera við-
kvæmt jafnvægi rnilli streymi
heita vatnsins upp og út í köldu
jarðlögin og streymi kalda vatns-
ins ofan í holurnar. Við þurfum
umfram allt að geta sagt betur til
um þetta jafnvægi, beisla þarf
kalda vatnið þannig að það setji
ekki strik í reikninginn með nýt-
ingu þess heita,“ segir Grímur.
Sem liður í rannsókn á þessu
flókna samspili heita og kalda
vatnsins segir Grímur að þurfi að
afla upplýsinga um hið svokall-
aða Iárétta lag sem virðist vera
undir Hrísey. Þetta lag er mjög
lekt og gæti verið rautt millilag.
óþh
Um atvmnuleysi
- athugasemd frá Þorleifi Pór Jónssyni
Vegna viðtals við undirritaðan,
sem birtist í Morgunblaðinu þann
14. þessa mánaðar hafa Björn
Snæbjörnsson og Ármann Helga-
son sett fram hugleiðingar um
atvinnuleysismál sem rétt er að
svara, þó ég hefði frekar kosið að
þeir hefðu rætt við mig áður en
þeir fóru í blöðin svo hægt hefði
verið að útskýra hlutina beint.
Björn bendir réttilega á að
misskilningur hafi verið milli mín
'og Vinnumiðlunarskrifstofu um
skráningu starfsmanna frá Ála-
fossi hf. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á þeirn mis-
skilningi.
Ármann virðist rugla saman
hugtökunum eðlilegt og æskilegt.
Meðan atvinnuleysi er skráð og
bætur greiddar vegna atvinnu-
leysis þá er ekki komist hjá því
að einhverjir séu á bótum tíma-
bundið vegna þess að þeir eru að
skipta um vinnu eða af einhverj-
um orsökum hafa ekki vinnu við
sitt hæfi. Sá tími er mislangur í
hverju tilfelli og er ég sammála
Ármanni um að vissulega er
æskilegast að allir hafi vinnu við
sitt hæfi, þó jafnvel í fullkomnu
samfélagi sé erfitt að uppfylla
það.
Hvað varðar spurningu Ár-
manns um það hvort þetta sé
skoðun Atvinnumálanefndar eða
mín einkaskoðun þá skal bent á
að viðtalið var við mig en ekki
nefndina og hef ég énga heimild
til að leggja henni orð í munn.
Þetta eru því mínar einkaskoðan-
ir, þó svo aðrir virðist kunna bet-
ur við að tala fjölskipaðir.
Karlmannaföt
stakir jakkar og buxur
Frakkar ★ Peysur ★ Skyrtur ★ Morgunsloppar
Treflar ★ Hanskar og margt fleira í glæsilegu
úrvali.
Klæðskeraþjónusta
VersliÖ hjá fagmanni
Opið í hádeginu alia daga.
enrabudin
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
missir kælivatn eða ofhitnar af
öðrum orsökum. Hann virðist
hafa verið óvirkur og því fór sem
fór. Litlar skemmdir urðu af eldi
en trúlegt er að ljósavélin hafi
eyðilagst vegna hita. fh
Vegagerðin:
Snjómokstur
um jól og
áramót
Vegagerðin hefur tilkynnt hve-
nær hún mun verða með
snjómokstur um jól og áramót.
Á leiðinni Reykjavík-Akureyri
og af þjóðbraut til Sauðár-
króks, Siglufjarðar, Hvamms-
tanga og Skagastrandar verða
mokstursdagarnir 10-15, eftir
því hve snjóþungt verður. Á
lciðinni frá Varmahlíð í Stein-
staðaskóla og af Siglufjarðar-
vegi heim að Hólum verða
mokstursdagarnir átta. Mokst-
ur um hátíðisdagana gildir frá
19. des. til 6. jan. ’89.
Á leiðinni Reykjavík-Akureyri
og til Sauðárkróks, Siglufjarðar,
Hvammstanga og Skagastrandar
verður mokað 22., 23., 26., 27.,
29. og 30. desember og 2., 3., 5.
og 6. janúar 1989. Ef snjólétt
verður, á að moka 28. desember
og 4. og 5. janúar.
Á leiðinni frá Varmahlíð til
Steinstaðaskóla og af Siglufjarð-
arvegi heim að Hólum í Hjalta-
dal verður mokað 22., 23., 27. og
30. desember og 2., 3. og 6.
janúar ’89. -bjb
Óskum (atídsmömmm ööhhi
gteðifeíjrajóíd
Pökkmttviðsfáptináármusemer að (íðcL
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599