Dagur - 23.12.1988, Blaðsíða 8
8 - ÖAGOR - 23: desember1988
(ZkztCe-x 72idze*ti-
LírjrERILL WUJNflRflMí
ÆVISAGA «50, IIN5 OC SXALDíO SAGOI BÖSNUM SÍNUM
LífsferiU
lausnarans
Bókin Lífsferill lausnarans, er
komin út í annað sinn. Útgefandi
er Prentver. Bókin kom út árið
1938 og hefur lengi verið ófáan-
leg.
Lífsferill lausnarans eftir Charl-
es Dickens, er handrit, sem
skáldið skildi börnum sínum
eftir. Charles Dickens, sagði
börnunum sínum oft af Jesú
Kristi. Og árið 1849 skrifaði hann
„Lífsferil lausnarans“, eins og
hann hafði sagt börnunum og arf-
leiddi þau að handritinu.
Aldrei var það ætlun skáldsins,
að frásögnin birtist á prenti, enda
er það augljóst af ýmiss konar
ónákvæmni, sem finna má í þess-
ari litlu bók.
Sá sona Dickens, sem lengst
Iifði, mælti svo fyrir í erfðaskrá
sinni, að birta mætti handritið,
enda var honum Ijóst, að heimur-
inn mundi taka opnum örmum,
þessum fögru og óbrotnu frá-
sögnum skáldsins um Jesúm
Krist.
Sjálfsævisaga
Roberts Jack
- Annað bindi
Út er komið annað bindi sjálfs-
ævisögu séra Roberts Jack,
skoska knattspyrnuþjálfarans
sem gerðist prestur á íslandi.
í kynningu á bókarkápu segir
m.a.: Sennilega eru þeir fáir
íslendingarnir, sem hafa ekki
heyrt séra Roberts Jack getið.
Hann „strandaði" á íslandi þegar
þjóðum heims laust saman í síð-
ari heiinsstyrjöld. Ungi maðurinn
var á heimleið til Glasgow á
Skotlandi frá knattspyrnuþjálfun
hér á landi og notaði tímann og
gekk í Guðfræðideild Háskóla
Islands, þrátt fyrir að hann væri
ekki beysinn í íslensku.
Síðan varð séra Robert sveita-
prestur í afskekktum byggðarlög-
um íslands, jafnframt því sem
hann hélt uppi nánu sambandi
við heimaland sitt, Skotland, auk
þess sem hann ferðaðist til
fi
bœkur
margra landa og upplifði ýmislegt
sem hann hefur einmitt skráð í
þessa bók.“
... og þá flaug
HraMnn
Frjálst framtak hefur sent frá sér
bókina . . . og þá flaug Hrafn-
inn eftir Ingva Hrafn Jónsson
fyrrverandi fréttastjóra Sjón-
varpsins.
í bókinni fjallar Ingvi Hrafn
um starfsár sín hjá Sjónvarpinu,
fyrst sem fréttamaður í afleysing-
um, síðan sem þingfréttamaður
og þáttastjórnandi og loks störf
sín sem fréttastjóri. Hann segir
frá aðdraganda ráðningar sinnar
og frá ýmsum eftirminnilegum
atvikum á starfsferlinum og að
lokum um sögulega uppsögn í
kjölfar viðtals sem birtist við
hann í tímaritinu Nýju Lífi.
Segja má að með bók sinni gefi
Ingvi Hrafn fólki tækifæri til þess
að skyggnast bak við skjáinn og
fylgjast með því sem þar fór
fram. Hann segir á hispurslausan
hátt frá átökum innan stofnunar-
innar bæði um málefni og menn,
frá samskiptum sínum við ein-
staka fréttamenn og yfirmenn
stofnunarinnar. Kemur þar fram
að oft gustaði í kringum Ingva
Hrafn og ekki voru menn á eitt
sáttir.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Bókin er ekki bara upp-
gjör Ingva Hrafns við yfirstjórn
Sjónvarpsins heldur lifandi, létt
og hispurslaus frásögn af lífinu
bak við sjónvarpsskjáinn - frá-
sögn „í stíl Ingva Hrafns“.“
Bók um draum-
speki og lófa-
lestur
Bókin um Draumspeki, drauma-
ráðningar og leiðbeiningar um
lófalestur, er komin í annarri
útgáfu frá Prentveri.
Draumaráðningarnar í þessari
bók eru sóttar í fornar heimildir,
svo sem Cyprianus og Sybille, en
nú hefur allt breyst mikið, því á
þeirra dögum voru ekki til vísindi
eða tækni, eins og við þekkjum í
dag. Pess vegna hefur verið leit-
ast við að þýða drauma um t.d.
þotur, sjónvörp og eldflaugar
samkvæmt þessu kerfi og á sama
grundvelli og fyrstu draumaráðn-
ingarnar voru. Kerfi þetta er
byggt á langri reynslu.
„Pað eru forn vísindi að ráða
drauma. Við gctum lesið um
drauma í Biblíunni, en þar réði
Daníel til dæmis drauma Nebúk-
adnesers, þó að merkilegastur
drauma sé Opinberun Jóhannes-
ar, en þar sagði hann fyrir um
heimsstyrjaldirnar og fall nasista.
Kaldear hinir fornu voru ann-
ars þeir fyrstu, sem réðu drauma.
Munkarnir, sem sátu í klaustrum
miðalda reyndu Ifka að ráða í
leyndarmál draumheima og Mar-
teinn Lúther hafði mikinn áhuga
á draumaráðningum.
En þetta gerðist allt fyrir
löngu. Trúum við enn á drauma?
Skipta þeir nokkru máli?“, segir
m.a. í fréttatilkynningu frá útgef-
anda.
Staðfastur
strákur
Iðunn hefur gefið út bókina Stað-
fastur strákur, eftir Kormák Sig-
urðsson.
Sagan segir frá ævintýrum og
uppátækjum Jóns Óskars, sem
raunar hét fullu nafni Jón Óskar
Pétur Jakob Hallgrímsson. Jón
Óskar ólst upp hjá mömmu sinni
í litlum kofa rétt utan við bæinn.
Hann var einþykkur og fór oft
eigin leiðir og gamla konan hafði
því talsverðar áhyggjur, ekki síst
þegar hann sagðist aldrei ætla að
fara í skóla.
En þegar til kom fannst Jóni
Óskari alls ekki leiðinlegt að
ganga í skólann. Hann eignaðist
þar félaga og vini og rataði í ýmis
ævintýri. Og hann var sannarlega
staðfastur strákur . . .
Bókin kom fyrst út árið 1958
en hefur verið ófáanleg um ára-
bil.
Mídas kon-
ungur er með
asnaeyru
Bókaútgáfan Björk hefur nýlega
sent frá sér barnabókina: Mídas
konungur er með asnaeyru, eftir
danska rithöfundinn Jens Sigs-
gaard. Sagan um Mídas konung
og asnaeyrun hans er æva gamalt
og víðfrægt austurlenskt ævin-
týri, sem sagt hefur verið á ýmsa
vegu. Höfundur bókarinnar Jens
Sigsgaard kemur hér með glæ-
nýja útgáfu af asnaeyrum Mídas-
ar konungs.
Myndir eru á hverri blaðsíðu
eftir hinn snjalla danska teiknara
- Jon Ranheimsæter. Gefa þær
frásögninni mikið gildi og skýra
mjög vel atburði þá, sem ævintýr-
ið greinir frá.
Danski rithöfundurinn Jens
Sigsgaard hefur samið fjölda
bóka einkum fyrir börn og ungl-
inga. Nokkrar þeirra hafa komið
út á íslensku. Þeirra kunnust er
Palli var einn í heiminum, sem
fyrst kom út hjá Gyldendal í
Kaupmannahöfn 1942, en hefur
síðan verið gefin út á 37 tungu-
málum í milljónum eintaka. Hún
kom fyrst út á íslensku 1948 og
síðan er ekkert lát á vinsældum
hennar.
Mídas konungur er með asna-
eyru, kom fyrst út hjá Gyldendal
1985 og hefur síðan verið þýdd á
nokkur tungumál og hlotið frá-
bærar viðtökur. Vilbergur Júlíus-
son fyrrv. skólastjóri þýddi bók-
ina á íslensku. Hann þýddi einnig
Palli var einn í heiminum.
Fjölfræðibók
um steinaríkið
Vaka-Helgafell hefur hafið
útgáfu á flokki fjölfræðibóka sem
hlotið hefur nafnið Heimur í
hnotskurn. Fyrsta bindið er ný-
komið út, heitir Steinaríkið og
ber undirtitilinn: Heillandi ver-
öld í máli og myndum.
Bókin Steinaríkið er unnin í
samvinnu við Náttúrugripasafnið
í London og kemur nú samtímis
út í allmörgum Evrópulöndum.
íslensku útgáfuna hafa jarð-
fræðingarnir Ari Trausti Guð-
mundsson og Halldór Kjartans-
son þýtt og staðfært. í bókinni er
fjallað um steinaríkið á nýstár-
legan og áhugaverðan hátt og
birtur fjöldi litmynda af berg- og
steintegundum, steingervingum,
eðalmálmum, kristöllum, gim-
steinum og steinum utan út
geimnum.
Fjölfræðibókaflokkur Vöku-
Helgafells, Heimur í hnotskurn,
hefur það markmið að veita
myndræna leiðsögn og innsýn í
náttúruna og lífið í kringum
okkur. Bækurnar eiga að vera
vandaðar og efnismiklar en jafn-
framt á hagstæðu verði vegna
samstarfs margra útgáfufyrir-
tækja víða um heim.
HCIMUR—
f HNOYSKUSN
l^ðlfraaðl tfi'* Ixim oq uiKjíoaa
mi 0lg§p vlÉk B8 i3r
m m
g* t*' 0
JP illlls:.
Heimur
í hnotskum
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér fjölfræðibókina Heimur í
hnotskurn, eftir Jane Elliot.
Bókin hefur að geyma ógrynni
af hagnýtum fróðleik við hæfi
barna og unglinga. Hér er að
finna ítarlegan kafla um jörðina,
dýralíf og gróður á hnettinum,
sögu mannkyns og menningu,
þjóðflokka um allan heim og
þróun vísindanna.
Breski myndlistarmaðurinn
Colin King myndskreytti bókina.
Bjarni Fr. Karlsson þýddi.
Mamma!
Hvað á ég
að gera?
Bókin Mamma! Hvað á ég að
gera? er komin út hjá Almenna
bókafélaginu.
Bók þessi er handbók fyrir
ungt fólk sem langar (eða verður)
að standa á eigin fótum. í fimm
köflum sem nefnast: Landnem-
inn, Völundurinn, Græðarinn,
Kokkurinn og Þrifillinn er að
finna leiðbeiningar um íbúðar-
kaup, flutninga, hvernig á að
koma sér fyrir í nýrri íbúð,
blómarækt, standsetningu á
húsnæði, heintilisslys, einfalda
matreiðslu, hreingerningu, þvott
á taui, frágang á fatnaði og fleira.
Höfundur bókarinnar er Jón
Karl Helgason. Hefur hann safn-
að efni í bókina með viðtölum
við aðila sem vit hafa á hinum
ýmsu vandamálum sem verða á
vegi hins unga, sjálfstæða ein-
staklings. Bókin er myndskreytt
af Guðjóni Inga Haukssyni og
Þorra Hringssyni.
Ég á afmeeli í dag!
Bók um
afmælishald
Komin er út hjá bókaútgáfu Máls
og menningar bókin Ég á afmæli
í dag eftir Björgu Árnadóttur,
myndskreytt af Ragnheiði Gests-
dóttur.
í bókinni er að finna nýstárleg-
ar hugmyndir um tilbreytingu í
afmælishaldi, hugmyndir sem má
nýta við ýmis tækifæri. Til dæmis
má nefna jólaveislu, páskaaf-
mæli, ævintýraveislu, íþróttarall
og sjónræningjaboð. í bókinni er
allt á einum stað: Viðeigandi
uppskriftir fyrir hverja veislu, til-
lögur um boðskort, búninga,
leiki og skreytingar, allt vel
útskýrt með skýringarmyndum,
teikningum, uppdráttum og ljós-
myndum. Miðað er við að verði
og fyrirhöfn sé stillt í hóf.
Öldin okkar
- 1981-1985
Iðunn hefur gefið út nýja bók í
bókaflokknum um Aldirnar.
Öldin okkar, minnisverð tíð-
indi áranna 1981-1985, er sjö-
unda bókin um öldina sem nú er
að líða, en jafnframt fjórtánda
bindi bókaflokksins sem nefndur
hefur verið Aldirnar. Hér er saga
liðinna atburða rakin bæði í máli
og myndum. Bækur þessar hafa
notið ótrúlegra vinsælda meðal
fólks á öllum aldri. Þær eru lesn-
ar jafnt til skemmtunar og fróð-
leiks og sem uppsláttarrit um
liðna tíð tapa þær aldrei gildi
sínu.
Öldin okkar 1981-1985 rekur á
sama hátt og fyrri bækur helstu
atburði þessara ára og hefur
meðal annars að geyma frásagnir
af fyrsta bankaráni á íslandi,
Helliseyjarslysinu, frækilegu
sundi Guðlaugs Friðþórssonar,
Vilmundi Gylfasyni og stofnun
BJ, BSRB-verkfaílinu, gjaldþroti
Hafskips, kvennaframboðum,
heimsókn furstahjónanna af
Mónakó og fjölmörgum frétt-
næmum atburðum, stórum og
smáum.