Dagur - 23.12.1988, Blaðsíða 23
23. desember 1988 - DAGUR - 23
íþróttir
Karfa:
„Tvíhleypa“ Tindastóls efst
Valur Ingimundarson körfuknattleiksmaður ársins 1988
Sem kunnugt er eru körf uknatt-
leiksmenn, sem og aðrir
íþróttamenn, komnir í jólafrí
frá Islandsmóti. Síðan hefst
keppni á ný eftir áramót með
tilheyrandi látum. KKÍ hefur
gefíð út „statistik“ úr Flugleiða-
deildinni, að loknum 16
umferðum, þar sem taldir eru
10 efstu menn í hverri grein
íþróttarinnar. „Tvíhleypan“ í
liði Tindastóls, Valur Ingi-
mundarson og Eyjólfur Sverris-
son, hefur skorað flest stig I
deildinni, eða 62% af heildar-
stigum Tindastólsliðsins.
Valur Ingimundarson er efstur
með 424 stig eftir 15 leiki, að
meðaltali 28,2 stig í leik. Eyjólfur
Sverrisson kemur næstur með
365 stig eftir 16 leiki, 22,8 stig að
meðaltali í leik. í 9. sæti í stiga-
skoruninni er Konráð Óskarsson
úr Þór með 292 stig eftir 16 leiki,
18,2 stig í leik að meðaltali.
Eyjólfur er búinn að taka
langflest vítaskot í deildinni, eða
118 og búinn að hitta úr 94. Það
gerir 79,66% hittni og setur
Eyjólf í 5. sæti. Efstur er Guðjón
Skúlason ÍBK með 82% hittni.
Valur Ingimundar kemur í 6. sæti
með 78,75% hittni, hefur tekið
80 vítaskot og hitt úr 63. í 8. sæti
er Konráð Óskarsson með 77,5%
vítahittni, hefur tekið jafnmörg
skot og Valur, en hitt úr einu
færra.
í fráköstunum er Valur Ingi-
mundar í 4. sæti með alls 176
Valur Ingimundarson þjálfari
UMFT og körfuknattleiksmaður
ársins 1988. Mynd: bjb
fráköst, 56 í sókn og 120 í vörn,
og alls gerir þetta 11,7 fráköst í
leik. Kristján Rafnsson Þór er í
6. sæti með 126 fráköst alls, 36 í
sókn og 90 í vörn. Hjá Kristjáni
gerir þetta alls 7,8 fráköst í leik.
Getraunir:
Potturinn rúmar 13 milljónir
- spilað annan í jólum og 2. janúar
íslenskar getraunir settu sölu-
met í seinustu viku, eins og
flcstir knattspyrnuáhugamenn
vita. Heildarsalan var 13,9
milljónir og komu tvær raðir
fram með 12 rétta, á Borgar-
nesi og í Reykjavík, og fær
hvor um sig rúmar fjórar millj-
ónir. Félögin á Norðurlandi
bættu sig töluvert í sölu og enn
var KA efst. Þórsarar voru
hins vegar ekki langt undan og
seldu einungis rúmlega 200
röðum minna.
KA seldi 30.286 raðir en Þór
seldi 30.075 raðir. Næsta lið að
norðan var KS, en þeir seldu
töluvert minna en toppliðin tvö.
En topp tíu á Norðurlandi lítur
þannig út:
1. KA
2. Þór
3. KS
4. Völsungur
5. Leiftur
6. Ungm.f. Svarfdæla
7. Kormákur
8. Einherji
Staðan 1. deild
Valur 9 9-0-0 243:179 18
KR 9 8-0-1 233:201 16
Stjarnun 9 6-0-3 201:184 12
FH 9 5-0-4 233:218 10
KA 9 4-0-5 202:202 8
Grótta 9 3-1-5 187:202 7
Víkingur 9 3-1-5 232:248 7
Fram 9 1-3-5 192:223 5
ÍBV 9 1-2-6 184:214 4
UBK 9 1-1-7 192:228 3
9.
10.
Magni
Eilífur
Það verður tippað núna yfir
jólin, á 2. í jólum er heil umferð
hjá íslenskum getraunum og síð-
an er önnur umferð 2. janúar.
ívar Webster KR hefur tekið
langflest fráköst í deildinni, alls
254, og eru það aðallega varnar-
fráköst, eða 206.
I 3ja stiga körfunum er það
Björn Sigtryggsson Tindastól
sem kemst í topp-tíu, er í 9. sæti
með 35,14% nýtingu, hefur gert
37 tilraunir og hitt 13 sinnum.
Fyrir utan listann er Valur Ingi-
mundar með langflestar tilraunir,
eða 144, en aðeins hitt 49
sinnurn. Þetta gerir um 34% nýt-
ingu hjá Val, þannig að liann er
skammt á eftir Birni. Eyjólfur er
með 33,33% nýtingu, het'urreynt
87 sinnum og hitt úr 29 3ja stiga
körfum. Þess má geta að nokkrir
leikmenn eru með 100% nýtingu
í 3ja stiga skotunum og meðal
þeirra eru Einar Viðarsson úr
Þór og Pétur Vopni Sigurðsson
Tindastól. Einar hefur hitt úr
þeim tveim tilraunum sem hann
hefur gert og Pétur Vopni hefur
skotið einu sinni og hitt. Haldið
þessu áfram strákar!
Að lokum skal geta „Villu-
kónga nórðursins“ í Flugleiða-
deildinni. Gamla kempan úr Þór,
Eiríkur Sigurðsson, er í 2. sæti
með 62 villur úr 16 leikjum, að
meðaltali 3,8 villur í leik. Efstur
er Jón Júlíusson ÍS með 69 villur
eftir 16 leiki. í 7.-8. sæti eru þeir
jafnir, Eyjólfur og Konráð, með
58 villur eftir 16 leiki og í 9.-10.
sæti er Björn Sveinsson Þór með
57 villur, ásamt ívari Ásgríms-
syni úr Haukum. -bjb
Flugleiðadeildin
í körfii
Staðan í Flugleiðadeildinni í körf-
uknattleik í lok árs 1988:
16 15 1 1428:1173 30
16 13
17 12
17 10
16 9
8
8
UMFN
ÍBK
KR
UMFG
Valur
Haukar
ÍR
UMFT
Þór
ÍS
16
16
16
16
16
3 1392:1152 26
5 1356:1263 24
7 1394:1263 20
7 1346:1222 18
8 1420:1336 16
8 1213:1212 16
3 13 1278:1421 6
2 14 1210:1497 4
1151012:1510 2
a
Akureyrarmót í handbolta:
Þór og KA
þriðjudaginn
- í meistaraflokki
Þór og KA leika í meistara-
flokki í handbolta á þriðjudag-
inn 27. kl. 20.30. Leikurinn er
liður í Akureyrarmótinu í
handbolta og má því búast við
að hart verði barist í þessum
leik.
Hvorugu liðinu hefur gengið of
vel í deildakeppninni það sem af
er vetri. KA byrjaði mótið mjög
vel með góðum sigrum á Víkingi
og FH. En síðan hefur verið að
halla undan fæti hjá þeim, að
vísu unnust léttir leikir gegn ÍBV
og Breiðabliki, en slakir leikir
gegn Fram, Stjörnunni og Gróttu
hafa valdið aðdáendum liðsins
vonbrigðum. Það má því búast
við að KA-strákarnir vilji hrista
af sér slyðruorðið og sýna hvað í
þeim býr.
Þórsliðið er ungt og efnilegt og
að mestu skipað leikmönnum úr
2. flokki félagsins. Þeir spila
hraðan og skemmtilegan hand-
bolta og ættu því að geta veitt
eldri og reyndari KA-mönnum
verðuga keppni.
Sigurpáll Árni mætir sínum gömlu
Þórsfélögum á þriöjudaginn.
Mynd: TLV
Viðskiptavinir
athugið
Verslunin verður lokuð
27. desember.
Opnum aftur miðvikudaginn
28. desember kl. 09.00.
HA6KAUF
Akureyri
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------ .
AKUREYRARB/íR
Dagvistardeild auglýsir
Gæsluvellir Akureyrarbæjar verða opnir
milli jóla og nýárs sem hér segir:
Glerárhverfi:
27. des. Bugðuvöllur.
28. des. Bugðuvöllur, Hlíðavöllur.
29. des. Borgarvöllur, Hlíðavöllur.
30. des. Borgarvöllur.
Oddeyrirt og Brekkan.
27. des. Eyrarvöilur, Byggðavöllur.
28. des. Eyrarvöllur, Byggðavöllur.
29. des. Leiruvöllur, Byggðavöllur, Lundavöllur.
30. des. Leiruvöllur, Byggðavöllur, Lundavöllur.
Dagvistafulltrúi.
Saia getraunaseðla lokar kl. 14:45 á
laugardögum
51. LEIKVIKA - 26. DES. 1988 1 X 2
leikur 1. Aston Villa Q.P.R.
leikur 2. Derby Liverpool
leikur 3. Everton _ Middlesbro
leikur 4. Manch.Utd. _ Nott.For.
leikur 5. South.ton _ Coventry
leikur 6. Hull . Bradford
leikur 7. Leeds _ Blackburn
leikur 8. Stoke _ Manch.City
leikur 9. Sunderland - Barnsley
leikur 10. Swindon _ Plymouth
leikur 11. Walsall Oxford
leikur 12. Notts C. - Sheff.Utd.
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15
á laugardögum er 91-84590 og -84464.
Ath. leikiö á 2.dag jóla
i