Dagur - 14.01.1989, Blaðsíða 3
14. janúar 1989 - DAGUR - 3
Fóðurstöðin á Dalvík:
Unnið að því að breyta
fyrirtækinu í hlutafélag
- urðu fyrir talsverðu tjóni er fóðurbíll valt í Fnjóskadal
Um þessar niundir er unnið að
því að breyta rekstri Fóður-
stöðvarinnar á Dalvík. „Málið
er ekki frágengið, en við erumi
að reyna að koma á hlutafélagi
um reksturinn,“ sagði Símon
Éllertsson framkvæmdastjóri í
samtali við Dag. Hann sagðist
vongóður um að línur hafi
skýrst um miðjan febrúar.
Ekki vildi hann segja hverjir
hugsanlegir hluthafar verða
sem stendur. Þeir Fóðurstöðv-
armenn urðu fyrir áfalli á
dögunum er fóðurbifreið
þeirra valt í Fnjóskadal en tjón
á bifreiðinni hefur ekki endan-
lega verið metið.
Fóðurframleiðsla hjá Fóður-
stöðinni á Dalvík nam um 4 þús-
und tonnum á síðasta ári og taldi
Símon að ekki yrði um minnkun
að ræða á þessu ári. „Ef hægt
verður að minnka fjármagns-
kostnaðinn á þetta að geta orðið
gott fyrirtæki sem kæmi í stað
samvinnufélagsins.“ Hann sagð-
ist reikna með að hluthafar í nýju
fyrirtæki yrðu aðeins þrír að tölu.
Þessa dagana standa yfir samn-
ingaviðræður við skuldunauta
fyrirtækisins.
Varðandi bifreiðina sagði
Símon að þeir ættu annan gamlan
bíl sem ekki hefur verið í notkun
og ætla þeir að nota hann á með-
an hinn er á verkstæði. Hann
sagði tjónið vegna veltunnar
talsvert, en ekki er endanlega
ljóst hversu mikið það er.
Fimnt starfsmenn starfa hjá
Fóðurstöðinni. Hjá þeirn er ekki
aðeins unnið loðdýrafóður, þeir
frantleiða einnig laxafóður fyrir
fiskeldisfyrirtækið Ölun hf. á
Sandskeiði. Á veturna er einnig
starfað við að bræða lifur í meltu.
í haust og það sem af er árs hefur
Utgerðarfélag Akureyringa verið
aflögufært með hráefni fyrir
Fóðurstöðina og látið liana hafa
fiskúrgang. „Pað er oft erfitt að
afla hráefnis á haustin og við höf-
um átt mjög góð og vaxandi sam-
skipti við þá hjá Útgerðarfélag-
inu,“ sagði Sínton að lokum. VG
Leikfélag Akureyrar:
Ríkisfranilag ekki í
samræmí við samninga
- segir Arnór Benónýsson leikhússtjóri
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt að veita Leikfélagi
Akureyrar 950 þúsund króna
aukafjárveitingu „til að upp-
fylla ákvæði samnings milli
ríkissjóðs, Akureyrarbæjar og
Leikfélags Akureyrar frá ágúst
1987,“ eins og segir í bókun
ráðsins. Fjárveitingin er sam-
kvæmt útreikningi Hagsýslu-
stofnunar ríkisins.
Arnór Benónýsson leikhús-
stjóri sagði í samtali við Dag að í
rauninni væri hér ekki um auka-
fjárveitingu að ræða, heldur væri
Akureyrarbær aðeins að standa
við gildandi samning. Þessi þrí-
hliða samningur gerði ráð fyrir
verðtryggingu í samræmi við
meðallaun í Þjóðleikhúsinu og
hafði ríkið þegar lagt sitt af
mörkunt.
Á fjárlögum fyrir árið 1989 er
gert ráð fyrir að Leikfélag Akur-
eyrar fái 11 milljónir króna frá
ríkinu og bærinn mun þá leggja
a.m.k. annað eins á móti. Á síð-
asta ári fékk leikfélagið 10,950
milljón króna ríkisframlag þann-
ig að hækkunin ntilli ára er svo til
engin.
„Ég tel að ríkið fylgi ekki
þeirri hækkun sem það hefði átt
að gera ntiðað við samninginn.
Þetta er í rauninni sama framlag
og á síðasta ári. Við þurfum að
leita úrlausnar hægt og bítandi og
samningurinn ætti að hjálpa okk-
ur við það,“ sagði Arnór. SS
Fyrsti gesturinn í Davíðshús væntanlegur:
BÍLASÝNING
Sýnurn
FEROZA
4x4
í sýningarsal okkar að Fjölnisgötu 6, Akureyri
laugardaginn 14. janúar frá kl. 10.00-17.00
og sunnudaginn 15. janúar frá kl. 13.00-17.00.
f IRÖZA 4x4 býður uppá m.a.:
★ Vökvastýri
★ 16ventlavél
★ 5 gíra
★ Sóllúgu
★ Sjálfvirka kveikingu
ökuljósa
★ Sportfelgur
□AIHATBU
Bílvirki hf
Fjölnisgötu 6. Símar 96-23213 og 96-27255
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
Mikill áhugí á dvöl
í Davíðshúsi
- Haíliði Hallgrímsson tónlistarmaður
hyggst semja tónverk fyrir Tónlistarskóla
Akureyrar meðan hann dvelur hér í sumar
Fyrsti gesturinn til að dvelja í
lista- og fræðimannaíbúðinni í
Davíðshúsi á Akureyri er
væntanlegur í febrúarbyrjun.
Það er myndlistarmaðurinn
Helga Egilsdóttir sem fyrst
mun dvelja í íbúðinni og verð-
ur hún hér fram í apríl. íbúð
þessari hefur verið sýndur inikill
áhugi og er þegar farið að bóka
eitthvað fram á næsta ár.
Ingólfur Ármannsson fræðslu-
og menningarmálafulltrúi Akur-
eyrarbæjar segir að mikið hafi
verið spurst fyrir um íbúð þessa
og þegar séu menn búnir að festa
sér hana í einhverjum mæli fyrir
árið 1990.
Helga Egilsdóttir myndlistar-
maður verður fyrst gesta í íbúð-
inni og dvelur hún hér við störf
fram í apríl. Mánuðina maí og
júní verða þau Jón Óskar rit-
höfundur og Kristín Jónsdóttir
myndlistarkona í íbúðinni. f júlí
og ágúst í sumar hefur Hafliði
Hallgrímsson tónlistarmaður
afnot af lista- og fræðimanna-
íbúðinni í Davíðshúsi og til
stendur að hann muni vinna þar
við tónlistarverk sem sérstaklega
væri samið fyrir flutning
nemenda í Tónlistarskóla Akur-
eyrar.
Ingólfur segir að sá háttur
verði hafður á í framtíðinni að
íbúðin muni auglýst að hausti og
þá geti þeir sem hyggjast dvelja í
Davíðshúsi um stundarsakir sótt
um. mþþ
Fyrsti gesturinn til að dvelja í Davíðshúsi er væntanlegur í febrúarbyrjun.
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi
AUK/SlA k9d1-387