Dagur - 14.01.1989, Side 8

Dagur - 14.01.1989, Side 8
8 - DAGUR - 14. janúar 1989 Ástandið bágt á Akureyri - Ingjaldur Arnþórsson, starfsmaöur SÁÁ-N, í alkóhólísku viðtali Alkóhólismi er bannvænn sjúkdómur. Hann er ólæknandi en sem betur fer er hægt að halda honum niðri og þannig hafa margir sloppið úr helgreipum dauðans. Dauðinn er vitaskuld lokastig sjúkdómsins, en hann fer stigvaxandi, andlega, líkamlega og félagslega, allt frá því alkóhólistinn tekur fyrsta sopann. Þessu má líkja við lyftu. Alkóhólistinn fermeð lyftunni niðurá við en áður en hún sígur niður á botn á hann þess kost að stöðva lyftuna og fara í meðferð. Að lokinni meðferð fer hann með lyftunni upp á við, en lyftan fer ekki jafn hratt upp og hún fór niður. Hún á það til að stöðvast og jafnvel síga niður. Ingjaldur Arnþórsson ætlar að skýra þetta út fyrir okkur. Hann ýtti sjálfur á hnappinn sem stöðvaði lyftuna og nú hjálpar hann öðrum til að gjöra slíkt hið sama. Ingjaldur var nýlega ráðinn starfsmaður Samtaka áhugafóíks um áfengisvandamálið á Norðurlandi, SÁÁ-N, en samtökin hafa komið upp þjónustustöð í leiguhúsnæði að Glerárgötu 28 á Akureyri. I þessu viðtali er ætlunin að kynnast Ingjaldi ofurlítið og reynslu hans af áfengisvandamálinu, svo og þeim breytingum sem eru að eiga sér stað með tilkomu SÁÁ-N og skrifstofunnar. Ingjaldur Arnþórsson er fæddur þann 25. júlí 1958 á Húsavík, „Þingeyingur alveg í gegn,“ eins og hann orðaði það. Faðir hans er frá Flatey. Ingjaldur er alinn upp í Köldu- kinn en fluttist til Akureyrar 1969. Hann gekk í Laugaskóla og fór síðan í Iðnskólann á Akureyri. Ingjaldur á tvo syni og eina stjúpdóttur. Hann er kvæntur Áslaugu H. Brynjarsdóttur sjúkraliða. „Ótrúlegt að ég skyldi þó þrauka þetta lengi“ Ekki er ætlunin að hella sér hér út í ævi- ntinningar. Ingjaldur er alkóhólisti og án þess að rekja þá sögu frekar þá spurði ég hann hvenær hann hefði snúið sér að barátt- unni gegn áfengisvandamálinu og hjálpar- starfi með öðrum alkóhólistum. „Það var árið 1985 í Stokkhólmi. Þá var ég með um fjögurra ára edrúmennsku að baki. Sálfræðingur sem starfaði hjá bænum, eða kommúnunni, fór að ræða við mig um breyt- ingar sem þeir höfðu áhuga á að gera á með- ferðarprógrömmum fyrir alkóhólista. Þeir höfðu frétt það frá Ámeríku að það væri sniðugt að alkóhólistar ynnu við slík prógrömm! Þarna byrjar þetta ævintýri sem hefur nú varað í á fimmta ár. Ég var ekki lengi þarna í Stokkhólmi. Eft- ir um það bil ár komst ég að því að ég gæti ekki starfað við þetta án þess að fá einhverja faglega kennslu. Þetta var alveg út í hött. Ég var búinn að vera á fundum og æði síðan inn í þetta starf. Ég stóð kannski fyrir framan 20- 30 sjúklinga og átti að halda fyrirlestur um reynsluspor og ég vissi ckkert hvað ég átti að segja. Þá varð ég að grípa til þess ráðs að breyta fyrirlestrunum, lét fólkið setjast í hringi og gerði bara gott úr þessu til að gera mig hreinlega ekki að fífli. Það var ótrúlegt að ég skyldi þó þrauka þetta lengi, en þegar sú staða kom upp að ég vildi afla mér starfs- þjálfunar á þessu sviði þá var bara um tvö lönd að ræða; Ameríku eða Island. Þá lá ísland beinast fyrir hjá mér." Sænskar tröllasögur - Fórstu þá til SÁÁ? „Já, ég tala við þá hjá SÁÁ 'og þeir tóku mér mjög vel. Þeir voru hins vegar jafnframt að aðstoða sjúkrastöðina Von með ráðgjafa en Vonarmenn voru í vandræðunt með að útvega ráðgjafa sem gæti talað eitthvert skandinavíumál. Ég lendi þá hjá þeim Brynj- ólfi Haukssyni og Bjarna Steingrímssyni, en þeir höfðu verið læknir og dagskrárstjóri á Vogi, og voru teknir við Von. Þar var minn aðalskóli. Von rak meðferðarstöð fyrir Skandinava á Bárugötunni í Reykjavík í um tvö og háift ár, en ég var þar í eitt og hálft ár. Ég fer síðan út til Svíþjóðar á vegum Von- ár en þar ætluðu þeir að stofna meðferðar- stöð, sem ekkert varð úr. Ég nennti hins yeg- ar ekki til baka og fór að leiðbeina starfsfólki á opinberum meðferðarstöðvum og setti síð- an upp meðferðarprógramm fyrir nýja með- ferðarstöð í fyrra. Það var mjög skemmtilegt verkefni og ég var þar fram í ágúst á síðasta ári er ég sneri aftur til íslands og fór að vinna hjá SÁÁ.“ - Talandi um Svíþjóð þá skilst ntér að Svíarnir séu dálílið sér á báti hvað meðferð alkóhólista varðar. Ein tröllasagan hljóðar svo: Sérfróðir menn sjá að ákveðinn maður er farinn að drekka of mikið. Þeir reyna að finna ástæðuna fyrir drykkjunni. Hann er atvinnulaus og þeir útvega honum vinnu, en hann heldur áfram að drekka. Þá uppgötva þeir að hann á engan bíl og þeir kaupa handa honum Volvo, en samt heldur hann áfram að drekka. Þá útvega þeir honum íbúð en ekk- ert breytist. Loks uppgötva þeirað það vant- ar húsgögn í íbúðina og bæta snarlega úr því. Þá selur maðurinn húsgögnin og kaupir brennivín fyrir andvirðið. Er eitthvað hæft í svona sögum? „Eini möguleikinn að meðhöndla Svía að Fitjum“ „Þetta er ekki eins fráleitt og ætla mætti. Það sem stendur Svíum fyrir þrifum í að geta náð árangri í áfengismeðferð er einmitt þetta. Þeir eru því miður ennþá að leita að ástæð- unni fyrir því af hverju maður drekkur. Þjóðfélagið er ntjög furðulega uppbyggt, t.d. er algengt að 30 ára gainall alkóhólisti í Sví- þjóð sé kominn á öryrkjaframfærslu. Menn eru þá orðnir útslegnir þjóðfélagslega og þar er erfitt að hjálpa þeim þegar búið er að syipta þá sjálfsbjargarviðleitninni, sem er svo vel haldið við á Islandi með því að hafa félagslega kerfið svona dapurt! Það er erfitt að segja þetta en svona er þetta í raun og veru. Hér verða menn að bjarga sér. I dag eru Svíar meðhöndlaðir að Fitjum, í húsinu sem Hilmar Helgason byggði uppi í Mosfellssveit. Þar er stór meðferðarstöð með 50-60 sjúklingum að jafnaði og pró- grammið er það sama og hjá SÁÁ. Ég held raunverulega að það sé eini möguleikinn til að meðhöndla Svía, að senda þá að Fitjum. Þar ranka þeir við sér, á eyju 2000 kílómetra norður í Átlantshafi, þar sem fáir skilja þá og þeir skilja engan. Þarna ná þeir góðunt árangri því þeim dettur ekki í hug að stinga af á þessum hræðilega stað, en það var eitt af vandamálunum í Svíþjóð að þeir stungu af úr meðferðinni í stórum stíl. Opinberu meðferðarstofnunum í Svíþjóð helst betur á sjúklingunum því þar eru engar kröfur gerðar til þeirra. Þar gera sjúkling- arnir hins vegar miklar kröfur. Þeir vilja hafa sjónvarp í herberginu, æfingabekki í kjallar- anum o.fl. og ef þeir fá þetta ekki þá fara þeir bara. Þetta hefur reyndar lítið með áfengismeðferð að gera, enda spurning hvort sjúklingarnir eigi að verða edrú. Maður spyr sjálfan sig þeirrar spurningar þegar maður skoðar slíkar stöðvar." „Atti von á að fólk væri orðið upplýst um alkóhólisma“ Við Ingjaldur ræddum um ýmsar skilgrein- ingar á alkóhólisma, en ísland og Bandaríkin eru svo til einu löndin þar sem sjúkdóms- greiningin nýtur teljandi virðingar. Ef maður ber virðingu fyrir sjúkdómsgreiningunni þá segir hún að það sé útilokað annað en að hætta að drekka og það sé ekki hægt að hverfa til hóflegrar neyslu. Danir vilja t.d. alls ekki leggja frá sér bjórinn og árátta ýmissa þjóða að einblína á hófdrykkjuna hefur hamlað mjög árangri í meðferð alkóhól- ista. En hvernig blasti Island við honum eftir útiveruna? „Það kom mér margt á óvart. SÁÁ var búið að keyra stífa meðferð í 11 ár og segja má að einn maður úr hverri fjölskyldu hafi farið í meðferð og flestir fullorðnir íslend- ingar ættu því að vita hvað hún gengur út á. Ég átti því von á því að fólk væri almennt orðið mjög upplýst um alkóhólisma, en það kom mér á óvart hvað það er mikil afneitun hér gagnvart sjúkdómnum, þrátt fyrir að þúsundir hafi fengið bata. Menn voru enn neikvæðir gagnvart áfengismeðferð og alls ekki hættir að ræða um hvort alkóhólismi væri sjúkdómur eða aumingjaskapur." Talið barst nú að árangri af áfengismeð- ferð. Ingjaldur sagði að þrátt fyrir allt væru margar góðar meðferðarstöðvar í Svíþjóð, í tengslum við bandaríska aðila, en þær væru reknar eins og vídeóleigur. Hörkubisness. Þar skiptir góður árangur öllu máli. Rann- sóknir hafa sýnt að þeir sem ná bestum árangri eru giftir einstaklingar á aldrinum 29- 41 árs, sem búa í öruggu húsnæði og hafa atvinnu. Þessir aðilar fara yfirleitt bara í eina áfengismeðferð og í Svíþjóð eru þetta einu aðilarnir sem konrast í meðferð! Þannig geta þeir sýnt fram á betri árangur en clla. Samt sem áður segir Ingjaldur að árangurinn hjá SÁÁ sé betri en annars staðar á Norður- löndunum þrátt fyrir að meðferðarstofnanir SÁÁ séu öllum opnar. SÁÁ gerir ekki grein- armun á félagslegri stöðu einstaklinga við innskrift. „Auk þess taka Svíar helst ekki endurkomumenn þv>' þeir skemma árangur- inn. Það er mjög slæmt að starfa í svona móral," sagði Ingjaldur. Hvaö er áfengismeðferð? - Fyrst við erum að tala um áfengismeðferð þá væri ekki úr vegi að þú lýstir henni fyrir okkur. Hvernig bera menn sig að, segjum Norðlcndingar, ef þeir óska eftir meðferð? „Ég ráðlegg fólki að hafa fyrst samband við skrifstofuna hérna, hafa samband við mig. Það er mikilvægt að fá dálitla greiningu á sjúklingana. Ég er ekkert á því í dag að all- ir eigi að fara í meðferð. Mér finnst meðferð vera vopn sem maður beitir þegar allt annað er á þrotum. Fólk ætti að reyna annað fyrst, s.s. bindindi, reyna að stjórna drykkjunni. Meðferð er mjög dýrt apparat og henni ætti að beita þegar fólk er komið í þrot, enda er það þá móttækilegast fyrir henni. Það er til- gangslaust að fá mann inn í grúppu sem finnst ennþá skemmtilegt að drekka. Hann nær ekki árangri fyrr en hann er farinn að kynnast hinum hörmulegu afleiðingum neyslunnar. Ég geri greiningu á stöðu fólksins og ef ég sé að viðkomandi þarf ekki á meðferð að halda þá aðstoða ég hann með því að leggja fram bindindisplan eða eitthvað þvíumlíkt. Gangi það ekki kemur meðferðin sjálfkrafa. Ef við erum hins vegar sammála um að fara meðferðarleiðina þá útvega ég viðkomandi innskriftartíma á Vogi og tekur það venju- lega nokkra daga. Síðan fer hann á Vog í 10- 15 daga afvötnun, eða afeitrun því það orð er meira notað núna enda tekur það yfir lyf og önnur efni líka. Meðferðin á Vogi er fyrst og fremst í formi fræðslu og ekki gerðar miklar kröfur til sjúklinga. Síðan fer einstaklingurinn í fjögurra vikna eftirmeðferð á Sogni í Ölfusi eða Staðarfelli í Dölum. Þá hefst vinnan fyrir alvöru og menn fara að gera alls kyns uppgötvanir sem þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir áður, t.d. að árangur áfengismeðferðar sé undir þeim sjálfum kominn. Þeim mun virkari sem við- komandi er í meðferðarstarfinu þeim mun meira fær hann út úr því. Auðvitað getur hver sem er farið í gegnum meðferð með því að sitja í fýlu úti í horni, en þannig nær hann ekki árangri. Árangurinn felst í virkni.“ Stóra sjokkið - Síðan kemur sjúklingurinn út í þjóðfélagið og ekki alheilbrigður, eða hvað? „Nei. Þá er það sem stóra sjokkið kemur. Það virðist vera ótrúlega stórt stökk frá vernduðu meðferðarumhverfi út í okkar grjótharða samkeppnisþjóðfélag. Surnir komast hreinlega ekki þennan spöl og þetta er mál sem við erum að velta fyrir okkur í æ ríkari mæli. Hér er óhjákvæmilegt að nefna stafina AA (Alcoholics Anonymous). í meðferðinni er gengið út frá því að alkóhólismi sé sjúkdóm- ur, sem inaður verður að sætta sig við og get- ur engu breytt í þeim efnum. Þar er fólki ráðlagt að stunda AA fundina eftir nteðferð til þess að halda sér í jafnvægi og geta leyst úr sínum daglegu vandamálum, reiði, pirr- ingi og stressi án þess að drekka. Maður lærir að stunda AA fundi í meðferðinni og þar er maður virkur i sinni litlu grúppu, þar sem fólk þekkist orðið vel innbyrðis. Þegar heim er komið fer maður á AÁ fund en þar er auðvitað allt annað fólk, sem maður þekkir kannski ekkert. Þetta er kannski höfuð- ástæðan fyrir því að ekki skila allir sér út í AA samtökin. Þetta er mál sem við tökum á hérna á skrifstofunni. Eftir að eftirmeðferð lýkur koma menn hingað í grúppur, einu sinni í viku í þrjár vikur. Ef menn þurfa nteiri stuðning þá fá þeir hann. Hér kynnist fólk og það getur þá farið saman á AA fundina, skil- að sér þangað í ríkari ntæli. Ein höfuðorsök þess að alkóhólistar detta

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.