Dagur - 14.01.1989, Side 13
14. janúar 1989 - DAGUR
13
dagskrá fjölmiðla
Ólund
Laugardagur 14. janúar
17.00 Barnalund.
Ásta Júlía og Helga Hlín sjá um þátt fyrir
yngstu hlustendurna. Leikrit, söngur,
glens og gaman.
18.00 Viðtalsþáttur.
Viðtöl við fólk um sjálft sig og hvað það
aðhefst.
19.00 Skólaþáttur.
20.00 Gatið.
21.00 Fregnir.
30 mínútna fréttaþáttur. Litið í blöðin og
viðtöl að venju.
21.30 Sögur.
Hildigunnur Þráinsdóttir hefur umsjón.
Smásögur.
22.00 Formalínkrukkan.
Árni Valur spilar kvikmynda- og trúar-
tónlist.
23.00 Krían í læknum.
Rögnvaldur kría fær gesti í lækinn.
24.00 Óvinsældalistinn.
Geiri og Gunni spila óvinsælustu lög vik-
unnar í öfugri röð í nýjum og breyttum
útgáfum.
01.00 Næturlög.
Helga og Þórdís segja sögur og spila.
04.00 Dagskrárlok.
Ólund
Sunnudagur 15. janúar
19.00 Þungarokksþátturinn.
Tryggvi P. Tryggvason skrapar þunga-
rokksskífur og hrellir hljóðnemann með
þungarokksglefsum.
20.00 Gatið.
21.00 Fregnir.
30 mínútna fréttaþáttur.
Atvinnulífið í bænum og nágrenni tekið til
umfjöllunar.
21.30 Menningin.
Björg Björnsdóttir. Ljóðskáld vikunnar,
smásögur, tónlistarviðburðir og menning
næstu viku. Viðtöl.
22.00 Gatið: Húmanistar á mannlegu nót-
unum.
Félagar í Flokki mannsins sjá um þáttinn.
23.00 Þokur.
Jón Marinó Sævarsson.
Hljómsveit eða tónlistarmaður tekinn
fyrir.
24.00 Dagskrálok.
Ólund
Mánudagur 16. janúar
19.00 Þytur í laufi.
Jóhann Ásmundsson spilar uppáhalds
pönkið sitt.
20.00 Gatið: Húmanistar á mannlegu nót-
unum.
Félagar í Flokki mannsins sjá um þáttinn.
21.00 Fregnir.
30 mínútna fréttaþáttur.
Fréttayfirlit síðustu viku. Fólk ræðir
málin.
21.30 Mannamál.
íslenskukennarar sjá um þáttinn.
22.00 Gatið.
23.00 Fönk og fusion.
Ármann Gylfason og Steindór Gunn-
laugsson kynna fönk- og fusiontónlist.
24.00 Dagskrárlok.
Stjarnan
Laugardagur 14. janúar
10.00 Ryksugan á fullu.
Jón Axel léttur á laugardegi.
Fréttir kl. 10 og 12.
14.00 Dýragarðurinn.
Gulli Helga sér um sveifluna.
Fréttir kl. 16.
18.00 Ljúfur laugardagur.
Tónlist fyrir alla.
22.00-03.00 Næturvaktin.
Stjörnustuð fram eftir nóttu.
Kveðjur og óskalög í síma 681900.
03.00-10.00 Næturstjörnur.
Stjarnan
Sunnudagur 15. janúar
10.00 Líkamsrækt og næring.
Jón Axel sér um morgunleikfimina.
14.00 ís með súkkulaði.
Gulli Helga með tónlist fyrir sunnudags-
rúntinn.
18.00 Útvarp ókeypis.
Góð tónlist, engin afnotagjöld.
21.00 Kvöldstjörnur.
Ljúfari tónar en orð fá sagt.
01.00-07.00 Næturstjörnur.
Tónlist fyrir nátthrafna.
Stjarnan
Mánudagur 16. janúar
7.00 Egg og beikon.
Morgunþáttur Þorgeirs.
•Fréttir kl. 8.
09.00 Níu til fimm.
Lögin við vinnuna. Gyða Dröfn og Bjarni
Haukur.
Heimsóknartíminn, (tómt grín) klukkan
11 og 17.
Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16.
17.00 ís og eldur.
Þorgeir Ástvaldsson og Gísli Kristjáns-
son, tal og tónlist.
Fréttir kl. 18.
18.00 Bæjarins besta
kvöldtónlist.
21.00 í seinna lagi.
Blanda inn í draumalandið.
01.00-07.00 Næturstjörnur.
Tónlist fyrir nátthrafna.
Bylgjan
Laugardagur 14. janúar
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Góð helgartónlist sem engan svíkur.
14.00 Kristófer Helgason.
Léttur laugardagur á Bylgjunni.
Góð tónlist með helgarverkunum.
18.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Hinn eldhressi plötusnúður heldur uppi
helgarstemmningunni.
22.00 Næturvakt Bylgjunnar.
02.00 Næturdagskrá.
Bylgjan
Sunnudagur 15. janúar
10.00 Haraldur Gíslason.
Þægileg sunnudagstónlist.
13.00 Margrét Hrafnsdóttir.
Lífleg stemmning hjá Margréti.
16.00 Ólafur Már Björnsson.
Góð sunnudagstónlist.
Óskalagasíminn er 611111.
21.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Þægileg tónlist á sunnudegi.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Bylgjan
Mánudagur 16. janúar
07.30 Páll Þorsteinsson.
Þægileg morguntónlist - litið í blöðin og
sagt frá veðri og færð.
Fréttir kl. 8 og Potturinn kl. 9. .
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Morgun- og hádegistónlist - allt í einum
pakka.
Fréttir kl. 10, 12 og 13. - Potturinn kl. 11.
Bibba og Halldór á Brávallagötu 92 kikja
inn milli kl. 10 og 11.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Síðdegið tekið létt á Bylgjunni. - Óskalög-
in leikin. Síminn er 611111.
Bibba og Halldór aftur og nýbúin milli kl.
17 og 18.
Fréttir kl. 14 og 16. Potturinn kl. 17.
18.00 Fréttir.
18.10 Reykjavik siðdegis - Hvað finnst
þór?
Steingrimur Ólafsson spjallar við hlust-
endur. Síminn er 611111.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Meiri músík minna mas.
20.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Þægileg kvöldtónlist.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Ijósvakarýni
í símasambandi við þjóðarsál
Mikil og hröö þróun hefur orðið í útvarpsmálum
okkar íslendinga á allra siðustu árum. Ekki finnst
mér langt síðan maður þurfti ekki að hreyfa stilli-
takkann á útvarpstæikinu því ekki var um annað
að ræða en „gömlu gufuna við Skúlagötuströnd"
þar sem Jón Múli og Pétur Pétursson spiluðu til
skiptis jazz af plötum eða „klassíska tónlist eftir
ýmsa höfunda" eins og þeir voru gjarnir á að
kynna hana. Nú er öldin önnur.
Nú er hver stöðin við aðra á effemminu og
maður á í stökustu vandræðum með aö stilla á
eina stöð án þess að fá truflanir af annarri.
Reyndar kom þaö einu sinni fyrir að útvarpið í
bílnum mínum gekk af göflunum og ákvað að
taka af mér ómakiö við að færa á milli stöðva og
sendi mér þrjár stöðvar í einu í gegnum hátalar-
ana. Frændi minni, bílaáhugamaður af yngri
kynslóðinni, varð vitni að þessu uþpátæki
útvarpstækisins og lýsti því snarlega yfir að bíll-
inn minn væri drusla og ég gæti aldrei selt hann
með svona útvarpsfrati. Og þá vissi ég það.
En ég er sem sagt sekur um að láta mér ekki
bara „gömlu gufuna" og Rás 2 nægja heldur
kanna ég hinar stöövarnar annað veifið. Jú, mik-
ið rétt. Þessar tvær stöðvar eru í sérflokki og
hafa alltaf verið. Ekki er ég þar með að segja að
ég sé að öllu leyti sáttur við dagskrá þessara
stöðva en mér finnst einfaldlega viðhöfð sú regla
á þessum stöðvum að senda ekki út í loftið ein-
hverja bölvaða þvælu heldur efni sem yfirleitt er
vel unnið.
Virkileg dagskrárgerö er á undanhaldi og núna
virðist það vinælasta útvarþsefnið þegar „opnað
er fyrir símann“, eins og margir þáttastjórnendur
komast að orði, og láta hlustendur blaðra út og
suður um allt og ekki neitt. Hjá öllum stöðvunum
er að finna símaþætti af þessu tagi og ef eitthvað
er þá fjölgar þeim heldur. Jafnvel dægurmála-
deild Rásar 2 hefur nú afmarkaðan þátt í dag-
skránni sem heitir „Þjóðarsálin" og virðist hafa
þá yfirskrift að láta hlustendur tala um allt og
ekkert. í það minnsta heyrði ég einn af þessum
símajDáttum um daginn þar sem stjórnandinn
kynnti umræðuefni dagsins en stóð síðan uppi
að afloknum símatímanum án þess að nokkurn
tímann hafi verið minnst einu orði á efni dagsins.
Svona þættir geta orðið ákaflega þreytandi til
lengdar nema haldið sé fast utan um þá og
stjórnendur gefi tunguliprum hlustendum ekki
algerlega laust beisli. Og umfram allt má góð
dagskrárgerð ekki víkja fyrir þáttum eins og
þessum. Það eru slæm skipti. JÓH
|JLANDSVIRKJUN
Breytt
símanúmer
Frá og meö mánudeginum 16. janúar 1989
verður símanúmer aðalskrifstofu Landsvirkjun-
ar að Háaleitisbraut 68, Reykjavík,
91-600700.
^ Tölvuskóli MA
Ritvinnsla - WordPerfect
Námskeið hefst miðvikudaginn 18. janúar.
Námskeiðið stendur í tvær og hálfa viku, samtals 8
skipti eða 24 kennslustundir.
Fjöldi þátttakenda á námskeiðinu er takmarkaður
við 12.
Skráning og allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Menntaskólans í síma 25660.
Einstaklingar
með atvinnurekstur
Við aðstoðum við áætlun á skattskyldum
tekjum fyrir árið 1988.
Það má komast hjá verðbótum við álagningu
með því að gera skil fyrir 31. janúar 1989 á fjár-
hæð sem ætla má að samsvari sköttum af tekjum
þessum.
Aðstoð okkar kemur síðan að fullum notum
við gerð skattframtals.
KJARNI HF.
Bókhalds- og viðskiptaþjónusta.
Tryggvabraut 1 • Akureyri • Sími 96-27297 • Pósthólf 88.
Framkvæmdastjóri: Kristján Ármannsson, heimasími 96-27274.
Akureyringar —
KTorðlendincrar
Dráttarbeisli - Kerrur
Eigum á lager hesta-, snjósleða-, jeppa-
og bátakerrur.
Kerruhásingar fyrir tjaldvagna, hestakerrur o.fl.
Burðarþol 500 kg - 6 tonn.
Verðum með allar gerðir af kerrum
á sýningunni um helgina.
Einnig flesta aukahluti í kerrur, t.d.
kerruhásingar, hluti í bátavagna og margt fleira:
Sjón er söcfu ríkari.
ÆL
VÍKURVAGNAR HF
Víkur-Vagnar
Laufbrekku 24, (Dalbrekkumegin),
símar 91-43911 - 91-45270 - 91-72087.