Dagur - 21.01.1989, Síða 3

Dagur - 21.01.1989, Síða 3
21. janúar 1989 - DAGUR - 3 Aukin þjónusta tryggingafélaga á Akureyri: Tjónaskoðunarstöð fyrir bif- reiðar sett upp fyrir vorið Nú er í undirbúningi að opna tjónaskoðunarstöð á Akureyri fyrir bifreiðar. Þessi stöð verð- ur útibú frá Tjónaskoðunar- stöðinni sf. í Kópavogi sem starfrækt hefur verið frá því um mitt ár 1987. Kristján G. Tryggvason, framkvæmda- stjóri Tjónaskoðunarstöðvar- innar sf., segir að ráðinn verði starfsmaður við stöðina á Akureyri en húsnæði fyrir starfsemina er.í athugun. Eigendur Tjónaskoðunar- stöðvarinnar sf. eru tryggingafé- lögin Brunabót og Almennar tryggingar og með sameiningu síðar nefnda félagsins og Sjóvá verður um helmingur bifreiða- flota landsmanna tryggður hjá þessum félögum. Kristján segir að fleiri félög hafi lýst áhuga á samstarfi við þessa aðila um úti- búið á Akureyri t.d. Trygginga- miðstöðin. í útibúinu á Akureyri verða tjónabílar skoðaðir og reiknaður út kostnaður við viðgerð. Á grundvelli þessara útreikninga verður leitað til verkstæða eftir viðgerðum og í sumum tilfellum óskað eftir tilboðum í verk. Kristján segir að þetta hafi í för með sér að ekki verði gert við tjónabíla á öðrum verkstæðum en þeim sem stöðin ábyrgist að skili vandaðri vinnu. Kristján segir stefnuna einnig þá að viðgerðir bíla fari fram inn- an þess sveitarfélags sem bifreið- in kemur frá og stöðin komi jafn- framt til með að stytta þann tíma sem líður frá því bifreiðin lendir í tjóni og þar til búið er að gera við hana. í útibúinu á Akureyri, eins og í aðalstöðinni í Kópavogi, verða haldin útboð á þeim tjónabílum sem tryggingafélögin hafa keypt af eigendum eftir tjón. Bílasala af þessu tagi hefur verið vinsæl í aðalstöðinni og segist Kristján gera ráð fyrir að svo verði einnig á Akureyri. Á vegum tjónaskoð- unarstöðvarinnar á Akureyri verða einnig haldin námskeið fyr- ir starfsmenn bifreiðaverkstæða t.d. í bílamálningu, meðferð á plastviðgerðarefnum, fræðslu um hástyrktarstál o.fl. Útibúið á Akureyri kemur til með að þjóna Akureyri og ná- grannabyggðum. Þetta verður fyrsta útibúið á landsbyggðinni en á þremur stöðum á landinu eru nú skoðunarmenn á vegum stöðvarinnar. JÓH 10,6 milljónir króna á ijárlögum til rannsókna við Mývatn Mikilvægt að flýta rann- sóknum eins og kostur er - segir Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs Rannsóknum á lífríki Mývatns veröur fram haldið á komandi sumri. Þær munu sem fyrr beinast að þeim mikilvæga þætti hvort kísiltaka Kísiliðj- unnar hf. úr vatninu hafi afger- andi áhrif á Iífríki vatnsins. Til þessa verkefnis er varið 10,6 milljónum króna á fjárlögum yfirstandandi árs. Menntamálaráðherra mun á næstunni skipa nefnd sem mun hafa yfirumsjón með þessu verki til loka. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsókna- ráðs ríkisins, hefur fallist á að gegna formennsku í þessari nefnd. í samtali við Dag í gær sagðist hann ekki geta sagt nákvæmlega fyrir um hvernig staðið yrði að rannsóknun á kom- andi sumri, enda hefði umrædd nefnd menntamálaráðherra ekki komið saman til fundar. Vil- hjálmur sagðist þó telja mjög mikilvægt að halda rannsóknum áfram af miklum krafti og fá fram vísindalegar niðurstöður þeirra. „Þetta er vitanlega mjög flókið mál í heild sinni og ákaflega vandmeðfarið að leggja forsend- ur að verki sem svo mikilvægt mat á að byggjast á,“ segir Vil- hjálmur. óþh verdur laugard. 21. og sunnud. 22. jantíar frá kl. 2-6 e.h. báða dagana að Bifreiða- verkstæði Sigurðar Valdimarssonar í sýningarsal að Óseyri 5 (norðurhluta). Sýndir verða meðal annars: Subaru J12 4x4, auk fleiri gerða af Subaru bílum, Nissan Sedan og Nissan Sunny. Auk þess Nissan Pathfinder 4x4 nýjasti jeppinn frá Japan. Athygli skal vakin á því að nokkrir Nissan Sunny 1989 bílar eru ennþá til á gamla verðinu. Komið ocf reynsluakið NISSAN Bílasýning Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 — Sími 22520 - Akureyri. V Ingvar Helgason hf. Rauðagerði. J Flugfélag Norðurlands: Útkoman þokkalega góð á síðasta árí - aukning á flestum áætlunarleiðum Farþegum í áætlunarflugi hjá Flugfélagi Norðurlands fjölg- aði um 2,5% á síðasta ári mið- að við árið 1987. Alls voru fluttir 19.554 farþegar í áætl- unarflugi, 488 tonn af frakt og 202 tonn af pósti. Frakt- flutningur dróst saman um 3,2% milli ára en póstflutning- ur jókst um 13,1%. Ljóst er að flugfélagið mun skila hagnaði, en ekki liggur fyrir hve miklum. Sigurður Aðalsteinsson hjá Flugfélagi Norðurlands hafði ekki tölur um leiguflug á síðasta ári, en hann var ánægður með árið í heild. Aukning varð á flest- um leiðum félagsins í áætlunar- fluginu með nokkrum undan- tekningum. Færri farþegar lögðu leið sína til Grímseyjar en árið á undan og vildi Sigurður kenna því um að erlendir ferðamenn skiluðu sér ekki í sama mæli og undanfarin ár til Norðurlands. Einnig varð samdráttur í farþega- flutningum til Kópaskers og Raufarhafnar. „Það hefur alltaf verið mikil túristatraffík til Grímseyjar hjá okkur og þetta er raunar eini staðurinn sem eitthvað kveður að erlendum ferðamönnum á okkar leiðum. Annars eru þetta mest íslendingar sem við flytjum. Samdráttinn á Kópaskeri og Raufarhöfn má kannski rekja til atvinnuástands á þessum stöðum,“ sagði Sigurður. KOTASÆLA DAGIIR Ilúsavík 0 9641585 Norðlenskt dagblað Umsvifin hjá Flugfélagi Norðurlands voru vaxandi á öðr- um áætlunarleiðum og nefndi Sigurður t.d. að traffík milli Akureyrar og Ólafsfjarðar hefði vaxið verulega. „Útkoman í heild, þ.e.a.s. áætlúnarflug, leiguflug, sjúkraflug, kennsluflug og tekjur af viðhaldi fyrir aðra, er greinilega þokkalega góð og ljóst að um hagnað er að ræða,“ sagði Sigurður að lokum. SS fitulítil og freistandi Pessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni: Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d. kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika. /X\ KOTASÆLA - fitulítil og freistandi AUK/SlA k9d1-387

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.