Dagur - 21.01.1989, Page 5

Dagur - 21.01.1989, Page 5
21. janúar 1989 - DAGUR - 5 Kynning á ensku //ðunum Middlesbrough hefur ekki af stórum sigrum að státa á liðn- um árum, liðið hefur aðeins orðið sigurvegari í 2. deild þrí- vegis, árin 1927, 1929 og 1974. Tap á heimavelli gegn Leic- ester í síðasta leik liðsins í 2. deild í fyrra kostaði félagið öruggt sæti í 1. deild. Liðið var jafnt Aston Villa að stigum og markahlutfall liðanna var einn- ig jafnt, en þar sem Middles- brough hafði skorað færri mörk varð liðið að taka þátt í úrslitakeppni, en Aston Villa fór beint upp. Liðið sigraði síð- an Bradford samanlagt 3:2 í tveim leikjum og mætti síðan Chelsea í einvígi um sæti í 1. deild. Middlesbrough sigraði í heimaleiknum 2:0, en tapaði útileiknum 0:1 og var þar með komið í 1. deild. Engan óraði fyrir þessu 21 mánuði fyrr, er liðið hóf keppni í 3. deild og lék sína fyrstu heimaleiki á leikvelli Hartle- pool þar sem þeirra eigin velli hafði verið lokað og félagið á barmi gjaldþrots. En með gíf- urlegri baráttu og samheldni tókst liðinu að vinna sig út úr erfiðleikunum og vinna sæti í 1. deild á mettíma. Middles- brough tapaði sínum fyrstu þrem leikjum í 1. deildinni í haust, en síðan hefur gengið betur og félagið hefur haldið sínum hlut og verið í þægilegu sæti í deildinni. í bikarkeppn- unum hefur ekki gengið eins vel. 4. deildar lið Tranmere sló liðið út úr deildabikarnum í 2. umferð og viðstaða Middles- brough í FA-bikarnum var ekki lengri né glæsilegri því í 3. umferð taþaði liðið á heima- velli gegn 4. deildar liði Grimsby og getur því einbeitt sér að keppninni í 1. deild til vorsins. Vörn liðsins er þeirra wT 7 w&m fr, i Aftasta röð: f.v. Gary Robinson, Colin Cooper, Kevin Poole, Matthew Coddington, Stephen Pears, Mark Burke.Trevor Senior. Miðröð: Tony Mowbray, Gary PaJlister, Stuart Ripley, Alan Kernaghan, Nicky Mohan, Drew Coverdale, Gary Agnew, Owen McGee, Michael Trotter. Fremsta röð: Gary Hamilton, Gary Parkinson, Gary Gill, Paul Kerr, Mark Brennan, Dean Glover, Bernie Slaven. sterkasta vopn, markvörðurinn Stephen Pears var keyptur frá Man. Utd. fyrir nokkrum árum fyrir £80.000 og hefur leikið mjög vel. Gary Pallister og fyrirliðinn Tony Mowbray eru mjög sterkir miðverðir, Pallist- er hefur leikið landsleiki fyrir England, ungur og efnilegur leikmaður sem flest stóru félögin hafa verið á höttunum eftir. Bakverðirnir eru einnig góðir, Gary Parkinson og vinstri bakvörðurinn Colin Cooper hefur leikið í 21 árs landsliði Englands. Útherjarnir Stuart Ripley sem hefur leikið 21 árs landsleiki fyrir England og Mark Burke eru efnilegir leikmenn. Gary Hamilton og Mark Brennan eru sterkir mið- vallarleikmenn og í framlín- unni eru tveir leikmenn sem báðir geta skorað mörk. Bern- ie Slaven hefur að undanförnu verið aðal markaskorari liðsins og nú hefur hann Peter Dav- enport sér við hlið, en hann var nýlega keyptur frá Manchester Utd. Félagið hefur því sterku liði á að skipa og ætti ekki að þurfa að kvíða framtíðinni ef hinir ungu leikmenn liðsins halda tryggð við félagið, en margir þeirra eru mjög eftir- sóttir af ríku félögunum í 1. deildinni. Þ.L.A. Kaup og sölur Peter Davenport. Síðast þegar Middlesbrough var í 1. deild seldi félagið marga af sínum bestu leik- mönnum, t.d. Craig Johnston, Graeme Souness og David Armstrong. Nú er annað uppi á teningnum og félagið hefur nú keypt tvo leikmenn fyrir rúma milljón punda. Mark Brennan miðvallarspilari sem leikið hef- ur með landsliði Englands 21 árs og yngri var keyptur frá Ipswich fyrir £375.000 og nú nýlega var fyrrum landsliðs- miðherji enskra, Peter Daven- port keyptur frá Manchester Utd. fyrir £700.000. Aston Villa reyndi einnig að fá hann til sín, en Davenport valdi Middles- brough og skoraði sigurmark liðsins gegn Man. Utd. í 1. deildar leik nú nýlega. Þá kom Mark Barham án kaupverðs frá Huddersfield, en hann lék 2 landsleiki fyrir England er hann var leikmaður Norwich. Það er því greinilega stefna Bruce Rioch að koma liðinu hátt, þeirra eftirsóttasti leikmaður Gary Pallister hefur nú nýlega gert fjögurra ára samning við félagið og flestir bestu leikmanna þess eru á löngum samningum. Tveir leikmenn hafa verið seldir á keppnistímabilinu, Brian Laws var seldur til Nott- ingham For. fyrir £120.000 og Trevor Senior til Reading fyrir £150.000. Senior var keyptur frá Watford fyrir £200.000 á síðari hluta keppnistímabilsins í fyrra, mikill markaskorari í neðri deildunum, en brást bæði hjá Watford og Middles- brough. Þ.L.A. 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2,4X2 1X21X2 1X2 Jafnt hjá Birni og Ásgrími Framkvæmdastjórinn Bruce Rioch var ráðinn fram- kvæmdastjóri félagsins í febrúar 1986. Hann lék 24 landsleiki fyrir Skotland og var leikmaður hjá Luton, Aston Villa, Derby, Everton, Seattle Sounders og Torquay þar sem hann var bæði leikmaður og framkvæmdastjóri. Þegar hann tók við hjá félaginu var útlitið ekki bjart og liðið féll nið- ur í 3. deild. Gjaldþrot þlasti við, en því tókst að afstýra á síðustu stundu. Margir ungir og efnilegir leikmenn voru þó hjá félaginu sem héldu tryggð við félagið þrátt fyrir vandræð- in og þeir áttu sannarlega eftir að njóta þeirrar ákvörðunar. Middlesbrough lék aðeins eitt leiktímabil í 3. deild, liðið vann sig upp í 2. deild keppnistíma- Framkvæmdastjórinn Bruce Rioch hefur unniö stórvirki fyrir Middles- brough. bilið 1987 og viðstaðan í 2. deild var jafn stutt, því á síð- asta leiktímabili vann liðið sig upp í 1. deild eftir úrslita- keppni. Aðstoðarmenn Rioch hjá fé- laginu eru þrír fyrrum félagar hans sem leikmanns. Colin Todd er hans hægri hönd, þeir léku saman hjá Derby, en Todd lék 27 lands- leiki fyrir England. Hann kom til Middlesbrough í maí 1986. Brian Little sem lék 1 lands- leik fyrir England var félagi Rioch hjá Aston Villa. Áður en hann kom til Boro fyrir tveim árum var hann framkvæmda- stjóri Wolves, en sér nú um varalið Middlesbrough. Unglingaþjálfarinn er David Nish er lék 5 landsleiki fyrir England og var hjá Derby á sama tíma og Rioch. Hann kom til Middlesbrough í haust. Þ.L.A. Bjöm Axelsson og Ásgrímur Hilmisson skildu jafnir í getraunaleiknum í seinustu viku. Árangurinn var ekki til að hrópa neitt sérstaklega húrra fyrir en menn hafa nú samt verið lægri en þetta. Þessi úrslit þýða að þeir kappar verða að reyna með sér aftur og nú ætti þeim að ganga betur því leikirnir eru ekki mjög þungir. En annars er best að segja sem minnst því oft verða óvænt úrslit þegar maður á síst von og við bíðum bara spennt eftir því hvað bankamennirnir gera. Sjónvarpsleikurinn er leikur Nottingham Forest og Aston Villa og má búast við skemmtilegum leik. Nottinghamliðið hefur verið í mikilli sókn að undanförnu og Aston Villa hefur einnig verið að sækja í sig veðrið eftir slakan árangur fyrr í vetur. Björn: p i Asgrímur: Arsenal-Sheff. Wed. 1 Coventry-Wimbledon 1 Liverpool-Southampton 1 Luton-Everton 2 Middlesbro-Tottenham 2 Newcastle-Charlton 1 Nott. For.-Aston Villa 1 Q.P.R.-Derby 1 West Ham-Man. Utd. 2 Blackburn-Chelsea x Crystal Palace-Swindon 1 Oxford-Leeds x Arsenal-Sheff. Wed. 1 Coventry-Wimbledon x Liverpool-Southampton 1 Luton-Everton 1 Middlesbro-Tottenham 1 Newcastle-Charlton 1 Nott. For.-Aston Villa x Q.P.R.-Derby 2 West Ham-Man. Utd. 2 Blackburn-Chelsea x Crystal Palace-Swindon 1 Oxford-Leeds x 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.