Dagur - 21.01.1989, Side 8

Dagur - 21.01.1989, Side 8
8 - DAGUR - 21. janúar 1989 ~ Ingólfur Ólafsson klæðskerameistari á Akureyri rifjar upp iiðna tíð í helgarviðtali Dags í kjallara húss við Kringlumýri á Akureyri er lítið klæðskeraverkstæði. Þegar stigið er þar inn, berst angan af leðri og við blasa hinar ýmsu skinnflíkur, hver annari fal- legri. Við saumavél situr maður og fer öruggum höndum um dýrindis skinnin sem síðar eiga m.a. eftir ao verma gegn frosti og hríð. Maðurinn við vélina heitir Ingólfur Ólafsson og er klæðskera- meistari. Hann kann frá skemmtilegum atburðum að segja; frá kreppuárunum, af bankastjórum á Akureyri sem vildu ekki lána honum fyrir bíl, af steiktum steinbít með brúnni sósu og fleiru og fleiru sem allt kemur fram í helgarviðtali í dag. Hann ólst upp á Suðureyri við Súgandafjörð yngstur tíu systkina. Þótt hann hafi verið ungur að árum, man hann hvernig ástandið var í kreppunni og minntist á atvinnu- leysi og verðfall afurða. „Þetta var hálfgert basl og lífsviðhorf fólks á þessum tíma helgaðist af ástandinu. Það hafði enga mögu- leika og varð að notast við það sem það hafði, sjóinn. Við feng- um t.d. aldrei kjöt að borða á sumrin því ekki ekki var farið að frysta matvæli á þessum tíma. Einstaka sinnum fengum við kálfakjöt sem við krakkarnir vor- um ekkert hrifin af, því kálfunum var slátrað nýfæddum í þá daga og þeir étnir, en það var allt étið t.o.m. gamlar hænur. Steinbítur- inn var mikið borðaður, enda kom hann þarna í mars spikfeitur og fínn upp á grynningarnar. Við fengum t.d. steiktan steinbít með brúnni sósu í sunnudagsmatinn en það var mjög góður matur. Hann var étinn nýr og soðinn, steiktur, flattur og kúlaður og soðinn hálf harður auk þess sem hann var borðaður hertur." Misheppnuð tilraun Þegar Ingólfur var 22ja ára gam- all yfirgaf hann uppeldisstöðv- arnar og fór á vertíð í Sandgerði. Þaðan var m.a. farið á síld fyrir Norðurlandi og landað á Siglu- firði en þetta var í lok síldarár- anna og aflinn því frekar lélegur. Áður en hann kom til Akureyrar, gerði hann misheppnaða tilraun til að læra að mála á ísafirði. „Ég var að leita að einhverju öðru til að gera en þetta endaði með skelfingu því ég fékk blæðingu í eyrun, að því er virtist af engri ástæðu svo ég varð að hætta, til allrar guðs lukku því það hefði ekki átt við mig að mála. Um þessar mundir kom prest- ur ættaður úr Eyjafirði til Súg- andafjarðar. Þetta var sr. Jóhannes Pálmason, sonur Krist- ínar skáldkonu Sigfúsdóttur. Það varð til þess að í gegnum hann var skrifað til Valtýs Aðalsteins- sonar klæðskera á Akureyri sem um þetta leyti var að útskrifa nemanda í klæðskeraiðn og hann var fús til að taka mig í nám fyrir góð orð sr. Jóhannesar um mig.“ Að kasta sauma - Hafðir þú hugleitt það áður að gerast klæðskeri? „Ég hafði búið við þetta heima, því mamma var sauma- kona mikil og sem krakki hafði ég oft dundað við að hjálpa henni við að kasta sauma, en í þá daga var ekkert zic-zac svo kantana varð að kasta í höndunum. Svo var ég búinn að prófa að sauma mér buxur svo ég vissi vel hvað ég var að fara útí.“ Þetta var árið 1948 og þá var enn nóg að gera hjá klæðskerum. Valtýr Aðalsteinsson rak þá klæðskeraverkstæði í húsinu númer 11 við Strandgötu og hafði að jafnaði 3-4 stúlkur auk nema í vinnu hjá sér. Við spurðum Ing- ólf nánar út í klæðskerastarfið og vildum t.d. vita hvort algengt hafi verið að fólk léti sauma á sig föt, hvernig efnin hafi verið og hvað þetta hafi nú kostað allt saman. „Efnin voru að mestu ullar- efni, en tereieen-efnin voru að koma og þóttu góð því það tolldu betur brot í þeim buxum. Þetta voru mestmegnis ensk efni. Þá lét hver sem er sauma á sig föt, því það var ekki um annað að ræða til að byrja með. Ég man nú ekki nákvæmlega hvað sérsaumuð föt kostuðu en vinnan kostaði um það bil jafn mikið og efnið. Þarna komu sem sé menn, létu mæla sig Valtýr sneið og við saumuðum. Þetta voru ekki endilega vand- aðri föt en þau sem nú eru flutt inn, en auðvitað valt það á hand- bragðinu hjá fólkinu sem saum- aði. í dag er hægt að fá virkilega fín föt, t.d. þau þýsku og dönsku. Ein föt á ári í laun Það var afar misjafnt hvað menn létu sauma á sig mörg föt á ári. Fljótlega var Gefjun komin með saumastofu þaðan sem hægt var að fá keypt föt eftir númerum og ég hugsa að þeir efnaminni hafi keypt sér föt þar.“ - Hver voru þín laun sem nemi í klæðskeraiðn? „Þau voru frítt fæði og hús- næði, ein föt á ári og eins mánaðar sumarfrí þau fjögur ár sem námið stóð. Þá var skólinn einnig frír. Til þess að fá einhvern vasapen- ing, gerðist ég þjónn á Hótel Norðurlandi á kvöldin og um helgar og vann þar í tvö ár. Yfir sumarið var vinna öll kvöld vik- unnar nema mánudaga og stund- um voru dansæfingar og kaffisala á eftirmiðdögum á sunnudögum. Auðvitað var þetta erfitt því vinnudegi á saumastofunni lauk kl.18.00 á daginn, þá fór maður heim í bað í smókinginn þaðan í mat og svo upp á hótel að stilla upp. En það var ekki um annað að ræða.“ Salurinn á Hótel Norðurlandi var einn sá stærsti á íslandi á þessum tíma og tók um 280 mánns í sæti. Á veturna voru flestar árhátíðar haldnar þarna enda var hann líka glæsilegur. „Það voru speglar á einum enda- vegg salarins og þar fyrir ofan málverk eftir Hauk Stefánsson, sólsetur við Eyjafjörð. Víða voru málverk máluð á veggi t.d. á ganga og stigahús gríðarlega falleg. Haukur málaði skraut í mörgum húsum víða um bæinn.“ Noregur heillaði Að námi loknu hélt Ingólfur til Noregs, en það var að mestu af ævintýraþrá, segir Ingólfur. „Ég var nú búinn að kynnast konunni minni, Guðbjörgu Árnadóttur, þá og tveimur dögum áður en ég hélt utan, fréttum við að hún var orðin barnshafandi en það var ekki hægt að hætta við Noregs- ferðina. Ég kunni ágætlega við Norðmenn, en það var nú þröngt í búi hjá þeim á þessum tíma þar sem þeir voru enn að byggja upp eftir stríðið. í Osló vann ég hálft ár á skraddaraverkstæði £>g það Sem eftir var tímans, starfaði ég við að byggja bílskúra úr timbri úti á Fornebu." Eftir tæplega árs dvöl í Noregi hélt Ingólfur heim til íslands á ný, þá orðinn faðir að stúlku- barni og fengu þau Guðbjörg sér fljótlega íbúð á Akureyri. „Við fluttum fjórum sinnum á fimm árum, því það gekk heldur brösu- lega að verða sér úti um húsnæði. Mér þótti gerður mikill manna- munur á Akureyri á þessum tíma. Ef ég tek bankana sem dæmi, var mjög erfitt að fá pen- ingalán. Toppmennirnir réðu fjármagninu. Bankastjórarnir lánuðu fé til útgerðarmanna, en þegar kom að okkur voru engir peningar til. Ég veit ekki hvort þetta var algilt en það voru nægir peningar til í landinu á þessum tíma. Engir peningar fyrir kú, engir fyrir mig . . . Fyrsta ferðin mín í banka ; töluðu hátt og Sverrir segir: „Já, þetta verður allt í lagi þú mátt treysta því. Láttu mig bara vita hvað þú þarft mikið og ég sé um að þetta gangi fyrir sig.“ Síðan fer ég inn og það var eins og við manninn mælt, það voru ekki til neinir peningar. Seinna fékk ég smálán í þessum banka, en það var vegna þess að annar maður lagði peninga inn í hann. Þessi viðskiptamáti tíðkaðist oft í þá daga. Svo gerðist það eftir nokkra mánuði að þessi maður þurfti á peningunum sínum að halda og tók þá út, en þá varð ég að gjöra svo vel að borga lánið upp um leið. í vitlausum banka Eitt sinn fór ég til bankastjóra Iðnaðarbankans að biðja um lán. Hann dró upp miðabunka af borðinu hjá sér með teygju utan- um og segir: „Heyrðu Ingólfur minn! Heldur’u að þú sért ekki í vitlausum banka. Þetta eru mínir viðskiptavinir og þú ert ekki hér.“ Nú bíl eignaðist ég ekki fyrr en bankastjóri einn auglýsti Skinnii Hjónin Ingólfur Ölafsson klæðskerameistari og Guðbjörg Árnadóttir. Akureyri kom til vegna þess að ég ætlaði að kaupa mér bíl, þá kominn á fimmtugsaldur. Ég fór í Sparisjóð Akureyrar og hann hét Jón sem þar var bankastjóri. Hann hristi bara höfuðið og sagði að það væru engir peningar til. „Það kom hérna bóndi í morgun og ætlaði að fá lán fyrir kú, en það eru engir penginar til,“ sagði hann. Ég skildi þetta mjög vel. Úr því hann gat ekki lánað bónda fyrir kú, var ekki hægt að Iána mér til að kaupa bíl því búskapur þá var hærra metinn en núna. Öðru sinni, löngu seinna, fór ég í Sparisjóð Akureyrar. Sverrir Ragnars var þá bankastjóri og ég held ég hafi verið búinn að bíða í hálftíma eftir honum þegar hann kemur út og með honum stórútgerðarmaður úr sjávar- plássi hér út með firðinum. Þeir bílinn sinn til sölu. Svo ég hugs- aði með mér, hann hlítur að geta lánað mér aur ef ég kaupi af hon- um bílinn og hann gerði það.“ - Fannst þér erfitt að komast inn í bæjarmenninguna þegar þú komst til Akureyrar? „Ég held ég hafi bjargað mér á íþróttafélagsskapnum en ég gekk strax í Þór og spilaði með þeim bæði handbolta og fleira. Þá var ég tvö ár í „álfabrennubransan- um“ með Þórsurum svo maður kynntist fólki náið í gegnum þetta.“ Þegar Ingólfur kom til Akureyr- ar frá Noregi, fór hann að starfa hjá Björgvin Friðrikssyni klæð- skera, en þá var enn nóg að gera hjá skröddurum. Fljótlega uppúr þessu duttu viðskiptin niður, eða um 1960. „Ástæðuna fyrir þessu tel ég m.a. vera hvað fólk var Skinnii

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.