Dagur


Dagur - 25.01.1989, Qupperneq 4

Dagur - 25.01.1989, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 25. janúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþrótíir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Skoðanakannanir I síðustu viku var greint frá niðurstöðum tveggja nýrra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna og afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Kannanirnar eru unnar á sama tíma en af tveimur mismunandi aðil- um, DV annars vegar og Skáís fyrir Stöð tvö hins vegar. Niðurstöður beggja kannana eru merkilega svipaðar og virðast því gefa góða mynd af stöð- unni í stjórnmálaheiminum í upphafi nýs árs. Það er aðallega þrennt sem vekur athygli í niður- stöðum fyrrnefndra kannana. í fyrsta lagi virðist ljóst að ríkisstjórnin nýtur ekki fylgis meirihluta kjósenda um þessar mundir. í annan stað virðist Sjálfstæðisflokkurinn í nokkurri uppsveiflu og í þriðja lagi reytist fylgið jafnt og þétt af Kvennalist- anum. Ekkert þessara atriða kemur í sjálfu sér á óvart. Dvínandi vinsældir ríkisstjórnarinnar eiga sér eðhlegar skýringar. Hún hafði mikinn stuðning á bak við sig í upphafi, eins og reyndar allar ríkis- stjórnir í sögu lýðveldisins hafa haft á hveiti- brauðsdögum sínum. Hveitibrauðsdögunum er greinilega lokið. Á það ber að líta að ríkisstjórnin hefur enn ekki kynnt langtímaaðgerðir sínar í efna- hags- og atvinnumálum, þótt henni hafi tekist vel upp við að ná skemmri tíma markmiðum. Þá hafa sumar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar mælst mis- jafnlega fyrir meðal almennings og má þar sérstak- lega nefna skattahækkanir. Hins vegar má fast- lega búast við að fylgi ríkisstjórnarinnar aukist að nýju er árangur þessara aðgerða kemur í ljós. Ekki er ástæða til að taka fylgisaukningu Sjálf- stæðisflokksins mjög alvarlega. í báðum könnun- um er hlutfall óákveðinna og þeirra sem neita að svara mjög hátt (30% hjá Skáís og 46% hjá DV). Ástæða er til að ætla að mun færri í þeim hópi kysu Sjálfstæðisflokkinn frekar en hina flokkana. Engu að síður er ljóst að þrátt fyrir skrumkenndan mál- flutning og mislukkaða forystu er Sjálfstæðisflokk- urinn helsta stjórnarandstöðuaflið að mati kjós- enda. Það segir sína sögu um hina stjórnarand- stöðuflokkana. Kvennalistinn hrapar niður vinsældalistann. Konurnar eru á góðri leið með að tapa allri fylgis- aukningunni sem þær hafa sýnt í skoðanakönnun- um frá því kosið var síðast og nálgast nú óðum kjörfylgi sitt. Þær uppskera eins og þær sá, því það virðist vera eitur í beinum þingmanna Kvennalist- ans að taka ábyrga afstöðu inni á þingi. Þeir hafa hvorki verið í stjórn né stjórnarandstöðu, heldur svifið um í einhvers konar tómarúmi, ef til vill af ótta við fylgistap. Slíkt framferði dugar skammt í póhtík. A-flokkarnir sýna enn fylgistap frá kosningum og Borgaraflokkurinn er um það bil að hverfa. Framsóknarflokkurinn er með svipað fylgi og í síð- ustu kosningum og er tvímælalaust sá flokkur sem býr við mestan stöðugleika í fylgi. BB. Frá afhendingu tækisins, f.v. Jónas Franklín l'urmaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Sigurður Óla- son fyrrverandi yfirlæknir röntgcndeildar, Halldóra Bjarnadóttir starfsmaður félagsins, Pedro Ólafsson Riba núver- andi yfirlæknir röntgendeildar, Hansína Sigurgeirsdóttir og Vignir Sveinsson. Mynd: gb Brjóstamyndatökutækið afhent: Raimsóknarferillmn þægflegri og styttri - konur hvattar til að bregðast vel við kalli Um síðustu helgi afhenti Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis röntgendeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri brjóstmyndatöku- tæki að gjöf sem félagið keypti fyrir fé sem safnast hafði með áheitum og gjöfum frá fjöl- mörgum aðilum. Tækið kost- aði um 2,7 milljónir króna og tók það félagið ekki nema rúmlega eitt ár að safna tæp- lega tveimur milljónum, en mismuninn greiddi félagið. „Við höfum haft mikla ánægju af að takast á við þetta verk- efni,“ sagði Jónas Franklín formaður félagsins m.a. í ávarpi þegar tækið var afhent. Það var Vignir Sveinsson sem tók formlega við tækinu f.h. FSA úr hendi Halldóru Bjarna- dóttur starfsmanns Krabba- meinsfélags Akureyrar og ná- grennis og þakkaði hann félag- inu fyrir fórnfúst og óeigin- gjarnt starf. Viðstaddur afhendingu tækis- ins var Baldur Sigfússon yfir- læknir á röntgendeild Krabba- meinsfélags íslands. í ávarpi ósk- aði hann viðstöddum til hamingju með tækið og hafði orð á hversu starfið á Akureyri væri einstakt. Tækið er þægilegt í meðförum og myndgæði góð Yfirlæknir röntgendeildar FSA, Pedro Ólafsson Riba tók við tæk- inu f.h. röntgendeildar og þakk- aði hann Krabbameinsfélaginu framtakið f.h. FSA, deildarinnar og kvenna vítt og breitt. í samtali við Dag sagði Riba tækið í öllu mjög aðgengilegt og mun þægi- legra í meðförum bæði fyrir starfs- fólk og konur en gamla tækið. Pá væru myndgæði einnig mun betri. „Allur rannsóknarferillinn er því mun þægilegri og styttri fyrir bragðið." Myndatökur í tækinu hófust í byrjun desember og er konum þegar farin að berast bréf um boðun, en hún er á vegum Leitar- stöðvar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Pó krabbameinsleit- in fari nú fram á tveimur stöðum, er konum boðið upp á legháls- og brjóstaskoðun samdægurs. Leitin fer fram einu sinni í viku, á mið- vikudögum. „Við vonum að í framtíðinni getum við boðið kon- um upp á sameiginlega brjósta- og leghálsskoðun samtímis undir sama þaki, en því miður er það ekki í sjónmáli því okkur vantar húsnæði,“ sagði Riba. Leitin er eingöngu fyrir Akur- eyri og nágrenni, en konur t.d. á Dalvík og í Ólafsfirði koma til með að njóta þjónustu bifreiðar Krabbameinsfélags íslands sem ferðast um landið, en hún er búin myndatökutæki áþekku nýja tæk- inu á FSA. Nýjung að skoða 35 ára gamlar konur „Það eru um 2000 konur á skrá og mæting fram til þessa hefur verið mjög göð. Allar konur, 35 ára og frá 40-69 ára verða boðað- ar strax á þessu ári, en 35 ára aldurinn er nýr í hópskoðun brjósta. Við erum að prófa hvort þörf er á að færa aldurinn niður því að sjálfsögðu getur krabba- mein skotið upp kollinum hjá svona ungum konum þótt mesta hættan á brjóstakrabbameini sé hjá konum á aldrinum 50-60 ára. Konurnar fá bréf sem send eru út eftir stafrófsröð núna, en fram- vegis fer boðun eftir fæðingar- degi. í boðunarbréfi er konunum bent á að hringja og panta sér tíma.“ Aðspurður um hvort aðr- ar konur en þær sem eru í fyrr- greindum hópum geti pantað sér tíma í myndatöku, sagði Riba að öllum konum væri það frjálst. „Við viljum þó að þær konur fari fyrst á leitarstöðina og að læknir þar vísi þeim síðan til okkar. Það eru margar konur sem koma vegna þess að það er krabbamein í ættinni og þær vilja ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Sterk krabbameinsættarsaga er því góð og gild ástæða til að koma í myndatöku. Nú, við óskum að sjálfsögðu eftir því að konur bregðist vel við og svari kalli þeg- ar það kemur. Þær verða að standa sig og mæta vel því við ætlum að standa okkur betur en konur í Reykjavík sem mæta aðeins í um 70% tilfella. Mæting í krabbameinsleit er sem betur fer, yfirleitt alltaf betri hjá kon- um á landsbyggðinni.“ - Hversu áreiðanlegt er brjóst- myndatökutækið? „Greiningaröryggi er mjög gott, þó við höfum ekki tölulegar upplýsingar. Auðvitað fer þetta eftir því hvernig brjóstin eru gerð, ef við erum t.d. með kirtil- mikil brjóst leggjum við okkur meira fram og tökum fleiri myndir. Pað er mjög krefjandi að fara yfir myndirnar og það eru ávallt tveir læknar sem skoða hverja mynd til öryggis. Þá er geislunarhætta hverfandi lítil, í raun svo lítil að við getum gleymt henni,“ sagði Riba að lokum. VG Brjóstmyndatökutækið er nett og fyrirferðalítið að sjá. Við tækið eru þau Hansína Sigurgeirsdóttir og Pedro Ólafsson Riba. Mynd: vg

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.