Dagur - 25.01.1989, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 25. janúar 1989
TEKJUBRÉF• KJARABREF
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
rF|ARFESnNGARFÉLÆ;iD
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands, tekur við viðurkenningu úr hendi Magnúsar Jóhanns-
sonar, siglingamálastjóra. Guðjón Jónsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar er fremstur á myndinni. Mynd: tlv
EA skip
höfðu
vinningmn
- í skyndiskoðunun
Siglingamálastofnunar
Siglingamálastjóri veitti
útgerðarmönnum og forsvars-
mönnum hagsmunasamtaka
sjómanna og vélstjóra á Akur-
eyri og við Eyjafjörð viður-
kenningar fyrir bestu útkomu
við skyndiskoðun íslenskra
fískiskipa á árinu 1988.
Siglingamálastofnun ríkisins
hefur framkvæmt skyndiskoðanir
á fiskiskipum í þrjú ár. Skoðunin
er framkvæmd þannig að skoðun-
armenn fara án fyrirvara um borð
í skip þegar þau koma í höfn eða
láta úr höfn. Þá eru könnuð vel
sex til tíu öryggisatriði, en til-
gangur skyndiskoðana er að
kanna hversu vel sjómenn við-
halda haffæri skipa milli árlegra
skoðana.
Skip skráð á Akureyri og í
höfnum við Eyjaförð reyndust
hafa bestu útkomuna yfir landið
að þessu sinni. í fréttatilkynningu
frá stofnuninni segir að 60 atriði í
8 skipum hafi verið skoðuð.
Reyndust 55 þeirra, eða 91,6%,
þá vera í lagi. EHB
Ægir konungur gleypir þúsundir tonna af lifur á ári:
5-7 tonnum af lifur kastað í
sjóinn í 100 tonna þorsktúr
- Sovétmenn vilja kaupa meira magn af lifur en verksmiðjur hér geta framleitt
Óhapp út af
Glettinganesi:
Snæfellið
fékk troll
í skrúfuna
Það óhapp varð sl. sunnu-
dag á frystiskipinu Snæfelli
frá Hrísey að botntroll
skipsins flæktist í skrúfu
þess. Skipið var statt djúpt
út af Glettinganesi þegar
óhappið varð og því var
ekkert annað að gera en að
leita aðstoðar annars skips
til að komast til næstu
hafnar.
Skuttogarinn Kolbeinsey á
Húsavík dró Snæfell til Nes-
kaupstaðar þar sem tveimur
köfurum tókst að leysa trollið
úr skrúfunni. Að sögn
Jóhanns Þórs Halldórssonar,
útibússtjóra KEA í Hrís'ey,
urðu engar skemmdir á skip-
inu og það hélt því aftur til
veiða síðia sunnudags. óþh
Skagastrandarvegur:
Fnn og aftur
ekið á hross
- það sjöunda í Húna-
þingi á mánaðartíma
Sl. mánudagskvöld var í
fímmta sinn ekið á hross á
Skagastrandarveginum og
það þriðja sem hefur þurft
að afíífa. Alls hafa því fimm
hross fallið í valinn í A-Húna-
vatnssýslu sl. mánuð, tvö
hafa sloppið lifandi.
Nú var það við bæinn
Kúskerpi, skammt norðan
Blönduóss, sem ekið var á
hross og var það úr sama
hrossahópi og hin tvö sem fall-
ið hafa á þessum vegarspotta.
Fólksbifreiðin sem ók á hross-
ið skemmdist talsvert og var
hrossið aflífað á staðnum sök-
um þess hvað það var illa
brotið. Mikil hálka og snjór
var á Skagastrandarveginum á
mánudagskvöldið þegar
óhappið átti sér stað. -bjb
Saltfiskverkun hjá Hraðfrysti-
húsi Magnúsar Gamalíelssonar
hf. í Ólafsfirði hófst á nýjan leik
sl. mánudag eftir nokkurra
vikna uppihald. Starfsfólk í
saltfiskverkun fyrirtækisins fór
á atvinnuleysisbætur þann 7.
nóvember en starfsfólk í fryst-
ingunni hefur notið atvinnu-
leysisbóta síðan 27. september
sl.
Lagmetis og niðursuðuverk-
smiðjan Pólstjarnan hf. á Dal-
vík er nú að hefja niðursuðu og
bræðslu á fisklifur. Þetta er
fjórða árið sem verksmiðjan
sýður niður lifur og fer stærst-
ur hiuti framleiðslunnar á
markað erlendis. Sovétmenn
eru manna stórtækastir í kaup-
um á lifur frá íslenskum niður-
suðuverksmiðjum. Auk Pól-
stjörnunnar hf. er Hik sf. á
Húsavík drýgst í niðursuðu á
lifur á Norðurlandi.
Að sögn Sigurgeirs Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra, vinna
15 starfsmenn fyrirtækisins að
söltun afla Ólafs Bekks ÓF-2, en
hann landaði 125 tonnum sl.
mánudag. Sigurgeir segir að um
helmingur aflans fari í salt hjá
Magnúsi Gamalíelssyni. „Þetta er
ljómandi góður fiskur, þessi
venjulegi Norðlendingur,“ segir
Sigurgeir.
Hann segir að ætlunin sé að
Vinnsla hjá Pólstjörnunni hf.
hefur að mestu legið niðri síðan
2. september sl. Þó hafa starfs-
menn fyrirtækisins „fokkað“ að
undanförnu, eins og Jón Tryggva-
son, framkvæmdastjóri Pól-
stjörnunnar hf. orðaði það, við
að sjóða niður rækju og sjólax
fyrir innanlandsmarkað. Jón seg-
ist búast við að um 15 manns
starffhjá fyrirtækinu á „fisklifrar-
vertíðinni“ og að hún standi fram
í maímánuð.
Pólstjarnan hf. hefur fyrst og
halda áfram saltfiskverkun „á
meðan verið er að leysa hitt
málið,“ eins og Sigurgeir orðar
það. Þar vísar hann til hugsan-
legrar sameiningar frystihúsanna
í Ólafsfirði. SólbergÓF-12kemur
væntanlega inn næsta föstudag og
segir Sigurgeir að ætlunin sé að
salta hluta af afla þess.
Af sameiningu frystihúsanna
segir Sigurgeir að ekki sé mikið að
fregna. „Þetta er allt miklu stærra
fremst keypt hráefni frá bát-
um á Eyjafjarðarsvæðinu en
að öllum líkindum mun Dalborg-
in á Dalvík leggja upp lifur hjá
fyrirtækinu eftir næsta túr. Jón
segir það vissulega miður að
stærri togarar nýti ekki lifur í
ríkara mæli en gert er. Hann
bendir á að úr 100 tonnum af
þorski megi nýta á bilinu 5-7
tonn. Þar af segir hann að um
35% endi sem fyrsta flokks
niðurlögð lifur í 115 gramma
dósum.
mál en menn héldu og tekur þess
vegna lengri tíma en ætlað hafði
verið,“ segir Sigurgeir. Málið er
nú skoðað bæði af heimamönnum
og nefnd hlutaðeigandi banka og
sjóða í Reykjavík. „Við höfum
ekki gefið okkur ákveðinn tíma til
að koma þessu heim og saman en
hins vegar fer tíminn að hlaupa
frá okkur ef ekkert fer að ske í
þessum málum,“ bætir Sigurgeir
við. óþh
Fyrir hvert kíló af lifur, sem nýt-
ist til niðurlagningar, greiðir Pól-
stjarnan hf. 25 krónur. Fyrir
bræðslulifur eru hins vegar
greiddar 15 krónur. Ekki liggur
fyrir hvað framleiðendur fá í sinn
hlut fyrir lifrina þar sem ósamið
er enn við kaupendur erlendis.
Jón segir að vonir standi til að
unnt verði að ná betra verði en til
þessa, en skilaverð til framleið-
enda hefur verið um 22 krónur.
Þar af má áætla 8 krónur í kostn-
að vegna umbúða og merkimiða.
Að sögn Theodórs S. Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra Sölu-
stofnunar lagmetis, eru í gangi
samningaviðræður við Sovét-
menn um kaup á niðurlagðri lifur
og er búist við að þeim ljúki um
mánaðamótin janúar-febrúar.
Theodór segir að ekki liggi fyrir
hversu mikið magn Sovétmenn
kaupi á árinu. „Það er opið, ekki
síst vegna þess að ekki er ljóst
hversu mikið hráefni tekst að ná
í. Á síðastliðnu ári sömdum við
um mun meira magn en við gát-
um síðan staðið við. Vegna þess-
arar óvissu munum við ganga frá
mun opnari samningum við
Sovétmenn nú,“ segir Theodór.
Auk Sovétríkjanna hefur
niðurlögð lifur farið á Kanada-
og Bandaríkjamarkað svo og
V.-Þýskaland. Þá má einnig
nefna ísrael og Japan. Theodór
segir að „vegna ýmissa mála“ hafi
verið hætt að senda þess vöru á
markað í V.-Þýskalandi. óþh
Saltfiskvinnsla í gang að nýju hjá Hraðfrystihúsi
Magnúsar Gamalíelssonar í Ólafsfirði:
Æflunin er að salta á meðan
verið er að leysa hitt málið
segir Sigurgeir Magnússon, og vísar til hugsanlegrar sameiningar frystihúsanna