Dagur


Dagur - 25.01.1989, Qupperneq 9

Dagur - 25.01.1989, Qupperneq 9
Norðurland vestra: Námskeið fyrir trúnaðarmenn Sl. miðvikudag lauk á Sauðár- króki 3ja daga námskeiði á vegum verkalýðsfélaganna á staðnum og Menningar- og fræðslusambands alþýðu fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum. Einnig var haldið sér námskeið fyrir verslunarmenn. Frá Sauð- árkróki var farið með nám- skeiðin yfir í Húnaþing og þau haldin fyrir Blönduósinga og Skagstrendinga annars vegar og Hvammstangabúa og Hrút- firðinga hins vegar. í gær hófst síðan námskeið á Siglufírði og með því lýkur yfírferð um Norðurland vestra. Sem fyrr segir stóðu námskeið- in yfir í 3 daga. Fyrstu tveir dagarnir fóru í að kynna starf trúnaðarmannsins og fara í gegn- um kjarasamninga. Leiðbeinend- ur á þeim hluta voru Snorri Konráðsson frá MFA og Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðu- sambands Norðurlands. Þriðji dagurinn fór í vinnu- og öryggis- eftirlit á vinnustöðum og bættust öryggistrúnaðarmenn vinnustað- anna þá við. Um þann þátt nám- skeiðsins sá Vinnueftirlit ríkisins og þeir Stefán Stefánsson vinnu- eftirlitsmaður á Norðurlandi vestra og Kári Kristjánsson fræðslufulltrúi Vinnueftirlits ríkisins leiðbeindu. Pátttaka í námskeiðunum var mjög góð, á þeim voru um 20 trúnaðarmenn á hverju námskeiði fyrir sig. Þetta var í fyrsta skipti sem trúnaðar- mannanámskeið voru haldin í Húnaþingi, en þau hafa verið haldin nokkuð reglulega á Sauð- árkróki og Siglufirði. Það er jafn- an að frumkvæði verkalýðsfélag- Snorri Konráðsson starfsmaður .Menningar- og fræðslusambands alþýðu, MFA, kynnir starf trúnað- armannsins fyrir þátttakendum á námskeiðinu. Mynd: -bjb anna eða MFA, að námskeiðum sem þessum er komið á. Einnig hefur MFA átt gott samstarf við Alþýðusamband Norðurlands um að koma á trúnaðarmanna- námskeiðum. „Þátttakan var talsvert betri en við áttum von á. Það virðist vera mikill áhugi hjá fólkinu sjálfu um að komast á námskeið. Það er ætlast til þess að trúnaðarmenn séu kjörnir til tveggja ára í senn. Fólk finnur það að það þarf að fá aðstoð og fræðslu svona fyrsta kastið. Markmiðið með svona námskeiðum er að kynna fyrir trúnaðarmönnum hvað þeir þurfa að standa klárir á, hvað varðar kjarasamninga og annað sem upp kemur á þeirra vinnu- stöðum. Það er ætlast til þess í vinnulöggjöfinni að það sé reynt að leysa mál sem koma upp varð- andi túlkun á kjarasamningi á vinnustaðnum. Það er líka gert ráð fyrir því í samningum að trúnaðarmaður reyni að leysa ágreiningsmál og misskilning sem upp getur komið. Samningar eru flóknir og margbreytilegir og með þessum námskeiðum erum við að gera trúnaðarmenn hæfari í starfi sínu og auðvelda þeim verkefnin,1' sagði Snorri Kon- ráðsson starfsmaður MFA, í samtali við Dag, en hann var eins og áður sagði einn af leiðbein- endum á námskeiðunum. Að sögn Snorra hafa Norð- lendingar verið mjög meðvitaðir hvað varðar starf trúnaðar- mannsins og hjá mörgum verka- lýðsfélögum verið haldin nám- skeið reglulega. Snorri sagði að þegar á heildina væri litið, stæðu Norðlendingar vel að vígi með trúnaðarmenn, víða væri komin föst hefð fyrir því að kjósa trún- aðarmenn reglulega og fólk væri ánægt með að hafa þá til staðar. „Fólk gefur frekar kost á sér í starf trúnaðarmannsins þegar það veit að það fær námskeið í framhaldinu, það er greinilegt. Þörfin fyrir góða trúnaðarmenn hefur líka aukist undanfarin ár. Reynslan er sú að vinnuveitendur eru ánægðir og sáttir við það að á vinnustöðunum sé fólk sem gjör- þekkir kjarasamninginn, þannig að menn ræði samningsákvæði eins og þau eru í raun og veru en ekki einhver atriði sem þeir haldi að séu með ákveðnum hætti en eru það ekki,“ sagði Snorri að lokum. -bjb RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS RANNSÓKNASJÓÐUR Rannsóknaráð ríkisins auglýsir styrki tii rannsókna og tilrauna árið 1989 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320. Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur: • Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki. • Styrkfé á árinu 1989 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviðum. Sérstök áhersla skal lögð á: - efnistækni - fiskeldi - upplýsinga- og tölvutækni - líf- og lífefnatæki - nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu - matvælatækni - framleiðni- og gæðaaukandi tækni. • Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á: - líklegri gagnsemi verkefnis - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina - möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi - hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda - líkindum á árangri. • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að: - samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins - fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í atvinnulífi. Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu á færni á tilteknum sviðum. ‘-fístv ■ í':»! Aíy - 25. janúar 1989 - DAGUR Námskeið verður haldið í þróunarheimspeki, sálarheimspeki og stjörnukortagerð (Esotecic Astrology). Námskeiðið verður haldið í Iðnskólahúsinu, Þórunn- arstræti, frá 27. janúar til 5. febrúar (báðir dagar með- taldir), kl. 19.00-22.00 virka daga og 13.30-19.00 laugardaga og sunnudaga. Náskeiðsgjald er kr. 2.000,- Innritun í símum 24283 og 22093, frá kl. 19.00- 21.00. Áhugamenn um heimspeki. Vélavörður Óskum eftir að ráða vélavörð á MB Sólfell EA 640. Upplýsingar í símum 96-61707 og 96-61728. Njörður h.f. Hrísey. Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á 100 ára afmæli mínu 8. janúar sl. Sérstakar þakkir til barnanna sem sungu fyrir mig. Guð blessi ykkur öll. MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR, frá Hjaltastöðum, Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Bróðir okkar, VALDIMAR KRISTJÁNSSON, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. þ.m. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. janúar kl. 13.30. Ingólfur Kristjánsson, Sigurður Kristjánsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, eiginmanns míns og föður okkar, SIGURÐAR MARTEINSSONAR, Ystafelli. Helga Schiöth og börn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, RUNÓLFS GUÐMUNDSSONAR, fyrrverandi pósts, Ásbrandsstöðum. Guðrún Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur hluttekningu og vinsemd við fráfall og útför, PÁLMA FRÍMANNSSONAR, heilsugæslulæknis f Stykkishólmi. Heiðrún Rútsdóttir, Guðbjörg Rut Pálmadóttir, Þormóður Þormóðsson, Jóhanna Guðrún Pálmadóttir, Hildur Sunna Pálmadóttir Gunnar Frímannsson, Helga Frímannsdótir, Sigurður Frímannsson, Jóna Frímannsdóttir, Steinar Frímannsson, Kristján Frímannsson og fjölskyldur.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.