Dagur - 28.01.1989, Blaðsíða 7
28. janúar 1989 - DAGUR - 7
Ur gömlum
Degi
Barnauppfræðsla
kommúnista
Á forsíðu Dags 5. janúar 1952
birtist grein undir yfirskriftinni
„Barnauppfræðsla kommúnista"
og er hún ágætt dæmi um tíðar-
andann á þessum kaldastríðsár-
um. Orðrétt er þessi klausa
þannig:
„í sérstöku nýjárs-hátíðarblaði
Þjóviljans, segir kommúnistískur
ofsatrúarmaður, Þórbergur Þór-
bergsson, dálítið frá barnaupp-
fræðslu kommúnista. Fræðslan
verður með þeim hætti, að birt
eru tilsvör og hugleiðingar 7-8
ára gamallar telpu, en hún hugsar
mikið um heimsmálin, veit fyrir
víst að Ameríkumenn eru vondir
og Rússar góðir, einkum Stalín,
því að hann heldur skrúðgöngur
og vinkar til barnanna af altani! í
lok greinarkornsins lætur Þór-
bergur litlu telpuna hafa eftirfar-
andi yfir:
„Mér þykir ekkert gaman að
lifa.... Það er ekkert gaman að
lifa í þessum heimi, eg segi það
satt. Þjóðverjar skjótandi og
drepandi. Morgunblaðið alltaf
ljúgandi og svíkjandi, og Amerík-
anarnir svo vel með sig, að það er
alveg ósköp. En þó að Amerík-
anarnir séu vel með sig, þá verða
þeir samt teknir fastir, þegar þeir
láta vatnssprengjuna út. Eisen-
hower vill gera stríð á íslandi.““
Tilraun til konuráns?
„Síðastl. sunnudagsnótt skeði
það hér í Saurbæjarhreppi, að
nokkrir menn brutust inn í bæinn
á Skáldastöðum og frömdu þar
ofbeldi og meiðingar á fólki, en
ekki munu þeir hafa tekið neitt
með sér. Voru þar þekktir a.m.k.
3 menn af Akureyri. - Halda
sumir að þar hafi átt að fremja
stúlkurán. Finnur bóndi Krist-
jánsson í Ártúni og Jón bóndi í
Hólum komu þar fyrstir á
vettvang, og sáu þeir öll verks-
ummerki. (Blaðið hefur borið
þessa frásögn undir yfirvöld hér á
Akureyri og segja þau að
umkvörtun hafi borizt um
atburði þessa og kæra muni vænt-
anleg og mál þetta þá tekið
fyrir).“ (Dagur 28. maí 1952).
Fyrsta för til tunglsins
eftir 10-15 ár
Þannig hljóðar fyrirsögn í Degi 6.
desember 1952 og henni fylgir
eftirfarandi frétt:
„Um sl. mánaðamót kom út
bók í hinum enskumælandi heimi
eftir dr. Werner von Braun,
þýzka vísindamanninn, sem fann
upp og stóð fyrir framleiðslunni á
hinum frægu V-2 rakettusprengj-
um Hitlers. Von Braun er nú
tæknilegur ráðunautur ameríska
flughersins um fjarstýrð rakettu-
vopn. í bók sinni heldur hann því
fram, að innan 10-15 ára muni
maðurinn hafa sigrast á fjarlægð-
inni til tunglsins. Öll aðalvanda-
málin í sambandi við geimflug
eru leyst, skrifar doktorinn. Ef
nú væri byrjað að starfa að fram-
kvæmdum, á grundvelli þeirrar
vitneskju sem fyrir hendi er, væri
hægt innan 10 ára að setja fyrstu
millistöðina upp í háloftin,
þ.e.a.s. svonefnt „gerfitungl",
þar sem menn gætu lifað og
starfað. Þetta „tungl“ mundi
verða í 16000 km fjarlægð frá
jörðu og snúast umhverfis jörð-
ina eins og hnöttur, með feyki-
legum hraða. Sú þjóð, sem fyrst
kemur sér upp slíkri geimstöð,
mun jafnframt verða hernaðar-
lega einráð á jörðunni, að áliti
von Brauns, því að frá slíkri stöð
væri auðvelt að gera kjarnorku-
árás á hvaða stað sem er á hnett-
inum.“
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Fullorðinsfræðsla
Kvöldnámskeið
Verkmenntaskólinn mun á vorönn 1989 bjóða
upp á námskeið í eftirtöldum greinum. Skilyrði
er þó að næg þátttaka fáist: ~
íslenska: Nokkur grundvallaratriði málfræði og stafsetn-
ing.
Enska: Byrjendanámskeið. Léttar þýðingar, talæfingarog
nokkur undirstöðuatriöi málfræði.
Enska: Framhaldsnámskeið. Fyrir þá sem hafa sótt byrj-
endanámskeið eða hafa einhverja enskukunnáttu fyrir.
Danska: Léttar þýðingar, talæfingar og nokkur undirstöðu-
atriði málfræði.
Stærðfræði: Fyrir utan grundvallaraðferðir fá nemend-
ur þjálfun í hlutfalla og prósentureikningi. Ennfremur tilsögn í
notkun reiknivéla.
Vélritun: Kynning á notkun ritvéla. Blindskrift og
hraðaæfingar.
Námskeið þessi henta m.a. þeim fjölmörgu sem hafa
notið takmarkaðrar skólagöngu eða vilja rifja upp
eitthvað af námsefni skyldunámsáranna. Þau geta
þannig komið að gagni sem undirbúningur undir eða
stuðningur við nýtt starf eða sem undirbúningur undir
frekara nám svo sem í öldungadeild.
Innritun fer fram dagana 30. janúar til 7. febrúar á
skrifstofu skólans á Eyrarlandsholti, en áformað er
að námskeiðin hefjist 8. febrúar.
Skrifstofan verður opin aukalega miðvikudaginn
1. febrúar til kl. 19.00.
Fekari upplýsingar fást á skrifstofunni sími 26810.