Dagur - 31.01.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 31.01.1989, Blaðsíða 6
6r-%9Mr-3ls^n^, 198^: ÞU STJORNAR A HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISÍNS LJ LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00 16. febrúar. Eíndagi iána með lánskjaravísitölu. 1. mars. Eindagi Iána með byggingarvísitölu. Gjalddagar húsnæðislána eru: 1. febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember. Sum lán hafa fjóra gjalddaga á árí, önnur aðeins einn. Merktu gjalddaga þíns láns inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu. Greiðsluseðlar fyrir 1. febrúar hafa verið sendir gjaldendum og greíðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. Það er í þínum höndum verður um peninga heimilisíns. Þegar kemur að afborgunum lána, er því undir þér komið að borga á réttum tíma. ár með sparar þú óþarfa útgjöld ’gna dráttarvaxta, svo ekki : talað um innheímtukostnað. Og getur notað peníng- ana þína til mun gagnlegri hluta, AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VEF®TRYGGÐRA SPARISKI'RTEINA RÍKISSJÓEIS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1984-1. fl. 1984-1. fl.SDR 01.02.89-01.08.89 06.02.89 kr. 349,16 kr. ** ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. **Á gjalddaga, mánudaginn 6. febrúar 1989, eru spariskírteini í þessumflokki innleyst miðað við breytingar á kaupgengi SDR frá 6. febrúar 1984, sem var 30,5988, til innlausnardags hinn 6. febrúar n.k. auk 9% fastra ársvaxta á ofangreindu tímabili að viðbættum vaxtavöxtum. Eftir 6. febrúar 1989 greiðast hvorki vextir af spariskírteinum í þessum flokki né verða breytingar á innlausnarverði þeirra vegna skráningar á kaupgengi SDR eftir þann dag, nema ákvæði 4. gr. skilmála skírteinanna eigi við. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, janúar 1989 SEÐLABANKIÍSLANDS Náttúruverndarráð um plastpokana: Stjómvöld tryggi framgang saimungsins í nýrri samþykkt Náttúrvernd- arráðs er skorað á stjórnvöld að tryggja að samningur Land- verndar, Kaupmannasamtaka Island og Verslúnardeildar SIS um sölu á plastpokum í versl- unum taki gildi. Telja Náttúru- verndarráðsmenn að með því verði stigið stórt framfaraskref í umhverfísmálum hér á landi. „Á undanförnum árum hafa bæði Náttúruverndarráð og Nátt- úruverndarþing fjallað um meng- unarhættu frá vöruumbúðum af ýmsu tagi, einkum þó þeim umbúðum, sem aðeins eru notað- ar einu sinni. Einnig hefur verið vakin athygli á mikilvægi þess að menn geri sér grein fyrir því að auðævi jarðar eru ekki óþrjót- andi, og þess vegna nauðsynlegt að þau séu nýtt af skynsemi og komið verði á endurvinnslu hinna margvíslegu efna sem not- uð eru í nútíma þjóðfélagi eins og framast er unnt,“ segir í álykt- un Náttúruverndarráðs. Ennfremur er fyrrnefndum samningi um sölu á plastpokum fagnað. „Sala þeirra poka mun vonandi hafa í för með sér betri nýtingu þeirra, auk þess sem umtalsverður hluti af ágóðanum af sölunni mun renna til umhverf- isverndar.“ JÓH Akureyrarmót B.A.: Syeinbjöm og Ólafur efstir Fimmtán umferðum af 25 er nú lokið í Akureyrarmóti Bridgefélags Akureyrar í tví- menningi. 26 pör taka þátt í mótinu og eru spilaðar fímm umferðir á kvöldi, fímm spil milli para, eftir Barometer- fyrirkomulagi. Staðan að loknum 15 umferð- um er þessi: $tjg 1. Ólafur Ágústsson - Sveinbjörn Jónsson: 152 2. Reynir Helgason - Tryggvi Gunnarsson: 146 3. Hörður Steinbergsson - Örn Einarsson: 131 4. Kristján Guðjónsson - Stefán Ragnarsson: 91 5. Anton Haraldsson - Pétur Guðjónsson: • 83 6. -7. Magnús Aðalbjörnsson - Pétur Jósepsson: 47 6.-7. Páll Pálsson - Þórainn B. Jónsson: 47 8. Gunnlaugur Guðmundsson - Kristinn Kristinsson: 42 9. Gylfi Þórhallsson - Sveinbjörn Sigurðsson: 35 Öll spil eru tölvugefin. Keppn- isstjóri er Albert Sigurðsson en tölvuútreikning annast Margrét Þórðardóttir. Næstu fimm umferðir fara fram í kvöld. Spila- mennska hefst kl. 19.30 í Félags- borg. Tilboð í bjórflutninga: Bjórinn heim með Eimskip - óvíst um bjórflutninga innanlands Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur opnað tilboð í flutning á bjór frá þremur erlendum höfnum til Islands. Um er að ræða fíutning á þremur milljónum lítra af bjór á þessu ári frá þremur fram- leiðendum, þ.e. Tuborg, Kais- er og Budweiser. Fjögur skipa- félög buðu í flutningana og átti Eimskip lægsta tilboð. Að sögn Höskuldar Jónssonar, forstjóra ÁTVR- var töluverður munur á tilboðunum. Aðeins Eimskip og Skipadeild Sambands- ins buðu í alla flutningana en auk þessara félaga bauð fyrirtækið Jöklar hf. í flutning á Budweiser- bjórnum frá Bandaríkjunum og Nesskip hf. bauð í flutning á bjórnum frá Evrópu, þ.e. Tuborg og Kaiser. Tilboð Eimskips hljóðaði upp á 3,43 kr. fyrir hvern lítra eða rúmlega 10,3 milljónir fyrir flutn- ing á heildarmagninu. Miðað er við að flutningurinn verði allur í gámum. Lestunarhafnir á bjórn- um verða Kaupmannahöfn, Nor- folk og Hamborg. Útboðin gerðu ráð fyrir að fyrsta sending komi fljótlega eftir 19. febrúar. Hvað varðar flutn- inga út á land segir að til greina komi að semja við þá flutninga- aðila sem þegar hafa með hönd- um flutning á öðru áfengi fyrir ÁTVR. Höskuldur segir að vænt- anlega verði bjórflutningurinn boðinn sérstaklega út eða að samið verði við þá aðila sem þeg- ar eru samningsbundnir ÁTVR um flutning. JÓH Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Dag Solstad hlaut verðlaunin Dómnefnd um bókmennta- verðlaun Norðurlandsráðs til- kynnti á fréttamannafundi í Kaupmannahöfn fyrir helgi, að Norðmaðurinn Dag Solstad hlyti bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1989 fyrir bókina „Roman 1987“. Dóm- nefndin færði eftirfarandi rök fyrir ákvörðun sinni. „Dag Solstad lýsir í bókinni „Roman 1987“ þróunarsögu ’68 kynslóðarinnar, mistökum henn- ar og afdrifum í norskum smábæ, á þróttmiklu máli, þar sem fara saman háð, léttleiki og samkennd." Verðlaunin, sem eru 150.000 danskar krónur, verða afhent þann 28. mars nk. á 37. þingi Norðurlandaráðs við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Stokkhólmi af forseta Norðurlandaráðs.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.