Dagur - 21.02.1989, Side 1
r
v.
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599^
Kirkjan á Seyðisfirði:
Skeirandist
í eldi
Eldur kom upp í kirkjunni á
Seyðisfirði í gærmorgun.
Kirkjan, sem er 60 ára gömul
byggð úr timbri skemmdist þó
nokkuð af völdum eldsins.
Undanfarið hafa iðnaðarmenn
unnið að endurbótum á kirkj-
unni og er talið að eldurinn hafi
komið upp af einhverjum ástæð-
um vegna vinnunnar, en
mennirnir voru í kaffi þegar
eldurinn kom upp. VG
Akureyri:
Maður
stunginn
- 19 ára piltur
úrskurðaður í sjö daga
gæsluvarðhald
Ungur piltur stakk mann í
kviðarholið fyrir utan veitinga-
staðinn Uppann á Akureyri
aðfaranótt sunnudags. Til
deilna þeirra á milli hafði kom-
ið inni á veitingastaðnum
skömmu áður og var þeim þá
vísað út af staðnum.
Fyrir utan veitingastaðinn upp-
hófust deilur að nýju sem enduðu
með slagsmálum. Greip pilturinn
til hnífs er hann hafði í vasa sín-
um og lagði til mannsins. Stakk
hann hnífnum í kvið mannsins,
sem hlaut af alvarlegan áverka.
Maðurinn gekkst undir aðgerð að
morgni sunnudagsins. Hann var
talinn úr lífshættu í gær og líðan
hans fór batnandi.
Pilturinn, sem er 19 ára var
úrskurðaður í sjö daga gæslu-
varðhald meðan á rannsókn
málsins stendur. Hnífurinn sem
notaður var er svokallaður
fjaðrahnífur og sagði Daníel
Snorrason hjá rannsóknarlög-
regíunni á Akureyri að hann væri
nokkuð stór og hefði gengið í
gegnum manninn sem stunginn
var. mþþ
Staðinn að ólöglegum veiðum í Gierá? Ónei, ýtan fór bara heldur flatt á ísnum með þessum óskemmtilegu afleiðing-
um. Mynd: TLV
HlíðarQall:
Góð helgi
„Þetta var besta helgin í
vetur,“ sagði ívar Sigmunds-
son forstöðumaður Skíðastaða
í gær. Á milli 500 og 700
manns renndu sér á skíðum í
Hlíðarfjalli þcgar mest var á
laugardag og einnig á sunnu-
daginn.
Nokkuð hvasst var í fjallinu á
sunnudaginn og var lyftum því
lokað um klukkan 16.00. ívar
sagði að enn vantaði talsvert af
snjó svo vel væri. „Aðstæður eru
ekki verulega góðar eins og er,
okkur vantar meiri snjó.“ ívar
sagði að á sumum skíðaleiðum
væri hreinlega um vandræða-
ástand að ræða vegna skorts á
snjó.
Ágætlega lítur út með bókanir
svefnpokaplássa á Skíðastöðum
og sagði ívar að þær séu svipaðar
og á undanförnum árum. Eink-
um eru það hópar skólafólks víða
af Suðurlandinu sem hyggjast
notfæra sér svefnpokaplássið
I milli þess sem þeir renna sér á
skíðum. mþþ
Smíðar SUppstöðin skip
fyrir furstana í öubai?
- „vantar ennþá allt sem við á að éta,“ segir Sverrir Hermannsson bankastjori
Að því tilskildu að viðunandi forráðamönnum Stálvíkur grænt
tryggingar fáist til smíði fjög- ljós á bakábyrgð vegna Dubai-
urra skipa hér á landi fyrir skipanna. Græna Ijósið er þó
aðila í Dubai eru allar líkur á bundið ákveðnum skilyrðum,
því að hluti þeirrar smíði komi
í lilut Slippstöðvarinnar á Ak-
ureyri. Jón Sigurðsson, iðnað-
arráðherra, segist leggja mikla
áherslu á að skipasmíðastöðv-
arnar Stálvík og Slippstöðin
hafí samstarf um hugsanlega
smíði skipanna og Sigurður G.
Ringsted, forstjóri Slippstöðv-
arinnar, lýsir Slippstöðvar-
menn tilbúna til samstarfs við
smíði skipanna.
Stóra EF-ið í þessu máli lýtur
að fyrirgreiðslu viðskiptabanka
Stálvíkur hf., Landsbanka ís-
lands. Iðnlánasjóður og Iðnaðar-
ráðuneyti hafa nú þegar gefið
m.a. bankaviðskiptum Stálvíkur
og tryggingum frá erlendum aðil-
um. Jón Sigurðsson, segir að
þetta mál snúi nú fyrst og fremst
að Landsbankanum, þ.e. hvort
hann telji smíðina það álitlega að
hægt sé að taka þátt í að ábyrgj-
ast hana.
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir hins
vegar að bankinn geti ekki tekið
afstöðu til þessa máls fyrr en fyrir
liggi tryggingar frá væntanlegum
kaupendum í Dubai. „Meðan
ekki liggja fyrir neinar tryggingar
er ekkert á þetta mál lítandi. Við
höfum auðvitað áhuga á að ná
skipasmíði fyrir Stálvík og
Slippstöð, en málið er að það
vantar ennþá allt sem við á að
éta,“ segir Sverrir.
Sigurður G. Ringsted, forstjóri
Slippstöðvarinnar, segir að rætt
hafi verið um samstarf við Stál-
víkurmenn um hugsanlega smíði
Dubai-skipanna. Að öðru leyti
hafi ekki verið fjallað um hvernig
stöðvarnar stæðu að smíði þeirra.
„Við leggjum áherslu að koma
öllum formsatriðum á hreint í
þessu máli en að því búnu er
hægt að ræða hvernig að smíðinni
sjálfri yrði staðið, t.d. hvað af
henni kæmi í hlut Slippstöðvar-
innar,“ segir Sigurður. „Þetta
verkefni myndi auðvitað skipta
gífurlega miklu máli fyrir okkur
og skipasmíði á landinu í heild,“
Vegasambandslaust við tvo bæi í Kelduhverfi vegna flóða í Jökulsá:
Bóndinn fór á vöðlum eftir mjólkinni
,}Við sluppum með skrekkinn.
Áin er ekki alveg komin í eðli-
legt ástand en hættuástandi er
lokið, í bili að minnsta kosti,“
sagði Guðný Björnsdóttir,
starfsmaður hjá Árlaxi í Keldu-
hverfí í gær. Árlaxstöðin
stendur við Litluá og á laugar-
dag flæddi áin yfír bakkana
framan við stöðina. Mikið var í
húfí að vatnsflóðið kæmist
ekki í brunnana þar sem vatns-
inntakið er fyrir stöðina, en í
henni er fískur alveg frá kvið-
bokaseiðum, sem eru við-
kvæmust fyrir breytingum,
- hættuástand skapaðist hjá Árlaxi á laugardag
upp í kílósfísk. Flóðin stöfuðu
af því að vatn úr Jökulsá barst
í Litluá. Austan við Hól hafði
myndast klakastífla í Jökulsá
aðl'aranótt föstudags og flæddi
áin upp úr farvegi sínum, bæði
til austurs og vesturs í Skjálfta-
vatn og eftir svokölluðum
Seyrum, flóðið tók af veg aust-
an við Keldunes en rann síðan
út í Litluá.
Vegasambandslaust er við tvo
bæi vegna flóðanna, Syðri-Bakka
og Þórseyri en þeir standa niður
við Bakkahlaup, farveginn sem
Jökulsá rennur eftir til sjávar
þessa áratugina, en áin hefur
víða myndað sér farvegi um
sandana á liðnum öldum.
„Okkur líður alveg ágætlega,
við höfum síma, nóg rafmagn og
nóg að bíta og brenna,“ sagði
Egill Stefánsson, bóndi á Syðri-
Bakka er Dagur spurðist fyrir um
líðan íbúanna fjögurra sem eru
innilokðair vegna flóðanna á
bæjunum tveim. í gær var dimm-
viðri og allt á kafi í snjó á þessum
slóðum svo enginn hafði farið til
að kanna flóðin við veginn er
Dagur hafði samband við Egil. Á
laugardag var gott veður og þá
brá Egill sér í vöðlur og óð yfir
Litluá, á vaði norðvestur af Arn-
arnesi en þar breiðir áin úr sér,
náði hún Agli á mitt læri. Egill
fór þessa ferð yfir ána til að ná í
mjólk sem bóndi úr sveitinni
færði honum á árbakkann hinum
megin.
Bátur er til taks á Syðri-Bakka
ef fólkið þarf að komast yfir vatns-
agann. Að sögn Egils eru bæirnir
ekki í hættu fyrir vatnsganginum,
Bakkahlaupið sé orðið djúpur
farvegur nú, en Egill segist muna
eftir að áin hafi flætt yfir allt þeg-
ar hann var unglingur en þá var
farvegurinn grynnri. IM
segir Sigurður G. Ringsted.
Ef reynist unnt að hnýta saman
alla lausa enda í þessu máli verð-
ur hafist handa við smíði skip-
anna á þessu ári. Áætlað verð-
mæti hvers skips er á bilinu 250-
300 milljónir króna. óþh
Sauðárkrókur:
Niðurskurður
hjá sýslu-
mannsembættinu
- lögreglumenn óhressir
„Það er um mikið aðhaid að
ræða, það verður að gera
ákveðnar ráðstafanir til að
spara. Fjárlög eru líka lög, og
eftir þeim verða menn að
fara,“ sagði Iialldór Þ. Jóns-
son sýslumaður Skagafjarðar-
sýslu í samtali við Dag, en mik-
ill niðurskurður mun eiga sér
stað hjá embættinu á næst-
unni, eins og hjá öðrum ríkis-
stofnunum. Lögreglumenn á
Sauðárkróki eru allt annað en
hressir með þennan niður-
skurð og telja hann vera of
mikinn. Niðurskurðurinn hef-
ur það í för með sér að margs
konar þjónusta sem lögreglan
hefur veitt mun leggjast niður.
„Það er auðvitað spurning
hvað hægt er að ganga langt í
sparnaðarráðstöfunum, en
afleiðingarnar verða að koma í
Ijós. Þá verður að grípa til viðeig-
andi ráðstafana. En ég vil reyna
þetta og koma til móts við sparn-
aðaróskir, vonandi að fleiri geri
það,“ sagði Halldór. -bjb
Sjá nánar á bls. 2.