Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 4. apríl 1989 Þórarinn Svcinsson nijólkursamlagsstjóri með jógúrt í nýjuni hcntugri og f'allcgri uinbúðuni. " Mynd: tlv Ný jógurt á markað frá Mjólkursainlagi KEA Mjólkursamlag KEA hefur nú hafið framleiðslu á Diet jógúrt, en fyrst í stað verður boðið upp á tvær tegundir; með ananas og gulrótarbragði annars vegar og jarðar- og trönuberjabragði hins vegar. I hverjum 100 grömmum af Diet jógúrt eru aðeins 39 hitaein- ingar en til þess að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til vöru af þessu tagi er notað Nutra Sweet til sætunar auk þess sem jógúrtin er framleidd úr undanrennu. Samhliða markaðssetningu á nýju jógúrtinni, er Mjólkursam- lagið að skipta um umbúðir á allri jógúrt og af hagkvæmnisástæðum var valin sú leið að flokka jógúrt- ina í flokka. Hver flokkur er aðgreindur með mismunandi út- liti dósa; innan flokka eru mis- munandi bragðtegundir sem að- greindar eru með nafni á loki dósanna. Þá eru nýju dósirnar einnig úr mýkra plasti sem gerir það að verkum að þær brotna síður við álag. Nýju flokkarnir heita: Bragðarefur (Salómon svarti, Kaffijógúrt, Hnetur og karamella), Avaxtajógúrt (Jarð- arber, Kirsuber, Ferskjur og Hindber), Hrein jógúrt, Trefja- jógúrt (Hnetur og ávextir) og Diet ávaxtajógúrt (Ananas og gulrótar, Jarðarberja og Trönu- berja). Um þessar mundir eru nýju umbúðirnar að koma á markað, en um þær er skipt eftir því sem birgðir eldri umbúða klárast. Allt á fullu í snjómokstri á Dalvík í gær: Bæjarbúar verið mjög þolinmóðir - segir Sveinbjörn Steingrímsson, bæjartæknifræðingur „Það verður ekki annað sagt en Dalvíkingar hafi verið mjög þolinmóðir í þessari ófærðar- tíð,“ segir Sveinbjörn Stein- grímsson, bæjartæknifræðing- ur á .Dalvík, en þar hafa vel- flestar götur verið ófærar síðan fyrir páska. „í dag eru fjögur moksturstæki á fullu við að moka götur hér, en eftir páskaáhlaupið var lögð áhersla á mokstur helstu gatna og hafnarsvæðis svo og hreinsun frá atvinnufyrirtækjum,“ segir Sveinbjörn. Hann segir að þrátt fyrir að snjór hafi þjappast tölu- vert sé ekki fyrirsjáanlegt að unnt verði að hreinsa göturnar til fullnustu. „í þessari atrennu leggjum við áherslu á að gera rispu í gegnum skaflana,“ segir Sveinbjörn. Ekki hefur verið mögulegt að hreinsa sorp á Dalvík í á þriðju viku. Samkvæmt almanaki átti að hreinsa sorp sl. föstudag en það Oddný Ragna kjörin Ungfrú Austurland Á glæsilegri hátíð í Egilsbúð í Neskaupstað á laugardag fór keppnin um Ungfrú Austur- DAGUR Húsavík 8 9641585 \orðlcnskt dagblað land fram. Það var ung stúlka frá Fáskrúðsfirði, Oddný Ragna Sigurðardóttir sem bar sigur úr býtum í þetta skipti. Auk þess að hljóta titilinn var Oddný Ragna einnig kjörin Ijósmyndafyrirsæta hópsins. Fyrrverandi Ungfrú Austurland, núverandi Ungfrú Hcirnur Linda Pétursdóttir, krýndi Oddnýju Rögnu og sagðist hafa verið búin að ákveða fyrir löngu að láta þetta kvöld ekki framhjá sér fara þrátt fyrir miklar annir. VG reyndist ekki unnt vegna ófærð- ar. Sorphreinsun fer fram urn lcið og götur bæjarins verða færar. Þeir félagar Vilhjálmur Þór Þór- arinsson og Stefán Friðgeirsson annast sorphreinsunina. Auk þess að sjá um Dalvík hafa þeir sorphreinsun í Svarfaðardal, Árskógsströnd og Ólafsfirði á sinni könnu. óþh Hrísey: Opin vika í grunnskólaniun Nú stendur yfír „opin vika“ í grunnskólanum í Hrísey og hófst hún sl. sunnudag. Henni niun síðan Ijúka með árshátíð nk. föstudagskvöld. Að sögn Haraldar Óskarssonar skóla- stjóra vcrður öllu skólastarfí umbylt þessa viku og munu neinendur, kennarar og aðrir íbúar í Hrísey einbeita sér að hinum ýmsu listgreinum. Það er Örn Ingi Gíslason, myndlistarmaður á Akureyri, sem hefur umsjón með listnám- skeiðunt í grunnskólanum en Örn Ingi hefur gert víðreist með slík námskeið. „Opna vikan“ hófst sl. sunnudag með leirvinnu og síðan verður haldið áfram með myndlist, leiklist, vegg- skreytingu í skólanum og annan undirbúning fyrir árshátíðina. „Það er unnið frá kl. 8 á morgnana og fram eftir degi í hópum. Örn Ingi er líka með sértíma fyrir yngstu nemendurna og á kvöldin er hann með nám- skeið fyrir fullorðna þannig að það er mikil vinna í gangi í skólanum,“ sagði Haraldur. Hann sagði að ársháttðin yrði í skólanum á föstudagskvöld og jafnvel að einhverju leyti á laug- ardaginn en það er þó ekki ákveðið. Nemendur í grunnskólanum í Hrísey eru 37 talsins í fjórum bekkjardeildum og starfa fjórir kennarar eða leiðbeinendur við skólann. SS 9. bekkingar á Sauðárkróki: Spiluðu blak í rúman sólarhring Fyrir skömmu gerðu nemend- ur í 9. bekk Grunnskóla Sauð- árkróks sér lítið fyrir og spil- uðu blak í rúman sólarhring. Þetta var gert til styrktar ferðasjóði 9. bekkjar og söfn- uðu krakkarnir áheitum fyrir maraþon-blakið. Allir þeir sem ætla í skólaferðalag tóku þátt í blakinu, rúmlega 60 krakkar. Þegar krakkarnir voru búin að spila í rúma 24 tíma stilltu þau sér upp fyrir myndatöku og voru ánægð með árangurinn. Þreyta var farin ' sjást á sumum en nokkrir dr^ngjanna virtust ekki vera þreyttir. Þeir ruku beint á körfuboltaæfingu eftir maraþon- blakið! Það er komin hefð fyrir því að ) 9. bekkingar Grunnskóla Sauðárkróks að Ioknu maraþon-blakinu í íþróttahúsinu. Mynd: -bjb 9. bekkingar á Sauðárkróki taki sig til og geri eitthvað í sólarhring til styrktar ferðasjóðnum. T.d. í fyrra prjónuðu 9. bekkingar lielj- armikinn trefil í sólarhring, ásamt ýmsu fleiru. -bjb Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar ■Bæjarráð hefur samþykkt að hafinn verði undirbúningur að hönnun kaupleiguíbúða. Leit- að verði samninga við Árna Ragnarsson arkitekt og Stoð sf. unt verkið. ■Bæjarráð hel'ur ítrekað fyrri samþykkt um að húsnæðisfyr- irgreiðsla á vegum bæjarins taki gildi frá og með 1. sept. n.k. Gagnvart þcim sem þess- ar reglur hafa ekki gilt um til þessa, samþykkir bæjarráð að viðkomandi fái aðlögunartíma til 1. júní 1990. ■Bæjarráð lýsir undrun sinni á svari Félagsmálaráðuneytis- ins í bréfi frá 6. ntars, þar sent tilkynnt er að ráðuneytiö nmni ekki taka við skuldabréfum Atvinnutryggingasjóðs frá þriðja aðila. Er því beiðni Sauðárkróksbæjar um að greiða vanskil viö Ríkissjóð hafnaö. ■Bæjarráð hefur samþykkt framlagðan verksamning við Trésmiðjuna Borg hf. um framkvæmdir við 3. áfanga 2. hæð og stigahús Heimavistar. Er vcrksamningurinn að upp- hæð kr. 10.838.262,- en raf- lagnir undanskildar. ■Bæjarráð hefur samþykkt að verða við erindi frá U.S., þar sem þess er farið á Ieit að Bæjarsjóður ábyrgist ásamt Fiskiðju Sauðárkróks, lán sent Ú.S. hyggst taka hjá Búnaðar- banka íslands á Sauðárkróki, að upphæð kr. 2.500.000.-. Lánið verður til þriggja ára og er í USD. ■Byggingarnefnd hefur sam- þykkt að ráða Guðmund Ragnarsson byggingatækni- fræðing í starf byggingafull- trúa. ■Bygginganefnd samþykkir eftirgreind nöfn á nýjunt göt- um í Túnahverfi (skipul.till. K.). Talið er neðan frá. Sunn- an Túngötu eru: Brekkutún, Eyrartún, Gilstún, Iðutún Kleifatún og Melatún. Norðan Túngötu eru: Jöklatún, Laugatún og Nestún. ■Félagsmálaráð hefur sam- þykkt að félagsmálastjóri og formaður félagsmálaráðs hefji untræðu við bæjarráð um fé- lagsaðstöðumál unglinga. ■Iþróttaráð hefur samþykkt eftirfarandi gjaldskrá fyrir sundlaug frá og með 1. apríl 1989. Sund fullorðnir kr. 90.-, kort kr. 720.- og fyrir börn kr. 40,-. ■Á fundi umhverfis- og gróð- urverndarnefndar nýlega, kom fram að nefndarmönnum líst vel á hugmynd Jóns Gauta Jónssonar um náttúrustíg í Sauðárgili og styðja hana heilshugar. ■Unifcrdarnefnd beinir þeim tilmælum til bæjarstjóra að láta haga snjómokstri þannig að ekki safnist stórir haugar nærri gatnamótum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.