Dagur - 04.04.1989, Síða 5
Þriðjudagur 4. apríl 1989 - DAGUR - 5
Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður:
Norðurlandaráð sýnir
samstarfi á sviði íþrótta-
mála aukinn áhuga
Á nýafstöðnu þingi Norðurlanda-
ráðs í Stokkhólmi var skýrsla
ráðherranefndarinnar til um-
fjöllunar sem gerir ráð fyrir
auknu samstarfi Norðurlanda-
þjóða á sviði íþróttamála. Skýrsl-
an er samin í framhaldi af sam-
þykktum Norðurlandaráðsþings
1987 þar sem mælst var til aukins
samstarfs á þessu sviði. Ráð-
herranefndin hyggst leggja fram
verkefnaáætlun á sviði íþrótta-
mála fyrir næsta þing Norður-
landaráðs, sem haldið verður í
Reykjavík að ári.
Skýrsla ráðherranefndarinnar
um hlutverk íþrótta í norrænni
samvinnu í framtíðinni var að
miklu leyti byggð á umræðum og
erindum frá norrænni íþróttaráð-
stefnu sem haldin var á Bosön við
Stokkhólm sl. sumar.
Ég var þeirrar ánægju aðnjót-
andi að sitja þá ráðstefnu sem
starfandi formaður menningar-
málanefndar Norðurlandaráðs.
Það var bæði fræðandi og
ánægjulegt og varð til þess að
opna augu mín fyrir því, hversu
gífurlegir samstarfsmöguleikar
felast í samskiptum á sviði
íþrótta. Það er því ánægjuleg og
rétt stefna Norðurlandaráðs að
auka stuðning til íþróttamála og
efla samstarf við íþróttasamtökin
á Norðurlöndum.
Innan íþróttahreyfinga Norð-
urlanda eru starfandi um 7 millj-
ónir manna. Auk þess stundar
fjöldi manna íþróttir án þess að
vera skráðir í félög. Það er því
ljóst, að innan íþróttasamtak-
anna starfar mestur fjöldi ein-
staklinga af öllum „almennings-
hreyfingum" þjóðanna. Hér á
landi er það ekki óalgengt að
fyrstu kynni ungs fólks af jafn-
öldrum á hinum Norðurlöndun-
um eigi sér stað innan íþrótta-
hreyfingarinnar.
í mínum huga er það alveg
ljóst að til þess að samstarfið á
þessu sviði geti aukist þarf að
veita til þess auknu fjármagni. Á
síðasta ári var varið tæpri einni
milljón danskra króna til þessa,
sem getur ekki talist rausnarlegt
þegar það er haft í huga, að um
600 m. Dkr. er úthlutað af hálfu
Norðurlandaráðs í hin margvís-
legustu verkefni.
Framlaginu er öllu varið til
greiðslu á ferðakostnaði sam-
kvæmt tillögum norrænu íþrótta-
samtakanna. Það hefur náðst
samstaða um skiptinguna sem
hefur miðað að því fyrst og
fremst að styrkja ferðir milli vest-
norrænu þjóðanna og megin-
landsins. - íslendingar hafa því
komið vel út úr þeirri skiptingu.
Það er von mín, að þessi aukni
áhugi Norðurlandaráðs verði
ekki orðin tóm heldur muni hann
verða til þess að auka vægi íþrótt-
anna í norrænu samstarfi, þegar
kemur að skiptingu fjármagns.
Það yrði tiltölulega einföld og
auðfarin leið til aukins samstarfs
æskufólks á Norðurlöndum, auk
þess að vera mikilvæg hvatning til
ungs fólks að stunda íþróttir.
Valgerður Sverrisdóttir.
Amsterdam umturnast á
afinælí drottningarinnar
- Haraldur Ingi Haraldsson fararstjóri
segir frá væntanlegri ævintýraferð
Húsnæði óskast
Félagasamtök á Akureyri óska eftir íbúðar- eða iðn-
aðarhúsnæði til leigu undir starfsemi sína.
Æskileg stærð 220 fm og stór og góð lóð.
Húsnæðið má þarfnast lagfæringar.
Skilvísar greiðslur.
Upplýsingar í síma 22285.
Aðalsafnaðarfundur
Akureyrarsóknar
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður
haldinn í kirkjunni sunnudaginn 9. apríl nk. að
lokinni guðsþjónustu er hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefndin.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir febrúarmánuð 1989,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 3. apríl
1989.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16.
apríl.
Fjármálaráðuneytið.
Útsala - Útsala
20% afsláttur
Laugardaginn 29. apríl nk.
verða vegleg hátíðarhöld í
Amsterdam, höfuðborg Hol-
lands í tilefni afmælis Júlíönu
drottningar. Samkvæmt venju,
umturnast borgin þann dag og
þeir sem hafa upplifað hann í
Amsterdam segjast aldrei hafa
reynt neitt slíkt. Þá þyrpist
fólk út á göturnar með ýmsan
varning sem boðinn er til sölu
á ótrúlegu verði og má líkja
ástandinu þannig að borgin
breytist í eitt allshcrjar markaðs-
torg. Þegar líður á daginn fær-
ast hátíðarhöldin inn á krárnar
og heyra má söng og gleði fram
á rauða morgun.
Erlendir ferðamenn kunna vel
að meta þessa uppákomu
Hollendinga og streyma þeir til
borgarinnar þessa helgi ár hvert.
Hópar Svía koma í rútum og nú
gefst landanum tækifæri til þess
að upplifa stemmninguna, því
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur hef-
ur skipulagt 5 daga ferð til
Amsterdam í tilefni Drottningar-
afmælisins, lagt verður af stað á
fimmtudegi og komið heim á
mánudegi. Fararstjóri í þessari
ferð er Akureyringurinn Harald-
ur Ingi Haraldsson sem mörgum
er góðkunnur, en hann hefur
dvalist í Amsterdam um árabil.
Stanslaus skemmtun
„Þetta afmæli drottningarinnar er
ekkert kaffi og kökur! Á hverju
götuhorni eru hljómsveitir og
menn sem framkvæma alls konar
uppátæki. Þegar líður á daginn er
múgur og margmenni á götum úti
að spjalla við náungann, „húkka“
sér far með bátum sem ganga um
síkin og síðan „djammar“ hver
sem betur getur nóttina í gegn.
Vissulega er mikið á fólk lagt að
skemmta sér stanslaust í heilan
sólarhring, en ég lofa því að dag-
urinn er hverjum sem reynir
ógleymanlegur," sagði Haraldur
Ingi í samtali við Dag. Hann
sagði það einskæra heppni að
hafa fengið gistingu á góðu hóteli
í hjarta borgarinnar fyrir gesti
ferðarinnar því þessa helgi er
bókstaflega allt gistirými fullt.
Þrjátíu íslendingum gefst kostur
á að taka þátt að þessu sinni og
verður ekki hægt að bæta við
þann fjölda.
Haraldur Ingi segir Amster-
dam bjóða upp á mjög fjölskrúð-
ugt næturlíf og verður ferðalöng-
um bent á skemmtilegar krár og
ýmislegt annað en það sem
„venjulegir“ ferðamenn rekast á
á ferðum sínum.
Sj óræningj astemmning
Það verða skipulagðar tvær ferðir
á veitingahús sem gestum verður
frjálst að taka þátt í. Önnur er á
stað sem kallast „Einhyrningur-
inn“. „Hann á vart sinn líka,
er í ferhyrndri stórri byggingu
sem lítur sakleysislega út, en þig
rekur í rogastans þegar inn kem-
ur því þá ert þú kominn inn í
skipsskrokk miðalda sjóræn-
ingjaskipsins „Einhyrningurinn.“
Á rnóti gestum tekur bátsmaður
skipsins og stigið er aftur í aldir í
einu skrefi. Þá er ýtt úr vör og á
meðan fólk nýtur dýrindis nauta-
steika, lax og fleira sem allt er
grillað á viðarkolum og nær sér
sjálft í bjór og vín í skipsámurn-
ar, halda skipsverjar áfram sinni
vinnu og lífið um borð gengur
sinn vana gang. Síðan gerist
ýmislegt óvænt sem ekki er vert
að skýra frá . . .!“
Menningarlíf í Amsterdam er
sömuleiðis fjölskrúðugt og mætti
nefna ótal fræg söfn og tónlistar-
uppákomur. Haraldur Ingi segist
m.a. ætla að benda fólki á safn
gamalla pyntingartækja frá mið-
öldum. VG
á fóðruðum samfestingum, snjósleðagöllum,
úlpum og fóðruðum stökkum.
uu EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
----------------------------------------
✓
Yerksmiðjuverslun
Gleráreyrum
Peysur ★ Gam ★ Teppi ★ EfVii ★ O.fl.
á ótrúlegu verði
Opið: Mánudaga-föstudaga ld. 9.00-12.00 og 13.00-18.00.
Laugardaga ld. 10.00-12.00.
Komið og gerld góð kiuip
Verksmiðjuverslim Gleráreyrum, sími 21900.
v________________________________________________/