Dagur - 04.04.1989, Side 13
Þriðjudagur 4. apríl 1989 - DAGUR - 13
Minning:
jl Snæbjörg Sigríður
11 AðaJmundardóttir
Fædd 26. apríl 1896 - Dáin 27. mars 1989
Hún Snæbjörg amma okkar andaðist
að morgni 27. mars, á 93. aldursári,
en hún fæddist 26. apríl 1896 á Eld-
járnsstöðum á Langanesi. Foreldrar
hennar voru Aðalntundur Jónsson og
Hansína Guðrún Benjamínsdóttir
búandi hjón á Eldjárnsstöðum. Börn
þeirra voru fjögur sem upp komust
og voru þau Jóhanna, Ása, Jónas og
Snæbjörg amma sem var yngst, en öll
eru systkinin nú látin. Á Eldjárns-
stöðum ólst amma upp í glöðum
systkinahópi á mannmörgu heimili,
því þar bjuggu einnig Jóhannes bróð-
ir Aðalmundar og kona hans Ása
sem var systir Guðrúnar konu Aðal-
mundar. I bók Erlings Davíðssonar
„Aldnir hafa orðið“ VI. bindi, segir
frá uppvaxtarárum ömmu og einnig
sérkennilegum dulargáfum sem hún
bjó yfir, en flíkaði þó ekki að jafnaði
við aðra.
Pegar amnia var tvítug að aldri
kom hún í Eyjafjörðinn, þar sem hún
bjó aila tíð síðan og tók miklu ástfóstri
við byggðina sem hún taldi fegursta
og besta stað á jörðinni. Á þriðja
áratug aldarinnar bjó hún í Litladal í
Saurbæjarhreppi með afa okkar
Magnúsi Jóni Árnasyni járnsmiði og
bónda. Hann var fæddur í Litladal og
þar bjuggu áður foreldrar hans, þau
Árni Stefánsson og kona hans Olöf
Baldvinsdóttir. En Árni var lærður
járnsmiður frá Kaupmannahöfn og
kenndi. hann syni sínunt iðnina.
Seinna bjuggu afi og amma okkar
mörg ár á Akureyri þar sem afi stofn-
aði búvélaverkstæði sem hann starf-
rækti þar til Itann lést árið 1959.
Þau eignuðust saman fimm börn,
þau eru Hrefna húsmóðir gift séra
Bjartmari Kristjánssyni og búa nú í
Álfabrekku, Öngulsstaðahrcppi,
Þorgerður húsmóðir á Akureyri gift
Ingólfi Sigurðssyni fyrrum skip-
stjóra, Guðný húsmóðir gift' Sigur-
geiri Halldórssyni bónda á Önguls-
stöðum, Guðrún húsmóðir í Reykja-
vík gift Braga Jónssyni verslunar-
manni og yngstur er Aðalmundur
Jón flugvélstjóri í Reykjavík kvænt-
ur Hilke Jakob Magnússon flug-
freyju. Afkomendur ömrnu eru nú
yfir sjötíu talsins og var hún mjög
hreykin af þeim hópi og gladdist yfir
hverju nýju barni. Þess má geta að
afi átti fimm börn með fyrri konu
Kvenfélagið Framtíðin heldur
félagsfund í Hlíð mánud. 10. apríl
kl. 20.30.
Venjuleg fundarstörf.
Spilað bingó.
Mætum allar.
Stjórnin.
Framtöl - Bókhald.
Tölvuþjónusta.
Uppgjör og skattskil fyrirtækja.
Skattframtöl einstaklinga með öll-
um fylgigögnum, svo sem landbún-
aðarskýrslu, sjávarútvegsskýrslu
o.fl.
Tölvangur hf.
Guðmundur Jóhannsson, viösk.fr.
Gránufólagsgötu 4, v.s. 23404, h.s. 22808.
Tvítug frönsk stúlka óskar eftir
sumaratvinnu á íslandi n.k. júlí
og ágúst.
Alls kyns störf koma til greina ef
með fylgir húsnæði, í sveit eða bæ.
Talar ensku og svolítið íslensku.
Tilboð óskast sent sendikennara
eða Mlle Véronique Lostoriat, 63,
bis, rue Letellier, 50100 Cherbourg,
France.
Persónuleikakort.
Kort þessi eru byggð á störnuspeki
og í þeim er leitast við að túlka
hvernig persónuleiki þú ert, hvar og
hvernig hinar ýmsu hliðar hans
koma fram.
Upplýsingar sem við þurfum fyrir
persónukort eru, fæðingardagur og
ár, fæðingarstaður og stund.
Verð á korti er kr. 800,-
Pantanir í síma 91-38488.
Póstsendum um land allt.
Oliver.
Til sölu jarðýta TD 8B, árg. ’79.
Uppl. í síma 95-6245 og 95-6037.
Til sölu er ísskápur og frystikista.
Einnig plötuspilari með skáp, síma-
borð og frekar nett sófasett.
Uppl. að Túngötu 6 á Húsavík, sími
41124, eftir kl. 18.
Til sölu nýleg ónotuð Singer
prjónavél með mótor og tölvu.
Uppl. í síma 95-7124.
KFUM og KFUK,
Sunnuhlíð.
1* Miðvikudaginn 5. apríl.
Alnicnn samkoma kl.
20.30. Ræðumaður séra Hákon
Andersen, biskup frá Tönsberg í
Noregi.
Allir velkomnir.
I.O.O.F. 15 = 17004048'/2 =
SPKV.
I.O.O.F. Ob. 2 = 170458V2 =
I.O.O.F. 2 = 170478V2 =
Stúkan ísafold fjallkonan
1 nr. 1.
Fundur fimmtud. 6. þ.m.
kl. 20.30. í Félagsheimili
templara.
Fundarefni:
Innsetning.
Kosning fulltrúa á þingstúku- og
umdæmisstúkuþing.
Eftir fund, kaffi. ^t.
Bílaklúbbur Akureyrar.
lAlmennur félagsfundur
jverður í Dynheimum
n.k. þriðjudagskvöld kl.
20.00.
Fundarefni:
Sumarstarfsemin kynnt.
Ath! Félagar allra deilda.
Takið með nýja félaga. Stjórnin.
sinni Helgu Árnadóttur. Þau eru
Hildigunnur, Aðalsteinn og Frey-
gerður sem búa á Akureyri. Tvö eru
látin, þau Árni og Ragnheiður.
Amma lét sér líka annt unt þau og
þeirra afkomendur.
Amnta mun snernma hafa lært að
taka til hendinni og notaði enginn
vettlingatök við verkin sín. Hún var
búin að vinna mörgum vel. Hér áður
fyrr gekk hún í hús á Akureyri og
þvoði þvotta og gerði hreint, hjálp-
aði til við veisluhöld og hvaðeina sem
til féll. Það var enginn svikinn af
verkum hennar og þurfti ekki heldur
að segja henni fyrir verkum. AIls
staðar eignaðist hún vini, hún varsvo
léttlynd og gamansöm og vakti alltaf
glaðværð. Hún var mjög hreinskilin
og sagði meiningu sína tæpitungu-
laust. Líf hennar var þó ekki alltaf
dans á rósum. Oft mun hún hafa
gengið þreytt til hvílu að kveldi, en
hún lét ekki beygja sig. Hún vildi sjá
um sig sjálf og ekki vera upp á aðra
komin, né skulda neinum neitt. Það
var alltaf gott að sækja ömniu heim,
hún hafði lag á að búa sér einstaklega
skemmtilegt og hlýlegt heimili hvar
sem hún bjó. Allt var í röð og reglu
hjá henni og kjörorð hennar voru:
„Hver hlutur á sínum stað."
Sjötíu og sex ára gömul flutti
amma til foreldra okkar sem þá
bjuggu á Syðra-Laugalandi og auð-
vitað sá hún um sig sjálf. Alltaf var
jafngott að koma inn til hennar og fá
hjá henni kleinur og pönnukökur eða
annað góðgæti, því ætíð var hún veit-
andi og alltaf að rétta frant hjálpar-
hönd. Það var gott að vera í félags-
skap með henni því hún var svo létt í
skapi, skemmtileg og kunni frú ýmsu
að segja. Við gátum margt af henni
lært.
Eftir ellefu ára dvöl á Syðra-
Laugalandi fluttist amma aftur til
Akureyrar og naut þar umhyggju
Þorgerðar dóttur sinnar. Tvö síðust
árin dvaldist hún á Skjaldarvík heim-
ili aldraðra. Þar tók hún þátt í félags-
lífinu, en hún hafði sérstaklega garn-
an af spilamennsku og var hún oft í
gamni kölluð „Sólódrottningin“ af
félögum sínum þar. Ósk ömmu var
að dauðdagi hennar yrði sá að fá að
sofna útaf án þess að þurfa að líða
langvarandi veikindi og þjáningar.
Henni varð að þeirri ósk sinni. Vilj-
um við systkinin þakka henni kær-
lega samfylgdina og óskum henni
velfarnaðar á nýju tilverustigi. Bless-
uð sé minning hennar.
Börn Hrefnu og Bjarlmars.
XJtferarkransar
Frágangur í kirlgu fyrir athöfii innifalinn.
I }lt')inaliúsið
Glerárgötu 28, sími 22551.
Opið írá kl. 10.00 tíl 21.00 alla daga vikunnar.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
Ég sendi öllum vinum mínum og skylduliði
innilegar þakkir fyrir heimsóknir, gjafir
og kveðjur á 90 ára afmælinu
mínu 26. mars.
Guð blessi ykkur öll.
RAGNAR DAVÍÐSSON,
Grund.
iti
Móðir okkar,
SNÆBJÖRG SIGRÍÐUR AÐALMUNDARDÓTTIR,
Aðalstræti 76, Akureyri,
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 4. april kl.
13.30.
Börnin.
Systir min,
SIGURHANNA SIGURÐARDÓTTIR,
sem lést í Dvalarheimilinu Skjaldarvík, 31. mars s.l. verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 7, apríl kl. 13.30.
Áki Sigurðsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LENU OTTERSTEDT,
Knútur Otterstedt, Harriet Otterstedt,
Haukur Otterstedt, Þórdís Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEIKFIMISALUR - NÝJUNG - NÝR SALUR,
MÚSIKLEIKFIMl. EINNIG LEIKFIMI
FYRIR VINNUSTAÐl OG AÐRA HÓPA.
HEFUR M3 PRÓFAÐ? EF EKKl, LÍTTU VIÐ: KENNARl Á
STAÐNUM. ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA FR.Á KL. 20.00.
ÆFINGAR VEGGTENNISKLÚBBSINS ERU Á ÞRIÐJUD. OG
FÖSTUD. FRÁ KL. 20.00-2I.30.
NÝIR FÉLAGAR VELKOMNIR.
VEGGTENNISVÖRURNAR FÁST HJÁ OKKUR.
$
ENDURHÆFINGARSTOÐ
SIÁLFSBJARGAR
BUGÐUSÍÐU1
SÍMI96-26888
◄^OLTINN