Dagur - 04.04.1989, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 4. aprfl 1989
Afkoma ÚA á síðasta ári kynnt á
aðalfundi 24. apríl nk.:
Afkoman lítið
fagnaðarefni
- segir Gísli Konráðsson,
framkvæmdastjóri
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
FJARMAL ÞÍN - SÉRGREIN OKKAR
„Að svo stöddu er ekkert gefíð
út með afkomu Útgerðarfé-
lagsins. Eg held að hún verði
lítið fagnaðarefni,“ segir Gísli
Konráðsson, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga, en reikningar félagsins
fyrir síðasta ár verða lagðir
fram á aðalfundi þann 24. aprfl
nk.
Næg vinna hefur verið hjá ÚA
að undanförnu. Kaldbakur kom
inn fyrir helgi með um 250 tonn
af blönduðum afla, að stærstum
hluta karfa. Lokið var við löndun
úr honum í gær. Hrímbakur mun
koma inn til löndunar í fyrramál-
ið.
Að sögn Gunnars Vigfússonar
hefur verið unnið í frystingunni
alla virka daga frá kl. 7-5 og sex
síðustu laugardaga frá kl. 6-12.
Hann segir að fyrripartsvakt sé
vel mönnuð en eftir hádegi vanti
fólk til vinnu. Gunnar segir að
um páskana hafi skólafólk hlaup-
ið undir bagga og þá hafi verið
unnið við öll borð. Ef af verkfalli
verður í framhaldsskólum nk.
fimmtudag eru líkur á að nokkrir
nemendur geti fengið vinnu við
borðin í frystihúsinu í ÚA,
þ.e.a.s. hafi þeir áhuga á undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarinnar,
fiskvinnslu. óþh
Brugðið á leik 1. apríl:
Fjórar fréttir
tilhæfulausar
Allmargir hlupu apríl eftir aö
hafa lesið hinar vafasömu
fréttir í helgarblaöi Dags laug-
ardaginn 1. apríl. Alls voru
fjórar slíkar fréttir samdar í
tilefni dagsins og vart hjá því
komist að einhver þeirra yrði
tekin trúanlega. Flestir munu
hafa gleypt við frétt á baksíðu
þar sem fullyrt var að Þorsteini
EA hefði verið breytt í fljót-
andi veitingastað.
Þráinn Lárusson, veitingamað-
ur á Uppanum, sagði að fólk
hefði hringt í sig og óskað eftir
vinnu á Steinabar. Hann gat því
miður ekki orðið við þessum ósk-
um því það er enginn Steinabar
um borð í Þorsteini EA. Þá
munu útgerðarmenn hafa haft
áhyggjur af þessu ævintýri því
skipið myndi missa kvóta sinn ef
fréttin ætti við rök að styðjast.
Á forsíðu greindi Dagur frá
Leikhússtjóri LA:
Umsóknarfrestur
framlengdur
Staða leikhússtjóra hjá
Leikfélagi Akureyrar hefur
að nýju verið auglýst laus til
umsóknar. Þegar umsókn-
arfrestur rann út fyrir páska
höfðu fímm sótt um stöðuna
en fyrirspurnir héldu áfram
að bcrast.
í Ijósi þessa ákvað leikhús-
ráð að framlengja umsóknar-
frestinn til 15. apríl og eftir
það verður ráðið í stöðuna
sem losnaði er Arnór Benónýs-
son sagði upp störfum í byrjun
febrúar. Úmsóknir skulu
sendar Valgerði Bjarnadóttur,
formanni leikhúsráðs, en hún
veitir allar nánari upplýsingar.
SS
fyrirhuguðum heræfingum
Bandaríkjamanna í Aðaldal en
sú frétt er uppspuni. Sjálfsagt
hafa einhverjir lagt leið sína út á
Akureyrarflugvöll í því skyni að
skoða herflugvéiar sem þar áttu
að taka eldsneyti á laugardaginn.
Tvær fréttir á þriðju síðu
blaðsins voru einnig skrifaðar í
tilefni dagsins. Að sögn blaða-
manns Dags á Húsavík trúðu
nokkrir af yngri kynslóðinni á
tilvist japönsku tungumálagler-
auganna sem Linda Pétursdóttir
ætlaði að kynna í söluskála ESSO
en skiljanlega þótti flestum frétt-
in ótrúleg. Þá var sagt frá því að
Karl Bretaprins og Díana prins-
essa myndu millilenda á Alex-
andersflugvelli á Sauðárkróki en
þar var einnig um gabb að ræða.
Við vonum að lesendur hafi
ekki tekið þessum ábyrgðarlausu
fréttum illa og líti á björtu hlið-
arnar þótt þeir hafi hlaupið apríl,
en til þess var leikurinn einmitt
gerður. SS
rFIÁRFESTINGARFÉLACP
Ráðhústorgi 3, Akureyri
„Þó að kali heitur hver . . .“ Ekki er víst að María Benediktsdóttir hafi haft
þessar Ijóðlínur í huga er hún byggði sér snjóhús í garðinum hjá afa sínum
en eitt er víst að hún er broshýr stúlkan sú arna og greinilega ánægð með
dagsverkið. Mynd: ap
Bíræfinn bílstjóri:
Stal bíl -
keyrði útaf-
stal öðrum -
var tekinn
Helgin var afskaplega róleg
hjá lögreglu á svæðinu Húna-
vatnssýslur-Eyjafjörður. Lög-
reglumaður á Siglufírði orðaði
það svo að hann myndi vart
eftir jafn rólegri helgi og sama
var upp á teningnum í Ólafs-
fírði, á Sauðárkróki, Siglufírði
og Dalvík. í Húnaþingi bar
það helst til tíðinda að ekið var
á hross við bæinn Tjarnarkot í
Ytri-Torfustaðahreppi.
Ökumaður, sem lagði upp frá
Dalvík aðfaranótt sunnudags,
kemst líklega á spjöld sögu lög-
reglunnar fyrir miður góða
hegðun. Hann stal bíl á Dalvík
og ók honum eins og leið liggur
inn Árskógsströnd áleiðis til
Akureyrar. Á Ströndinni tókst
ekki betur til en svo að ökumað-
ur missti bílinn útaf. Hann dó þó
ekki ráðalaus. Fór heim á næsta
bæ og stal öðrum og komst alla
leið til Akureyrar, hvar lögregla
tók hann af tilviljun í „umferðar-
tékki“. Að sögn lögreglu er öku-
maður grunaður um ölvun. óþh
Óvenju mikil svellalög á túnum á Norðurlandi:
Bændur óttast að tún komi
stórskenund imdan vetrinum
Svo gæti farið að ársins 1989
verði minnst sem mesta kalárs-
ins úm 20 ára skeið á Norður-
landi. Svellalög eru mikil á
túnum víðast hvar og óttast
kunnugir menn að illa muni
fara, því svellin hafa víða legið
á í rúma þrjá mánuði. Öruggt
er talið að umtalsverðar kal-
skemmdir hafí þegar orðið á
öllu svæðinu frá Hrútafírði að
Þistilfírði.
Bjarni Guðleifsson hjá Til-
raunastöðinni að Möðruvöllum
segir að ótti manna um kal í vor
sé ekki ástæðulaus. Svell séu búin
að liggja á flatlendi í þrjá mánuði
á ýmsum stöðum í Eyjafirði, en
það þýðir að gróður hefur drepist
undir svellunum. Ef ástandið
breytist ekki alveg á næstunni
mun gróðurinn skemmast meira.
Kalblettir koma í ljós á hverju ári
þegar snjóa leysir en í ár eru
svellalögin útbreiddari en hefur
verið um langt skeið. Á austan-
verðu Norðurlandi liggur mikill
snjór á svellunum sem gæti valdið
því að þau yrðu lengur en endra-
Snjókoman eftir áramót varð Akureyrarbæ þung í skauti:
Kostnaðurinn kominn á þriðju
milljón umfram ársáætlun
Kostnaöur við snjómokstur á
Akureyri er orðinn liðlega tólf
milljón krónur frá áramótum,
en það er 2,5 milljónum króna
hærri upphæð en gert var ráð
fyrir við samningu fjárhags-
áætlunar bæjarins. Þá er ótal-
inn sá kostnaður sem verður
vegna gatnaviðgerða, en mestu
umferðargötur bæjarins eru
meira og minna skemmdar eft-
ir veturinn.
Guðmundur Guðlaugsson,
.verkfræðingur hjá Akureyrarbæ,
segir að líkast til verði aukafjár-
veiting að koma til vegna snjó-
mokstursins frá áramótum. Kostn-
aður við mokstur frá áramótum er
orðinn 2,5 milljónum kr. meiri en
átti að verja til þessa liðar allt
árið í ár. Söluskatturinn einn af
mokstrinum er um 1700 þúsund
kr. Ef til aukafjárveitingar kemur
verður samsvarandi upphæð
hugsanlega dregin frá gatnagerð-
arfé.
Fyrir liggur að malbika yfir
djúp hjólför í Glerárgötu og á
fleirir stöðum, auk þess sem
starfsmenn bæjarins þurfa víða
að fylla upp í holur í malbikinu,
sumar nokkuð stórar. Fyrirhugað
var að ræsa malbikunarstöðina
nú eftir helgina en því hefur verið
frestað þar til aðstæður verða
hentugri.
Að sögn Guðmundar eru það
nagladekkin sem mest skemma
göturnar á Akureyri, og svo-
nefnd sporkeyrsla bílstjóra sem
aka sífellt í sömu hjólförum.
Hjólförin í Glerárgötu eru orðin
alldjúp og fyllast af vatni í úr-
komu eða leysingum. EHB
nær að bráðna.
Benedikt Björgvinsson, ráðu-
nautur á Kópaskeri, segir að svell
séu útbreidd þar í nágrenninu og
séu bændur við þvf búnir að kal
geti orðið útbreitt. Einkum eru
menn svartsýnir í Þistilfirðinum
og telja bændur þar að kalið geti
valdið allmiklum búsifjum.
Ari Teitsson á Hrísum, ráðu-
nautur B.S.Þ., segir að svellin
hafi komið í janúar á flestum
stöðum. Ef þau fari ekki fljótlega
sé útséð um að kal verður víða í
túnum. Þegar svell hefur legið á í
3 mánuði verða alltaf skemmdir á
gróðri, en mismiklar eftir aðstæð-
um. Mesta kalhættan er í sveitun-
um í miðri Þingeyjarsýslu þar
sem flatlent er, t.d. í Aðaldal,
Kinn, Fnjóskadal, Reykjaverfi
og Reykjadal. „Það er ljóst að
mestu svellin eru núna á þessu
miðsvæði sýslunnar," sagði Ari.
„Ástandið er víða alvarlegt
hér, svellin eru búin að liggja of
lengi á túnunum," sagði Gunnar
Þórarinsson, ráðunautur á
Hvammstanga. Megnið af svell-
unum í Húnavatnssýslum kom í
janúar og á einstaka stað hafa
þau legið á frá því fyrir jólahátíð-
ina. „Það hafa áreiðanlega ekki
komið svona mikil svell hérna frá
því á kalárunum fyrir 1970.
Ástandið er nokkuð misjafnt, í
Staðarhreppi eru mikil svell,
einnig víða í Miðfirði og í Þverár-
hreppi. í Víðidalnum er minna
um þau en þó nokkuð samt,“
sagði Gunnar. EHB