Dagur - 08.04.1989, Síða 5
Laugardagur 8. apríl 1989 - DAGUR - 5
Fréttagetraun liðins mánaðar
Pá er komið að fréttagetraun
marsmánaðar. Nýr skammt-
ur afskringilegum spurning-
um til gagns og gamans.
Sem fyrr eru spurningarnar
tengdar efni Dags í liðnum
mánuði og eru þrír svar-
möguleikar gefnir upp en
aðeins eitt svar er rétt við
hverja spurningu. Vinsam-
legast fyllið út svarseðilinn
hér á síðunni og sendið
okkur. Skilafrestur er til 2.
maí, enþá verða þrírseðlar
dregnir út og hinir heppnu fá
vöruúttekt í viðurkenningar-
skyni.
1) Hvaða leið beittu nemendur
í 9. bekk GA til þess að afla
fjár fyrir skólaferðalag?
(1) Þeir söfnuðu áheitum með
því að skríða upp í Hlíðarfjall og
renna sér síðan á bakinu niður í
bæ.
(X) Nemendurnir gengu um
miðbæ Akureyrar að kveldi 1.
mars og söfnuðu bjórdósum gegn
greiðslu frá Akureyrarbæ.
(2) Þeir söfnuðu fé með því að
stunda maraþonsnúsnú á sal
skólans.
2) „Það er voðalega vond lykt
af þessu,“ sagði Gunnar Bryn-
jólfsson í fyrirsögn á baksíðu
Dags. Af hvaða tilefni sagði
hann þetta?
(1) Gunnar var fyrsti viðskipta-
vinur ÁTVR á Akureyri 1. mars
og þetta hafði hann að segja við
blaðamenn um bjórinn sem hann
keypti.
(X) Þessi vonda lykt tengdist vél-
sleða sem þótti óvenju kraftmik-
ill í vélsleðakeppni í Mývatns-
sveit.
(2) Gunnar var að kanna unnar
kjötvörur í matvöruverslunum
þegar hann kvað upp þennan
dóm.
3) Hver sagði og af hvaða
tilefni: „Þetta er gamaldags og
illgirnislegt sjónarmið . . .“?
(1) Ónefndur unglingur sem fékk
ekki inngöngu í Dynheima sakir
ölvunar.
Viimingshafar
febrúarmánaðar
Þrír svarseðlar hafa verið
dregnir út fyrir fréttagetraun
febrúarmánaðar og komu þessi
nöfn upp: Barbara Geirsdóttir,
Akurgerði 3d, Akureyri. Jón
H. Pálsson, Norðurgötu 5,
Siglufirði. Sveinn Hjálmars-
son, Arnarsíðu 8e, Akureyri.
Vinningshafarnir fá senda
úttektarmiða í viðurkenningar-
skyni.
Rétt röð í fréttagetraun febrú-
armánaðar var þessi:
1) 1
2) 1
3) 2
4) X
5) X
6) X
7) 2
8) 1
9) 1
10) 2
11) 1
12) 2
Þátttaka í getrauninni var
mjög góð og það var ánægjulegt
að svarseðlar bárust mjög víða af
Norðurlandi. Dagur þakkar öll-
um sem sendu inn svör fyrir þátt-
tökuna. SS
(X) Bjarni Ásgeir Jónsson,
stjórnarmaður í Félagi kjúklinga-
bænda, vegna ummæla Jóhannes-
ar Gunnarssonar í garð kjúkl-
ingaframleiðenda.
(2) Vilhelm Ágústsson, er bæjar-
stjórn Akureyrar synjaði Lind-
inni um léttvínsleyfi.
4) Hvað var óvenjulegt við
fund bæjarstjórnar Akureyrar
7. mars?
(1) Hann stóð aðeins yfir í 12
mínútur vegna þess hve fá mál
voru á dagskrá.
(X) Konur voru í meirihluta
bæjarstjórnarmanna.
(2) Umræður um snjó og snjó-
mokstur settu dagskrá fundarins
úr skorðum og var bæjarfulltrú-
um mjög heitt í hamsi.
5) Hvaða farartæki vildu Borg-
aratlokksmenn fá til landsins?
(1) Dvergkafbát.
(X) Skriðdreka.
(2) Stýriflaug með kjarnaoddi.
6) „Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður og þykir mér mikill
heiður sýndur.“ Hver mælti
svo og af hvaða tilefni?
1) Jón Sæmundur Sigurjónsson
alþingismaður þegar Sölusamtök
lagmetis buðu honum í kynnis-
ferð í lagmetisfyrirtækin.
(X) Bjarni Hafþór Helgason
sjónvarpsstjóri er tvö lög eftir
hann komust í undanúrslit
Söngvakeppni íslands 1989.
(2) Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra er honum var boð-
ið að vera í helgarviðtaii Dags.
7) Byggingafyrirtæki á Dalvík
mun væntanlega byggja þjón-
ustu- og iðanaðarhús í sumar.
Hvað heitir þetta fyrirtæki?
(1) Viðar hf.
(X) Sög sf.
(2) Hilmar hf.
8) Hvaða útgerðarfyrirtæki
sýndi áhuga á Bessa ÍS 410 frá
Súðavík?
(1) Þormóður rammi á Siglufirði.
(X) Útgerðarfélag Kaupfélags
Eyfirðinga í Hrísey.
(2) Útgerðarfélag Norður-Þing-
eyinga á Þórshöfn.
9) Hver sagði: „Ég læt mig
hafa það að fara á milli, það er
ekkert mál“?
(1) Jón Sæmundur Sigurjónsson
alþingismaður um lagmetisferðir
sínar innanlands og til Þýska-
lands.
(X) Flutningabílstjóri á leiðinni
milli Akureyrar og Reykjavíkur
mælti svo í tilefni ófærðarinnar.
(2) Trausti Þorsteinsson, skóla-
stjóri á Dalvík og nýskipaður
fræðslustjóri Norðurlandsum-
dæmis eystra.
10) Hverju mótmæltu íbúar
við Munkaþverárstræti á Ak-
ureyri?
(1) Ákvörðun bæjaryfirvalda um
að færa bílastæðin austur yfir
götuna.
(X) Ákvörðun bæjaryfirvalda um
að færa bílastæðin vestur yfir
götuna.
(2) Ákvörðun bæjaryfirvalda um
að hafna beiðni um að færa bíla-
stæðin úr götunni.
11) Neysla á hverju breiðist ört
út samkvæmt frétt Dags?
(1) Kjötfarsi og káli.
(X) Ámfetamíni og kókaíni.
(2) Bjór og brennivíni.
12) Hvað sagði Jón Ásbergs-
son forstjóri Hagkaupa um
,,kjúklingastríðið“ í samtali við
Dag?
(1) „Við munum að sjálfsögðu
hætta að selja kjúklinga enda
teljum við hugmyndir Neytenda-
samtakanna skynsamlegar eins
og verðlagsmálum er háttað í
dag.“
(X) „Ekki undir neinum kring-
umstæðum hættum við að bjóða
upp á kjúklinga því við lítum svo
á að það sé ákvörðun neytenda
hvort þeir hætti að kaupa kjúkl-
inga.“
(2) „Ákvörðun liggur ekki fyrir
af okkar hálfu en við höfum rætt
við forsvarsmenn annarra stór-
verslana og væntanlega mun sam-
eiginleg yfirlýsing verða gefin út
innan skamms.“ SS
1. Svarseðill (1, X eða 2) 7
2. 8.
3. __ 9.
4. 10.
5. _ 11.
6. 12.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími:
Utanáskriftin er: Dagur - fréttagetraun,
Strandgötu 31 • Pósthólf 58 • 602 Akureyri
ERTÞÚ
ÍBÚÐAREIGANDI
í GREIÐSLU-
ERFIÐLEIKUM?
Ef svo er, þá átt þú sennilega
aðeins um þrjá kosti að velja,
til að leysa þá.
1. Létta greiðslubyrði lána
þinna.
2. Auka greiðslugetuna. |
3. Selja íbúðina.
O)
>
GREIÐSLUBYRÐIN
MINNKUÐ
Greiðslubyrði lána léttist ef
lánstími er lengdur. Ef lang-
tímalán fæst svo hægt sé að
greiða uþþ skammtimalán, þá
dreifast afborganir yfir lengri
tíma, og þar með léttist
greiðslubyrðin. Heildarskuldir
eru þær sömu, en auðveldara
getur verið að standa í skilum.
GREIÐSLUGETAN AUKIN
Greiðslugetu er unnt að auka
með því að auka tekjur eða
minnka framfærslukostnað.
Sennilega geta fæstir aukið
tekjur sínar í einni sviþan en
aðra sögu getur verið að segja
af framfærslukostnaði. Sumir
geta án efa dregið úr ýmsu
sem kallað er nauðsynjar, aðrir
geta það líklega ekki.
ÍBÚÐIN SELD
Að selja íbúð vegna greiðslu-
erfiðleika getur verið eina úr-
ræði íbúðareigenda. Betra er
að taka þá ákvörðun fyrr en
seinna.
Ef þú ert íbúðareigandi í
greiðsluerfiðleikum, leitaðu þá
aðstoðar fagmanna við að
meta hvaða leiðir þér eru
færar.
STARFSFÓLK RÁÐGJAFA-
STÖÐVARINNAR
ER REIÐUBÚIÐ
AÐ AÐSTOÐA ÞIG
RÁÐGIAEASTOÐ
HUSf^EÐíSSTOeíUMAR
Slys gera ekki^-
boð á undan sér! uÁ :