Dagur - 19.04.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 19. apríl 1989
Nemendur í 9. bekk Hrafnagilsskóla í áheitagöngu:
Urðu að hætta við hálfnað verk
Þennan eldhressa hóp nemenda 9. bekkjar í Hrafnagilsskóla, keyrði blaðamaður Dags fram á á göngu
á Svalbarðsströndinni á laugardag. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að krakkarnir voru að ganga
áheitagöngu og safna með því peningum í ferðasjóð.
Til stóð að ganga í 24 klst. en að sögn Hólmgríms Bjarnasonar eins göngumanna, urðu þau að hætta
með hálfnað verk í Stóru-Tjarnarskóla, þar sem veðrið var orðið vitlaust um kvöldið. Krakkarnir lögðu
af stað frá Hrafnagilsskóla kl. 11.30 á laugardag en komu í Stóru-Tjarnir kl. rúmlega 23 um kvöldið.
Þau hafa því lokið við um helming göngunnar en að sögn Hólmgríms er óvíst hvert framhaldið verður
en rætt hefur verið um að dansa í skólanum í um 12 klst. til viðbótar.
Sem fyrr sagði eru krakkarnir að safna í ferðasjóð 9. bekkjar og er stefnan að halda suður á bóginn
í vor, m.a. til Reykjavíkur og Vestmannaeyja. -KK
Lögsögumál Sauðárkróks og
Skarðshrepps:
Þmgmenn leggja
fram tillögur
um samstarf
- Skarðshreppingar reiðubúnir
til viðræðna um þær
Lögsögumál Sauöárkróks og
Skaröshrepps er enn eina ferð-
ina komið upp á yfirborðið.
Það nýjasta sem gerst hefur í
því máli er að þingmenn
Norðurlands vestra lögðu fram
tillögur fyrir bæjarstjórn Sauð-
árkróks og hreppsnefnd Skarðs-
hrepps um samstarf þessara
sveitarfélaga, eftir að hafa
fundað með þeim 1. apríl sl.
Þá ítrekaði bæjarstjórn fyrri
samþykktir um að þingmenn
leggi fram frumvarp á Alþingi
um stækkun á lögsögu Sauðár-
króks til að tryggja bænum
meira byggingarrými, sem >
nemur landi Brennigerðis,
Áshildarholts og Sjávarborgar.
Ríkið og lífeyrissj óðirnir semja um kjör á skuldabréfakaupum:
Sairniingurimi ryður braut fyrir
vaxtalækkunum á lánsQármarkaði
- segir Ólafur Ragnar Grímsson, flármálaráðherra
í gær undirrituðu fulltrúar
ríkisvaldsins og lífeyrissjóð-
anna samning sem gerður hef-
ur verið um kjör á skulda-
bréfakaupum lífeyrissjóðanna
af Húsnæðisstofnun ríkisins
mánuðina apríl til desember á
þessu ári. Um er að ræða
skuldabréfakaup sem gætu
numið um 7 milljörðum króna.
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, sagði við
undirskrift samningsins í gær
að með honum væri rutt úr
vegi hindrunum fyrir vaxta-
lækkunum á lánsfjármarkaði
en samningurinn felur m.a. í
sér að vextir á skuldabréfum
með innlendri verðtryggingu
fara í 6% strax og í 5% í júlí.
Samkvæmt nýja samningnum
verður hluti skuldabréfakaup-
anna miðaður við gengistrygg-
ingu og erlenda nafnvexti, sem
fela í sér um 5% raunvexti. Þetta
atriði er nýmæli og felur í sér að
keypt verða skuldabréf miðað við
evrópska mynteiningu (ECU).
Það verða að lágmarki 15% af
skuldabréfakaupum hvers sjóðs
af Húsnæðisstofnun sem verða
með ECU-skilmálum en sjóðirnir
geta keypt allt að 40% sinna
skuldabréfa með þessum skilmál-
um.
Deilu ríkisvaldsins og lífeyris-
sjóðanna um nýju lánskjaravísi-
töluna er ekki rutt úr vegi með
samningnum frá í gær. Verð-
trygging á skuldabréfum útgefn-
um í janúar nk. mun miðast við
lánskjaravísitölu skv. svokölluð-
Oddeyrin EA:
um Ólafslögum sem fjármála-
ráðuneytið segir að feli í sér að
óbreyttu að núgildandi lánskjara-
vísitala verði notuð til að verð-
tryggja bréfin. í þessu samkomu-
lagi felst einnig að vextir verða
leiðréttir á skuldbréfum með inn-
lendri verðtryggingu sem gefin
verða út í janúar nk. í samræmi
við þróun vaxta á markaðnum
næstu mánuði á undan. Þetta ger-
ist takist stjórnvöldum ekki áætl-
unarverk sitt í vaxtamálum.
Fram kom hjá forsvarsmönnum
lífeyrissjóðanna í gær að þetta
atriði sé mikilvæg trygging fyrir
sjóðina.
„Þessir stóru aðilar hafa nú því
fyrir sitt leyti markað vaxtaþró-
unarbrautina. Samningurinn
mun örugglega sæta nokkrum
tíðindum í íslensku peningalífi
og verða til þess að menn þurfi
meira að horfa til þróunar á
alþjóðlegum peningamarkaði í
okkar kerfi hér heima sem við
teljum mjög jákvætt skref í þeirri
óhjákvæmilegu þróun sem við
þurfum að taka þátt í,“ sagði
Ólafur Ragnar í gær. JOH
Á fundi með hreppsnefnd
fengu þingmenn svo að heyra
það að þessar jarðir væru ekki
falar.
í tillögum þingmannanna er
lagt til að sveitarfélögin geri með
sér tveggja ára samstarfssamning
og láti gera sameiginlega áætlun
um þróun byggðar í lögsögu
þeirra og almenna úttekt á því,
hvar hagkvæmast sé að skipu-
leggja nýja þéttbýlisbyggð fyrir
Sauðárkrók til næstu tuttugu ára.
Á grundvelli þessara athugana
leggja þingmenn til að gengið
verði frá nýju skipulagi fyrir
sveitarfélögin með samþykki
beggja sveitastjórna. Jafnhliða
því sem fjallað verði um nýtt
skipulag í lögsögu Sauðárkróks
og Skarðshrepps, vilja þingmenn
að stefna verði mörkuð í framtíð-
inni um samstarf sveitarfélag-
anna, og m.a. kannaðir mögu-
leikar á lagningu hitaveitu um
Skarðshrepp.
„Bæjarráð hefur ekki hafnað
þessum tillögum, en telur þær
vera óraunhæfar á þeim forsend-
um m.a. að það er búið að vinna
í öllum þessum málum áður. Við
leggjum mikla áherslu á að frurn-
varpið verði lagt fram, það kemst
hvort eð er ekki í gegn á þessu
þingi, en yrði til kynningar,“
sagði Björn Sigurbjörnsson, for-
rnaður bæjarráðs, í samtali við
Dag.
Ulfar Sveinsson, oddviti
Skarðshrepps, sagði að hrepps-
nefndin væri fús til viðræðna um
þær tillögur sem þingmenn hafa
lagt fram. „Við höfum lýst sam-
þykki okkar við þeim og höfum
alltaf verið reiðubúnir til við-
ræðna um tillögur af þessu tagi.
En það hefur bæjarstjórn Sauð-
árkróks ekki verið til viðræðna
um,“ sagði Úlfar. -bjb
y Aðalfundur Siglufjarðardeildar KEA:
„Eg er nokkuð ánægður með
útkomuna á síðasta ári“
- segir Guðleifur Svanbergsson, útibússtjóri
Fengu 60 tonn af
rækju á 17 dögum
Oddevrin EA kom til Akur-
eyrar í gærmorgunn eftir 17
daga veiðferð með 60 tonn af
frystri rækju. Helmingur afl-
ans var unninn í neytenda-
umbúðir en hinn helmingurinn
var fryst iðnaðarrækja sem fer
til Niðursuöu K. Jónssonar &
Co.
Jón ívar Halldórsson, skip-
stjóri, sagði að aflinn hefði feng-
ist á Kolbeinseyjarsvæðinu.
Sntárækjan flokkast sem iðnaðar-
rækja en sá hluti aflans sem
pakkað er í neytendapakkningar
er flokkaður í þrjá flokka fyrir
Japansmarkað.
„Það er ákaflega lítil rækju-
veiði núna, minni en undanfarin
tvö ár. Það er minna um rækju nú
en áður en menn hafa haldið
aflanum uppi vegna þekkingar á
miðunum," sagði Jón ívar.
Öll iðnaðarrækja sem Oddeyr-
in veiðir fer til K. Jónssonar &
Co. Oddeyrin fór tveir veiðiferð-
ir á rækju eftir áramót en síðan
tók við fimm vikna botnfiskveiði.
Skipið er eingöngu með rækju-
kvóta frá ráðuneytinu, en fékk
þúsund tonna viðbótarkvóta frá
Þorláki Helga og öðrum bát sem
keyptir voru. Nú er búið að veiða
600 tonn af þeim kvóta.
Samherji hf gerir Oddeyrina
út, en skipið eiga í sameiningu
Akureyrarbær, sem á 40%, Sam-
herji hf. á 30% og K. Jónsson &
Co á 30%. " EHB
Aðalfundur Siglufjarðardeild-
ar Kaupféiags Eyfirðinga var
haldinn sl. mánudag. Fundinn
sátu Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA og
Björn Baldnrson, fulltrúi á
verslunarsviði. Fram kom á
fundinum að heildarsala í úti-
búi KEA á Siglufirði á árinu
1988 nam 126,8 milljónum.
Söluaukning frá fyrra ári varð
tæp 24%. Launagreiðslur auk
launatengdra gjalda á árinu
1988 námu 11,7 milljónum.
Á fundinum kom fram almenn
ánægja manna með verslun úti-
búsins á Siglufirði og vöruverð.
Almennt hefur tekist að bjóða
vörur á sama verði og í stærri
kjörbúðum KEA á Akureyri (að
versluninni við Hrísalund undan-
skilinni).
Guðleifur Svanbergsson, úti-
bússtjóri, segist vera nokkuð
ánægður með útkomuna á síðasta
ári. Hann bendir á að aukningin í
sölu hafi haldið nokkuð í við
verðbólgustig ársins, m.ö.o. að
tekist hafi að halda nokkuð í
horfinu. Guðleifur segir engar
áætlanir uppi um breytingar á
Mikill áhugi virðist vera á tón-
leikum Sykurmolanna sem
fram fara í íþróttaskemmunni
á Akureyri í kvöld kl. 21. For-
sala aðgöngumiða hófst á
mánudag í Vöruhúsi KEA og
einnig verða miðar seldir við
innganginn en miðaverð er kr.
1000.-.
Sykurmolarnir eru tvímæla-
laust ein allra fremsta popp-
hljómsveit landsins og þó víðar
starfsemi útibúsins á þessu ári
enda verði almennt ríkjandi
aðhald í rekstri Kaupfélagsins á
árinu. óþh
væri leitað. Norðlenskum popp-
tónlistarunnendum gefst hér gull-
ið tækifæri á að fara á einn
stærsta tónlistarviðburð norðan-
lands á árinu og öruggt má telja
að þeir láta ekki þennan stórvið-
burð fram hjá sér fara.
Sykurmolarnir hafa haldið tón-
leika bæði hér heima og erlendis
og alls staðar fengið frábærar
móttökur enda er hér á ferðinni
ein sérstæðasta hljómsveit í
„bransanum". -KK
Akureyri:
Tónleikar Sykur-
molanna í kvöld