Dagur - 19.04.1989, Page 3
Miðvikudagur 19. apríl 1989 - DAGUR - 3
Foreldrar ósáttir vegna skíðaferðalags akureyrskra barna til Siglufjarðar:
„Hefðu bömin verið látin
hýrast á miliidekki togara?“
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráö samþykkti nýlega
að færa Blakdeild KA kr.
100.000.- að gjöf, í tilefni þess
að liðsmenn deildarinnar urðu
íslandsmeistarar í blaki karla
1989.
■ Bæjarráö hefur samþykkt
að taka tilboði Olíufélagsins
Skeljungs lif. í allt að 2500
tonn af asfalti til gatna-
gerðar en alls bárust 8 tilboð.
■ Bæjarráð hefur lagt til að
Jón Sigurðarson forstjóri Ála-
foss hf. verði kosinn varamað-
ur í stjórn Landsvirkjunar í
stað Vals Arnþórssonar.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að styrkja Skíðaráð Akureyr-
ar með fjárstyrk úr bæjarsjóði
að upphæð kr. 150.000.-,
vegna kostnaðar við alþjóð-
legt skíðamót sem haldið var í
Hlíðarfjalli nýlega.
■ Bæjarráði barst nýlega bréf
frá Halldóri Brynjarssyni í.h.
nýstofnaðs fyrirtækis, Vél-
smiðju Akureyrar hf., þar sern
óskað er leyfis bæjarstjórnar
til þess að nota nafn Akureyr-
ar í nafni fyrirtækisins og beð-
ist velvirðingar á þeim mistök-
um sem orðið hafa. Bæjarráð
leggst gegn því að orðið verði
við erindinu.
■ Bygginganefnd hefur vísað
til skipuiagsnefndar erindi frá
Benjamíni Jósefssyni, þar sem
hann sækir um lóð við Hafnar-
stræti sunnan Austurbrúar til
að byggja á iðnaðar- og versl-
unarhúsnæði að grunnfleti ca.
2000 ferm.
■ Skólanefnd hefur sam-
þykkt að mæla með aö Hauk-
ur Harðarson verði ráðinn í
stöðu áfangastjóra II viö
VMA veturinn 1989-1990.
■ Bæjarverkfræðingur lagöi
fram á fundi bæjarráðs nýlega,
uppkast að samningi við Möl
og sand hf. um vinnslu stein-
efna tii malbikunarog flutning
aö malbikunarstöð. Heildar-
upphæð samningsins er kr.
6.785.000.- og samþykkti
bæjarráð hann fyrir sitt leyti.
■ Jón Kr. Sólnes bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins hcfur
tekið við formennsku í félags-
málaráði af Bergljótu Rafnar,
sem hcfur látið af starfi bæjar-
fulltrúa og flutt búferlum til
Reykjavíkur.
■ Stjórn Strætivagna Akur-
eyrar vill í samráði við Félag
aldraða, gera tilraun með að
iáta vagn ferliþjónustunnar
ganga um „ytri brekku“ t.d.
einu sinni á dag í miðbæinn og
til baka. Með tilkomu nýs
leiðakerfis ganga vagnar ekki
lengur um norðurhluta Þór-
unnarstrætis og þar sem nokk-
ur fjöldi roskins fólks býr á
svæðinu, hefur verið ákveðið
að prófa slíkan akstur.
■ Aðalfundur Útgerðarfélags
Akureyringa lif. fer fram
mánudaginn 24. apríl næst-
komandi.
■ Aðalfundur Slippstöðvar-
innar hf. fer fram laugardag-
inn 29. apríl næstkomandi.
■ Aðalfundur Iðnþróunarfé-
lags Eyjafjarðar hf. fer fram
fram föstudaginn 21. apríl
næstkomandi.
„Þegar við sóttum börnin
heyrðun við að fararstjórarnir
voru óánægðir og þau orð voru
látin falla að foreldrarnir
treystu þeim ekki fyrir börnun-
um. En það eru ýmsar spurn-
ingar í þessu máli sem við ósk-
um eftir svörum við, t.d. hvort
það sé löglegt að flytja á 2.
hundrað börn milli hafna í
fiskiskipum, Ijóst er að börnin
hefðu ekki öll getað verið í
borösal," sagði móðir barns
vegna skíðaferðalags um síð-
ustu helgi til Siglufjarðar.
Frásögn mæðranna var eftir-
farandi: Á laugardaginn fóru 130
börn í skíðaferðalag til Siglu-
fjarðar á vegum Skíðaráðs Akur-
eyrar. Farið var í þremur hóp-
ferðabifreiðum. Börnin áttu að
koma aftur um klukkan 20.00 á
sunnudagskvöld. Á sunnudag var
ófært frá Siglufirði vegna snjó-
flóða og kom þá sú tillaga fram
að hugsanlegt væri að senda
börnin með togara frá Siglufirði
til Akureyrar. Þessar fréttir
heyrðu foreldrar í útvarpi á
sunnudagskvöld.
Börnin fóru að lokum með rút-
um til Akureyrar og voru þau
komin þangað á ellefta tímanum
um kvöldið. Mæður, sem höfðu
samband við Dag vegna þessa
máls, sögðu að þeim virtist sú
hugmynd að flytja börnin á skipi
til Akureyrar vera mjög varhuga-
verð og vekja ýmsar spurningar.
„Voru nógu margir fararstjórar
með til að sinna börnunum sem
mörg hver liefðu orðið sjóveik?
Liggur ekki ljóst fyrir að mörg
börn hefðu orðið að hýrast á
millidekki við slæman aðbúnað?
Börnin komu þreytt, bílveik og
svöng úr rútunum, hvernig hefðu
þau komið úr skipinu? Erlendis
hafa orðið ferjuslys og nú síðast
fótboltaslysið í Englandi. Getur
slíkt eða álíka ekki einnig hent
hérlendis? Þetta er ekki spurning
um hvort við vantreystum farar-
stjórunum heldur spurning um
hvort ekki hafi verið staðið vit-
laust að þessu máli. Hvað lá á?
Það hefði ekki skaðað börnin
neitt að vera eina nótt á Siglu-
firði, var staðreyndin ekki sú að
fararstjórunum lá á að komast í
vinnu á Akureyri á mánudags-
morgni?" spurðu konurnar.
Tómas Lárus Vilbergsson var
einn af fararstjórunum í um-
ræddri ferð. Hann hafði eftirfar-
andi að segja um málið: „í fyrsta
lagi voru börnin 94 talsins.
U.þ.b. 20 t'ullorðnir voru með í
ferðinni og var því einn fullorð-
inn á hver 4-5 börn. Hugmyndin
um togarann varð til vegna þess
að snjóflóðahætta var á leiðinni.
Þegar hún kom til umræðu var
Síöustu niánuöina hefur verið
jöfn aukning í framleiðslu og
sölu á svínukjöti. Frá 1. mars í
fyrra til febrúarloka 1989 hefur
innanlandssala aukist uni tæp
24%, miðað viö 1. mars 1987
til febrúarloka 1988. Á þessu
suniu tímabili hefur svínakjöts-
framleiðslan aukist um 24,7%.
Ef aðeins eru bornir saman
febrúarmánuðirnir í ár og í
fyrra kemur í Ijós að fram-
leiösla svínakjöts var 12,5%
meiri í ár og salan 17,1%
ineiri.
Samkvæmt upplýsingum upp-
lýsingaþjónustu landbúnaðarins
á þessi þróun ekki við um allar
tegundir landbúnaðarafurða.
Eins og skýrt hefur verið frá er
gott jafnvægi á sölu og fram-
skafrenningur á Sigluíirði og
veðurútlit slæmt. Tveir læknar
voru með í ferðinni og voru þeir
með í ráðum. Ekki hefði komið
til grcina að hafa börnin annars
staðar en í borðsal eða í kojum ef
farið hefði verið með skipi.
Áhafnir togara hafa alltaf reynst
vel í slíkum tilvikum og aðbúnað-
ur hefur verið góður.
Aðstaðan á Hóli, þar sem gist
var, var slæm vegna þrengsla og
af fleiri orsökum. Mörg börnin
voru orðin peningalítil og nestis-
laus. Það er alltaf umhugsunar-
efni að vera að senda börn í
ferðalög að vetri til. Áður en það
er gert er venjan að senda bréf
hcim til foreldra og þau hvött til
leiðslu mjólkur um þessar mund-
ir en tölur frá Framleiðsluráði
hmdbúnaðarins sýna að miöað
við fyrrnefnd 12 mánaða tímabil
varð 3,4‘Xi samdráttur i fram-
leiöslu frá 1. mars 1988 til febrú-
arloka sl. en samdráttur í sölu var
ntun minni eöa 0,3‘X>.
Svínakjöt er eina landbúnaö-
arafurðin sem sýnir bæði sölu- og
framleiösluaukningu, séu borin
saman tvö 12 mánaða tímabil. Sé
hins vegar febrúarmámuður 1988
borinn saman við febrúarmánuð
1989 kemur annað í Ijós. Þannig
varð 21% framleiðsluaukning á
nautakjöti í febrúarmánuði nú en
hins vegar seldist í þessum mán-
uði 29% minna af nautakjöti en í
febrúar í fyrra.
Tölur Framleiðsluráðs sýna vel
að koma nteð. Þeir foreldrar sem
ekki treysta okkur fyrir börnun-
um, einkum foreldrar yngri barn-
anna, ættu því frekar að koma
með í ferðir sem þessar til að sjá
um sín börn, fremur en að sitja
heima og setja út á.
Eins og veðurútlit var þarna
var öruggast að fara með togara,
ekki síst þar sem fólk hefur ítrek-
að orðið innlyksa í Siglufirði dög-
um saman í vetur. Slíkt hefði
komið sér afar illa, ekki síst með
tilliti til Andrésar-leikanna sem
eru nú að hefjast. Við bárum hag
barnanna fyrst og fremst fyrir
brjósti en alls ekki okkar eigin,"
sagði hann. EHB
hversu miklar sveiflur eru í sölu
og framleiðslu á alifuglakjöti frá
einum ársfjórðungnum til
annars. Ef litið er á samanburö á
tímabilunum 1.3. 1987-28.2. 1988
og 1.3 1988 til 28.2.1989 kemur í
Ijós að samdrátturinn í fram-
leiðslunni er tæp 38% en í söl-
unni 22%. Séu Itins vegar bornir
saman mánuðirnir desember
1987, janúar og febrúar 1988
annars vegar og desember 1988.
janúar og febrúar 1989 hins vegar
kemur í Ijós að framleiðslan
eykst um \2.2% en innahmds-
salan dregst saman um 45%.
Samanburður á framleiðslu og
sölu á lengra tímabili sýnir að
kjötframleiðslan í heild hefur
dregist umtalsvert meira saman
en salan á innanlandsmarkaöi.
JÓH
Framleiðsla og sala á landbúnaðarvörum:
Framleidsluaukning á svínakjöti
helst í hendur viö söluaukninguna