Dagur


Dagur - 19.04.1989, Qupperneq 11

Dagur - 19.04.1989, Qupperneq 11
kvikmyndarýni Umsjón : Jón Hjaltason Oft spyr cg mig þeirrar spurningar hvernig á því standi að dansmyndir ná betur til íslenskra unglinga en aðrar „gerðir“ bíómynda. Liggur hér það sama að baki og gerir auglýsingar mest spennandi sjónvarpsefnið í augum. barna? Ef svo er þá hlýtur Salsa að vera gott efni fyrir fjórtán ára. vorútsala er hafin Komið og gerið góð kaup. M.H. Lyngdal Hafnarstræti 103 Sunnuhlíð 12. Látum dansinn duna Borgarhíó sýnir: Salsa. Leikstjóri: Boaz Davidson. Hvlstu leikendur: Kobby Rosa og Rodney Harvey. Cannon Films 1988. Pó ég sé ekki allajafna vanur að flíka nöfnum framieiðenda mynda þá langar mig að geta þess að tvíeykiö Menahem Golan og Yoram Globus eru mennirnir á bak við Salsa. Pessir tveir eru frægir í kvikntyndasögunni fyrir að bera ekki alltof mikla virðingu fyrir löggiltum samningseyðu- blöðum með vatnsmerki í sér miðjum. En snúum okkur að myndinni. Salsa er dans- og söngvamynd. Hún segir frá bandarískum ungl- ingi (Robby Rosa) af ættkvísl Puerto Ricana en Puerto Rico er ein eyja Vestur-Indía suðvestan Miami. Robby er mikil danshetja og flest ef ekki öll kvöld vikunnar er hann að finna á gólfi skemmti- staðar þar sem iðkaðir eru svo- kallaðir Salsa-dansar. í uppsigl- ingu er mikil danskeppni en sig- urvegari hennar fær að fara til Puerto Rico að sýna snilli sína. Robby hefur sett stefnuna þang- að en á könnu hans er fleira en dansinn. Hann á yngri systur og uppeldisbróður. Pau tvö verða skotin hvórt í öðru en Robby vakir yfir orðspori systur sinnar eins og fálki yfir rjúpu. Hún á að ganga í skóla, læra, og verða eitthvað. Robby veit ekkert um samdrátt þeirra tveggja en verður engu að síður var við að systirin er í tygjum við einhvern. En hvern? Þegar hann kemst á snoð- ir um sannleikann verður fjand- inn laus og uppeldisbróðurnum er tekið blóð. En hvað má ofbeldi sín gagnvart ástinni? Allur þessi hasar kemur niður á dansundirbúningnunr og enn kárnar gamanið þegar fyrrum Salsa-drottning ákveður að pilt- urinn sé dansherrann sem hún þurfi til að endurheimta fyrri frægð. Hængurinn er bara sá að hann hefur dansfélaga, sem er í senn kærasta hans. Afleiðingarn- ar verða ástarsamband í ólgusjó. Þrátt fyrir að ég hafi hér á und- an gert svolítið mál úr söguþræði Salsa þá er sannleikurinn sá að myndin snýst að langmestu leyti um dans, leikararnir dansa sig í gegnum hlutverkin og danshöf- undar eru bersýnilega einu höf- undarnir sem hafa fengið eitt- hvað að semja að ráði fyrir þessa mynd. Með öðrum orðum, sögu- þráður Salsa er algjör aukageta og alls ekki spunninn meira en brýna nauðsyn rekur til. En gerir Fundur um stöðuna í kjaramálunum Fulltrúaráð Kennarasambands íslands ákvað að boða ekki til atkvæðagreiðslu um verkfall að svo stöddu í von um að hægt væri að semja um mannsæmandi kjör félagsmönnum til handa. Ríkis- valdið hefur ekki verið á þeirn buxunum að bæta kjör kennara svo nokkru nemi, hvorki hjá Kennarasambandi íslands né Hinu íslenska kennarafélagi. Treglega hefur gengið að fá Samninganefnd ríkisins til við- ræðna við Kennarasambandið og því verður eitthvað að fara að gerast. Þess vegna hefur stjórn Bandalags kennara á Norður- landi eystra (BKNE) ákveðið að halda fund í Alþýðuhúsinu á Akureyri, miðvikudaginn 19. apríl nk., kl. 15.00. Stjórn Bandalags kennara á Norðurlandi eystra. Barn situr þægilega og öruggt í barnabílstól. Það á það skilið! IUMFERÐAR Iráð þetta Salsa aö vondri mynd? Þeg- ar ég hafði horft í korter sagði ég við sjálfan mig: „Þetta er eins og kókauglýsing, feiknarlegt fjör, allir brosandi ef ekki skellihlægj- andi, - boðskapurinn - vertu kát- ur ogsætur, hafðu það gott, lífið er leikur.-' Og auövitaö fýlir þungt þenkjandi kvikmynda- gagnrýnandinn grön viö slíku alvöruleysi og slíkri léttúð. Salsa var vegin og léttvæg fundin. Þeg- ar betur er að gáö verður bert að efast má um réttmæti mælistiku rýnisins. Salsa dregur upp mynd af heilbrigðu ungu fólki, það skemmtir sér án áfengis (yfir- leitt), reykir ekki eða er upp á aðra vímugjafa komið. Það dans- ar og ánægjan vcrður þess. Það er mikil hreyfing í myndinni, góð tónlist og kynæsandi dans. Salsa er unglingamynd og verður að skoðast út trá því sjónarhorni. Verkalýðsfélagið Eining Stjórnarkjör samræmi viö lög félagsins fer kjör stjórnar, vara- stjórnar og trúnaöarmannaráös, varamanna í trún- aöarmannaráö, endurskoöenda og varamanns þeirra fram aö viðhafðri allsherjaratkvæöagreiöslu. Hér meö er auglýst eftir framboöslistum til ofan- greindra starfa og skal þeim skilað til skrifstofu félagsins í Skipagötu 14 á Akureyri eigi síðar en kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 27. apríl nk. Á hverjum lista skulu vera nöfn 7 manna í aðalstjórn, 5 í varastjórn, 23 í trúnaðarmannaráð (valdir með til- liti til búsetu sbr. félagslög) og 23 til vara, 2ja endur- skoðenda og eins til vara. Þá skulu fylgja hverjum lista meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. Akureyri 17. apríl 1989. Stjórn Verkalýðsféiagsins Einingar. VIÐ FLYTJUM Á SUMARDAGINN FYRSTA IDKAÐÁ FÖSTUDAG Húsnœðisstofnun ríkisins og Veðdeild Landsbanka íslands flytja í nýtthúsnœði fimmtudaginn 20. apríl. Vegna flutninganna verður einnig lokað föstudaginn 21. apríi. Mánudaginn 24. apríl hefst starfsemi okkar á ný með eðlilegum hœtti. Við flytjum oð SUÐURLANDSBRAUT 24. Símanúmer Húsnœðisstofnunar verður áfram 69 69 00 og símanúmer Veðdeildar er einnig óbreytt, 60 60 55. HUSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.