Dagur - 19.04.1989, Page 15
Miðvikudagur 19. apríl 1989 - DAGUR - 15
íþróttir
Andrésar Andar leikarnir:
Hér sést stuðningskjarninn afhenda Aðalsteini Sigurgeirssyni formanni Þórs gögn yfir starfsemina. Talið frá vinstri:
Jóhanna Gunnarsdóttir, Kristjana Benediktsdóttir, Hanna Rúna Jóhannsdóttir, Sigurlína Sigurgeirsdóttir, Dröfn
Þórarinsdóttir og Kolbrún Þormóðsdóttir.
Ganga:
Lambagangan
fór vel fram
- dræm þátttaka
en gott veður
Lambagangan 1989 fór fram á
laugardaginn. Þrátt fyrir hið
besta veður og gott skíðafæri
var þátttaka frekar dræm.
Gangan fór þó hið besta fram
og sá Hjálparsveit skáta um að
leggja brautina og um brautar-
vörsluna.
Árni Freyr Antonsson sigraði í
flokki karla 17-34 ára, Sigurður
Aðalsteinsson í flokki 35-49 ára
og Rúnar Sigmundsson í flokki
50 ára og eldri.
Lambagangan er ein af fimm
almenningstrimmgöngum, sem
er bikarkeppni undir samheitinu
íslandsgangan. Auk Lambagöng-
unnar eru afstaðnar Bláfjalla-
gangan í Reykjavík og Fjarðar-
gangan á Ólafsfirði. Eftir eru
Skógargangan á Egilsstöðum og
Fossavatnsgangan á ísafirði.
Lítum þá úrslit:
Karlar 17-34 ára:
1. Árni Freyr Antonsson A 1:37.48
Karlar 35-49 ára
1. Sigurður Aðalsteinsson A 1:35.32
2. Sigurður Bjarklind A 1:43.07
3. Sigurður Gunnarsson í 1:45.33
Karlar 50 ára
1. Rúnar Sigmundsson A 1:56.03
2. Þorlákur Sigurðsson A 1:59.34
Frá setningu leikjanna árið 1987.
Settir í Hölliimi í dag
- fjölmennasta skíðamót landsins
Andrésar Andar leikarnir á
skíðum verða settir í íþrótta-
höllinni í kvöld kl. 20.30. Þetta
er fjölmennasta skíðamót sem
haldið er á landinu í ár og er
búist við rúmlega 600 kepp-
endum á mótið að þessu sinni.
Þar að auki fylgja þessum
fjölda rúmlega 100 farastjórar
og búist er við að sami fjöldi
starfi við mótið.
Skrúðganga verður frá Lunda-
skóla að íþróttahöllinni og
hefst hún kl. 20.30. Búist er
við að koma að Höllinni rétt fyrir
21.00. Þar mun séra Pálmi Matt-
híasson halda snrá tölu en það
verður síðan Daníel Hilmarsson
skíðakappi frá Dalvík sem setur
mótið, en hann steig einmitt sín
fyrstu skref á Andrésar Andar-
leikunum á sínum tíma. Síðan
verður mótseldurinn tendraður
og keppendur munu eftir það
halda aftur upp í Lundarskóla.
Síðan hefst keppnin í fyrramálið,
fimmtudag kl. 10.00.
Hlíðarfjall verður undirlagt af
þessari keppni fram á laugardag,
en verðlaunaafhendingar verða í
íþróttahöllinni á kvöldin og ann-
að kvöld, fimmtudag, verður þar
heilmikil kvöldvaka þar sem m.a.
Valgeir Guðjónsson mun
skemmta. Einnig keppa farar-
stjórar hinna mörgu hópa í ýms-
um þrautum sín á milli.
Knattspyrna:
Tindastólsliðið sterkt
- vann ÍBK 5:3 og gerði 0:0 jafntefli við ÍA
Knattspyrnuliö Tindastóls,
seni leikur í 2. deild, lék
nokkra æfingaleiki fyrir sunn-
an um síðustu helgi. 25 leik-
menn voru með í för og léku a-
og b-lið við 1. deildarlið ÍBK
og IA. Agætis árangur náðist í
leikjunum, a-liðið vann Kella-
vík 5:3 og gerði markalaust
jafntefli við Akurnesinga. B-
liðið tapaði hins vegar báðum
sínum leikjum.
Leikið var gegn Keflavík á
laugardag. A-liðið komst í 1:0,
en ÍBK breytti stöðunni í 3:1.
Eftir það tóku leikmenn Tinda-
Stuðningskjarni kvennadeildar Þórs:
Skiluðu hallalausuni rekstri
Lengi var óvíst hvort Þór
myndi senda lið í 1. deildina í
kvennahandknattleik í vetur.
Þá tóku nokkrar áhugasamar
stúlkur sig saman og mynduðu
stuðningsmannakjarna og tóku
að sér að sjá um rekstur á
kvennaflokknum. Þær gerðu
það með þeim sóma að búið er
að greiða alla reikninga, þjálf-
arakostnað og annað tilfall-
andi.
- og vel það
Þær gerðu einnig
gott
betur og skiluðu örlitlum hagn-
aði eftir veturinn og á hann að
notast til að styðja við kvenna-
handboltanum næsta vetur.
Að sögn Kolbrúnar Þormóðs-
dóttur, sem sæti á í stuðnings-
mannakjarnanum, hefur þetta ver-
ið mikið starf en ánægjulegt. Gert
var ráð fyrir að reksturinn myndi
kosta um 700 þúsund. En eins og
hagsýnna húsmæðra er von og
vísa, „auk fjölmargra símhring-
inga“, skaut Kolbrún inn í, tókst
þeim að koma kostnaði við
kvennadeildina niður í rúmlega
500 þúsund.
Þær stúlkur vilja senda þeim
fyrirtækjum og einstaklingum
sem studdu við starfið kærar
þakkir og láta það koma fram að
án þessa stuðnings hefði þcssi
árangur ekki náðst.
stóls öll völd á vellinum og gerðu
næstu fjögur mörk. Mörkin skor-
uðu Marteinn Guðgeirsson,
Eyjólfur Svcrrisson, Ólafur
Adolfsson, Magnús Jóhannesson
og Ingvar Guðfinnsson. B-lið
Tindastóls tapaði 5:2 fyrir b-liði
ÍBK, mörk Tindastóls gerði
Guðbrandur G uðbrandsson.
Á sunnudag var svo haldið til
Akraness. Tindastóll skoraði
engin mörk í þeirri ferð, a-liöið
með markalaust jafntefli og b-lið-
ið tapaði 5:0. Þess má geta að a-
lið ÍÁ brenndi af vítaspyrnu und-
ir lok leiksins. -bjb
Handknattleikur:
Lokahóf
handboltans
- haldið í Digranesi
Lokahóf 1. deildarfélaga í
handknattleik veröur haldið í
íþróttahúsinu á Digranesi
næstkomandi laugardags-
kvöld. Þar verður tilkynnt um
kjör bestu leikmanna, bestu
dómarana og ýmis önnur verð-
laun. Einnig verður þarna
margt sér til gamans gert og
verður enginn svikinn af
skemmtiatriðunum.
Heiðursgestur kvöldsins verð-
ur Davíð Oddsson borgarstjóri
en veislustjóri verður Arnþrúður
Karlsdóttir. Hátíðin byrjar kl.
19.30 og þeir sem áhuga hafa á
þessari hátíð geta hringt í skrif-
stofu HSÍ og pantað miða þar.
Keppendur búa tlestir í
Lundarskóla og þaðan er keyrt
með þá upp í Hlíðarfjall. Oll
verðlaun fyrir þetta mót gefur
Skipadeild SÍS og einnig gefa
Akureyrarbær og danska útgáfu-
fyrirtækið, sem gefur út Andrés
Önd, sérstök verðlaun til
minningar um mótið.
Þetta eru 14. leikarnir sem
haldnir eru og þeir fjölmennustu
hingað til. Þeir voru fyrst haldnir
árið 1975 og þá voru keppendur
rúmlega 100. Nú er fjöldinn kom-
inn upp í 600 og það er vitað að
skíðakrakkar um land allt bíða í
ofvæni eftir þessum leikjum á
hverjum vetri.
Mótinu verður síðan slitið kl.
16.00 á laugardaginn í íþrótta-
höllinni og munu þar allir kepp-
endur fá afhent verölaun frá
danska forlaginu og einnig öll
úrslit á Andrésar Andar leikun-
um árið 1989.
Karfa:
Jón Kr. og
Guðmundiir
með UMFT
- gegn Ungverjunum
Nú er Ijóst hvaða lánsmenn
munu leika með Tindastóli
gegn ungversku meisturunum
Csepel á sumardaginn fyrsta.
Þeir eru ekki af verri endan-
um, báðir landsliðsmenn, þeir
Guðmundur Bragason UMFG
og Jón Kr. Gíslason, þjálfari
og leikmaður íslandsmeistara
Keflvíkinga. Þeir munu án efa
styrkja lið Tindastóls mikið.
Þá er Ijóst að Haraldur Leifs-
son mun leika með annað
kvöld, og er hann orðinn góð-
ur af meiðslum sem hrjáðu
hann. Kári Marísson leikur
ekki með sökum meiðsla, en
verður þess í stað liðsstjóri
Tindastóls.
Það stefnir í að það verði sann-
kölluð körfuboltahátíð á Sauðár-
króki á sumardaginn fyrsta.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
vinnur nú að því að undirbúa mót
fyrir yngstu körfuboltamennina,
úr minni-bolta og 6. flokki, og á
það mót að fara fram um daginn.
Ætlunin er að bjóða nokkrunr
félögum að koma með lið í
keppnina. Það ætti því að verða
upplifun fyrir guttana að sjá stór-
leik um kvöldið, að móti loknu.
Fyrir leikinn verða leikmenn
kynntir að NBA-hætti, og tónlist
leikin á meðan á leiknum
stendur.
Sumargleði
golfmanna
- að Jaðri í kvöld
Golfklúbbur Akureyrar heldur
sinn árlega sumarfagnað að
Golfskálanum að Jaðri í kvöld.
Skemmtunin hefst með for-
drykk kl. 19.30 og verður síðan
framhaldið um kvöldið með
þríréttuðum matseðli og
skemmtiatriðum.
Skemmtiatriðin eru mörg og
margvísleg og eiga mörg þeirra
sjálfsagt eftir að koma mjög á
óvart og vera á flestra vörum
næstu vikurnar. Það er hin hressa
hljómsveit Finns Eydal sem leik-
ur fyrir dansi og eru félagar GA
og aðrir velunnarar klúbbsins
hvattir til að fjölmenna og fagna
sumarkomu.