Dagur - 04.05.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 4. maí 1989
Hafnarstjórn Sauðárkróks óánægð með hafnaáætlun 1989-1992:
Fyrirsjáanlegt öngþveiti í Sauð-
árkrókshöfii á næstu árum
- miðað við þær framkvæmdir sem ríkið ætlar sér að Qármagna
Hafnaáætlun fyrir árin 1989-
1992, sem lögð hefur verið
fram á Alþingi sem tillaga til
þingsályktunar, fellur ekki í
kramið hjá Hafnarstjórn Sauð-
árkróks. Samkvæmt áætlun-
inni á Sauðárkrókshöfn að fá
75,4 milljónir á árunum ’89-
'92, en Hafnarstjórn telur þá
upphæð ónóga. Aðallega er
óánægja með að engar fjár-
Fjölmiðlanámskeið Sambands
ungra framsóknarmanna og
kjördæmissambandanna verð-
ur haldið á Akureyri laugar-
daginn 6. maí n.k.
Efni námskeiðsins er tvíþætt.
Áhrif fjölmiðla annars vegar og
framkoma í sjónvarpi hins vegar.
Leiðbeinandi er hinn kunni
fréttamaður Helgi Pétursson.
Sem fyrr segir verður nám-
skeiðið haldið á Akureyri um
Síðastliðinn laugardag afhenti
forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, 24 dróttskát-
um forsetamerki, sem er æðsta
viðurkenning sem skátar geta
fengið. Merki þetta hefur verið
veitt allt frá árinu 1967 en var
þó ekki veitt á síðasta ári
vegna skipulagsbreytinga sem
þá var verið að gera á skáta-
starfinu. Starf dróttskáta er
mjög öflugt á Akureyri sem
sést best á því að 23 þeirra sem
tóku við viðurkenningu forset-
ans á laugardaginn koma það-
an.
Dróttskátar eru skátar á aldr-
inum 15-18 ára. Viðurkenning
þessi er veitt skátum sem lokið
hafa ákveðnum verkefnum á
veitingar hafí verið veittar fyrir
þetta ár, en í framkvæmda-
áætlun Hafnarstjórnar hafði
verið gert ráð fyrir fram-
kvæmdum við 1. áfanga stál-
þils á Norðurgarði, á þessu ári.
I hafnáætlun er þessi fram-
kvæmd felld út.
Hafnarstjórn fundaði í síðustu
viku um málið og samþykkti svo-
hljóðandi athugasemdir og
næstu helgi, nánar tiltekið á skrif-
stofu Framsóknarflokksins að
Hafnarstræti 90. Það hefst
kl. 13.00.
Enn er hægt að bæta örfáum
þátttakendum við á námskeiðið.
Þeir sem hafa áhuga þurfa að
hafa samband við Sigfús Karisson
(s. 96-23441) í dag, uppstigning-
ardag. Hann veitir einnig nánari
upplýsingar um námskeiðið ef
óskað er.
sviði útilífs og við foringjastörf. í
gegnum tíðina hefur starf drótt-
skáta verið það öflugt á Akureyri
að þeir hafa mjög auðveldlega
náð þeim áfanga að fá forseta-
merki. Því skipta þeir nú orðið
hundruðum skátarnir á Akureyri
sem fengið hafa forsetamerki.
f
Athöfnin á laugardaginn fór
þannig fram að forseti og skáta-
höfðingjar ávörpuðu skátana í
Bessastaðakirkju en að því loknu
afhenti forseti merkin og skáta-
höfðingi afhenti viðurkenning-
arskjöl. Að lokinni athöfninni
bauð forsetinn síðan til veislu í
bústað forseta. Samkvæmt venj-
unni voru tekin nokkur skátalög
og að vanda tók frú Vigdís virkan
þátt í söngnum. JÓH
ábendingar við þingsályktunar-
tillöguna: „Svo virðist vera að
ekki hafi tekist að koma því til
skila við stjórnvöld hversu brýnar
framkvæmdir við Sauðárkróks-
höfn eru. Framkvæmdir eru eng-
ar við höfnina á þessu ári. Farið
var fram á 29.275 þús. sem hluta
ríkissjóðs á þessu ári eða heild-
arframkvæmdir að upphæð kr.
34.500 þús. Áætlun fyrir næsta ár
gerir ráð fyrir 18,4 milljónum
króna framlagi úr ríkissjóði, sem
hvergi nálgast þær þarfir, sem
bráðnauðsynlegt er að leysa við
Sauðárkrókshöfn. Skipakomur
árið 1988 voru tæplega 600 skip,
þ.e. kaupskip og fiskiskip.
Rétt er að vekja athygli á að 1
togari hefur bæst í skipaflota
Sauðkrækinga, svo og stórt
rækjuskip, þá mun og koma nýr
bátur til Sauðárkróks í sumar.
Fyrirsjáanlegt er því, að öng-
þveiti verður í Sauðárkrókshöfn
á næstu árum, miðað við þær
framkvæmdir sem ríkið ætlar sér
að fjármagna.
Hafnarstjórn Sauðárkróks
skorar á alþingismenn Norður-
lands vestra, Hafnaráð, Hafna-
málastofnun og Samgöngumála-
ráðuneytið aö gera nauðsynlegar
breytingar á hafnaáætlun svo
Sauðárkrókshöfn geti þjónað því
lágmarkshlutverki sem henni er
ætlað. Slík verkefni hljóta að
vera forgangsverkefni við hafnir
á íslandi." -bjb
Áformum
Bygginganefnd Akureyrarbæj-
ar hefur fjallaö um erindi frá
Haraldi Arnasyni, þar sem
hann f.h. SS Byggis hf. sækir
um samþykkt á tillöguteikn-
ingum af verslun og gistiíbúð-
um á lóð nr. 2 við Hlíðarlund.
Nefndin tók jákvætt í erindið
en samþykkti ekki framlagðar
teikningar sem tillöguteikning-
ar.
Jafnframt fór bygginganefnd
fram á að sett verði sérstök reglu-
gerð sem tryggi að íbúðirnar
verði flokkaðar sem gistiíbúðir,
þ.e. að tryggt verði að þær verði
Akureyri:
Fjölmiðlanámskeið
SUF um helgina
Stór hópur skáta frá Akureyri:
Hlaut viðurkenrmigu forseta
Akureyri:
Aur og skít makað á gæsluvallarhús
Aðkoman var ekki fögur þegar
starfsfólk gæsluvallarins við
Sunnuhlíð á Akureyri mætti til
starfa 2. maí síðastliöinn. Þar
höfðu krakkar vægast sagt tek-
ið til hendinni, plægt upp hluta
af lóðinni og makað aur og
öðrum óskapnaði á veggi vall-
arhússins og hent drullu inn í
það.
Þá höfðu sorpílát orðið fyrir
barðinu á hinum athafnasömu
krökkum og varð starfsfólkið að
gjöra svo vel að eyða fyrstu
vinnustundum sínum á þessu
sumri í það að þrífa upp ósóm-
ann. Starfsfólkið vill koma þeirri
ábendingu á framfæri við foreldra
að umgengnismál af þessu tagi
verði rædd við börnin.
í þessu sambandi má geta þess
að bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti tillögu dagvistarfulltrúa,
sem félagsmálaráð hafði áður
samþykkt, að breyta starfstíma
gæsluvalla sumarið 1989. Þeir
voru því opnaðir 2. maí í stað 15.
og þeim verður lokað 1. septem-
ber í stað 15. Þetta á við um þá
velli sem ekki eru starfræktir allt
árið. SS
Þannig var aðkoman að gæsluvellinum þegar starfsfólk mætti þar til vinn
þriðjudaginn 2. maí. Mynd: K
Sundlaugargestir prófa nýju pottana og ekki annað að sjá en þeim líki vel.
Mynd: -bjb
Sundlaug Sauðárkróks:
Um 850 manns komu
í heitu pottana
- fyrstu þrjá dagana
Heitu pottarnir tveir við Sund-
laug Sauðárkróks voru opnaðir
sl. föstudag. Þann dag var
ókeypis í laugina og nýttu sér
það fjölmargir í blíðskapar-
veðri. Frá kl. 7.00-9.30 og
13.00-21.00 komu um 400
manns í laugina og gera má ráð
fyrir að allflestir liafi stigið
ofan í nýju pottana. Á laugar-
dag og sunnudag komu síðan
um 450 manns, þannig að
fyrstu þrjá opnunardaga heitu
pottanna komu um 850 manns
í Sundlaug Sauðárkróks.
Guðmundur Jensson, for-
stöðumaður Sundlaugarinnar,
sagðist í samtali við Dag vera
ánægður með þessa aðsókn og
vonaðist til að hún héldist áfram.
Guðmundur sagði að fólk væri
yfirleitt ánægt með nýju pottana.
í pottunum tveim geta um 30 full-
orðnir setið, en mun fleiri börn
geta verið í þeim í einu.
Aðalverktaki við byggingu
híjifu þottana var Kriútur
Áádnegaard og undirverktakar
voru Hörður Ölafsson, sem sá
um pípulagnir, Björn Ottósson
sá úm múrverk og raflagnir voru í
höndum Rafsjár h/f. -bjb
Hlíðarlundur:
verslun og gistiíbúðir
ekki seldar á almennum markaði þetta íbúðir sem mætti líkja við
sem heilsársíbúðir og eigenda-
skipti verði háð samþykki bygg-
inganefndar.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi vakti athygli á þessari
bókun á fundi bæjarstjórnar og
taldi hugtakið gistiíbúðir óljóst.
Sigfús Jónssonn bæjarstjóri
svaraði því til að sennilegast væru
mótel erlendis, þ.e. leigðar út í
stuttan tíma, t.d. eina nótt eða
eina viku. Hann sagði að þetta
væru aðeins tvær íbúðir, 25 og 34
fermetrar, og gert væri ráð fyrir
húsverði og verslun í húsinu.
Hins vegar taldi hann erindið of
óljóst, s.s. varðandi leigutíma, til
að bæjarstjórn gæti fjallað um
það að svo stöddu. SS
Vormót B.A.:
Anton o g Pétur sigruðu
- Aðalfundur B.A. haldinn 9. maí nk.
Pétur Guðjónsson og Anton
Haraldsson sigruðu I Vormóti
Bridgefélags Akureyrar sem
lauk s.l. þriðjudagskvöld.
Vormótið var síðasta mót
vetrarins hjá B.A*., þriggja
kvölda tvímenningsmót með
Mitchell-fyrirkomulagi. 22 pör
tóku þátt í mótinu.
Lokastaða efstu para varð
þessi:
Stig
1. Pétur Guðjónsson
- Anton Haraldsson: 768
2. Stefán Vilhjálmsson
- Guðmundur Víðir: 723
3.-4. Hörður Steinbergsson
- Örn Einarsson: 702
3.-4. Ármann Helgason
- Alfreð Pálsson: 702
5.-6. Soffía Guðmundsdóttir
- Hermann Tómasson: 697
5.-6. Kristján Guðjónsson
- Stefán Ragnarsson: 697
7. Grettir Frímannsson
- Frímann Frímannss.: 690
8. Haukur Harðarson
- Haukur Jónsson: 688
9. Ormarr Snæbjörnsson
- Jónas Róbertsson: 683
10. Tryggvi Gunnarsson
- Reynir Helgason: 682
Keppnisstjóri var Albert Sig-
urðsson en reiknimeistari Mar-
grét Þórðardóttir.
Aðalfundur Bridgefélags
Akureyrar verður haldinn n.k.
þriðjudag, 9. maí, kl. 19.30. í
Félagsborg. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa fer fram verð-
launaafhending fyrir mót vetrar-
ins. Að því loknu býður félagið
upp á kaffi og með því og að
sjálfsögðu verður gripið í spil að
loknum fundi. Félagar eru hvattir
til að fjölmenna.
Leiðrétting
í dálkinum „Úr bæ og byggð -
messur" í blaðinu í gær var rang-
hermt að „Stólvers" sem flutt
verður í guðsþjónustu í Akureyr-
arkirkju í dag, sé eftir Björgvin
Guðmundsson. Höfundur lagsins
er Björgvin Jörgensson.
Þetta leiðréttist hér með og eru
hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á rangherminu.