Dagur - 04.05.1989, Page 10
10 DAGUR i-Flt«írituctagú r4 j«1ai !«W0í
'I myndasögur dags
ÁRLAND
BJARGVÆTTIRNIR
# Maraþonþögn
Það er alkunna, að grunn-
skólanemar hafa oft tekið
upp á alls konar uppátækj-
um til þess að safna sér í
ferðasjóði. Maraþondans, -
námsseta og -göngur
hverskonar eru t.d. vinsæl
uppátæki, en við rákumst á
frétt i landsmálablaðinu
Austra á dögunum sem seg-
ir einmitt frá fjáröflun
nemenda í 7. og 8. bekk í
Staðarborg í Breiðdal. Þeir
hyggjast leggja leið sína til
Gotlands í sumar og vantar
drjúgan pening til ferðarinn-
ar. Akveðið var að efna til
maraþonþagnar i heilan sól-
arhring og safna áheitum
sem námu frá 5-50 krónum
á klukkustund. Söfnun
áheita gekk vel og hét fólk
og fyrirtæki óspart á krakk-
ana. í fréttinni segir, að ein-
hver hafi skrifað á áheita-
listann að hann skyldi
borga álitlega upphæð ef
þau þegðu til hausts, en það
var víst bara grín.
# Skólastjórinn
fékk ekkert
svar
Á síðasta vetrardag var
munnum lokað kl. 17.00 og
skiptust síðan foreldrar á
um að sitja yfir þeim og
gæta þess að enginn segði
orð. Krakkarnir fengu að
hafa útvarp, þau fengu
hvers kyns góðgæti og fóru
i gönguferðir til að halda sér
vakandi og viti menn, ekkert
hljóð kom fram á þeirra
varir. Skólastjórinn ku
meira að segja hafa litið inn
til þeirra kl. 08.00 að morgni
sumardagsins fyrsta og
boðið gleðilegt sumar, en
enginn svaraði honum.
Þegar sólarhringurinn var
liðinn, fannst krökkunum
nóg komið eftir 36 tíma
vöku, en ferðasjóðurinn var
kominn í 93 þúsund krónur
svo segja má, að þögnin
hafi haft sitt að segja!
# Dreptu á
bílnum!
Við skulum halda okkur við
Austra, en í sama blaði er
frétt um átak sem á sér stað
á Egilsstöðum, gegn meng-
un frá bílum og tækjum sem
látin eru ganga í kyrrstöðu.
S&S finnst átakið tímabært,
því alkunna er að mengun
sem þessi er ekki aðeins
hvimlefð, heldur mjög
algeng á stöðum þar sem
fólk stoppar stutt við.
Smekkleg skilti verða hönn-
uð og þau sett upp víða um
bæinn og hefur eitt slíkt t.d.
verið sett upp við leikskól-
ann á Egilsstöðum. Á því
stendur einfaldlega: „Vin-
samlegast dreptu á bíln-
nm “
Akureyri
Akureyrar Apótek .......... 2 24 44
Dagur...................... 2 42 22
Heilsugæslustöðin......... 2 23 11
Tímapantanir............ 2 55 11
Heilsuverno............. 2 58 31
Vaktlæknir, farsimi ... 985-2 32 21
lögreglan.................. 2 32 22
Slökkvistööin, brunasimi . 2 22 22
Sjúkrabill ................ 2 22 22
Sjúkrahús ................. 2 21 00
Stjörnu Apótek............. 2 14 00
2 37 18
Blönduós
Apótek Blönduóss ........... 43 85
Sjúkrahús, heilsugæsla...... 42 06
Slökkvistöð ................ 43 27
Brunasími....................41 11
Lögreglustöðin.............. 43 77
Breiðdalsvík
Heilsugæsla............. 5 66 21
Daivík
Heilsugæslustöðin.........61500
Heimaslmar ............. 6 13 85
61860
Neyðars. læknir, sjúkrabill 6 13 47
Lögregluvarðstofan........612 22
Dalvíkur apótek...........61234
Djúpivogur
Sjúkrabíll ........... 985-2 17 41
Apótek ................... 8 89 17
Slökkvistöð .............. 8 81 11
Heilsugæsla............... 8 88 40
Egilsstaðir
Apótek ................... 1 12 73
Slökkvistöð .............. 1 12 22
Sjúkrah.-Heilsug.......... 1 14 00
Lögregla.................. 1 12 23
Eskifjörður
Heilsugæsla.................61252
Lögregla...................6 11 06
Sjúkrabill ............ 985-217 83
Slökkvilið ...............612 22
Fáskrúðsfjörður
Heilsugæsla.............. 512 25
Lyfsala..................512 27
Lögregla.................5 12 80
Grenivík
Slökkviliðið............... 3 32 77
3 32 27
Hofsós
Slökkvistöð ................ 63 87
Heilsugæslan................ 63 54
Sjúkrabill ................ 63 75
Hólmavík
Heilsugæslustöðin.............. 31 88
Slökkvistöð.....................31 32
Lögregla.......................'32 68
Sjúkrabill ................. 31 21
Læknavakt...................... 31 21
Sjúkrahús .................. 33 95
Lyfsalan........................31 88
Hvammstangi
Slökkvistöð.................. 14 11
Lögregla..................... 13 64
Sjúkrabill .................. 1311
Læknavakt.................... 1329
Sjúkrahús ................... 13 29
13 48
Heilsugæslustöð.............. 13 46
Lyfsala...................... 13 45
Kópasker
Slökkvistoð .............. 5 21 44
Læknavakt..................5 21 09
Heilsugæslustöðin........ 5 21 09
Sjukrabíll ........... 985-217 35
Neskaupstaður
Apótek................... 711 18
Lögregla.................7 13 32
Sjúkrahús, sjúkrabíll....7 14 03
Slökkvistöð ............. 7 12 22
Ólafsfjörður
Ólafsfjarðar apótek........ 6 23 80
Lögregluvarðstofan......... 6 22 22
Slökkvistöð ............... 6 21 96
Sjúkrabill ............... 6 24 80
Læknavakt...................6 21 12
Sjúkrahús - Heilsugæsla .... 6 24 80
Raufarhöfn
Lögreglan - Sjúkrabíll...5 12 22
Læknavakt................ 5 12 45
Heilsugæslan............. 5 11 45
Reyðarfjörður
Lögregla.....................6 11 06
Slökkvilið ................. 4 12 22
Sjúkrabíll ............. 985-2 19 88
Sjúkraskýli .................4 12 42
Sauðárkrókur
Sauðárkróksapótek ......... 53 36
Slökkvistöð ............... 55 50
Sjúkrahús ................. 52 70
Sjúkrabill ................ 52 70
Læknavakt.................. 52 70
Lögregla................... 66 66
Seyðisfjörður
Sjúkrahús ...............2 14 05
Læknavakt................ 2 12 44-
Slökkvilið ..............212 22
Lögregla.................213 34
Siglufjörður
Apótekið .................. 7 14 93
Slökkvistoð ............... 7 18 00
Lögregla................... 7 11 70
'713 10
Sjúkrab. - Læknav. - Sjúkrah. 7 11 66
Neyðarsimi ................ 7 16 76
Húsavík
Húsavikur apótek.......... 41212
Lögregluvarðstofan........4 13 03
41630
Heilsugæslustöðin.........413 33
Sjúkrahúsið............... 4 13 33
Slökkvistöð............... 4 14 41
Brunaútkall .............. 4 19 11
Sjúkrabíll ............... 4 13 85
Vorhefti Skímis
komið út
Vorhefti Skírnis, Tímarits Hins
íslenska bókmenntafélags, 163.
árg. er komið út.
í heftinu eru 12 greinar og
fjalla þær um bókmenntir, sögu
og íslenska búhætti. En Skírnir
hefur einnig að geyma efni sem
erfiðara er að draga í dilka, svo
sem grein eftir Guðberg Bergs-
son er nefnist „Um ásthneigð í
bókmenntuni og lífinu". Loftur
Guttormsson skrifar grein um
íslenska ábúðarhætti á 18. öld og
leitar m.a. svara við því að hve
miklu leyti þeir hafi ráðist af fjöl-
skyldutengslum. í „Skírnismál-
um“ er einnig fjallað um skipan
mála í íslenskum sveitarfélögum,
því þar skrifar Sigurður Líndal
„Vörn fyrir hreppa og þúsund ára
gamalt stjórnkerfi".
í heftinu birtist í fyrsta sinn í
heild á íslensku hinn kunni inn-
gangur danska bókmennta-
fræðingsins Georgs Brandesar að
tímamótaverkinu Meginstraum-
um. Þýðandi er Jón Karl Helga-
son og birtir hann jafnframt rit-
gerð um tengsl milli Brandesar
og tveggja talsmanna raunsæis í
íslenskum bókmenntum, þeirra
Gests Pálssonar og Hannesar
Hafstein. Örn Ólafsson á í Skírni
grein um einkenni expressjón-
isma í smásögum Halldórs
Stefánssonar.
Tvær greinar eru um Sturl-
ungu\ „Hart er í heimi, hórdóm-
ur mikill“ eftir Úlfar Bragason og
„Eitt sinn skal hver deyja“ eftir
Guðrúnu Nordal. Helgi Þorláks-
son skrifar grein sem einnig fjall-
ar um íslenska arfinn, nánar til-
tekið um nýjar bækur er birst
hafa erlendis um íslenska þjóð-
veldið. Flokkast grein Helga
undir „Greinar um bækur“, en
Skírnir hefur nú lagt niður venju-
lega ritdóma og tekið upp greina-
flokk sem á að rúma margskonar
umfjöllun um bækur eins og rit-
stjóri greinir frá í pistli sínum.
Undir þennan flokk heyrir einnig
grein eftir Þóri Óskarsson um
nýlegar Ijóðabækur Hannesar
Sigfússonar og Sigfúsar Daða-
sonar, grein Baldurs Gunnars-
sonar um skáldsögu Vigdísar
Grímsdóttur, Kaldaljós, og grein
Kenevu Kunz um rit Heimis Páls-
sonar og Höskuldar Þráinssonar,
Um þýðingar.