Dagur - 04.05.1989, Page 11
Firhmtudagúr>4. maí 19B9 - DAGUR11;
áfengismál
1. grein
Svolítið um sjúk-
dóminn alkóhólisma
Alkóhólismi er sjúkdómur. Allt
frá því fyrstu vínberin voru
sprengd hafa menn drukkið
áfengi til að finna til ölvunaráhrif-
anna, verða mjúkir, geta slakað á
hömlum og glaðst á góðra vina
fundi. Um þá vellíðan sem fylgir
ölvunaráhrifunum hafa menn
samið ótal vísur og lofsungið í
hástert gleðina sem glas í góðum
hópi gefur. Jafnlengi hafa menn
deilt um ástæður þess hvers
vegna sumir drekki öðruvísi en
allur fjöldinn, drekki meira,
hraðar og lengur.
Fíknin sem myndast hjá þess-
um einstaklingum er öllum fögr-
um loforðum, ásetningi og tárum
svo mikið yfirsterkari að það er
vart á færi annarra en þeirra sem
hafa upplifað hana að reyna að
skilja hana. En eitt getum við þó
öll verið sammála um, og það er
það að þessum einstaklingum
körlum og konum er ekki
sjálfrátt, þau eru stöðugt að gera
hluti sem eru í algjörri andstöðu
við þeirra eigið besta.
Alkóhólismi er fjölþátta sjúk-
dómur, líkamlegur, félagslegur
og andlegur. Grunnurinn er lík-
amlegur. Fíknin, stjórnleysið,
þolaukningin og þetta síendur-
tekna minnistap eru nokkur þess-
ara líkamlegu einkenna. Við
skulum ímynda okkur mann sem
er farinn að drekka um hverja
helgi, hann telur sig ráða ágæt-
lega við drykkjuna, hann geti
sleppt því að drekka ef honum
sýndist svo, staðreyndin er að
vísu sú að honum sýnist bara
aldrei svo. Konan fer að kvarta
og hann sannfærir hana um að
þetta sé ekkert mál, hann skuli
bara verða edrú næstu helgi. Svo
kemur föstudagurinn og hann sér
auðvitað eftir loforðinu og man
nú að þetta var nú kannski ekkert
loforð, eða hvað? Svona er þá
fíknin farin að stjórna, ekki bara
hans lífi, heldur einnig lífi allra
þeirra sem hann umgengst náið.
En þetta var nú bara dæmi um
byrjunareinkenni sjúkdómsins og
á þessu stigi upplifir sjúklingur-
inn sig varla alkóhólista og ein-
mitt þess vegna þróar hann sjúk-
dóminn áfram. Næst kentur
stjórnleysið inn í spilið, hann
hættir að geta sagt til um hve
mörg glös verða drukkin, eða hve
langan tíma það rnuni taka og
hann fer jafnframt að verða ófær
að segja til um hve lengi hann
muni verða edrú í það og það
skiptið.
Hér fer hann að verða var við
aukið þol, hann þarf einfaldlega
meira magn en áður til að verða
jafn drukkinn og grípur í því
skyni til aukasjússa, fer t.d. að
fela áfengi til að geta fengið sér
aukalega svo enginn viti. Hann
fer að upplifa það að hann man
ekki alveg samræður frá því
kvöldinu áður né heldur við
hverja hann talaði. Minnistapið
fer að angra hann oftar og meira
og hann fer að skilja að það er
hluti af drykkjunni að muna ekki
heilu og hálfu kvöldin. En
drykkjan fer stöðugt að verða
dýrari, því eftirköstin láta ekki á
sér standa.
Fráhvarfseinkennin eru mjög
hættuleg og hafa orðið mörgum
að bana. Hann fer að fá allskonar
svefntruflanir, martraðir, svita-
kóf og skjálfta. Síðari stig eru
krampar, ofskynjanir og delerium
tremens. Félagslega fer þessi
maður að verða mjög háður
áfengi, hann getur ekki hugsað
sér samkvæmi án áfengis, hann
sér enga gleði án drykkjar og enn
síður sorg. Hann hættir að koma
í heimsóknir þar sem áfengi er
ekki haft um hönd, og ef hann
verður, hundleiðist honum og
lætur alla sjá það sem það vilja
með augljósum fýlusvip. And-
lega er hann orðinn mjög háður
drykkjunni og upplifir meiri og
meiri vandamál tilfinningalega.
Hann er í mikilii vörn og afneitun
á eigin drykkju og finnur ótal
útskýringar á því hvers vegna
hann drekki t.d. léleg vinna, illa
giftur, stressað þjóðfélag eða
bara leiðinlegt veður.
Hann fer þess utan að missa
stjórn á skapi sínu án nokkurs
sérstaks tilefnis og getur ekki
undir nokkrum kringumstæðum
tjáð sínar góðu tilfinningar.
Hann einangrast félagslega og til-
finningalega og fer smámsaman
að finna til stjórnleysis gagnvart
sínum tilfinningum, dæmi: Ofsa-
reiði, sjúkleg afbrýðisemi, ólýs-
anleg kvíðaköst, svaka sektar-
kennd og ýmis þunglyndiseinkenni
s.s. sjálfsmorðshugsanir og fl.
Þrátt fyrir að þessi einkenni
séu svona augljós, eru menn
ennþá að leggja siðferðilegt mat
á alkóhóiistann, saka hann um
skort á vilja og fleira í þeim
dúrnum. Ég vil svara því með því
að benda á að þegar þessi ein-
kenni um fíknmyndun og stjórn-
leysi eru til staðar þá skiptir vilj-
inn til að verða edrú nálega engu
máli, alkóhólistinn getur ekki
hætt drykkjuskap án þess að til
komi meiriháttar breytingar á
lífsháttum öllum saman. Vegna
þeirra breytinga sem gerast and-
lega, sérstaklega afneitunar, er
alkóhólistanum ekki kleift að sjá
stöðu sína sjálfur án aðstoðar
annarra.
Ég vona að einhverjir séu ein-
hverju nær um sjúkdóminn alkó-
hólisma eftir þennan lestur.
Afneitun er það stór hluti sjúk-
dómsins að ég kýs að fjalla um
hana sérstaklega, og mun ég gera
það í annarri grein síðar.
Ingjaldur Arnþórsson
ráðgjafí, SÁÁ-N
Töflureiknirinn
Hjá fyrirtækinu Tölvutali eru
komnar út tvær bækur fyrir töflu-
reikninn Exel. Önnur bókin er
sniðin fyrir Macintosh tölvur, hin
fyrir IBM og samhæfðar vélar.
Höfundar bókanna eru Guðjón
ísberg og Rafn Sigurðsson.
Skipta má Exel forritinu í fjóra
hluta.
1) Töflureikni
2) Gagnasafn
3) Gröf
4) Macro
Bækurnar taka fyrir þrjá fyrstu
hlutana og fjallað er um þann
fjórða.
Bækurnar eru ætlaðar jafnt
byrjendum sem og þeim sem þeg-
ar hafa kynnst Exel. Fjallað er
um allar skipanir og verkun
þeirra útskýrð með dæmum.
Exel
Tekin eru fyrir atriði eins og
töflu- og eyðublaðagerð, upp-
setning og notkun gagnasafna,
teiknun samfelldra falla, notkun
fjármálafalla, uppsetning reikn-
inga og margt fleira. Mikill fjöldi
mynda er í bókunum.
Báðar eru bækurnar 300 bls.
að stærð og fjölritaðar af Stensli
hf. Hönnun kápu annaðist Guð-
jón Ingi Hauksson.
Frambjóðendur
|
Jón Emil Pétursson, 2v.c. Guðrún K. Svavarsdóttir, 2.m. Jón V. Birgisson, 1v.b.
Nemar V.M.A. athugið! '' 5: ítuft &<• 1®ÍF 1 Jflf WmmSk - Æk
Stefán H. Stefánsson, 2v.a. Kristján H. Hákonarson, 2v.a.
Á laugardaginn 6. maí verður kosið í stjórn skólafé-
lagsins fyrir næsta skólaár.
Við hvetjum ykkur öll til að koma og
kjósa ykkur stjórn.
Kosningar fara fram í Eyrarlandsholti kl. 12.30-16.00.
Kosningastjórn.
15 daga rútuferð
frá Húsavík til Evrópu
1. júní. Brottför frá Ferðaskrifstofu Húsavíkur kl. 04.30, ekið sem leið liggur um
austurlandsveg til Seyðisfjarðar. Brottför með Norröna er kl. 12.00.
2. júní. Komutími til Þórshafnar í Færeyjum er um kl. 06.00. Þeir sem eru
snemma á fótum geta fengið sér göngutúr um Þórshöfn. Þaðan er siglt kl. 09.00
og stefna sett á Hanstholm.
3. júní Tekið land á danskri grund um kl. 16.00 og ekið sem leið liggur suður
jótland til Ulfborg og gist á Hotel Vedersö Klit.
4. júní Ekið til Billund og stansað í Legolandi. Þaðan er haldið til landamæra
Þýskalands og ekið suður Þýskaland um Flensburg og Kiel til Weibenhauser
Strand sem er sumarleyfisstaður við Eystrasalt um 6 km frá Oldenburg. Þar verður
haldið til í fimm nætur.
5. -8. júní. Þessir fjórir dagar verða notaðir til hvíldar og skoðunarferða eftir því
sem tækifæri gefast og veður leyfir, t.d. er möguleiki á hálfs eða heilsdagsferðum
til Lubeck, Hamborgar og Kaupmannahafnar.
9. júní. Ekið af stað til baka og haldið til Álaborgar og gist þar á Ansgaar hótel.
10. júní. Ekið til Hirsthals þar sem tekin verður ferja kl. 10.30 og siglt í fjórar
klst. til Kristjánssand. Þaðan er haldið til Stavanger og gist á hótel Algard.
11. júnf. Eftir góða hvíld er enn lagt af stað til Randaberg þar sem tekin verður
ferja til Haugesund. Þaðan ekið til Kinsaravik og enn tekin ferja til Kvanndal, það-
an er haldið til Standebarm Fjord Hotel, en þar er hótelstjórafrú Halldóra Einars-
dóttir frá Ófeigsstöðum í Kinn og þar bíður okkar kvöldverður. Síðan haldið til
Bergen og gist á Bergen Airport Hotel.
12. júní. Dagurinn notaður í skoðunarferð um Bergen. Um kvöldið bíðurokkar
veisla á hótelinu og gisting aðra nótt.
13. júní. Eftir góða hvíld verður haldið til hafnar í Bergen, stansað þar um stund
en brottför Norröna er kl. 15.00.
14. -15. júnf. Á leiðinni til (slands er komið við í Leirvík og Þórshöfn en komu-
tími til Seyðisfjarðar kl. 08.00 á fimmtudag, eftir tollskoðun er haldið til Húsavík-
ur, áætlaður komutími er um kl. 16.00.
Innifalið í verði:
Sigling meö Norröna báöar leiöir, gist í fjögurra manna klefum. Gisting erlendis í 10 nætur á góöum hótelum í
tveggja manna herbergjum. 10 morgunverÖir á gististööum. 6 kvöldveröir á gististööum. 3 ferjusiglingar. Allur
akstur meö rútunni aö heiman og heim. Leiðsögn erlendist (Margrél Jónsdóttir, Húsavík.) Verö er miöaÖ viö gengi
15/3 1989. Einnig er möguleiki á tveggja manna klefum á skipinu gegn aukagreiðslu.
Verð kr. 67.000,-
Örfá sætí ennþá laus
FERÐASKRIFSTOFA
HÚSAVÍKUR Simi 96-42100
Björn Sigurðsson sími 96-42200.