Dagur - 23.05.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 23.05.1989, Blaðsíða 10
6*ií :< •• TW.. .’ifíi ,SS 1UC6bll|j6h<l 10 - DAGUR - Þriðjudagur 23. maí 1f myndasögur dags ÁRLANP HERSIR .11 IV.V7U—Í—I—1 —_ Z. BJARGVÆTTIRNIR M,,._____________________ —uBölvaðir refirnir!... Þeir eru enn lifandi! Og þaö eru fleiri meö ' Hefiiö skothríö! # Drullusokkar Ritari þessa þáttar i dag þurfti á dögunum að bregða sér inn í byggingavöru- verslun á Akureyri því hann vantaði drullusokk. Ekki væri þetta í frásögur fær- andi í venjulegu árferði, en þar sem heimsóknin var einkar fróðleg og skemmti- leg, ætlar hann að deiia þessari reynslu slnni með lesendum. Þegar inn í verslunina kom tók á móti honum einkar Ijúf og glaðleg afgreiðslustúlka, hún bauð góða dag og sþurði á hvern hátt hún gæti orðið til aðstoðar. „Mig vantar drullusokk," svaraði ég og að bragði sagði stúlk- an, „já, þingmennirnir eru hér, gjörðu svo vel“ og svo vísaði hún mér að hillu þar sem í stóðu drullusokkar af öllum stærðum og gerðum. # Þarfaþing Það var ekki svo ýkja erfitt að velja drullusokk sem hentaði og þegar ég hafði greitt fyrir hann, sagðist stúlkan endilega vilja gefa mér poka, „svo það sjáist ekki hvað þú ert með,“ hvíslaði hún. Ég hafði á orði, að maður þyrfti nú ekki að skammast sín fyrir drullusokkinn, „hann hlýtur að vera þarfaþing á hverju heimili?“ „Já,“ sagði hún, „en það eru svo margir spé- hræddir gagnvart þessu og vilja ekki láta sjá sig með svona lagað!“ Síðan þakk- aði hún mér viðskiptin og ég gekk út með drullusokk í poka. Á leiðinni út flaug mér í hug hvort bæjarbúar skömmuðust sín virkilega fyrir að þurfa að nota þenn- an grip og hvort fólk bæri almennt ekki meiri virðingu fyrir þíngmönnunum sínum. # Af lóðum ný bygginga... í framhaldi af skrifum i þessum dálki um frágang lóða við nýbyggingar er vert að benta á eitthvað jákvætt í því sambandi. Það er nefni- lega ekki alls staðar jafn slæmt ástandið. Við Hjalla- lund rís nú stórt fjölbýlis- hús sem að hluta hefur ver- ið tekið í notkun og að ári ættu allir íbúar þess að vera fluttir inn. í fyrra þegar fyrstu íbúarnir fluttu inn var unnið af kappi við að mal- bika bílastæði, mála húsið og gera eins snyrtilegt og unnt var miðað við allar þær framkvæmdir sem eftír voru. í sumar á að ganga endanlega frá lóðinni í kringum húsið, tyrfa, gróðursetja og útbúa leik- svæði fyrir börn. íbúar hússins þurfa því ekki að kvíða drullusvaði og ófrá- genginni lóð í áraraðir eins og sumir bæjarbúar. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Þriðjudagur 23. maí 17.50 Veistu hver Tung er? Tung er vietnamskur strákur sem býr í Noregi. Hann sækir skóla en honum leið- ist að læra heima. 18.15 Freddi og félagar (12). 18.45 Táknmálsfréttir. 18.55 Fagri Blakkur. 19.20 Leðurblökumaðurinn. 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Tónsnillingar í Vínarborg. (Man and Music - Classical Vienna.) Annar þáttur - Mozart á eigin vegum. Fyrri hluti um undrabarnið frá Salzburg sem kemur til Vínar til að starfa sjálf- stætt. 21.25 Launráð. (Act of Betrayal.) Fyrsti þáttur. Breskur myndaflokkur í fjórum þáttum. Aðalhlutverk: Elliot Gould, Lisa Harrow, Patrick Bergen og Bryan Marshall. Meðlimur írska lýðveldishersins (IRA) gerist liðhlaupi og ljóstrar upp um fyrrum félaga sína sem eru handteknir og dæmdir. Honum er síðan komið úr landi og hann byrjar nýtt líf í Ástralíu, en IRA- menn hyggja á hefndir. 22.15 Sifjaspell - best geymda leyndarmál samfélagsins. Síðari þáttur Kolbrúnar Halldórsdóttur um sifjaspell, þar sem verður m.a. fjallað um rannsóknarferli, yfirheyrsluaðferðir og hlut dómstóla í þessu viðkvæma máli. 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. Sjónvarp Akureyri Þriðjudagur 23. maí 16.45 Santa Barbara. 17.30 Dægradvöl. (ABC's World Sportsman) 18.15 Bylmingur. 18.45 Elsku Hobo. 19.19 19:19. 20.00 Alf á Melmac. Alf Animated) 20.30 íþróttir á þriðjudegi. 21.25 Lagt í'ann. Léttur og skemmtilegur ferðþáttur. Umsjón: Guðjón Arngrímsson og Sig- mundur Emir Rúnarsson. 21.55 Hetjudraumar.# (Those Glory, Glory Days.) Hugljúf og gamansöm fjölskyldumynd um unga stúlku sem hefur störf sem íþróttafréttaritari hjá dagblaði nokkru. Allt frá því Júlía man eftir sér hefur hún verið veik fyrir fótboltahetjum og er enn við sama heygarðshomið. En þegar hún yfirgefur vinnustað sinn eftir fyrsta dag- inn í nýja starfinu rennur upp að henni bifreið og átrúnaðargoð hennar, Danny Blanchfower, býður henni far ... Aðalhlutverk: Zoe Nathenson, Liz Cami- on og Cathy Myrphy. 23.25 Miðnæturhraðiestin. (Midnight Express.) Ungur bandaríkjamaður lendir í tyrknesku fangelsi og með ótrúlegri seiglu tekst honum að komast undan. Óviðjafnanleg mynd. Aðalhlutverk: Brad Davis, Paul Smith, Randy Qauid, John Hurt, Mike Kellin og Irene Miracle. Alls ekki við hæfi barna. 01.20 Dagskrárlok. Rás 1 Þriðjudagur 23. maí 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fróttir. 7.03 í morgunsárið með Randveri Þorlákssyni. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forystu- greinum dagblaðanna að loknu fréttayfir- liti kl. 8.30. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. - „Á Skipalóni" eftir Jón Sveinsson. Fjalar Sigurðsson les (8). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 í garðinum með Hafsteini Hafliðasyni. 9.40 Landpósturinn - Frá Suðurlandi. Umsjón: Þorlákur Helgason. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir ■ Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn - Ljósmæður. 13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra- speglinum" eftir Sigrid Undset. Þómnn Magnea Magnúsdóttir les (19). 14.00 Fróttir • Tilkynningar. 14.05 Eftirlætislögin. 15.00 Fréttir. 15.03 Glott framan í gleymskuna. Friðrik Rafnsson fjallar um mið-evrópskar bókmenntir. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Haydn, Sor og Salieri. 18.00 Fréttir. 18.03 Á vettvangi. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.32 Kviksjá - Aldarafmæli lýðháskólans í Borgá í Finnlandi. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Kirkjutónlist. 21.00 Kveðja að austan. Úrval svæðisútvarpsins á Austurlandi í liðinni viku. Umsjón: Haraldur Bjamason. (Frá Egils- stöðum.) 21.30 Útvarpssagan: „Kristrún í Hamra- vík“ eftir Guðmund G. Hagalín. Höfundur les (2). 22.00 Fréttir • Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Leikrit vikunnar: „Draumaströnd- in" eftir Andrés Indriðason. 23.10 Tónskáldatími. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Þriðjudagur 23. maí 7.03 Morgunútvarpið. 9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun. Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttir. - Spaugstofumenn líta við á Rásinni kl. 9.25. - Afmæliskveðjur kl. 10.30. - Sérþarfaþing Jóhönnu Harðardóttur uppúr klukkan ellefu. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.15 Heimsblöðin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni. 14.05 Milli mála. - Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. 18.03 Þjóðarsálin. Þjóðfundur í beinni útsendingu. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum flytjendum. 20.30 Útvarp unga fólksins. 21.30 Kvöldtónar. 22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir djass og blús. 01.10 Vökulögin. Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8,8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Ríkisútvarpið á Akureyri Þriðjudagur 23. maí 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Þriðjudagur 23. maí 07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor- steinsson með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt- um og ýmsum gagnlegum upplýsingum fyrir hlustendur, í bland við góða morgun- tónlist. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís er með hlutina á hreinu og leikur góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri tónlist eins og henni einni er lagið. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin, gömlu góðu lögin - allt á sínum stað. Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu. 18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst þér? Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt í umræðunni og lagt þitt til málanna í síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert undan og menn koma til dyranna eins og þeir eru klæddir þá stundina. Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum. Fróttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18. Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17. 19.00 Freymóður T. Sigurðsson. Meiri tónlist - minna mas. 20.00 Sigursteinn Másson. •Ný - og góð tónlist, kveðjur og óskalög. 24.00 Næturdagskrá. Hljóðbylgjan Þriðjudagur 16. maí 17.00-19.00 M.a. er létt umræða um lífið og tilveruna. Stjórnandi er Steindór G. Steindórsson. Fréttir kl. 18.00. Best geymda leyndarmál samfélagsins? ( kvöld, þriðjudag 23. maí kl. 22.15, verður á dagskrá Sjónvarps síð- ari þátturinn sem fréttastofan hefur látið gera um sifjaspell. Fyrri þátt- urinn var á dagskrá fyrir hálfum mánuði og fjallaði aðallega um þol- endur sifjaspella og þau áhrif sem sifjaspellin hafa á líf ungra barna sem fyrir þeim verða. ( þessum seinni þætti verður meira rætt um rannsóknarferli sifjaspellamála, yfirheyrsluaðferðir og hlut dómstól- anna. Rætt verður við Boga Nilsson rannsóknarlögreglustjóra ríkis- ins, Hrafn Bragason hæstaréttardómara og Ingibjörgu Georgsdóttur lækni auk nokkurra kvenna sem starfað hafa með Vinnuhópi gegn sifjaspellum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.