Dagur - 06.06.1989, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 6. júní 1989 - DAGUR - 15
Sauðárkrókur:
Gagnfræðaskólanum slitið
Friðrik Margeirsson (t.v.), fyrrverandi skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Sauðárkróki, afhendir núverandi skólastjóra, Birni Sigurbjörnssyni, minn-
ingarsjóð sr. Helga Konráðssonar til ávöxtunar og vörslu.
Gagnfræðaskólanum á Sauð-
árkróki var slitið laugardaginn
27. maí sl. Þar gerði Björn Sig-
urbjörnsson, skólastjóri, grein
fyrir skólastarfinu sl. vetur.
Yið skólann störfuðu 20 kenn-
arar og nemendur voru um
250. Afhending verðlauna til
nemenda fyrir góðan náms-
árangur fór fram með hefð-
bundnum hætti og einnig bár-
ust skólanum ýmsar gjafír. Þá
var Snorri Jóhannsson,
húsvörður skólans síðustu 12
ár, kvaddur með gjöfum, en
hann lætur nú af störfum og
hverfur suður á leið með fjöl-!
skyldu sína. Þess má geta að
Snorri er faðir Lilju Maríu,
sundkonunnar fræknu, en hún
fer einnig suður með foreldr-
um sínum.
Gagnfræðaskólanum barst
fjöldi gjafa á skólaslitunum. Fyrir
hönd 30 ára gagnfræðinga frá
skólanum, afhenti Óskar Jónsson
skólanum að gjöf bókaflokkinn
„Landið þitt Island" eftir Þor-
stein Jósepsson.
Friðrik Margeirsson, fyrrver-
andi skólastjóri, afhenti núver-
andi skólastjóra, Birni Sigur-
björnssyni, til vörslu og ávöxtun-
ar minningarsjóð sr. Helga Kon-
ráðssonar, sem var skólastjóri
Gagnfræðaskólans fyrstu 10 árin,
þar til Friðrik tók við. Höfuðstóll
sjóðsins er nú um 100 þúsund
krónur, og skal honum varið til
að styrkja bókasafn skólans. í
tilefni þess að 40 ár eru liðin frá
því Friðrik hóf störf í Gagn-
fræðaskólanum, afhenti hann
skólanum að gjöf „Ferðabók
Eggerts og Bjarna“. Daginn eftir
skólaslitin varð Friðrik svo 70 ára
og á skólaslitunum gaf skólinn
honum stóra blómakörfu.
Fulltrúi 9. bekkinga, sem að
þessu sinni voru að kveðja skól-
ann sinn, afhenti skólanum spilið
„Trivial Pursuit“ að gjöf. Einnig
gáfu 9. bekkingar Snorra
húsverði gjöf. Að venju var svo
nemendum veitt verðlaun fyrir
góðan námsárangur, og að því
búnu sleit Björn skólanum. -bjb
Sauðárkrókur:
Útívistardagar hjá Gagganum
- endað á grillveislu við skólann
Útivistardögum 5. og 6. bekkjar Gagnfræðaskólans á Sauðárkróki lauk með
grillveislu og kunnu krakkarnir vel að meta þær veitingar sem á boðstólum
VOru. Mynd: -bjb
Fyrir stuttu, eða í vikunni áður
en Gagnfræðaskólanum á
Sauðárkróki var slitið, fóru
fram íþrótta- og útivistardagar
hjá nemendum 5. og 6. bekkj-
ar. Þeir hófust þegar 6. bekkur
kom heim úr skólaferðalagi og
þegar 5. bekkur lauk vorpróf-
um. Útivistardagarnir þóttu
takast með ágætum, en um
nýbreytni í skólastarfí var að
ræða. Skipulagning var á herð-
um þriggja íþróttakennara
skólans.
Farið var í leiki ýmiskonar, s.s.
boltaleiki, ratleiki, flaggaleiki og
einnig kúluvarp og langstökk.
Flestir kennarar skólans komu
við sögu sem leiðbeinendur,
mælingamenn eða verkstjórar.
Þá var farið í kappróður á kapp-
róðrarbátum sjómannadagsráðs.
Á meðan útivistardagarnir stóðu
yfir var nemendum boðið að fara
ókeypis í sund og nýttu krakk-
arnir sér það til fullnustu.
Nemendur úr 5. bekk Grunn-
skólans á Ólafsfirði komu einn
daginn í heimsókn og tóku þátt i
útivistardögunum með jafnöldr-
um sínum á Sauðárkróki. Síðasta
daginn var farið í gönguferð,
hjólreiðaferð, reiðtúr og golf.
Þegar því öllu lauk var endað á
grillveislu við skólann, þar sem
kennarar sáu um að matreiða
pylsur ofan í mannskapinn.
Kaupfélag Skagfirðinga gaf pyls-
ur og drykki í grilllveisluna og
Sauðárkróksbakarí lagði til
pylsubrauð í veisluna.
Björn Sigurbjörnsson, skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans, vildi
koma á framfæri bestu þökkum
til þeirra er gáfu veitingar til
nemenda og einnig færa nemend-
um og kennurum bestu þakkir
fyrir þann áhuga sem ríkti þessa
daga. -bjb
Styrkveitingar úr
Vísindasjóði 1989
Vísindaráð var stofnað 1. júlí
1987, með lögum nr. 48/1987 og
tók til starfa í nóvember sama ár.
Samkvæmt lögum þessum er Vís-
indasjóður í umsjá Vísindaráðs.
Vísindaráð skiptist í þrjár
deildir: Náttúruvísindadeild, líf-
og læknisfræðideild og hug- og
félagsvísindadeild. Stjórn Vís-
indaráðs ákveður hvernig ráð-
stöfunarfé Vísindasjóðs skiptist
milla deilda en stjórnir deildanna
úthluta styrkjunum.
Að þessu sinni bárust sjóðnum
262 umsóknir um rannsóknar-
styrki að upphæð um 191 milljón
króna. Þar sem ekki voru nema
95 milljónir króna til ráðstöfunar
var ekki hægt að styrkja nema
193 umsækjendur en synja varð
mörgum, þótt umsóknir væru
styrkverðar.
Alls voru veittir 82 styrkir í
náttúruvísindadeild og á meðal
þeirra sem hlutu styrk, voru Elín
Gunnlaugsdóttir kr. 300.000.-, til
rannsókna á lýsingu gróðurs í
Eyjafjarðarsýslu, Borgþór Magn-
ússon kr. 500.000.,- til gróður-
farsrannsókna á Auðkúluheiði,
Gunnar Baldvinsson kr. 600.000.-,
til hröðunarmælinga á Norður-
landi og Halldór G. Pétursson kr.
300.000.-, til að gera kort af land-
formum og yfirborðsjarðlögum í
Eyj afj arðardölum.
I líf- og læknisfræðideild voru
veittir 53 styrkir og á meðal
þeirra sem hlutu styrk, var Árni
Þórðarson, kr. 160.000.-, til
rannsókna á tíðni tannskemmda
og tannskekkju á Akureyri.
í hug- og félagsvísindadeild
voru veittir 58 styrkir og á meðal
þeirra sem hlutu styrk, var Bjarni
Einarsson kr. 780.000.-, til rann-
sókna á jaðarbyggð í Eyjafjarð-
ardal.
Sumar-
bridge
Bridgefélag Akureyrar minnir á að í sumar verð-
ur „Opið hús" á þriðjudögum til spilamennsku.
Næstu þriðjudaga verður spilað í Dynheimum.
Allt spilafólk velkomið og athygli er vakin á því að
þessi spilakvöld eru ókeypis og tilvalið tækifæri að
grípa í spil eitt og eitt skipti.
Frá Veiðifélagi Eyjafjarðarár
Sala veiðileyfa
í Eyjafjarðará hefst þann 12. júní nk.
Aðal söluaðili leyfa verður sem áður Verslunin Ey-
fjörð, Akureyri.
Sala veiðileyfa v/Leiruveg hefst
þó þann 6. júní.
Þau leyfi verða einnig seld í Eyfjörð og í Nesti v/
Leiruveg.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107,3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Fjólugata 2 Akureyri, þingl. eigandi
Kristinn Jónsson, föstud. 9. júní ’89,
kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Steypustöð Dalvíkur, v/Sandskeið,
þingl. eigandi Steypustöð Dalvíkur
h.f., föstud. 9. júní '89, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður og innheimtumaður
ríkissjóðs.
Hjallalundur 3 e Akureyri, þingl. eig-
andi Ragnar Daníelsson, föstud. 9.
júní '89, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Brunabótafélag íslands, og Veð-
deild Landsbanka fslands.
Hjarðarslóð 2 b, Dalvík, þingl. eig-
andi Stefán Georgsson, föstud. 9.
júní '89, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur Sig-
urgeirsson hdl.
Hlið v/Þórunnarstræti, Akureyri,
þingl. eigandi Ingimar Víglundsson,
föstud. 9. júní '89, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar sólnes hrl. og Brunabóta-
félag íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Bakkahlíð 20, Akureyri þingl. eig-
andi Kristján Þórðarsson, föstud. 9.
júní ’89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Björn Ólafur Hallgrímsson hdl.
Ólafur Birgir Árnason hdl.
Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Landsbanki íslands og Ásgeir Thor-
oddsen hdl.
Eyrarlandsvegur 12, e.h. Akureyri,
þingl. eigandi Karl Sigurðsson,
föstud. 9. júní ’89, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Búnaðarbanki íslands.
Gránugata 7, hesthúshluti Akur-
eyri, talinn eigandi Kristján Þor-
valdsson, v/B.R.Þ.s.f., föstud. 9.
júní '89, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl. og
Ólafur Garðarsson hdl.
Hafnarstræti 77, 3 og 4 hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Jóna Ákadóttir
ofl., föstud. 9. júní ’89 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl.
Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Ásgeir Thoroddsen hdl.
Gísli Gíslason hdl.
Ingvar Björnsson hdl.
Veðdeild Landsbanka islands og
Jón Egilsson hdl.
Kaupangur v/Mýrarveg, O-hl., Akur-
eyri, þingl. eigandi Haukur Adolfs-
son, föstud. 9. júní '89, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur
Gústafsson hrl.
Litlahlíð 2 c, Akureyri, þingl. eigandi
Haukur Guðmundsson, föstud. 9.
júní ’89, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðenduer eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Kristján
Ólafsson, hdl.
Lækjargata 6, e.h., Akureyri. þingl.
eigandi Sigurður Jóhannsson o.fl.,
föstud. 9. júní '89, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl.
Ólafur Birgir Árnason hdl.
Ólafur Sigurgeirsson hdl. og Svala
Thorlacius hrl.
Skarðshlíð 25 a Akureyri, þingl. eig-
andi Db. Sigurbjörns Þorsteinsson-
ar, föstud. 9. júní ’89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnaðarbanki íslands h.f. og inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Skarðshlíð 26 d, Akureyri, talinn
eigandi Ágústa Ingólfsdóttir, föstud.
9. júní '89 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaöurinn í Eyjafjaröarsýslu.
Hllfum
börnum
viö
tóbaksreykl
LANDLÆKNIR