Dagur - 16.06.1989, Side 4

Dagur - 16.06.1989, Side 4
S - KU&ÁCi -- t?8£f in£»J 'ð b 4 - DAGUR - Föstudagur 16. júní 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR, 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Prófsteinn ríkisstjómar Ríkisstjóminni er mikill vandi á höndum. Skoðana- kannanir sýna að hún er rúin trausti almennings og óvinsælli en nokkur önnur ríkisstjórn landsins frá því slíkar vinsældamælingar hófust. Það segir í sjálfu sér ekki alla söguna, því síðustu skoðana- kannanir voru framkvæmdar á mjög óheppilegum tíma fyrir ríkisstjórnina. Þær komu beint í kjölfar mikilla verðhækkana, sem ríkisstjórnin fékk litlu ráðið um. Engu að síður er ljóst að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á undir högg að sækja. Ef marka má niðurstöður fyrrnefndra kannana, fitnar Sjálfstæðisflokkurinn eins og púkinn á fjósbit- anum í réttu hlutfalli við dvínandi vinsældir stjórn- arflokkanna. Stærstur er þó flokkur óákveðinna, en hann stækkar með hverjum deginum sem líður. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur krafist þess að ríkisstjórnin fari frá og gengið verði til kosninga áður en þing kemur saman í haust. Þessi krafa sjálf- stæðismanna er eðlileg út frá þeirra sjónarhóli, því væntanlega eiga þeir von á að endurheimta fyrra fylgi sitt, ef kosið verður á næstunni. En jafnvíst er að hag almennings er ekki best borgið með nýjum kosningaslag. Það er enn ekki tímabært að fella dóm yfir ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Hún gengur nú í gegnum sama erfiðleikatímabil og varð ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar að falli. Þetta tímabil er prófsteinn á það hvort ríkisstjórnin nær helstu markmiðum sínum. Henni hefur ekki tekist sem skyldi að lækka vexti og fjármagnskostnað, þótt miðað hafi í rétta átt. Henni hefur einnig orðið talsvert ágengt í því að tryggja rekstrargrundvöll undirstöðuatvinnuveganna. En betur má ef duga skal og næstu tveir mánuðir munu skera úr um það hvort ríkisstjórninni tekst ætlunarverk sitt. Hún þarf svigrúm til að ná markmiðum sínum. Rétt er að minna á að ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar glímir við sama vanda og Sjálfstæðis- flokkurinn gafst upp á að leysa, þegar hann hafði forsæti í síðustu ríkisstjórn. Ekkert bendir til þess að sjálfstæðismenn séu betur í stakk búnir nú en áður til að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Þeir luma ekki á neinum töfralausnum frekar en fyrri daginn, enda eru þær ekki til. Auknar vinsældir þeirra í skoðanakönnunum byggjast fyrst og fremst á óánægju með störf núverandi ríkisstjórnar. Sú óánægja er skiljanleg, því efnahagsbatinn er hæg- ari en flestir gerðu sér vonir um. Naumur þingmeirihluti núverandi ríkisstjórnar stendur henni mjög fyrir þrifum. Brýnt er að hún reyni með einhverjum ráðum að treysta sig í sessi á þingi. Það er raunar skilyrði fyrir því að hún nái betri tökum á viðfangsefninu. Yfirstandandi við- ræður við Borgaraflokkinn gætu þannig skilað þjóð- inni traustari ríkisstjórn en kæmi út úr haustkosn- ingum og langdregnu stjórnarmyndunarþófi í kjöl- farið. BB. Hugleiðingar um heimilis- garðyrlgu og húsdýraáburð „Heimilsgarðyrkja gerir búskap fjölbreyttari. Hún feilur vel við húsdýr því þau leggja til besta áburðinn, betri en þann tilbúna, a.m.k. álitu mætir náttúrulækn- ingamenn það. Sömu skoðunar er Guðfinnur Jakobsson í Skaft- holti í Gnúpverjahreppi í Árnes- sýslu en þar er starfrækt heimili fyrir fólk með skerta starfsgetu. Nils Busk, sem vann í garðyrkju hjá N.L.F.Í. í Hveragerði, notaði kúahland blandað til helminga á kálflugurnar. Guðfinnur vann hjá honum og notar þetta í Skaft- holti, en hefur hlandið óblandað ef mjög blautt er. Ef hlýtt er í veðri og flugan verpir snemma fylgist hann með því hvort egg koma aftur og vökvar þá. Hin fyrri hverfa. Kona í Kinn vökvaði rófu- plönturnar oft með þvaginu úr Vegfarandi hringdi: „Ég vil benda á slæma slysagildru í bænum, nánar tiltekið í Skarðshlíð rétt við blindhæð og gangbraut. Fyrir neðan blind- hæðina við götuna vestanverða er ýmist flutningabílum eða stórum bílum með tengivagn lagt. Þegar maður keyrir niður Skarðshlíðina og er rétt komin að gangbraut- inni þá skaga þessi ferlíki út í götuna og maður verður að sveigja út á miðja götu. Vilji svo óheppilega til að bíll kemur á Bóndi úr Eyjafírði hringdi . . . . . . og sagðist hafa séð viðtal við hagfræðing einn í ellefufréttum Sjónvarps á dögunum þar sem hagfræðingurinn hafi úttalað sig um hversu mikil hagkvæmni yrði að því fyrir þjóðarbúið ef bænd- um yrði fækkað og landbúnaðar- afurðir fluttar inn. „Mér datt nú í hug eftir að hafa horft á þetta að það væri ráð að leggja hagfræð- haugstæðinu og losnaði við maðkinn. Úlfur læknir, sonur Ragnars Ásgeirssonar, ræktaði maðkalausar rófur í Skaftafells- sýslu þó að maðkur væri þar. Hann setti mikið af hrossataði í moldina en mundi ekki hvort það var nýtt eða úr haug, en sjálfsagt er það ekki sama. Kálflugueitur setti hann á fræið fyrir sáningu. Ekkert var sprautað. Nils Busk, sem ræktaði fyrir þá í Hvera- gerði, sagði að flugan legði á flótta þegar hann kæmi með slönguna úr tankbílnum og að hlandið dræpi fluguna. Grænkál hefi ég getað ræktað maðkalaust í frjórri jörð, en ekki ófrjórri. Á Sólborg setti ég rófu og blóm- kálsplöntur í auðan blett í sólreit með plastyfirbreiðslu. Ábreiðan var fyrst sett yfir með loftgati og piöntunum gaf ég 1-2 sinnum móti í sömu andrá þá er voðinn vís. Hvers vegna í ósköpunum er mönnum leyft áð leggja stórum bílum á svo hættulegum stað? Tökum sem dæmi að ef maður keyrir á löglegum hraða niður götuna og skyndilega blasir kyrr- stætt ferlíki við í sama mund og bíll kemur á móti þá verður mað- ur að snögghemla. Svo gæti farið að á eftir manni kæmi bíll á 50-60 km hraða sem ætti enga mögu- leika á að stöðva í tíma. Þetta gengur ekki.“ inga niður hér á landi og flytja þá inn frá Danmörku og Svíþjóð enda er ég viss um að við gætum fengið alveg prýðilega hagfræð- inga frá þessum löndum. Ég er viss um að það yrði, í prósentvís, miklu meiri sparnaður af því að leggja niður hagfræðinga og flytja þá inn heldur en að leggja hvern bónda niður og flytja inn landbúnaðarafurðir." mykjuvatn. Blómkálið varð geysistórt og hvorki það né róf- urnar möðkuðu. I aðalgarðinum voru samskonar plöntur sem ég vökvaði ekki. Þær urðu ónýtar af maðki, verri en þær sem sáð var í garðinn. Ég held að þeim sé hætt- ara við maðki ef þær eru færðar og það álítur Guðfinnur. Upp- eldisaðstöðu fyrir matjurtir vant- ar líka á heimilum, t.d. vel lýstar kjallarakompur og/eða sólreiti með plasti yfir. Þá væri hægt áð planta stórum plöntum og fá upp- skeru fyrr. Hrossatað er líka mjög gott saman við mold í mjólkurfernur og hafa þá litla kartöflu í. Þarna myndast kart- öflugras og gott er að breiða yfir það strax eftir gróðursetningu, ef kalt er. Ragna, dóttir Sigurðar búnaðarmálastjóra, áleit að ekki þyrfti að herða plöntur fyrir gróðursetningu ef breitt væri yfir þær strax. Ýmislegt fleira fellur til við búskapinn sem hægt er að nota við garðyrkjuna og vinnutíman- um er hægt að hagræða. Kaldar geymslur vantar mjög víða, bæði í sveit og bæ. Ragna áleit jarðhús bestu geymslurnar en verra er að hafa rófur og kartöflur saman, að hennar sögn og fleiri sem á þessu hafa vit. Rófur þurfa kaldari geymslu en kartöflur. Þang þykir einnig mjög gott í garða. I því er bór sem t.d. rófur mega ekki vera án. Við Eyrarbakka var þykkt lag af þangi sett í garðana á haustin. Það batt sandinn og var aðal áburðurinn. Helgi Hallgrímsson, náttúru- fræðingur á Akureyri, álítur að kartöflur ræktaðar við búfjár- áburð geymist lengur og séu bragðbetri. Sama álit hef ég um gulrætur. Hann hefur líka þá trú að ekki sé eins vandað val á garð- stæðum og áður var. í Stóru- Sandvík í Flóa, hjá Hannesi Jóhannssyni, er gulrótum sáð í sandinn á bökkum Ölfusár. Hann byrjar að taka þær stærstu upp um miðjan ágúst. Gott segir hann vera að geyma gulrófur í sandi við frostmark. Hann setur þær í kæli en þær mega ekki frjósa. Páll Rist, bóndi á Syðrahóli í Eyjafirði, þakti rófugarðinn með hrossataði, sem var orðið að ösku eftir hita, þannig að sem minnst grisjaði í mold. Hann fékk maðkalausar rófur.“ Ingibjörg Bjarnadóttir frá Blöndudalshólum. Slysagildra í Skarðshlíö Flytum inn hagfræðinga

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.