Dagur - 16.06.1989, Síða 5

Dagur - 16.06.1989, Síða 5
Föstudagur 16. júní 1989 - DAGUR - 5 Akið varlega framhjá sauðfé „Um þessar mundir er verið að sleppa lambfé af túnum til sumar- beitar í úthaga, og víða eru ær með lömb við vegi í sveitum landsins. Á sama tíma fer bílaumferð vaxandi, enda sumar- frí hafin og auk þess leggja er- lendir ferðamenn land undir fót í vaxandi mæli. Gróður hefur verið óvenju seint á ferðinni í vor og því má gera ráð fyrir að fyrst um sinn sæki fé í vegkanta sem gjarnan grænka tiltölulega snemma, m.a. vegna áburðargjafar og áhrifa frá vegaryki. Reynslan sýnir að við slíkar aðstæður er mest hætta á að ekið sé á fé, ekki síst þegar girt er til beggja handa og undan- færi lítið. Ökumenn þurfa að hafa í huga að hlaupi ær yfir veg kemur lambið eða lömbin á eftir, eða þau hlaupa til hennar yfir veginn sé ærin í hinum vegkant- inum þegar bílinn nálgast. Þá þarf að hægja ferðina og gæta sérstakrar varúðar. Flestir öku- menn sem verða fyrir því óláni að aka á fénað tilkynna áreksturinn strax á næsta bæ, en þess eru því miður dæmi, að slösuðum lömb- um og fullvöxnum kindurn sé hent út fyrir veg eða inn í ræsi, og síðan er ekið burt. Tryggingar bæta tjón á bílum og gripum en það er ekki nóg. Dýraverndar- sjónarmið verður að virða til fulls, annað er ekki sæmandi, og telur Sauðfjárverndin að ekki sé til of mikils ætlast að það sé gert í öllum tilvikum. Jafnframt því að ökumenn eru beðnir að sýna sérstaka aðgæslu þegar ekið er framhjá sauðfé hvetur Sauðfjárverndin bændur og aðra búfjáreigendur um land allt til að halda fénaði sínum frá vegunum eftir því sem frekast er kostur. Haldið girðingum og hliðum fjárheldum og látið skepnur ekki ganga lausar í girð- ingatröðum, þ.e.a.s. þar sem girt er með vegum til bcggja handa á löngum samfelldum köflum. Bændur og ökumenn takið hönd- um saman og stuðlið að fækkun þeirra slysa á vegum landsins þar sem sauðfé og annað búfé á í hlut! Sauöfjárverndin. Heimiliskettir í vígahug að næturþeli á Akureyri: Vaknaði upp við orrustu katta og fugla í garðinum Húsmóðir í Hamarsstíg á Akur- eyri skorar á kattaeigendur: „Ég vil skora á kattaeigendur að fara að huga betur að köttum sínum. Lausir kettir hafa lengi verið vandamál en nú er þetta farið að ganga út í öfgar því ég vaknaði upp í nótt við lætin í fuglunum á lóðinni hjá mér þar sem kettir voru að ráðast á þá og ungana þeirra. Það var a.m.k. þremur ungum slátrað hér í nótt. Hérna voru fjórir heimiliskettir sem virðast ganga alveg lausir. í fyrra tíndum við hvern einasta unga sem kom úr hreiðri hérna í garð- inu og settum í ' ruslafötuna. Lausir kettir hafa verið vandamál fyrir okkur í hverfinu og við erum tilbúin með garðslönguna á kettina. En í nótt gekk þetta alveg út fyrir allt og þess vegna beini ég því til cigcndanna að þeir hætti að láta kettina ganga lausa. Það verður að fara að loka kettina inni, tjóðra eða hreinlega að skjóta þá.“ Falleg sýning á vinnu heimilisfólksins að Hlíð Opnum föstudaginn 16. júní. Bjóðum upp á pizzur, heitt brauð, kaffi og fleira. Kaffihlaðborð sunnudag frá kl. 15-18. Gistiheimilið Ytri-Vík Árskógsströnd. Hin vinsætu Dwagne Wayne tvöföldu sólgleraugun fást hjá okkur r^O ^GŒRAUGNAÞJONUSTAN^Iðsson ^SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 -602 AKUREYRI - SÍMI 24646 SuncIlíHigin Syðra Laugalandi Sundlaugin veröur opin í suniar sem hér segir: Mánud. frá kl. 14-20. Þriuðjud.-föstud. frá kl. 14-22. Laugard. og sunnud. frá kl. 14-18. Konutímar eru á mánud. frá kl. 20-22. Verið velkomin. Sundlaugarvöröur. Góðvinur Dvalarheimilisins Hlíðar skrifar: Þann 4. júní sl. var haldin stór og falleg sýning á Dvalarheimil- Kona á Akureyri hafði sam- band við Dag og hafði frá leiðinlegu atviki að segja. Þannig var að maður í bænum, sem kominn er á tíræðisaldur, hafði fyrir nokkrum vikum keypt blómapott með fallegum blómum í og sett á leiði konu sinnar sálugu í kirkjugarðinum á Akur- eyri. Þegar hann svo kom að leið- inu í vikunni, til að líta eftir blómunum, voru bæði potturinn og blómin horfin. Gamla mann- inum var að vonum brugðið, enda verður það að teljast í hæsta máta ruddalegt að gera annað inu Hlíð. Sýnd var vinna heimil- isfólks og var þar margt fallegra og nytsamra muna. Fjölbreytni og gott handbragð vakti athygli, eins og að hirða blórn af óvið- komandi leiðum í kirkjugarðin- um. afköst voru mjög mikil og vand- aður frágangur. Við Hlíð starfa mjög góðir kennarar, þær Björg Ólafsdóttir og Helga Frímannsdóttir. Til hjálpar eru þrjár stúlkur og vanda þær allar til alls frágangs en þær eru ekkert lærðar. Þessi sýning sýndi hvað öll vinna eldra fólksins er vönduð og vel af höndum leyst. Sérstaklega ber það vitni um listakennslu. Sýningin var ákaflega vel sótt og líkaði sérstaklega vel. Mykja á vegimim Kona hringdi og vildi kvarta yfir mykju á þjóðveginum við bæinn Moldhauga í Glæsibæjarhreppi. Hún sagði að þar væri löng mykjuslóð og ekki væri geðslegt að keyra þarna um. Mykjan slett- ist á bílana með tilheyrandi sóða- skap og fnyk. Einnig væri slysa- hætta því samfara að lenda í þessum mykjublettum á bíl, hann gæti hreinlega lent út af veginum og bremsuskilyrði mjög slæm þarna. Konan vildi koma þeim tilmælum til viðkomandi, sem ekur mykju þarna um, að hreinsa eftir sig veginn. Þetta væri fyrir neðan allar hellur. Akureyri: Blómin hurfu af leiðinu HOTEL KEA Helgin 16. og 17. júní Dansleikur HI jómsveitin GAUTAR heldur öllum í þjoöhatíöarskapi, föstudags- og laugardagskvöld til kl. 03.00 bæöi kvöldin. Veriö velkomin. Borðapantanir i sima 22200

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.