Dagur - 16.06.1989, Side 9

Dagur - 16.06.1989, Side 9
Föstudagur 16. júní 1989 - DAGUR - 9 GEGN SIFJASPELLUM Að starf þessara samstarfshópa skili árangri er enginn vafi. Marg- ar þeirra kvenna sem koma í hóp hafa áður verið hjá sálfræðingum og/eða geðlæknum með misgóð- um árangri. í hópnum eru þær meðal jafn- ingja: Sárþjáðum manneskjum sem oft finnst besta lausnin að binda bara enda á þessa eymd. Og þar kemur samhjálpin: Pað er auðveldara að sjá hvers vegna einhver önnur á að lifa áfram. Og um leið og tekið er til við að verja líf annarrar manneskju vaknar eiginn lffsþróttur. Lífsþróttur og lífslöngun. Helst vildu margar þessara kvenna gerast valkyrjur og geysast áfram fram á vígvöll- inn og láta styrjöld gegn öllu ofbeldi geisa opinberlega á öllum sviðum þjóðlífsins. En það er ekki hægt, þær verða alltaf að hugsa um aðra. Taka tillit til ann- arra, fjölskyldu og vina, jafnvel gerandans - afbrotamannsins og afkomenda hans. Ennþá ber fórnarlamb sifja- spella alla ábyrðina, þjáninguna og skömmina. Og fyrir þær sem ennþá er þannig ástatt um er besta leiðin til lausnar að hafa samband við okkur í síma 21260 í Reykjavík. Það stendur til að fara með fræðsluefni ög halda fundi á Akureyri, ísafirði og í Vest- mannaeyjum. Vonandi koma sem flestarog flestir sem á þurfa að halda og hefja baráttuna með samhjálp og sjálfshjálp í hópstarfi samtak- anna. Það tekur á og það tekur tíma, en það margborgar sig. Það skilar sér aftur í betri líðan og bættu lífi. Fólk hikar ekki við að kaupa hús og íbúðir þó að það sé erfitt og kosti oft ótrúlegar fórnir. Hvers vegna ekki betra líf? Án innri gleði og lífslöngunar gera hús og íbúðir lítið gagn. Með auknu innra öryggi gengur allt betur. Hikið ekki, hafið samband og hefjið baráttuna fyrir betra lífi. Kona úr 10. hópnum Frá sýningunni í Laxalshúsi, en þar eru sýndar gamlar mannamyndir og svipmyndir úr sögu Akureyrar. Mynd: kl vikunnar til 15. september kl. 13.30-17. Min'jasafnið er byggða- safn Eyfirðinga. Það var stofnað árið 1962 og hefur frá upphafi verið til húsa að Aðalstræti 58. Þar eru varðveittir munir sem lýsa daglegu lífi fólks í sveit og bæ á fyrri tímum. í safninu má m.a. sjá gott úrval handverkfæra, bæði frá iðnaðarmönnum í bæn- um og einnig frá sveitaheimilum, íslenskan listiðnað, útskurð, vefnað og útsaum. Síðastliðinn vetur var skólum boðið í safnið til að skoða sýning- una Ull og tóvinnu. Þar voru kynnt vinnubrögð við tóvinnu, sem áður fyrr var helsta vetrar- vinna á heimilum. Fengu nemendur tækifæri til að spreyta sig á að kemba og spinna. Sýn- ingin stendur enn og er ráðgert að hafa tóvinnuviku síðar í sumar. Safnvörður Minjasafnsins er Guðný Gerður Gunnarsdóttir. SS Frá ársfundi fulltrúaráös Bréfaskólans. undanfarin ár. Á næsta ári fagnar þessi sérstæði skóli á íslandi, sem nú er rekinn sem sjálfstæð sam- eignarstofnun, hálfrar aldar afmæli. Bréfaskólinn er eina skólastofnunin á landinu sem hefur sérhæft sig í fjarkennslu og gegnir nú vaxandi hlutverki í full- orðinsfræðslu. Iþrótta- og leikjanámskeið Iþrótta- og leikjanámskeið Þórs hefst mánudaginn 19. júní kl. 10.00. Mikill hluti fer fram á Þórssvæði v/Glerárskóla. Hvert námskeið endar með grillveislu. Aðal leiðbeinandi verður Gísli Bjarnason íþrótta- kennaranemi. Frá Menntaskólanum á Akureyri Skólanum verður slitið í íþróttahöllinni laugar- daginn 17. júní kl. 10.00. Skólameistari. Félag aldraðra Akureyri Að loknum stofnfundi Landsambands eldri borgara, sem fram fer að Hótel K.E.A. mánudaginn 19. júní n.k. vill stjórn félagsins minna á, að kl. 20.30, sama dag, munu fulltrúar frá stofnfundinum mæta í Húsi aldraðra. Þeir félagar, sem hefðu áhuga á að kynnast þessu fólki, ættu að nota þetta tækifæri og mæta á framan- greindum tíma, þar mun verða skipst á skoðunum um málefni okkar eldri borgaranna og auðvitað verða tekin nokkur létt lög á nikkuna. Stjórnin. Verð aðeins kr. 18.500,- með gaskúi Veganesti Leiruvegi Tryggvabraut á vegínn! Flestir slasast í umferðinni á sumrin. Þá er enn meiri þörf á að halda athyglinni vakandi en ella. Látum ekki of hraðan akstur eða kæruleysi spilla sumarleyfinu. Tökum aldrei áhættu! llX™

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.