Dagur - 16.06.1989, Side 11
|f hér & þar ~~jj
Baráttan við
aukaMóin
íþyngir „eigin-
manni“ Roseanne
„Hann Jón minn þolir það ekki
að vera svona feitur,“ segir móðir
John Goodman sem leikur eig-
inmann Roseanne í sjónvarps-
þáttunum um þau í Sjónvarpinu
á sunnudögum. Móðir hans segir
að sonur sinn skammist sín fyrir
að vera í þungavigtarhópnum og
hafi áhyggjur af því að þyngdin
komi honum of snemma í gröf-
ina.
„Pabbi hans Jóns Iést af völd-
um hjartaáfalls þegar hann var
aðeins 36 ára gamall. Nú, þegar
Jón er á sama aldri held ég að
hann hugsi mikið um það að faðir
hans skuli hafa dáið svona
ungur,“ staðfesti Virginia
Goodman en hún er einmitt
mamma hans Jóns.
„Hann hefur nú ekki hátt um
þetta blessaður, en ég veit að i
hann hefur áhyggjur af þessu.
Hann gætir að mataræði sínu og
reynir að hreyfa sig á hverjum
degi. En þetta virkar bara ekki.
Hann er miður sín yfir að vera
svona feitur og hefur aldrei þolað
það. Mér er alveg sama þó fjöl-
miðlar segi að hann sé hamingju-
samur með öll kílóin, það er ein-
faldlega ekki satt.“
Mamma segir að allt frá barns-
aldri hafi Jón þurft að berjast við
aukakílóin. „Hann var kominn
með bumbu 12 ára gamall og var
meira að segja feitur þegar hann
fæddist." Pá fullyrðir starfsstúlka
í mötuneyti menntaskólans sem
hann gekk í að Jón hafi hlaðið á
sig kílóum þegar hann var í
skólanum.
i Eftir útskrift flutti Jón til Nýju
Jórvíkur og komst fljótt í leiklist-
arbransann. Og enn bættust kíló-
in á hann. „Hann verður alltaf
stærri og stærri, ég er viss um að
hann er feitari núna en hann hef-
ur verið nokkurn tímann áður,“
segir mamma. „Jón fer varlega með
allan mat. Ég veit að hann fær sér
ekkert á milli mála og forðast fitu
og sykur. Á hverjum degi fær
hann sér rösklegan göngutúr.
Hans vegna vona ég að hann nái
tökum á vigtinni og ekkert myndi
gera mig hamingjusamari ef hon-
um tækist það. Ég veit líka að
hann yrði yfir sig glaður sjálfur.
Hann vill ekki vera feitabolla og
hætta þannig lífi sínu,“ sagði
mamma Virginia að lokum.
r JJ
Aðalfundur
Umf. Möðruvallasóknar
veröur haldinn aö Freyjulundi, miövikudaginn 21.
júní nk. kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn U.M.F.M.
Ferköntuð
rör
fyrirliggjandi
Yfir 30 stærðir.
Hagstætt verð.
SANDBLÁSTUR 0G MÁLMHÚÐUN
v/Hjalteyrargötu • Sími 22122.
Heilræði
Varúð!
Geymið lyf þar sem
börn ná ekki til
Ástarsögurnar frá
Snorrahúsi njóta
sívaxandi vinsælda.
Nú koma út tvaer
bækur mánaðarlega
Tilboð til nýrra áskrifenda!
Útgáfan hefur ákveðið að bjóða nýjum áskrifcndum
eina bók ókeypis um leið og þeir gerast áskrifcndur.
Þeir geta valið úr cftirtöldum bókum.
Spennusuguflukkurinn:
Morðið í Tauerngöngunum, Þeir dauðu drekka ekki
Síðasta bónin, Líkið stjórnar leiknum.
Ástarsöguflokkurinn:
Hrakfallabálkur, Ómótstæðilcgur karlmaður
Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinsessan.
SNORRAHUS
Pósthólf 58 • 602 Akureyri • •& 96-24222