Dagur - 16.06.1989, Side 14

Dagur - 16.06.1989, Side 14
14 - DAGUR - Föstudagur 16. júní 1989 Lögtaksúrskurður Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með, að lögtök geti farið fram fyrir eftirtöldum gjöldum, gjald- föllnum, en ógreiddum. Þinggjöldum utan staðgreiðslu sem féllu í gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní 1989. Ennfremur fyrir þinggjaldahækkunum og söluskatts- hækkunum er ákvarðaðar hafa verið til þessa tíma, svo og skipulagsgjöldum af nýbyggingum. Lögtök til tryggingarframangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. 15. júní 1989. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Hafnarstræti 77,3. og 4. hæð, Akur- eyri, þingl. eigandi Jóna Ákadóttir o.fl., miðvikud. 21. júní '89, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Sveinn H. Valdimars- son hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Gísli Gíslason hdl., Ingvar Björns- son hdl., Veðdeild Landsbanka fslands og Jón Egilsson hdl. Kaldbaksgötu 2, Akureyri, þingl. eigandi Blikkvirki sf., miðvikud. 21. júní '89, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlána- sjóður og Benedikt Ólafsson hdl. Óseyri 6b, Akureyri, þingl. eigandi Norðurljós sf., miðvikud. 21. júní '89, kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Guðjón Ármann Jóns- son hdl. og Byggðastofnun. Ránargötu 6, Akureyri, þingl. eig- andi Stefán Sigtryggsson, mið- vikud. 21. júní '89, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar sólnes hrl., innheimtumaður ríkis- sjóðs og Ólafur Gústafsson hrl. Strandgötu 51, Akureyri, þingl. eig- andi Blikkvirki sf., miðvikud. 21. júní '89, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlána- sjóður og Benedikt Ólafsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Laugardagur kl. 13:25 24. LEIKVIKA- 17. júní 1989 1 X 2 Leikur 1 Fram - Valur Leikur 2 B. Munchen - Bochum Leikur 3 W. Bremen - Stuttgart Leikur 4 M. Gladbach - H.S.V. Leikur 5 Mannheim - Köln Leikur 6 B. Dortmund • Karlsruhe Leikur 7 Hannover - E. Frankfurt Leikur 8 St. Kickers - Nurnberg Leikur 9 St. Pauli - B. Uerdingen Leikur 10 B.Leverkusen - Kaisersl. LeikurH Kongsvinger - Brann Leikur 12 Rosenborg - Viking Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Ath. breyttan lokunartíma! Barnfóstrunámskeið RKÍ Nýlega var haldið á Akureyri námskeið á vegum Akureyrardeildar Rauða kross íslands fyrir krakka sem höfðu í hyggju að passa börn í sumar, svokallað barnfóstrunámskeið. PeUa er fjórða árið í röð sem slíkt námskeið er haldið og hefur verið gerður góður rómur að þessu framtaki. Námskeiðið var að þessu sinni haldið í Lundarskóla fjögur kvöld í röð og var farið yfir mismunandi atriði öll kvöldin. Fyrsta kvöldið kom hjúkrunarfræðingur, annað kvöldið fóstra, þriðja kvöldið var rætt um slys í heimahúsum og fjórða kvöldið kom brunavörður í heimsókn. Að þessu sinni sóttu rúmlega tuttugu krakkar námskeiðið, þar af einungis einn strákur. Pessi mynd var tekin síðasta kvöldið er Jón Knútsen slökkviliðsmaður fræddi krakkana um brunavarnir og annað sem viðkemur hættum á heimili og var ekki nema sjálfsagt að stilla sér upp fyrir ljósmyndara Dags. AP Vátryggingafélag íslands hf.: Tryggmgaráðherra gefur út starfsleyfi til handa félaghm - verður með umboð og skrifstofur á 142 stöðum um allt land Tryggingaráðherra hefur að fengnum meðmælum Trygginga- eftirlitsins gefið út starfsleyfi til handa Vátryggingafélagi íslands hf. Félögin, sem standa að Vá- tryggingafélagi íslands hf., Brunabótafélag íslands og Sam- vinnutryggingar, munu flytja starfsemi sína undir eitt þak í Ármúla 3 í byrjun júlí næstkom- andi. Fram að þeim tíma munu félögin starfa í núverandi höfuð- stöðvum sínum og annast al- menna vátryggingastarfsemi und- ir sínum nöfnum. Hins vegar eru starfsmenn félaganna frá og með deginum í dag starfsmenn Vá- tryggingafélags íslands. Með þessum áfanga hefst loka- spretturinn í undirbúningi sam- einingar félaganna. Meðal annars er nú unnið að breytingum á hús- inu við Ármúla 3, svo að það henti fullkomlega starfsemi hins nýja félags, samræmingu eyðu- blaða, bréfsefnis, skilmála nýja félagsins og fleira. Starfsfólk gengst þessa dagana undir um- fangsmikla þjálfun og kynningu og undirbúningur samkeyrslu upplýsingakerfa og tölvuvinnslu félaganna er á lokastigi. Vátryggingafélag Islands hf. verður með umboð og skrifstofur á alls 142 stöðum um land allt. Á 20 stærstu stöðunum verða sér- stakar svæðisskrifstofur. Umboð verða alls 49 og fulltrúar 73. Svæðisskrifstofurnar verða í beinu tölvusambandi við höfuð- stöðvarnar í Ármúla í Reykja- vík. Pað var 19. janúar í vetur sem forsvarsmenn Brunabótar og Samvinnutrygginga undirrituðu með sér samkomulag um stofnun Vátryggingafélags fslands hf. Félagið var formlega stofnað 5. febrúar 1989. Markmiðið er að reka traust vátryggingafélag sem getur nýtt sér fyllstu hagkvæmni við starfsemina, haldið uppi eðli- legri samkeppni, tryggt sann- gjarna verðmyndun og góða vá- tryggingaþjónustu. I stofnsamningi félagsins eru ákvæði þess efnis, að stjórn þess geti ákveðið ágóðahlutdeild og úthlutað tekjuafgangi til við- skiptavinanna á sama hátt og eft- ir sömu reglum og giltu hjá Brunabótafélagi íslands og Sam- vinnutryggingum. Með því er tryggt að viðskiptavinir Vátrygg- ingafélags íslands hf. njóti þess- ara sömu réttinda og kjara og áður var vegna viðskipta þeirra við stofnfélögin. Ályktun aðalfundar Vkl. Einingar: Leiðrétting launa verið þurrkuð út með verðhækkunum Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar, haldinn í Alþýðuhús- inu á Akureyri, 11. júní 1989, bendir á að enda þótt aðeins séu liðnar sex vikur frá undirritun aðalkjarasamnings við vinnuveit- endur, hefur sú leiðrétting launa, sem verkafólk fékk þá, nú þegar verið þurrkuð út með verðhækk- unum á ýmsum helstu neysluvör- um almennings. Fundurinn bendir jafnframt á, að ríkisstjórnin átti veigamikinn þátt í gerð þessa samnings og að verkalýðsfélögin féllust á mjög litlar launabætur í trausti þess, að stjórnvöld stæðu við fyrirheit sín um að halda verðhækkunum í skefjum. Eigi að síður eru tilfinn- anlegustu verðhækkanirnar vegna aðgerða ríkisvaldsins, þ.e. aðallega með hækkunum á búvöruverði og skattheimtu á bensíni. Fundurinn leggur áherslu á, að svona framkomu af hálfu ríkisvaldsins getur verka- fólk engan veginn sætt sig við. Sé þörf á aukinni skattheimtu verð- ur hún að bitna á þeim sem breið- ust hafa bökin, það verður hver ríkisstjórn að skilja. Fundinum er ljóst, að launabilið í landinu hefur enn breikkað, m.a. vegna þess að ríkisvaldið og fyrirtæki innan Vinnuveitendasambands íslands hafa samið við fjölmenn- ar starfsstéttir um tvöfaldar og þrefaldar hækkanir á við það, sem verkafólk fékk. Verði helstu verðhækkunum að undanförnu ekki kippt til baka, geta hvorki stjórnvöld eða vinnuveitendur búist við friði á vinnumarkaði.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.