Dagur - 16.06.1989, Side 15
Föstudagur 16. júní 1989 - DAGUR - 15
fþróffir
Þór ogFHí kvöld
íþróttir helgarinnar:
Hvað gera Þórsararnir Hlynur Birgisson og Nói Björnsson gegn FH í kvöld?
- KA leikur á Skaganum - Tvö golfmót um helgina
Þaö er heilmikið um aö vera á
íþróttasviöinu um helgina og
þar ber hæst leik Þórs og FH í
1. deild karla í knattspyrnu á
grasvelli Þórs í kvöld. KA fer
suður og keppir við IA á Akra-
nesi. Heil umferð er í 2. deild-
inni og er m.a. leikið á Húsa-
vík og á Sauðárkróki. Einnig
er leikið í 3. deildinni um helg-
ina. Svo er vert að minnast á
17. júní hátíðarhöldin en þau
eru að þessu sinni í umsjá
Iþróttafélagsins Þórs.
Leikur Þórs og FH í kvöld,
föstudag, fer fram á grasvelli
Þórs og er þetta fyrsti grasleikur-
inn á Akureyri í ár. Þetta eru
ánægjuleg tíðindi og vonandi
þurfa ekki fleiri 1. deildarleikir
að fara fram á möl á þessu ári.
Það má búast við hörkuviðureign
því bæði lið þurfa nauðsynlega á
þessum stigum að halda.
Hvað er að
gerast
Knattspyrna:
Föstudagur:
1. deild t>ór-FH á Þdrsvelli kl. 20.00
2. deild Völsungur-UBK á Húsavtk kl.
20.00
2. deild Tindastóll-Víöir á Sauðárkróki
kl. 20.00
3. deild Magni-Þróttur N. á Grenivtk
kl. 20.1«)
Laugardagur:
17. júní háttöarhöld á Akureyri á veg-
um pðrs.
Lcikir í yngri llukkum, sjá dagskrá
þeirra leilija ■ iniövikudagsblaði Dags
Mánudagur:
1. deild kv. KA-Þór á KA-veilinum kl.
20.00
Golf:
l.augardag:
Gullsmiðabikarinn hjá GA að Jaöri
Sunnudag:
Lacoste-mótið að Jaðri.
Knattspyrna/4. deild:
Hvöt burstaði Eflingu
6:1 á Blönduósi
Hvöt kafsigldi Eflingu í 4.
deildinni í knattspyrnu á mið-
vikudagskvöldið á Blönduósi
6:1. Staðan var 1:0 í leikhléi en
síðan komu hvorki meira né
minna en sex mörk í síðari
hálfleik.
Axel Rúnar Guðmundsson var
drjúgur í leiknum fyrir Hvöt og
skoraði fjögur mörk. Hermann
Arason og Orri Baidursson skor-
uðu sitt markið hvor. Fyrir Efl-
ingu skoraði Svavar Hafþór
Viðarsson undir lok leiksins.
Sigur Hvatarmanna var verð-
skuldaður og hefðu mörkin hæg-
lega getað orðið fleiri hjá báðum
liðum því mönnum voru mislagð-
ar fætur upp við mark andstæð-
inganna.
Leikur Hvatar og Eflingar átti
að vera á sunnudaginn en var
breytt þar sem ekki var áhugi hjá
leikmönnum beggja liða að spila
á sunnudegi eftir 17. júní.
Fyrir Hvöt var þetta mjög
mikilvægur sigur og þá sérstak-
lega þar sem þeim tókst að skora
svona mörg mörk því þeim hefur
gengið illa tvö undanfarin ár upp
við mark andstæðinganna. Unnu
síðast svona stórt í 4. deild árið
1987.
FH-liðið kom mjög á óvart í
síðustu umferð með því að leggja
íslandsmeistara Frant að velli
2:0. Margir snjallir leikmenn
spila með liðinu og þar má t.d.
nefna gömlu Þórsarana Birgi
Skúlason og Guðntund Val Sig-
urðsson. En Þórsarar ætla að
sýna fólki að heimavöllur hefur
mikið að segja og er því vert að
hvetja sem flesta að mætá á völl-
inn til þess að styðja Þórsarana til
sigurs.
Öll norðanliðin leika í 2. deild-
inni um helgina. Völsungar fá
Breiðablik í heimsókn á Húsa-
vík. Völsungarnir hafa komið á
óvart með góðum leik og unnu
m.a. góðan sigur í Bikarnum á
Leiftri á Ólafsfirði. Blikununt
hefur hins vegar ekki gengið neitt
sérstaklega vel og verða því
heimamenn að teljast sigur-
stranglegri í þessari viðureign.
Víðtsmenn frá Garði mæta á
Krókinn og keppa við Tindastól.
Víðir vann báða leiki liðanna í
fyrra nokkuð örugglega og eru
Sauðkrækingar sjálfsagt í hefnd-
arhug.
Leiftur og Einherji leika erfiða
leiki á útivelli. Leiftursmenn fara
á Selfoss og leika þar við heima-
menn, sem eru neðstir í deild-
inni og hafa enn ekki hlotið stig.
Það má því búast viö hörkuviður-
eign. Vopnfirðingarnir halda í
Garðabæinn og keppa þar við
Stjörnuna. Stjarnan er á hörku-
siglingu og vann m.a. Reyni S.
7:0 í Bikarkeppninni. Róðurinn
verður því erfiður hjá Einherja
en þeir Vopnfirðingar eru þekkt-
ir fyrir allt annað en að gefast
upp.
I 3. deildinni fá Grenvíkingar
hið sterka lið Þróttar frá Nes-
kaupsstað í heimsókn á föstu-
dagskvöldið. Reynismenn fara á
Reyðarfjörð og keppa þar við
heimamenn. Á sunnudag keppa
Dalvíkingar við Hugin á Seyðis-
firði og Kormákur keppir við
Austra á Eskifiröi.
Það eru margir leikir í yngri
flokkunum en dagskrá allra
þeirra leikja birtist í Degi á ntið-
vikudaginn og er fóiki bent á að
kynna sér þá leiki því þeir eru
þess virði að horfa á þá.
Golfarar eru nú að fara á fullt
og unt helgina verða tvö mót hjá
GA-mönnum að Jaðri. Á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní fer frant
Gullsmiðabikarmótið og á
sunnudag 18. júní verður
Lacoste-mótið. Verður á báðum
mótunum keppt í meistara- og 2.
flokki. Annar flokkur er fyrir
nýliða eða golfara með forgjöfina
28-36 og er þá keppt með forgjöf.
í meistaraflokki er hins vegar
bæði keppt með og án forgjafar.
Bæði mótin hefjast kl. 9.00.
Vert er að minnast á að Þórsar-
arsjá um 17. júní hátíðarhöldin á
Akureyri að þessu sinni. Það
verður heilmikið um að vera á
íþróttavellinum og Þórsarar
verða með sölutjöld þar og einnig
í göngugötunni og þar selja þeir
blöðrur og fána og annað það
sem tilheyrir þjóðhátíðardegin-
um. Fyrir þá sem vilja vera fyrr á
ferðinni verða Þórsarar einnig
með slíka sölu á leiknum Þór-FH
á föstudagskvöldið og er tilvalið
að ljúka því af að kaupa biöörur
og fána fyrir litlu og stóru börnin
þannig að strax að morgni þjóð-
hátíðardagsins er hægt að veifa
blöðrum og fánum og komast
þannig í þjóðhátíðarskap.
Knattspyrna/Bikarkeppni kvenna:
Létt hjá Þórsurum
- unnu Dalvík 9:0 á útivelli
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Jafntefli hjá
Jóni og Þormóði
Jón Stefánsson í bókhaldinu hjá KEA og KA-maðurinn Þormóð-
ur Einarsson gerðu stórmeistarajafntefli í getraunaleiknum í
síðustu viku. Þeir höfðu hvorki meira né minna 9 rétta og er það
besti árangur sem náðst hefur í getraunaleiknum. Hins vegar
má ekki horfa fram hjá því að seðillinn var alíslenskur og frekar
léttur og ekki mikið um óvænt úrslit.
Þeir félagar mætast því aftur og nú er seðilinn mun þyngri.
Aðeins stórleikur Fram og Vals er frá íslandi en hinir úr þýska
boltanum og svo tveir leikir úr norsku knattspyrnunni og er það
í fyrsta skipti sem frændur vorir, Norðmenn, eru á íslenskum
getraunaseðli. En lítum á spá sérfræðinganna:
Jón:
Fram-Valur x
B.Munchen-Bochum 1
W.Bremen-Stuttgart 1
M.GIadbach-Hamborg x
Mannheim-Köln 2
B.Dortmund-Karlsruhe 1
Hannover-E.Frankfurt 1
St.Kickers-Nurnberg 2
St.Pauli-Uerdingen 2
B.Leverkusen-Kaisersl. x
Kongsvinger-Brann x
Rosenborg-Viking________ 1
Þormóður:
Fram-Valur x
B.Munchen-Bochum 1
W.Bremen-Stuttgart x
M.GIadbach-Hamborg 1
Mannheim-Köln 2
B.Dortmund-Karlsruhe 1
Hannover-E.Frankfurt 2
St.Kickers-Nurnberg x
St.Pauli-Uerdingen 1
B.Leverkusen-Kaisersl. 1
Kongsvinger-Brann x
Rosenborg-Viking 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Dalvíkurstelpurnar höfðu ekki
mikið í 1. deildarlið Þórs að
gera í Bikarkeppninni á Dai-
víkurvelli. Akureyrarstúlkurn-
ar sigruðu 9:0 eftir að hafa leitt
5:0 í leikhléi. Dalvíkurstúlk-
urnar börðust vel en getumun-
urinn á þessum tveimur liðum
var hreinlega of mikill.
Dalvík átti aldrei möguleika
gegn Þórsurum og var þetta ein-
ungis spurning hve stór sigur Þórs
íþróttir fatlaðra:
Sigurrós með gull og silfur
- á NM í sundi
Sigurrós Karlsdóttir var önnur
keppenda frá Akureyri sem
þátt tók í Norðurlandamóti
fatlaðra íþróttamanna sem
haldið var í Vestmanneyjum
nýlega.
Hún stóð sig mjög vel á mótinu
og hlaut silfurverðlaun í 100 m
bringusundi, ekki bronsverðlaun
eins og stóð Degi á miðvikudag-
inn, og þar að auki hlaut hún
gullverðlaun fyrir boðsund. Sem
sagt, eitt silfur og eitt gull hjá Sig-
urrósu Karlsdóttur.
yrði. Mörkin urðu sem sagt níu
áður en yfir lauk og sáu eftirtald-
ar stúlkur um mörkin: Ellen Ósk-
arsdóttir 2, Þórunn Sigurðardótt-
ir 2, Sigríður Pálsdóttir, Steinunn
Jónsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir,
Anna H. Gunnarsdóttir og Ingi-
björg Júiíusdóttir eitt hver.
Þrátt fyrir þetta tap geta Dal-
víkurstúlkurnar vel við unað því í
liði þeirra eru margar efnilegar
stúlkur en þær vantar tilfinnalega
leikreynslu.
1. deild
Valur 4 3-1-0 4:0 10
KA 4 2-2-0 7:2 8
FH 4 2-1-1 4:2 7
ÍA 4 2-0-2 4:5 6
Þór 4 1-2-1 3:4 5
Fylkir 4 1-1-2 5:5 4
Frain 4 1-1-2 3:6 4
KR 4 1-1-2 5:9 4
ÍBK 4 0-3-1 4:5 3
Víkingur 4 1-0-3 2:3 3
2. deild
Stjarnan 3 2-1-0 5:2 7
ÍBV 3 2-0-1 5:3 6
Víðir 3 1-2-0 2:1 5
Breiðablik 3 1-1-1 5:3 4
Völsungur 3 1-1-1 5:4 4
ÍR 3 1-1-1 4:4 4
Tindastóll 3 1-1-1 3:3 4
Einherji 3 1-1-1 3:5 4
Leiftur 3 0-2-1 2:4 2
Selfoss 3 0-0-3 1:6 0
3. deild-B
Þróttur N. 3 3-0-0 9: 2 9
KS 3 2-1-0 9: 1 7
Dalvík 3 2-0-1 4: 2 6
Reynir Á. 2 1-1-0 3: 2 4
Huginn 2 1-0-1 3: 3 3
Kormákur 3 1-0-2 5:11 3
Magni 1 0-0-1 0: 1 0
Austri 2 0-0-2 0: 3 0
Vaiur Rf. 3 0-0-3 1: 9 0