Dagur - 16.06.1989, Side 16
M
Haldið veisluna eða fundinn .«V//
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur. i
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Norðurland:
Grálúðuaflinn heldur minni
- en á sama tíma í fyrra - heildarafli
landsmanna þó orðinn mun meiri
Grálúðuaflinn í maí var 29.794
tonn og þá var heildar gráð-
lúðuaflinn orðinn 41.731 tonn,
samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Fiskifélagi íslands.
Á sama tímabili á síðasta ári
var grálúðuaflinn orðinn 34.235
tonn. Sem dæmi um mikilvægi
þessa aflafengs, má benda á að
allt árið 1988 var grálúðuaflinn
49.047 tonn og að á því ári gaf
grálúðan miðað F.o.b. kr.
2.232.486.607,- í gjaldeyristekj-
ur.
Togarar á Norðurlandi veiddu
heldur minna af grálúðu í síðasta
mánuði, enn á sama tíma í fyrra,
eða alls 8.429 tonn á móti 9.293
tonnum í maí 1988. Frá áramót-
um hafa norðlenskir togarar
landað alls 11.306 tonnum af
grálúðu en á sama tímabili í fyrra
var aflinn orðinn ívið meiri, eða
11.339 tonn. -KK
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Haustönn hefst viku
Laxarnir 200 komnir inn fyrir Múla og svamla í Hrísatjörn. Siguröur Jónsson
sleppir löxunum í vatniö, en á innfelldu myndinni heldur Símon Ellertsson á
laxi, sem veiðimenn ln'tast um í sumar. Mynd: JÓH
Afglapar sleppa 200 löxum og 400 bleikjum í Hrísatjörn:
Veiðimenn geta átt von
á stórlöxmn á önglana
- ætlunin að sleppa um 200 löxum til viðbótar síðar í sumar
eftir lok vorannar
- kennt af krafti frá 26. ágúst til 5. september
Afglapar á Dalvík slepptu tæp-
lega 200 löxum og 400 bleikj-
um í Hrísatjörn við Dalvík í
fyrradag. Laxarnir eru um 3-4
pund á stærð og koma þeir frá
Óslaxi í Ólafsfirði. Bleikjurnar
voru hins vegar fluttar frá
Blönduósi en það er nýmæli
hjá þeim Afglapafélögum að
sleppa silungi í Hrísatjörn.
Símon Ellertsson, einn af
Afglöpum, segir að í vor hafi
komið bleikja í net í tjörninni
sem sýni að silungur lifi þar allt
árið. í fyrra hafl þeir félagar
sleppt um 300 löxum í tjörnina
en í sumar verði í heild sleppt
um 400 löxum í Hrísatjörn og
400 bleikjum.
Sala veiðileyfa byrjar á sunnu-
dag. Ætlunin er að selja hálfa og
heila daga en hálfur dagur kostar
1500 kr. og má fyrir þann pening
Hjá lögreglunni á Sauðárkróki
er búið að upplýsa all mikið
ávísanafals, eftir margar yfir-
heyrslur. Þaö var í vetur sem
þetta mál kom fyrst upp þegar
ávísanir komu í banka í
Reykjavík. Nokkru seinna
komu í Ijós ávísanir úr sama
hefti á Sauðárkróki og var þá
hafist handa af fullum krafti að
rannsaka málið. Við rannsókn
kom í Ijós að tékkheftið fannst
á Siglufirði, en var ekki stolið.
AÍls voru það um 50 þúsund
veiða þrjá laxa og ótakmarkað af
bleikju.
„Við erum búnir að auka
rennsli í tjörnina og hækka vatns-
borðið þannig að skilyrði fyrir
fiskinn eru mjög góð,“ sögðu þeir
Júlíus Snorrason og Símon Ell-
ertsson í samtali við blaðið þegar
búið var að sleppa löxunum 400 í
Hrísatjörn. Veiðileyfasala verður
í Sæluhúsinu á Dalvík og segja
þeir félagar að ætlunin sé að leyfa
veiðar eins lengi fram á haust og
veður leyfi.
„Þetta gekk mjög vel í fyrra og
ég held að það hafi verið miklu
meira af aðkomufólki en heima-
fólki sem fékk sér veiðileyfi. Og
þetta vakti mikla athygli vegfar-
enda því að á tímabili þegar best
gekk skapaðist hálfgert umferð-
aröngþveiti á veginum við tjörn-
krónur sem voru skrifaðar út úr
tékkheftinu, og mest af þeirri
upphæð notað til áfengiskaupa.
Það eru ungmenni frá Sauðár-
króki sem áttu hér hlut að máli,
allt niður í 15 ára að aldri.
Þá hefur lögreglan á Sauðár-
króki náð að upplýsa bensín-
þjófnað af bílum og skemmdar-
verk á bílum, sent bar mikið á
fyrir nokkru. Það voru ungir
menn sem voru þar að verki. Að
sögn lögreglu eru enn að koma
upp mál af þessu tagi, sem ekki
hefur tekist að upplýsa. -bjb
Veiðimenn í Hrísatjörn geta
átt von á að verða verðlaunaðir
fyrir veiðina því innan tíðar
verður sleppt 10-20 kóngalöxum í
Tjörnina, þ.e. fiskunr sem vega
um 10-12 pund, og fá menn verð-
laun fyrir að ná þeim á land.
JÓH
Mjög fjölmenn hagsmuna-
samtök verða stofnuð næst-
komandi mánudag. Hér er um
að ræða stofnfund Landssam-
bands eldri borgara, sem hald-
inn verður á Hótel KEA kl.
12.30. Á fundinn mæta full-
trúar frá flestum starfandi
félögum aldraðra á landinu, en
farið var fram á að stofnfund-
urinn yrði haldinn á Akureyri
og var orðið við þeirri ósk.
Aðalsteinn Óskarsson, for-
maður Félags aldraðra á Akur-
eyri, sagðist ekki telja að öll félög
aldraðra á landinu gerðust aðilar
að Landssambandinu á þessum
stofnfundi, en hann bjóst þó við
að um síðir myndu öll félögin sjá
sér hag í því að ganga í slík heild-
arsamtök.
Víða í kaupstöðum landsins
eru starfrækt félög aldraðra og að
sögn Aðalsteins eru að minnsta
kosti 14 þúsund manns í þessum
félögum, þannig að ljóst er að
hér gæti orðið um öflug og fjöl-
menn landssamtök að ræða.
„Markmiðið er fyrst og fremst
Nemendur Verkmenntaskól-
ans á Akureyri munu byrja
skólaáriö óvenju snemma
næsta haust, en nýnemar byrja
þó viku seinna en vant er.
Þetta stafar auðvitað af þeirri
röskun sem varð á skólastarf-
inu í verkfalli kennara og var
Baldvin Bjarnason, settur
skólameistari VMA, beðinn að
gera grein fyrir upphafi næsta
skólaárs.
„Samkvæmt samþykkt kenn-
arafundar og reyndar samþykki
nemenda líka, þá hefst skólinn
laugardaginn 26. ágúst. Kennt
verðúr 10 daga samfleytt í þessari
lotu, nema hvað nemendur fá frí
sunnudaginn 3. september. Síð-
asti dagur þessa tímabils er því 5.
september og verður kennt eftir
það að reyna að sameina krafta
þessa fólks til að ná fram ýmsum
málum til hagsbóta fyrir eldri
borgara, því víða kreppir skórinn
að, bæði hjá þeim og öðrum,“
sagði Aðalsteinn.
Hráeinisskortur hefur háð
Fiskiðju Raufarhafnar nokk-
uð, sérstaklega síðan ísfisktog-
ari Útgerðarfélags Noröur-
Þingeyinga á Þórshöfn, Súlna-
fell, var seldur. Súlnafellið
lagði upp hluta af afla sínum
hjá Fiskiðjunni. En nú hyggst
útgerðarfélagið Jökull hf. á
Raufarhöfn leysa þetta vanda-
mál.
Jökull hefur fest kaup á
Jóhönnu Magnúsdóttur RE, sem
er 36 tonna eikarbátur, í því
skyni að tryggja kvóta og þar
stundaskrá vorannar. Um 20-
30% af námsefni vorannar var
eftir og þarna á að taka upp
þráðinn. Þessu tímabili lýkur
með mati, og síðan verður gefnar
sameiginlegar einkunnir fyrir
vorið og þetta aukatímabil,“
sagði Baldvin.
Hann sagði að haustönnin
myndi síðan hefjast mánudaginn
11. september, sem þýðir að
nýnemar byrja viku seinna í
skólanum en vant er. Nemendur
sem ljúka vorönn á þessu tíma-
bili, sem stendur til 5. september,
fá þvj frí í tæpa viku áður en þeir
hefja nám á haustönn.
„Þetta var besta lausnin sem
menn fundu eftir mjög alvarlega
yfirvegun og mikil fundarhöld,"
Félag aldraðra á Akureyri mun
síðan bjóða öllum fundarmönn-
um til samsætis í Húsi aldraðra
þar sem fólki gefst kostur á að
kynnast hvert öðru betur og ræða
málin. SS
með hráefni til vinnslu í Fiskiðju
Raufarhafnar. Kvóti bátsins er
um 300 tonn en frekari bátakaup
munu einnig vera í bígerð.
Hólmsteinn Björnsson er
framkvæmdastjóri beggja fyrir-
tækjanna, en eins og við höfum
greint frá skilaði Jökull 18 millj-
óna króna hagnaði á síðasta ári.
Fyrirtækið gerir út togarann
Rauðanúp ÞH-160, en með báta-
kaupunum er verið að stuðla að
því að Fiskiðja Raufarhafnar fái
nóg hráefni til að tryggja stöðuga
vinnslu. SS
ina,“ segir Júlíus.
Sauðárkrókur:
Nokkur ungmenni
fölsuðu ávísanir
- alls um 50 þús. krónur
sagði Baldvin. SS
Akureyri:
Stofnfundur Landssambands
eldri borgara á mánudag
- mjög ijölmenn hagsmunasamtök í burðarliðnum
Raufarhöfn:
Jökuil hf. kaupir bát