Dagur - 06.07.1989, Side 3
Fimmtudagur 6. júlí 1989 - DAGUR - 3
Framkvæmdir við fyrsta hringtorgið á Akureyri eru í fullum gangi og verður það tilbúið til að taka við bílaumferð
um miðjan mánuðinn. Mynd: kl
Nýtt umferðarmannvirki a Akureyri:
Ekið um hringtorg
innan tíðar
þangað til raskast umferð um Hörgárbraut
Framkvæmdir við hringtorg á
mótum Hörgárbrautar og
Undirhlíöar á Akureyri ganga
vel og aö sögn Gunnars
Jóhanncssonar hjá tæknideild
Akureyrarbæjar er búist við að
umferð komist á um torgið upp
úr annarri helgi, þ.e. eftir 16.
júlí. Fram að þeim tíma verður
röskun á hefðbundinni
akstursleið á þessum slóðum.
„Við þurfum að fara að loka
núna. Sennilega verðum við fyrst
með tvístefnuakstur á Hörgár-
brautinni vestan megin suður að
Höfðahlíð og lokum akreininni
að austanverðu og niður í Holtin.
Pá malbikum við austurpartinn
og eftir það verður annað hvort
alveg lokað eða tvístefnuakstur
að austanverðu,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að hringtorgið yrði
ekki fullfrágengið strax þótt
umferð yrði hleypt á, en þarna
verða steyptir kantsteinar og
grasi gróið torg í miðjunni. En
hvað kostar eitt stykki hringtorg?
Gunnar sagði að kostnaðaráætl-
unin hljóðaði upp á 5,4 milljónir
króna.
Upp úr miðjum þessum mán-
uði þurfa þeir Akureyringar sem
ekki hafa ekið á hringtorgum að
læra þær reglur sem þar gilda.
Þumalfingursreglan um hættu frá
hægri gildir ekki því þeir sem eru
í innri hringnum eiga ávallt
réttinn. Til fróðleiks má geta þess
að í Frakklandi er þessu öfugt
farið. Þar virðist mönnum sem
frumskógarlögmálið gildi en í
raun byrjar rétturinn utan frá á
hinum viðamiklu hringtorgum
þar í landi, en hér hefur umferð í
innri hringnum forgang. SS
Frá hafnarframkvæmdunum á Vopnafírði. Mynd: já
Vopnaflörður:
Nýr hafliargarður
ÓlafsQörður:
Byijað að
maJbíka í gær
- malbik lagt á
7500 fermetra
Malbikunarframkvæmdir hóf-
ust í Ólafsfirði í gær og er áætl-
að að malbika um 7500 fer-
metra í bænum. Malbikið er
keypt af Akureyrarbæ og sér
flokkur manna frá Akureyri
um að leggja malbikið.
Byrjunarreitur malbikunarinn-
ar í gær var tenging Bylgjubyggð-
ar og Hrannarbyggðar. Síðan
verður lagt malbik á Ægisbyggð,
slaufur við Ólafsveg, Hafnar-
götu, Strandgötu og loks Brekku-
götu.
Að sögn Þorsteins K. Bjöms-
sonar, bæjartæknifræðings, er
áætlað að taki fimm daga að
leggja malbikið og því ætti fram-
kvæmdum að verða lokið á mánu-
dag. óþh
DAGIJR
Sauðárkróki
0 95-35960
Norðlenskt dagblað
í sumar hafa staðið yfir
umfangsmiklar endurbætur á
höfninni á Vopnafirði, sem
einkum felast í því að byggja
nýjan varnargarð innan við
þann gamla, sem mjög hefur
látið á sjá.
Nýlega var viðlegukantur
hafnarinnar lengdur með stálþili
og við það jókst öll hreyfing í
höfninni í stórviðrum. Að sögn
Sveins Guðmundssonar sveitar-
stjóra er hugmyndin að gamli
garðurinn taki mesta kraftinn úr
ágangi sjávar en sá nýi sjái svo
um afganginn. Að sögn Sveins
binda menn miklar vonir við
þennan nýja kant.
Verkið er að mestu leyti unnið
af heimamönnum, en undir
stjórn manns frá Vita- og hafna-
málastofnun. Gert er ráð fyrir að
því ljúki í haust. ET
VopnaQörður:
Brettingur bilaði
í upphafi
veiðiferðar
Brettingur NS, togari Vopn-
firðinga, bilaði í upphafi veiði-
ferðar fyrir síðustu helgi. Raf-
all fyrir togspil bilaði og var
skipið sent til viðgerðar í Hafn-
arfiröi.
Talið er að svokallað ankeri
hafi farið í rafalnum og cf aðeins
er um það að ræða cr vonast til
að viðgerð Ijúki nú í vikumi. Þó
svo að Brettingur sé eini togarinn
á Vopnafirði þá setur nokkurra
daga fjarvera hans ekki alvarlegt
strik í reikninginn því afli smá-
báta hcfur verið mjög góður að
undanförnu.
Brettingur er einn hinna svo-
kölluðu Japanstogara sem á
undanförnum árum liafa verið í
gífurlegum breytingum og endur-
bótum í Póllandi. Af einhverjum
ástæðum hcfur þessi sami spilraf-
all bilað í allmörgum þessara
skipa. EíT
Í.D.L.
Félagsfundur
verður haldinn í Skeifunni, sunnudaginn 9. júlí
kl. 20.30.
Fundarefni:
Deildarmót og bikarmót.
Önnur mál.
Stjórnin.
—
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Glerá, 600 Akureyri.
Á jörðinni er steinsteypt íbúðarhús, hæð og kjallari.
Stærð 130 fm. Ný uppgert.
Heyhlaða 600 rúmmetrar.
Landsstærð, afrétt (beitiland), fjall (heimaland), sameign
Glerár, Akureyrarbæjar og Hlíðarenda.
Hlutur Glerár í sameigninr! er 7/i8, sama sem 1.960 hektarar.
Afgirt heimaland 112 hektarar og tún 16.60 hektarar.
Hlunnindi, malarnám ca. átta hundruð þúsund rúmmetrar
(viðmiðunartala).
Jörðin selst í því ástandi sem hún er með gögnum og gæð-
um sem henni fylgja.
Allar upplýsingar veittar í síma 96-22372 milli kl. 16.00 og
19.00 e.h. Magnús og í síma 91-27602 milli kl. 18.00 og
20.00 Torfi.
AKUREYRARB/ÆR
Framkvæmdasjóður Akureyrar-
bæjar auglýsir til sölu húseign-
ina Fjölnisgötu 4 b.
Húsiö er nýlegt iðnaðarhúsnæði
samtals 381 fm að stærð.
Tilboð sendist Atvinnumálanefnd
Akureyrar fyrir 10. júií nk.
4
III n
Skógræktarferð!
Munið skógræktarferðina að Hólum í Öxnadal, laug-
ardaginn 8. júlí.
Hittumst að Holum kl. 13.00.